Fréttablaðið - 22.01.2005, Blaðsíða 2
HEILBRIGÐISMÁL Íslenskir karlmenn
sækja í hormónameðferð svo að
þeim gangi betur að takast á við
það breytingaskeið sem þeir
ganga í gegnum á miðjum aldri,
að sögn
lækna sem
Fréttablaðið
hefur rætt
við.
„ Þ e t t a
læknisfræði-
lega heil-
kenni, sem
e i n k e n n i s t
meðal ann-
ars af
þ r e y t u ,
f r a m t a k s -
leysi, jafnvel
depurð og
þunglyndi og
„gráum fiðr-
ingi“, hefur
verið kallað „andropos“ eða breyt-
ingaskeið karla,“ sagði Guðjón
Haraldsson, þvagfæra- og skurð-
læknir, einn þeirra lækna sem
fást við karlalækningar. „Þetta
kemur einmitt á þeim árum sem
miklar breytingar verða á félags-
legri stöðu. Nær fimmtugu líta
karlar gjarnan til baka, búnir að
ljúka ákveðnum hluta af sínu ævi-
verki. Þeir hafa kannski verið í
föstu sambandi alla sína tíð, börn-
in farin að heiman og þeim finnst
kannski að þeirra hlutverk sem
fyrirvinnu heimilisins hafi sett
niður.“
Guðjón sagði vitað að testó-
sterónmagnið í blóði karla minnk-
aði með nokkuð jöfnum takti frá
kynþroskaaldri. Áttræðir karl-
menn væru til dæmis með mjög
svipað kynhormónamagn eins og
strákar fyrir kynþroska. Mörgum
liði betur eftir að þeim hefði verið
gefið karlkynhormón.
„Nokkuð er um að karlar fái
kynhormón,“ sagði Guðjón. Hann
segir þetta vera langtímameð-
ferð, til dæmis með sprautum á
mánaðarfresti, og eins eru til
hormónaplástrar og testósteróng-
el, sem smurt er á upphandlegg,
bak eða læri, og er það gert dag-
lega. Stutt er í nýtt lyfjaform, sem
er forðahylki, sem gefið er á 3ja
mánaða fresti.
Bæði minnkuð kyngeta og
kynáhugi tengjast minnkuðu
magni af kynhormóni. Þegar það
dalar er það almennt viðbragð að
menn missa áhuga og þá um leið
getuna.
„Það hefur verið fullyrt í
blaðagreinum að pcb og önnur
umhverfisefni sem eru til dæmis
afleiðingar af plast- og olíuiðnaði,
efni sem brotna mjög hægt niður
og geta safnast fyrir í líkaman-
um, hafi áhrif á hreyfanleika
sæðisfrumna og valdi ófrjósemi.
Það er vitað að þetta hefur áhrif á
hreyfanleika sæðisfrumna, en ég
hef ekki séð þessar fullyrðingar
staðfestar með tölum eða rann-
sóknum,“ sagði Guðjón.
jss@frettabladid.is
2 22. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Afsökunarbeiðni í New York Times:
Ekki minnst á Gallup
STJÓRNMÁL Auglýsing Þjóðarhreyf-
ingarinnar þar sem íraska þjóðin
er beðin afsökunar á stuðningi ís-
lenskra stjórnvalda við innrásina
í Írak birtist í New York Times í
gær. Auglýsingin birtist á blað-
síðu 17 í aðalblaðinu. „Hún er á
mjög góðum stað á hægri síðu, ná-
lægt leiðaraopnuninni,“ segir
Ólafur Hannibalsson, talsmaður
Þjóðarhreyfingarinnar.
Í upphaflegum texta auglýs-
ingarinnar sem birst hafði í ís-
lenskum fjölmiðlum var skírskot-
að til að 84% Íslendinga hefðu
sagst styðja að nafn Íslands væri
máð af lista hinna viljugu þjóða í
nýlegri könnun Gallup.
Gallup er hins vegar ekki nefnt
á nafn í auglýsingu sem birtist í
New York Times í gær. Gallup
hafði í yfirlýsingu bent á að ekki
mætti nota niðurstöður úr Þjóðar-
púlsinum í auglýsingum. Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra seg-
ir að hann fagni því að þessum
kafla í íslenskum stjórnmálum sé
lokið. „Fyrr á árum var gengið frá
Keflavík til Reykjavíkur til að mót-
mæla varnarsamstarfi Íslands og
Bandaríkjanna, nú er birt auglýs-
ing í The New York Times.“ - ás
Karlar sækja í
hormónameðferð
Íslenskir karlar fara í síauknum mæli í kynhormónameðferð þegar þeir fara
að kenna einkenna breytingaskeiðsins. Þau eru helst þreyta, framtaksleysi og
depurð, jafnvel þunglyndi, sem og minnkandi áhugi og geta til kvenna.
