Fréttablaðið - 22.01.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 22.01.2005, Blaðsíða 6
Magnús Þorkell Bernharðsson Í Píslarvottum nútímans er rakið samspil trúar og stjórnmála í Írak og Íran, ljósi varpað á sjálfsmorðsárásir og píslarvættisdauða, hugmyndafræði íslamista og margt fleira sem leynist handan fyrirsagna fjölmiðlanna. Þessi bók sætir miklum tíðindum, enda er hér skrifað af mikilli þekkingu á aðgengilegan hátt um málefni sem brenna á allri heimsbyggðinni. Er Íran næst? KOMIN Í VERSLANIR Aðeins 2.990 kr. 6 22. janúar 2005 LAUGARDAGUR ■ SVEITARFÉLÖG Fylgist þú með Idol-keppninni á Stöð 2? SPURNING DAGSINS Í DAG: Munt þú blóta þorrann?? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 55% 45% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN Ungverji með metmagn kókaíns innvortis: Gæsluvarðhald framlengt GÆSLUVARÐHALD Gæsluvarðhald yfir Ungverja, sem tekinn var með tæpt kíló af kókaíni innvortis á Keflavíkurflugvelli í lok desem- ber, hefur verið framlengt um sex vikur. Maðurinn, sem er tæplega þrí- tugur, var með mesta magn fíkni- efna innvortis sem vitað er til að flutt hafi verið til Íslands. Hafði hann gleypt efnin, sem pakkað hafði verið í rúmlega áttatíu hylki, á Kanaríeyjum þar sem hann er búsettur. Frá Kanaríeyj- um flaug maðurinn til Madrídar, þaðan til Parísar og loks til Ís- lands. Á ferð sinni tókst honum ekki að halda fíkniefnapakkning- unum innvortis og skilaði um þriðja hluta efnanna út úr líkam- anum á leiðinni. Hann lét það hins vegar ekki á sig fá heldur skolaði af hylkjunum og gleypti aftur. Grunur tollvarða um að maðurinn væri með fíkniefni innvortis var staðfestur með röntgenskoðun. Nígeríumanni sem talið var að tengdist málinu var sleppt úr gæsluvarðhaldi í vikunni og fór hann úr landi samdægurs. - hrs Skólar í Kópavogi: Aukin kennsla SKÓLAMÁL Skólanefnd Kópavogs hefur ákveðið að bæta nemendum 9. og 10. bekkja upp hluta þeirrar kennslu sem féll niður vegna kennaraverkfallsins í haust. Í tilkynningu frá skólanefnd- inni segir að stefnt sé að því að 10. bekkur geti fengið 60 viðbótar- kennslustundir á hverja bekkjar- deild og að hver bekkjardeild 9. bekkjar eigi kost á 20 viðbótar- kennslustundum. Einnig munu skólarnir geta sótt um viðbótar- kennslustundir til að koma til móts við þá nemendur sem taldir eru þurfa á sérstakri aðstoð að halda vegna verkfallsins. - th GAMAN Á SKAUTUM Skautadagurinn er liður í heilsueflingar- átakinu Einn, tveir og nú, sem Heilsuefling- arráð Akureyrar stendur fyrir út skólaárið. Akureyri: Frítt á skauta HEILSA Heilsueflingarráð Akur- eyrar, í samvinnu við Skautahöll- ina á Akureyri, standa fyrir skautadegi í dag og verður öllum boðið frítt á skauta auk þess sem hægt verður að fá skauta án end- urgjalds. Ef veður og aðrar að- stæður leyfa verður einnig boðið upp á útisvell við Skautahöllina. Öllum gestum verður boðið upp á veitingar í boði Nýju kaffi- brennslunnar, Bakarísins við brúna og