Fréttablaðið - 03.01.2005, Síða 56

Fréttablaðið - 03.01.2005, Síða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Dreifing: 515 7520 Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 – fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Sendu SMS skeytið JA TBF á númerið 1900 og þú gætir unnið. SMS LEIKUR Vinningar eru miðar á myndina TAXI, DVD myndir og margt fleira. Bíómiði á 99 kr? 9. HVER VINNUR! Í B ÍÓ 6 .JA N. 99 kr/skeytið Ævintýra- veröld Gleðilegt ár, góðir lesendur! Ígrófum dráttum skiptist fólk í tvo hópa um hver áramót. Í öðrum hópnum eru þeir sem muna og geta utanbókar þulið afglöp stjórnmála- manna, og slys og hörmungar að minnsta kosti 12 mánuði aftur í tím- ann. Í hinum hópnum eru þeir sem geta ekki fyrir sitt litla líf rifjað upp nokkurn skapaðan hlut utan síns persónulega reynsluheims. Sá sem hér heldur á penna er því miður í síðarnefnda flokknum, svo að það sem kunnugir halda að sé umburðar- lyndi er í raun og veru gleymska. HVAÐ SVO SEM öllum hörmung- um líður og af þeim er meira en nóg í veröldinni þá er þessi hættulegi og ótryggi dvalarstaður mannkynsins einnig smekkfullur af alls konar dá- semdum og ævintýrum. Í breska blaðinu „Sjálfstæðismaðurinn“ (The Independent) birtist um áramótin upptalning á 25 girnilegustu ævin- týraferðum sem ferðaskrifstofur bjóða upp á að mati blaðsins. Athygl- isvert var að tvö af þessum ævintýr- um er boðið upp á í landinu okkar. ÞARNA kennir margra grasa. Boð- ið er upp á úlfaldaveðreiðar í Ástral- íu, haustlitaferð að skoða momiji- lauf í Japan, villidýraskoðun í Seren- geti-garðinum í Tansaníu, leirbað í kólumbísku eldfjalli, kvöldverð á frægu veitingahúsi í Zanzibar, skíða- ferðir með þyrlu í Kanada, sund- sprett með hákörlum í Belís, báts- ferð eftir ánni Lenu yfir Síberíu, skoðunarferð um Taormínu á Sikiley, hrossapóló í Búenos Aires, górillu- skoðun í Úganda, sólmyrkva í Ma- dríd 3. okt. nk., píramída í Tíkal í Gvatemala, hjarngolf á Grænlandi, hvalaskoðun í Suður-Afríku, skíða- brun í St. Moritz í Sviss, hvítabjarn- arskoðun í Churchill í Kanada, að skoða Kristsstyttuna í Ríó úr þyrlu, vatnsbrettaferð um Murray-ána í Ástralíu, skoðunarferð um Ham- atoura-klaustrið í Líbanon, skíðaferð um SkyVenture-vindgöngin í Or- lando í Flórída, og æsilegasta rútu- ferð veraldar liggur um sjávarsíð- una á Mæjorku norðanverðri. ÍSLENSKU ÆVINTÝRIN sem „Sjálfstæðismaðurinn“ mælir með við lesendur sína eru vélsleðaferðir um íslenska jökla og pysjuskoðun í Vestmannaeyjum. Við sem hérna búum vitum þó að hér er hægt að gera margt fleira skemmtilegt. Við erum lánsöm þjóð. BAKÞANKAR ÞRÁINS BERTELSSONAR 56 (32) Bak 2.1.2005 20:13 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.