Hollensk kona:
Unir dómi
DÓMSMÁL 27 ára hollensk kona,
sem var í Héraðsdómi Reykjavík-
ur dæmd í eins árs fangelsi fyrir
kókaínsmygl í nóvember síðast-
liðnum, hefur ákveðið að una
dómnum.
Hún ákvað að áfrýja ekki
dómnum þar sem hún yrði hvort
sem laus úr haldi þegar niður-
staða kæmi úr Hæstarétti en út-
lendingar þurfa aðeins að sitja
inni helming refsingarinnar. Hún
smyglaði innvortis 235 grömmum
af kókaíni og afhenti þau íslensk-
um manni á hóteli í Reykjavík eft-
ir að hafa náð efnunum úr líkama
sínum. Þau voru bæði handtekin á
hótelinu.
- hrs
Þjóðleikhúsið:
Hilmir Snær
hættir
LEIKHÚS Hilmir Snær Guðnason
sagði upp föstum samningi sínum
við Þjóðleikhúsið
í byrjun vetrar,
eftir rúma ára-
tuga fastráðn-
ingu. Á þeim tíma
hefur hann leikið
fjölmörg burðar-
hlutverk í leikrit-
um hússins.
Hilmir segir
uppsögnina ekk-
ert með Tinnu
Gunnlaugsdóttir,
núverandi leik-
hússtjóra, að
gera, enda hafi
hann sagt upp
áður en ljóst var hver tæki við
leikhúsinu. „Ég er bara aðeins að
losa mig um, en mun klára þennan
vetur.“ Næsta haust mun hann
setja upp sýningu ásamt Stefáni
Baldurssyni, auk þess segir hann
að möguleiki sé á að hann fái
verkefni erlendis. „Það er þó ekki
loku fyrir það skotið að ég leiki
áfram í Þjóðleikhúsinu.“ - ss
Þrír menn ákærðir:
Veiddu 116
tonn án kvóta
LÖGREGLUMÁL Ríkislögreglustjóri
hefur höfðað opinbert mál gegn
þremur mönnum fyrir að hafa á
tímabilinu 3. september 2001 til 27.
mars 2002 gert skip út frá Ólafsvík
án veiðiheimilda og veitt rúmlega
116 tonn af þorski.
Þeim er einnig gefið að sök að
hafa veitt ufsa, löngu, skarkola,
þykkvalúru, keilu og steinbít um-
fram aflaheimildir skipsins. Málið
verður tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjaness og krefst Ríkislög-
reglustjóri þess að mennirnir verði
dæmdir til refsingar. ■
SPURNING DAGSINS
Jón, ertu svekktur yfir að hafa
tapað titlinum?
„Ég er alveg miður mín og þarf greini-
lega að vera duglegri í ræktinni.“
Jón Ólafsson tónlistarmaður var kosinn kyn-
þokkafyllsti karlmaður landsins af hlustendum
Rásar tvö í fyrra en í gær hreppti Frosti Reyr
Rúnarsson þennan eftirsóknarverða titil.
Jón Gunnar Hannesson læknir:
Ráðleggur breyttan lífsstíl
HEILBRIGÐISMÁL Mikilvægt er að
hlusta á karla sem hafa einkenni
minnkandi karlhormóns og
breytingaskeiðs og gefa þeim
góð og lífsstílsbreytandi ráð,
segir Jón Gunnar
Hannesson heimilis-
læknir. Hann hefur
fengist við að hjálpa
körlum sem hafa átt
við andleg og líkamleg
vandkvæði að stríða
vegna umræddra ein-
kenna og þeim vanda-
málum sem því fylgja.
„Þar kemur ýmis-
legt í ljós, bæði andlegt
og líkamlegt, einkum
þó það að karlar
minnka mjög fram-
leiðslu á antrogen-
hormónum, testoster-
oni fyrst og fremst þeg-
ar þeir komast yfir 40 – 45 ára
aldur,“ sagði Jón Gunnar. „Undir
þeim kringumstæðum getur
ýmislegt siglt í kjölfarið, sér-
staklega hvað varðar andlegu
hliðina. Karlar verða framtaks-
lausir og jafnvel þunglyndir. Við
erum ekki minnst að
huga að þessum þætti.“
Jón Gunnar sagði að
blöðruhálskirtisvanda-
mál væru býsna algeng.
