Fréttablaðið - 22.01.2005, Blaðsíða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
62,61 62,91
116,63 117,19
81,31 81,77
10,92 10,98
9,92 9,98
8,98 9,04
0,6036 0,6072
94,89 95,45
GENGI GJALDMIÐLA 21.01.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
111,92 +0,09%
4 22. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Tilboð vegna framkvæmda við Suðurstrandarveg opnuð:
Fallið var frá lægsta tilboði vegna mistaka
VEGAGERÐ Framkvæmdir við Suð-
urstrandarveg hefjast á næstu
mánuðum. Tilboð í 5,6 kílómetra
kafla við Grindavík voru opnuð í
vikunni. Áætlaður kostnaður var
150 milljónir króna og átti verk-
takafyrirtækið Vegamenn ehf.
lægsta tilboðið. Það hljóðaði upp á
35 milljónir króna eða 23 prósent
af áætluðum kostnaði. Jötunn ehf.
átti langhæsta tilboðið en það
hljóðaði upp á 276 milljónir.
Sigurður Kr. Jóhannsson,
deildarstjóri hjá Vegagerðinni,
segir að þegar haft hafi verið
samband við forsvarsmenn Vega-
manna hafi komið í ljós að þeir
hafi gert mistök í útboðinu. Fyrir-
tækið hafi því fallið frá verkinu.
Næsthæsta tilboðið á eftir
Vegamönnum er frá Nesey ehf.
Það hljóðar upp á tæpar 85 millj-
ónir króna eða 56 prósent af
kostnaðaráætlun. Sigurður Kr.
segir líklegt að tilboði Neseyjar
verði tekið en einnig verði skoðuð
tilboð frá Háfelli ehf. og Sigurði
Á. Hjartarsyni sem hljóða upp á
98 og 99 milljónir króna. Fram-
kvæmdir við verkið hefst á
næstu mánuðum og á þeim að
verða lokið í júní árið 2006. Sig-
urður segir að verkið sem boðið
var út núna sé aðeins lítill hluti af
Suðurstrandarveginum sem mun
teygja sig frá Þorlákshöfn að
Grindavík. Hann segir ekki ljóst
hvenær lokið verði við veginn í
heild. Það velti á fjárveitingum
frá ríkinu. - th
Funda um trúnað í
utanríkismálanefnd
Forsætisráðherra tjáir sig ekki enn um Íraksmálið. Stjórnarsinnar efast ekki um
að listi staðfastra þjóða sé seinni tíma gjörningur. Formaður utanríkismála-
nefndar segir að ekki standi til að aflétta trúnaði á fundargerðum nefndarinnar.
ÍRAKSMÁLIÐ Ég lít þetta sömu aug-
um og Björn, sem sat þennan fund
utanríkismálanefndar. Listinn var
síðari tíma tilbúningur í Wash-
ington,“ sagði Pétur Gunnarsson,
skrifstofustjóri þingflokks Fram-
sóknarflokksins, í gær um tilurð
lista staðfastra þjóða vegna að-
komu Íslands að innrásinni í Írak.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra skrifaði í pistli á heimasíðu
sinni fyrir viku að „“listinn“ [væri]
í raun ekkert annað en tveggja ára
gömul fréttatilkynning frá Hvíta
húsinu“. Fréttablaðið spurði hann
hvernig bæri að skýra þessi orð
hans í ljósi þess sem nú hefur kom-
ið fram. „Það hefur ekkert komið
fram, sem breytir því, sem ég
sagði á vefsíðu minni,“ svaraði
hann. Sem fyrr segir er Pétur
Gunnarsson sammála Birni. „Þetta
staðhæfi ég og stend við og byggi á
upplýsingum sem ég tel óyggjandi.
Ég hef ekki séð fundargerð utan-
ríkismálanefndar en minni á að á
þeim tíma var þessi listi ekki orð-
inn umræðuefni. Það var ekki fyrr
en seinna að menn fara að gera
greinarmun á þessari ákvörðun um
pólitískan stuðning og listanum
sem slíkum. Halldór hefði getað
verið að vísa til ákvörðunarinnar
en ekki listans á þessum fundi,“
sagði Pétur .
Sólveig Pétursdóttir, formaður
utanríkismálanefndar, sagði að-
spurð að ekki stæði til að aflétta
trúnaði á fundargerðum utanríkis-
málanefndar þrátt fyrir ósk stjórn-
arandstöðunnar. „Það er hins vegar
ljóst að það þarf að ræða um með-
ferð trúnaðarupplýsinga í nefnd-
inni og stefni ég að því að boða til
fundar til að ræða það efni, líklega
seinni partinn í næstu viku eftir að
þing kemur saman,“ sagði Sólveig.