Kexsmiðjunnar. List- dansarar úr Skautafélagi Akur- eyrar munu sýna listar sínar. - kk BANDARÍKIN, AP Lögmenn og sak- sóknarar sem þurftu að velja fólk í kviðdóm vegna líkamsárásar í hjólhýsabyggð í Tennessee segj- ast aldrei hafa lent í öðru eins. Fólkið sem þeir gátu valið úr var hvert öðru sérstakara og varð verjandanum Leslie Ballin það á að kalla þetta „kviðdómsvalið frá helvíti“. Skömmu eftir að kviðdómsval- ið hófst í síðustu viku stóð einn hugsanlegra kviðdómenda upp og fór. „Ég er undir áhrifum morfíns og þrælskakkur,“ sagði hann þeg- ar hann gekk út án þess að spyrja kóng eða prest. Þegar saksóknari spurði hvort einhver hugsanlegra kviðdóm- enda hefði framið glæp svaraði einn því til að hann hefði verið handtekinn og fluttur á geð- sjúkrahús eftir að hann skaut að yngri frænda sínum. Hann sagði frændann hafa neitað að koma undan rúmi sínu. Annar hugsanlegur kviðdóm- andi sagðist eiga við áfengis- vandamál að stríða og kvaðst hafa verið handtekinn fyrir að reyna að kaupa vændi af lögreglukonu í dulargervi. „Ég hefði átt að vita að eitthvað gruggugt var á seyði. Hún var enn með allar tennurn- ar.“ Á endanum tókst að velja kvið- dóm og rétta í máli konu sem var ásökuð fyrir að berja kærustu bróður síns í andlitið með múr- steini. Hún var sýknuð. ■ Val á kviðdómi reyndist erfitt: Fólkið hvert öðru furðulegra HJÓLHÝSABYGGÐ Víða í Bandaríkjunum hafa myndast hjólhýsabyggðir þar sem efnaminna fólk hefst við. Kópavogur gæti þurft að greiða Mjöll Frigg bætur Eigandi Mjallar Friggjar hafði samband við skipulagsyfirvöld Kópavogsbæjar áður en klórverksmiðjan fluttist þangað. Hafi fyrirtækið fengið vilyrði fyrir starfsleyfi gæti bærinn verið skaðabótaskyldur. KLÓRGAS Kópavogsbær gæti verið skaðabótaskyldur hafi Mjöll Frigg fengið vilyrði bæjaryfirvalda fyr- ir verksmiðju að Vesturvör í Kópavogi. Það er mat Viðars Lúð- víkssonar hæstaréttarlögmanns. Viðar segir þó margt koma til skoðunar bótaábyrgðar, til dæmis hvaða upplýsingar fyrirtækið hafi gefið upp og hvaða forsendur bæj- aryfirvöld settu hafi þeir gefið vil- yrðið. Flosi Eiríksson, samfylkingar- maður í bæjarráði Kópavogs, seg- ir eiganda Mjallar Friggjar, Hin- riki Morthens, hafa sagt og sýnt fram á með tölvupósti að hann hafi haft samband við yfirvöld í bænum fyrir flutninginn á fundi ráðsins í síðustu viku. Flosi segir brýnt að senda fyrirtækinu skýr skilaboð um að bæjaryfirvöld vilji ekki hafa starfsemi þess á hafnar- svæðinu. Davíð Egilsson, forstjóri Um- hverfisstofnunar, sem hóf rann- sókn á málinu að beiðni umhverf- isráðuneytisins, segir skipulags- yfirvöld í Kópavogi þurfa að gera upp við sig hvort starfsemi Mjall- ar Friggjar eigi að vera við Vest- urvör í Kópavogi eða ekki. Það sé niðurstaða stofnunarinnar eftir fund sem hún átti með forsvars- mönnum Mjallar Friggjar á mánu- dag. „Þegar ákvörðunin liggur fyrir er hægt að bregðast við: Annað hvort með því að auglýsa starfs- leyfi sem fer þá í grendarkynn- ingu eða að fyrirtækið