Tíminn - 19.03.1975, Side 4
r »
TÍMINN
Miðvikudagur 19. marz 1975.
Ingo skemmtir sér á Mallorca
Ingemar Johansson, fyrrum
hnefaleikameistari, skemmtir
sér þessa dagana og leikur golf
á Mallorca. Hann er lika að
kanna aðstöðuna til Iþróttaiðk-
ana þarna niður frá, en hann
hefur hugsað sér að starfrækja
æfingaskóla i Palma. Þangað
eiga allir þeir að gefa komið,
sem vilja hæta ástand sitt lik-
amlega. — Ef hjartað er I lagi,
segir Ingo, getur maður náð af
sér einu kilói á dag með þvi að
hlaupa nokkra kilómetra.
★ ★
Sóttvarna-sjúkrabíll framtíðarinnar
I Brunswick i V-Þýzkalandi
hafa heilbrigðisyfirvöld nýlega
tekið til notkunar sjúkrabifreið,
sem talin er sú öruggasta gegn
smithættu, sem hingað til hefur
þekkzt. Búningar starfsfólks og
bifreiðastjórans eru likastir
geimferðabúningum. Hlutverk
sjúkrabilsins og starfsfólks
hans er að koma sjúklingum
með bráðsmitandi sjúkdóma
undir læknishendur og I
einangrun á sjúkrahús, án þess
að þeir smiti frá sér um leiö.
ökumaður, sjúklingur og
sjúrkaliðar eru einangraðir
hver I sinu hófli, og er ai-
vel lokað á milli þeirra.
Hreint loft er tekið inn um loft-
túður á þakinu, en sföan gengur
notað loft aftur út um
hreinsihólf, þar sem loftiö er
hitað upp i 600 gráöur, svo að
öruggt sé að það sé sótt-
hreinsað, áður en það fer aftur
út úr bifreiðinni. Eftir hvern
sjúkraflutning, þá er öll sjúkra-
bifreiöin sótthreinsuð á þann
hátt, að hún er sett I samband
við gufudælu, sem dælir heitu
sótthreinsuöu lofti I heilan
klukkutfma i gegnum bilinn —
og siðan er alt hreint og örugg-
lega sótthreinsaö á nýjan leik og
bifreiðin aftur tilbúin til sjúkra-
flutnings.
★
Jasnaja Poljana
endurbyggð
Nýlega er hafin endurbygging
óöalseturs Leo Tolstojs, Jasnaja
Poljana, sem er nálægt bænum
Tula, 150 km fyrir sunnan
Móskvu. Á Jasnaja Poljana,
sem nú er safn, bjó Tolstoj I
meira en hálfa öld, og þar skrif-
aði hann m.a. „Strið og friður”
og „önnu Kareninu”.
/V Konungsfjölskyldan fær meiri auraróð
in ein allra rikasta konúngsfjöl-
skylda i heiminum. Þrátt fyrir
það ákvað brezka þingið að
bæta ofurlitiu við lifeyri fjöl-
skyldunnar, og það var ekki fyrr
búið að skýra frá þe^su, en
blessaöir litlu prinsarnir, þeir
Andrew, sem er 11 ára, og Ed-
ward, sem er 15 ára, fóru fram á
það viðpabba sinn og mömmu,
að þeir fengju svolitið meiri
vasapeninga. Pabbi og mamma
lögðu höfuðið I bleyti, og komust
að raun um, að rétt væri að
hækka vasapeningaupphæðina
dálitið, og þá settu allir upp
sólskinsbros, eins og sést hér á
myndinni.
★
Brezka konungsfjölskyldan hef- beint fátæk, svo að ekki sé
ur fram til þessa ekki verið meira sagt. Hún hefur verið tal-
Hagkvæm smdhænsn
I tilraunastöö með hænsnarækt I
Sagorsk, nálægt Moskvu, hefur
tekizt aö rækta smávaxin
hænsn, sem hafa ýmsa kosti
fram yfir venjulegar hænur.
Þær þurfa aðeins þriðja hluta
venjulegs fóðurs, en verpa eggj-
um af eðlilegri stærð. Auk þess
hafa mini-hænurnar, eins og
menn kalla þessi dverghænsn,
— betra lunderni, og eiga auð-
veldara með að umbera hver
aöra. í hænsnabúum má hafa 5-
6 mini-hænur i stað hverra
þriggja af venjulegri stærð. Að
öllu samanlögðu hafa þessi
hænsn svo marga kosti, að mörg
hænsnabú hafa þegar sýnt mik-
inn áhuga á þeim.
DENNI
DÆMALAUSI
„Komdu og sjáðu hvað inorgun-
sloppurinn þinn er að gera.”