Fréttablaðið - 22.01.2005, Blaðsíða 24
24 22. janúar 2005 LAUGARDAGUR
BYRON LÁVARÐUR (1788-1824)
fæddist þennan dag.
Uppákomur
á afmælisári
SENDIRÁÐ ÍSLANDS Í KÍNA: TÍU ÁRA
„Dauðinn er tíðum táranna efni, þó tíma
vorn þriðjung við dveljum í svefni.“
Sjötti baróninn af Byron, George Gordon lávarður, var eitthvert víð-
lesnasta enska ljóðskáld síns tíma. Best eru þekkt ljóð hans Childe
Harold’s Pilgrimage og Don Juan, óklárað við dauða hans. Þá var
Byron alræmdur fyrir lífsstíl sinn, sem tæpast þótti hófstilltur.
timamot@frettabladid.is
Ingibjörg Pálmadóttir ritaði undir
rekstrarleyfi fyrir Íslenska erfðagrein-
ingu hf. til að byggja upp og reka
miðlægan gagnagrunn á heilbrigðis-
sviði þennan dag árið 2000. Miklar
deilur stóðu um gagnagrunninn og
þótti mörgum sem verið væri að
færa fyrirtækinu á silfurfati við-
kvæmar persónuupplýsingar þjóðar-
innar.
Deilurnar um ágæti gagnagrunnsins
héldu enda áfram enn um sinn og
lýstu nokkrir læknar því meðal ann-
ars yfir að þeir myndu ekki afhenda
gögn í grunninn nema með skrif-
legu leyfi sjúklinga sinna. Í rekstrar-
leyfinu var hins vegar gert ráð fyrir
því að Erfðagreining semdi við heil-
brigðisstofnanir og heil-
brigðisstarfsfólk um af-
hendingu gagna. Land-
læknir áréttaði í viðtali
við Morgunblaðið síðar
í mánuðinum að
gagnagrunnurinn gæti
verið mjög mikilvægt
rannsóknatæki. „Ef vel
tekst til getur hann ver-
ið mjög áhugaverður til
faraldsfræðilegra rann-
sókna, lýðheilsurann-
sókna og ættartengsla
sjúkdóma,“ sagði hann
við blaðið og minnti á
að búið væri að ganga
mjög langt til að tryggja
öryggi gagnanna hvað
varðaði persónuvernd.
Kári Stefánsson, forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar,
var ánægður með leyfið
en hafði orð á að fyrir-
tækinu væri gert að
greiða nokkuð hátt gjald
fyrir það. „Þetta er að
vissu leyti auðlindaskattur
og er í fyrsta skipti sem
slíkt er lagt á atvinnustarf-
semi hér,“ sagði Kári í
viðtali við Morgunblaðið
og benti á að gjaldtakan
slagaði hátt í tekjuskatt
sjávarútvegs í 15 ár þar á
undan.
ÍSLENSK
ERFÐAGREINING
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1258 Þorgils skarði Böðvarsson,
af ætt Sturlunga, veginn 32
ára gamall, að Hrafnagili í
Eyjafirði.
1910 Öflugur jarðskjálfti upp á
7,1 á Richter út af Öxarfirði
fannst í flestum landshlut-
um. Tjón varð lítið.
1918 Mesta frost sem mælst hef-
ur á Íslandi, -37,9 gráður, á
Grímsstöðum á Fjöllum.
1962 Scottice, sæsíminn milli Ís-
lands og Skotlands um
Færeyjar, tekinn í notkun.
1970 Fyrsta „júmbóþotan“ í far-
þegaflugi lendir á Heath-
row-flugvelli.
1983 Tvö snjóflóð féllu á kaup-
túnið á Patreksfirði. Fjórir
létust og á fjórða tug missti
heimili sitt.
ÍE fékk rekstarleyfi fyrir gagnagrunn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Lilja Ísberg
Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, áður Efstaleiti 10,
Reykjavík, lést sunnudaginn 16. janúar.
Nína Þórðardóttir, Tómas Ingi Olrich,
Gunnar Þórðarson, Sunneva Hafsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 31. janúar kl. 15.00.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi
Skarphéðinn Jóhannsson
Garðvangi, Garði, áður Njarðvík
lést á sjúkrahúsi Keflavíkur 18. janúar. Jarðarförin fer fram frá
Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 26. janúar kl. 14.
Þórdís Skarphéðinsdóttir
Álfheiður Skarphéðinsdóttir, Ólafur E. Þórðarson
Jensa S. Skarphéðinsdóttir, Wolfgang Quellmann
Barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sören M. Aðalsteinsson
Valbraut 7, Garði, áður til heimilis að
Eiðsvallagötu 3, Akureyri, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju, mánudaginn 24. janúar kl. 13.30.