þurfi að flytja,“ segir Davíð. Viðar segir mikið þurfa að koma til svo að bótaábyrgð sé lögð á bæjaryfirvöld verði tjón á svæð- inu. Sama eigi við um eftirlitsaðila bæjaryfirvalda. Þeirra hlutverk sé fyrst og fremst að draga úr lík- um tjóna. Hafi bæjaryfirvöld veitt fyrirtækinu bráðabirgðaleyfi flokkist það sem starfsleyfi. Munnlegt leyfi nægi, þó það séu ekki góðir stjórnsýsluhættir. Fyrirtækið sé því líklega ekki bótaskylt verði tjón nema það sýni af sér gáleysi eða ásetning. gag@frettabladid.is Klórframleiðsla á svæði Kópavogs- hafnar. Lögð fram gögn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Heilbrigðiseftir- liti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, Línuhönnun og skipulagsnefnd. Sam- kvæmt ofannefndum gögnum virðist um mjög hættulega framleiðslu að ræða og hafa ýmsir rætt við hafnar- stjórnarmenn og látið í ljós ótta sinn og andstöðu við staðsetningu slíkrar starfsemi svo nærri íbúabyggð og matvælaframleiðslu. Hafnarstjórn leggst því gegn því að framleiðsla á natrium-hypoklítíði úr klórgasi og NaOH verði leyfð á hafnarsvæðinu. Hafnarstjórn vísar því til heilbrigðis- nefndar að fylgst verði náið með því að öllum öryggisreglum sé fylgt eftir á viðunandi hátt. - Úr fundargerð hafnarstjórnar 7. október 2004 MJÖLL FRIGG Í KÓPAVOGI Flutti starfsemi sína milli byggðalaga. Miðað við fyrirliggjandi gögn er það skoðun skipulagsnefndar að fram- leiðsla á natríum hypoklítiði úr klór- gasi og NaOH samræmist engan veg- inn núverandi skipulagi og þeim skipulagshugmyndum sem fyrir liggja á Kársnesi. Því leggst skipulagsnefnd alfarið gegn slíkri starfsemi á svæð- i nu. – Úr fundargerð skipulagsnefndar Kópavogsbæjar 5. október 2004 KÓKAÍN Ungverjinn gleypti pakkningarnar jafnharð- an og þær skiluðu sér niður úr honum. Danskir hermenn: Kærðir fyrir níðingshátt DANMÖRK, AP Fimm danskir her- menn hafa verið ákærðir fyrir að misþyrma íröskum föngum sem haldið var í herbúðum nærri Basra í fyrra. Hæst setti hermaðurinn, höf- uðsmaður, sætir fjórum ákær- um fyrir vanrækslu við störf. Höfuðsmaðurinn og fjórir her- lögreglumenn eru allir ákærðir fyrir að neita föngum um mat og vatn, neyða þá til að vera í óþægilegum stellingum við yfir- heyrslur og að nota niðrandi orðalag um þá. Farið verður fram á fangels- isdóm yfir höfuðsmanninum. Hann var ekki nafngreindur en vitað er að í fyrra sætti Annem- ette Hommel rannsókn fyrir að misþyrma föngum. Hún tjáir sig ekkert um fréttirnar nú. ■ KOSNINGAR 10. DESEMBER Fé- lagsmálaráðuneytið hefur stað- fest sameiningu fjögurra sveit- arfélaga í Austur-Húnavatns- sýslu. Sameiningin tekur gildi 1. janúar á næsta ári. Ný sveitar- stjórn verður kjörin 10. desem- ber næstkomandi. Sveitarfélög- in sem sameinuðust eru Bólstað- arhlíðarhreppur, Sveinsstaða- hreppur, Svínavatnshreppur og Torfalækjarhreppur. Nafn hins sameinaða sveitarfélags verður auglýst síðar. 06-07 21.1.2005 19:42 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.