Spurð út í hinar misvísandi full-
yrðingar ráðamanna um vitneskju
stjórnvalda um listann þegar
ákvörðunin var tekin sagði hún:
„Ég vil ekki tjá mig um þær upp-
lýsingar sem Fréttablaðið telur sig
hafa undir höndum.“
Fréttablaðið hefur ítrekað kom-
ið á framfæri ósk sinni um að Hall-
dór Ásgrímsson veiti svör við
spurningum blaðsins en ekki haft
erindi sem erfiði.
sda@frettabladid.is
Samkvæmisgestir:
Sex hand-
teknir
LÖGREGLA Sex voru handteknir í
íbúð á Öldugötu í Reykjavík í gær-
morgun eftir að húsráðandi í íbúð í
húsinu á móti vaknaði við umgang
heima hjá sér. Í ljós kom að brotist
hafði verið inn hjá manninum og
sjónvarpstæki heimilisins stolið.
Lögreglan fann sjónvarpstækið
í samkvæminu handan götunnar
og voru allir samkvæmisgestirnir
handteknir, þar á meðal innbrots-
þjófarnir tveir. Áfengi og fíkniefni
voru höfð um hönd í samkvæminu.
Fólkinu var sleppt að loknum yfir-
heyrslum. - hrs
FRÁ MOSUL
Bandarískir hermenn leita að vopnum á
íröskum borgurum.
Bandaríkjaher:
Fjölgar
áhlaupum
BAGDAD, AP Níu voru handteknir og
vopn gerð upptæk í áhlaupi banda-
ríska hersins í írösku borginni
Mosul í fyrrinótt. Bandaríski her-
inn hefur fjölgað áhlaupum til að
handtaka andspyrnumenn sem
hafa hótað ófriði í væntanlegum
kosningum. Stærstu götum Bagdad
hefur verið lokað eftir tíðar bíl-
sprengjur undangengna daga.
Á síðastliðnum tveimur vikum
hafa 200 manns verið handteknir í
Mosul grunaðir um skæruhernað.
Grunur liggur uppi um að margir
andspyrnumenn frá borginni
Fallujah hafi flúið til Mosul og
komið upp bækistöðvum þar. ■
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Stór humar
og risarækjur
opið í dag frá 10-14.30
Súr hvalur
Harðfiskur að vestan
og hákarl frá Bjarnarhöfn
Þýskaland:
Ævintýraferð
til Íslands
FERÐALÖG Þýska ferðaskrifstofan
Hagag-Lloyd auglýsir nú ævintýra-
ferðir með skemmtiferðaskipinu
MV Bremen til landa sem eru á
mörkum siðmenningarinnar, eins
og segir á heimasíðu ferðaskrif-
stofunnar.
Einn af áfangastöðum skipsins,
sem tekur rúmlega 160 farþega, er
Reykjavík. Einnig fer skipið til
Færeyja og Grænlands áður en það
heldur til Skotlands og Þýskalands.
Ferðalagið um endimörk siðmenn-
ingarinnar kostar um 300 þúsund
krónur. ■
Hérað:
Íslandsmet í
þorrablótum
ÞORRABLÓT Að líkindum munu Hér-
aðsmenn eiga Íslandsmetið í að
blóta þorra í ár en á Héraði verða
haldin níu blót á næstu vikum. Eg-
ilsstaðabúar ríða á vaðið og halda
þorrablót í Valaskjálf í kvöld, á
bóndadaginn. Á morgun verður
þorrablót eldri borgara á Héraði
haldið á sama stað.
Blótafjöldi Héraðsmanna mun
væntanlega falla Valgerði Sverr-
isdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, vel í geð. Fyrir réttu ári
sagði hún að líklegra væri til ár-
angurs að markaðssetja íslensk
þorrablót en eyða milljónatugum í
að reyna að selja lambakjöt á er-
lendum mörkuðum. - kk
SUÐURSTRANDARVEGUR
Vegurinn mun liggja milli Grindavíkur og Þorlákshafnar. Ekki er ljóst hvenær
framkvæmdum við veginn verður lokið.
■ UTANRÍKISMÁL
BJÖRN HÆTTIR Björn Dagbjarts-
son sendiherra hefur að eigin ósk
látið af störfum. Björn var skip-
aður sendiherra í Maputo í
Mosambík árið 2001 og varð þá
fyrsti sendiherra Íslands sem bú-
settur var í Afríku.
BJÖRN BJARNASON
„Listinn“ er í raun ekkert annað en tveggja
ára gömul fréttatilkynning frá Hvíta húsinu.“
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Hefur ekki tjáð sig um málið frá því á
mánudag.
SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR
„Ekki stendur til að aflétta trúnaði á fund-
argerðum utanríkismálanefndar.“
PÉTUR GUNNARSSON
„Halldór hefði getað verið að vísa til ákvörð-
unarinnar en ekki listans á þessum fundi.“
04-05 21.1.2005 21.10 Page 2