Þau gætu verið tengd
kynsjúkdómaslysum
sem gerðu blöðruháls-
kirtissvæðið við-
kvæmara, en einnig
fylgjandi hækkandi
aldri.
„Þetta erum við farin
að skoða, bæði með blóð-
mælingum til að finna
hugsanleg krabbamein,
en fyrst og fremst með
því að liðsinna körlum í
vandamálum þeirra, til dæmis
með hormónalyfjum.“ -jss
HEIMILIS-
LÆKNIRINN
Jón Gunnar Hann-
esson hefur í tölu-
verðum mæli
stundað karlalækn-
ingar.
GUÐJÓN
HARALDSSON
Vandamálin geta verið
merki um að annað sé
undirliggjandi, svo sem
blöðruhálskrabbamein.
BREYTINGASKEIÐIÐ
Karlar fara á breytinga-
skeið. Um heilbrigðis-
mál karla hefur verið
fjallað á ráðstefnum.
HILMIR SEM
HAMLET
Hilmir Snær setur
upp sýningu með
Stefáni Baldurssyni
næsta haust og
stefnir á verkefni
erlendis.
AUGLÝSINGIN Í NEW YORK TIMES
Þess krafist að Ísland verði tekið af lista
staðfastra þjóða.
KARPAÐ FYRIR FUND
Finnbjörn Hermannsson, formaður
Samiðnar, Ingvar Sverrisson, lögmaður Al-
þýðusambandsins, og Þórarinn V. Þórarins-
son, lögmaður Impregilo, ræðast hér við.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Bruninn í Hringrás:
Skerpa þarf
á reglum
BRUNAVARNIR Skerpa þarf á þving-
unarúrræðum sem slökkviliðs-
stjórar geta gripið til í lögum ef
slökkviliðsstjóri telur að um al-
mannahættu sé að ræða. Þetta er
meðal niðurstaðna í skýrslu sem
Brunamálastofnun vann að beiðni
umhverfisráðuneytis eftir brun-
ann á athafnasvæði Hringrásar
við Klettagarða í nóvember.
Brunamálastofnun telur litlar
líkur á að svipaðir atburðir gerist
aftur en telur að fræða þurfi eig-
endur atvinnufyrirtækja um eigin
ábyrgð og auðvelda þeim að koma
á innra eftirliti með brunavörn-
um. - bs
Starfsmenn:
Allir jafnir
séu lög virt
KÁRAHNJÚKAR Ekki verður óskað
eftir undanþágu frá íslenskum
lögum til að auka samkeppnis-
hæfni Íslendinga að störfum á
Kárahnjúkum. Slíkt er þekkt í ná-
grannalöndunum vegna kaup-
skipa. Sjómannafélög óska sam-
bærilegra laga hér.
Finnbjörn Hermannsson, for-
maður Samiðnar, segir aldrei hafa
komið til umræðu að óska eftir
undanþágu: „Við lítum svo á að
Impregilo sé ekki að fara eftir ís-
lenskum skattalögum. Ef fyrir-
tækið færi að þeim sætu allir við
sama borð.“ - gag
Impregilo:
Enn
ágreiningur
KÁRAHNJÚKAR Fundur Impregilo og
verkalýðsfélaga leysti ekkert úr
ágreiningsmálum þeirra á milli,
sagði Finnbjörn Hermannsson, for-
maður Samiðnar.
Á fundinum voru lagðar skýrari
línur fyrir samskipti þeirra. Leysa
á ágreininginn án milliliða. Finn-
björn segir að óskað hafi verið eft-
ir fundi með Impregilo frá miðjum
nóvember. Boðunum hafi ekki ver-
ið sinnt.
Yfirmaður starfsmannamála
Impregilo, Franco Ghiringhelli,
sagði hugsanlegt að fyrirtækið hafi
gert mistök í samskiptum sínum
við verkalýðsfélögin. Þeim verði
sinnt frá og með þessum fundi: „Ég
tel að þau starfi eftir eigin sann-
færingu. Ég trúi jafnframt að
Impregilo fari að lögum.“ - gag
02-03 21.1.2005 21.41 Page 2