Magnús Sigurbjörn Sörensson, Sólbjört Hilmarsdóttir
Steinar Sigurjón Sörensson, Anna Magnúsdóttir
Amalía Vilborg Sörensdóttir, Einar Hermannsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra , sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát
og útför eiginmanns míns.
Hafsteins Einarssonar
Bergi, Seltjarnarnesi.
F.h. fjölskyldunnar:
Auður Sigurðardóttir.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hjúkrunarheimilinu Eir
fyrir yndislega umönnun á erfiðum tímum.
Félag CP á Íslandi hefur opnað
skrifstofuaðstöðu í húsnæði Sjónar-
hóls að Háaleitisbraut 11 í Reykja-
vík, en skrifstofan verður fyrst um
sinn opin annan hvern fimmtudag
milli klukkan þrjú og fimm. Skrif-
stofan verður fyrst opin á fimmtu-
daginn í næstu viku. Þá hefur félag-
ið einnig opnað endurbætta vefsíðu
á slóðinni www.cp.is.
CP, sem stundum er nefnt heila-
lömun, er algengasta tegund hreyfi-
hömlunar. Félag CP á Íslandi var
stofnað árið 2001 og eru félagar nú
rúmlega 200 talsins, fatlaðir, að-
standendur og fagaðilar.
Í tilefni af nýju skrifstofunni var
félagsmönnum og velunnurum fé-
lagsins boðið til móttöku í síðustu
viku þar sem veitt voru í fyrsta sinn
fyrirmyndarverðlaun félagsins.
Þau eru veitt einstaklingum sem
skarað hafa fram úr og eru öðrum
til fyrirmyndar. Að þessu sinni
hlutu verðlaunin Kristín Rós Há-
konardóttir og Jón Oddur Halldórs-
son, sem náðu frábærum árangri á
Ólympíumóti fatlaðra í Aþenu nú
nýverið. Þá tók félagið við sama
tækifæri á móti veglegri peninga-
gjöf frá fjölskyldu Auðar Eiríks-
dóttur, sem lést í október síðastliðn-
um, en barnabarn hennar er með
CP. „Gjöfin verður lögð í sjóð sem
notaður verður til að gefa út barna-
bók, þar sem fatlað barn verður eitt
af söguhetjunum,“ segir í tilkynn-
ingu félagsins. ■
AFMÆLI
Erla Þorsteinsdóttir söng-
kona er 72 ára í dag.
Sigurður Björgúlfsson arkítekt er 55 ára
í dag.
Sveinn Bragason arkitekt er 43 ára í
dag.
María Ellingsen leikkona er
41 árs í dag.
Guðmundur Hrafnkelsson handbolta-
kempa er fertugur í dag.
Hlynur Birgisson knattspyrnumaður er
37 ára í dag.
Margrét Kristín Blöndal
tónlistarkona er 37 ára í
dag.
ANDLÁT
Oddrún Jörgensdóttir lést miðvikudag-
inn 5. janúar.
Brynheiður Ketilsdóttir, frá Ketilsstöð-
um, Mýrdal, Austurgerði 1, Vestmanna-
eyjum, lést þriðjudaginn 11. janúar.
Elenóra Jónsdóttir, Nóa, Mjóuhlíð 8,
Reykjavík, lést þriðjudaginn 11. janúar.
Sóley Magnúsdóttir, Skólastíg 9, Bol-
ungarvík, lést fimmtudaginn 13. janúar.
Vilborg S. Einarsdóttir (Monna), Digra-
nesvegi 36, Kópavogi, lést þriðjudaginn
18. janúar.
Davíð Guðmundsson, Kristnibraut 43,
Reykjavík, lést miðvikudaginn 19. janúar.
Roy Ó. Breiðfjörð lést miðvikudaginn
19. janúar.
Elísabet Kristjánsdóttir, Hrepphólum,
Hrunamannahreppi, lést fimmtudaginn
20. janúar.
JARÐARFARIR
13.00 Ágúst Gíslason, Suður-Nýjabæ,
Þykkvabæ, verður jarðsunginn frá
Þykkvabæjarkirkju.
13.30 Þuríður Guðmundsdóttir, frá Ás-
garði, Völlum, Miðvangi 22, Egils-
stöðum, verður jarðsungin frá Eg-
ilsstaðakirkju.
14.00 Brynheiður Ketilsdóttir, frá Ket-
ilsstöðum, Mýrdal, Austurgerði 1,
Vestmannaeyjum, verður jarð-
sungin frá Landakirkju.
14.00 Halldór Kristinn Bjarnason, dval-
arheimilinu Hornbrekku, Ólafs-
firði, verður jarðsunginn frá Ólafs-
fjarðarkirkju.
14.00 Ragnar Örn, Fellsmúla 11, Reykja-
vík, verður jarðsunginn frá Sauð-
árkrókskirkju.
14.00 Ríkharður Jónsson, Ólafsbraut
38, Ólafsvík, verður jarðsunginn
frá Ólafsvíkurkirkju.
14.00 Sóley Magnúsdóttir, Skólastíg 9,
Bolungarvík, verður jarðsungin frá
Hólskirkju í Bolungarvík.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1561 Sir Francis Bacon, heimspekingur
og rithöfundur.
1849 August Strindberg,
rithöfundur og leikrita-
skáld.
1935 Sam Cooke söngvari.
1940 John Hurt leikari.
1959 Linda Blair leikkona.
1960 Michael Hutchence,
söngvari INXS.
1965 Diane Lane leikkona.
Um þessar mundir er sendiráð
Íslands í Kína 10 ára og í gær-
kvöld, á sjálfan afmælisdaginn,
bauð Eiður Guðnason sendiherra
til málsverðar á heimili sínu í
Kína. „Þetta boð er fyrir um 40
kínverska gesti sem hafa átt
samskipti við sendiráðið á ýms-
um sviðum. Aðallega er þetta
fólk úr opinbera geiranum,“
sagði Eiður Guðnason sendiherra
þegar um hálftími var í að fyrstu
gestir berðu dyra.
Eiður segir fleiri viðburði í
undirbúningi í tilefni af afmæli
sendiráðsins. „Það er verið að
undirbúa íslenska kvikmynda-
viku í vor í samráði við Kvik-
myndamiðstöð Íslands og hlutað-
eigandi stofnun hér, sem er þá
Kvikmyndastofnun ríkisins. Sá
undirbúningur er á byrjunar-
stigi,“ segir Eiður, sem þó segist
hafa fundað einu sinni með stofn-
uninni í Kína, auk þess hann hef-
ur fundað um málið með Lauf-
eyju Guðjónsdóttur, forstöðu-
manni Kvikmyndamiðstöðvar.
„Það er ekki búið að dagsetja
þetta, en það er gert ráð fyrir að
sýndar verði kannski fjórar
leiknar myndir, ein heimildar-
mynd og syrpa af stuttmyndum,
verði þessi áform að veruleika.“
Hann sagði þó ekki alveg einfalt
að koma sýningunni á koppinn.
„Það þarf að setja kínverskan
texta við þessar myndir svo þær
komi áhorfendum hér að fullu
gagni.“
Þá sagði Eiður einnig gert ráð
fyrir því að í tengslum við af-
mælisárið yrðu haldnir tónleikar
í Kína í haust. „En það er allt á
umræðustigi ennþá,“ sagði hann
og kvað ekki búið að ákveða
hvernig þeir yrðu eða hvernig
tónlist yrði boðið upp á. Hann
sagðist þó ekki óttast að utanrík-
isráðuneytið fylltist af ferðaglöð-
um tónlistarmönnum þegar þetta
spyrðist út. „Það er allt í lagi, við
tökum vel á móti öllum.“
Fyrsti sendiherra Íslands í
Kína var Hjálmar W. Hannesson,
sem tók við þeirri stöðu árið
1995. „Ólafur Egilsson tók svo
við af honum og ég er búinn að
vera í rúm tvö ár, kom í byrjun
árs 2003,“ segir Eiður, sem lætur
vel af því að vera sendiherra í
Kína. „Það er að mörgu leyti mik-
ið ævintýri að fylgjast með því
sem hér er að gerast, upplifa þró-
unina og kynnast þessari merki-
legu þjóð, menningu hennar og
sögu.“ ■
BLÓMAGJÖF Á AFMÆLINU Eric Wo (til
vinstri), framkvæmdastjóri Landmark, fyrir-
tækisins sem á og rekur bygginguna þar
sem sendiráð Íslands í Peking er til húsa,
færði sendiráðinu myndarlega blóma-
skreytingu á tíu ára afmæli þess. Við hlið
hans stendur Eiður Guðnason sendiherra.
Tímamót í sögu félags:
CP á Íslandi
opnar skrifstofu
24-25 Tímamót/Viðskipti 21.1.2005 19.13 Page 2