Tíminn - 19.03.1975, Page 11
Miðvikudagur 19. marz 1975.
TÍMINN
11
RÓTTÆKAR
BREYT-
INGAR Á
MÁLUM
LANDS-
LIDSINS
— Það mun skýrast á næstu
dögum, hvort Mares kemur hing-
að og tekur við þjálfun landsliðs-
ins, sagði Sigurður Jónsson, for-
maður HSt, i gær. Samningar eru
nú á lokastigi, og Mares hefur
fengið leyfi til að koma hingað,
bæði hjá tékkneska þjálfara- og
handknattleikssambandinu, og
einnig hernum. Við höfum haft
samband við tékkneska sendi-
herrann I Osló, og hann hefur ver-
ið okkur mjög hjálplegur.
— Þá erum við að ganga frá
æfingaskipulagi hjá landsliðinu,
og við höfum gert okkur grein
fyrir þvi, að við auknar æfingar
hjá landsliðsmönnunum okkar
þurfum við að greiða þeim vinnu-
tap, og jafnvel að fá þá lausa úr
vinnu a.m.k. hálfan daginn, á
fullum launum hjá sambandinu.
Ef ekki verða gerðar einhverjar
róttækar breytingar á landsliðs-
málum okkar i framtiðinni, má
ekki búast við að við náum lengra
á handknattleikssviðinu.
— Nú er i gangi hjá okkur
happdrætti, og höfum við gert
okkur miklar vonir um, að al-
menningur styðji við bakið á okk-
ur, með þvi að kaupa happdrætt-
ismiða, sagði Siguröur að lokum.
ÓLAFUR JÓXSSON.... setur nýtt landsleikjamet á sunnudaginn. ólafur verður I sviðsljósinu f kvöld
þegar Valsmenn og FH leika siðasta leik tslandsmótsins I Laugardalshöllinni.
Albert
boðið
til
Frakk-
lands
Albert Guðmundssyni/
fyrrum formanni KSí,
hefur verið boðið að
vera verndari knatt-
spyrnumóts unglinga,
sem fram fer í Frakk-
landi á næstunni. i
mótinu taka þátt ung-
lingalið frá mörgum
Evrópulöndum og
Norður-Afriku.
ÓLAFUR SETUR NÝTT
LANDSLEIKJAMET
ÓLAFUR JÓNSSON, landsliðs-
fyrirliðinn snjalli I handknattleik,
mun setja nýtt landsleikjamet á
sunnudaginn, þegar hann stjórn-
ar islenzka liðinu gegn Dönum i
Laugardalshöllinni. ólafur hefur
nú leikið jafnmarga landsleiki og
Geir Hallsteinsson, eða 80. Birgir
Björnsson landsiiðseinvaldur hef-
ur gert eina breytingu á landslið-
inu, sem mætir Dönum, frá síð-
asta leik, gegn Tékkum. Stefán
Gunnarsson úr Val kemur inn i
liðið i staðinn fyrir Björgvin
Björgvinsson, sem gaf ekki kost á
sér i landsliðið.
Alfreð Þorsteinsson:
Forustumenn íþrótta-
mála í erfiðri aðstöðu
Það er kunnara en frá þurfi
að segja, að íþróttahreyfingin
á i miklum fjárhagsörðugleik-
um. Þetta á ekki sizt við um
sérsambönd ÍSf, jafnvel þau,
sem fá flesta áhorfendur á
leiki og mót, s.s. knattspyrnu-
og handknattleik. Sérsam-
böndin gegna mjög þýðingar-
miklu hlutverki I uppbyggingu
iþróttanna. Má þar nefna und-
irbúning landsliða og ferðir
þeirra til útlanda, svo og
móttöku erl. landsliða,
skipulagning og framkvæmd
meistara móta, útbreiðsla
iþróttarinnar, og dómara og
lagamál. Mætti nefna ýmis-
legt fleira, en þetta látið
nægja.
Hverjum sanngjörnum
manni hlýtur að vera það
ljóst, að þessi verkefni, sem
venjulega eru falin 7 til 10
manna stjórnum, eru flestum
samböndum ofviða. Styrkir
frá opinberum aðilum til sér-
sambandanna eru smávægi-
legir og nægja rétt fyrir skrif-
stofukostnaði og er þá ekki átt
við launaðan starfsmann allt
árið, heldur húsaleigu, ræst-
ingu, rafmagn, hita, sima
o.s.frv. Segja má, að það sé
flestum, sem til þekkja, undr-
unarefni, hvað sum sérsam-
böndin koma i verk við þessar
aöstæður, enda leggja stjórn-
armennirnir og ýmsir aðrir á-
hugamenn á sig sjálfboða-
vinnu, sem er fátið hérlendis
nú á timum. Ánægja þessara
sjálfboðaliða eru framfarir og
góð afrek iþróttafólksins.
Eitt þeirra sérsambanda
ISf, sem mikið hefur kveðið að
undanfarin ár, og ótrúlega
miklu komið f verk, er Frjálsi-
þróttasamband Islands.
Framfarir frjálsiþróttafólks
eru augljósar, og nú er svo
komið, að islenzk frjálsi-
þróttalandslið geta með reisn
keppt við ýmis landslið
Evrópuþjóða, eftir að hafa
verið I miklum öldudal undan-
farna tvo áratugi. Flestum er
t.d. enn i fersku minni hin
harða landskeppni við íra sl.
sumar.
Á þvi keppnistimabili, sem
framundan er, eru mörg
kostnaðarfrek verkefni.
Stjórnendur sambandsins
telja þau þó vera lágmark
þess, sem aðrar þjóðir fram-
kvæma. Einnig er aukin út-
breiðsla iþróttarinnar út á
landi á dagskrá, m.a. hring-
ferö landsliðsmanna, svo að
eitthvað sé nefnt.
Fjáröflunarnefnd FRt, en
hana skipa örn Eiðsson, for-
maður, Svavar Markússon,
gjaldkeri sambandsins og
Þorvaldur Jónasson, fundar-
ritari, hefur undanfarnar vik-
ur ásamt allri stjórninni staðið
i ströngu við útvegun fjár til
að koma i veg fyrir, að niður
falli fyrirhuguð þátttaka i
mótum. Mér hefur tjáð for-
maður sambandsins, örn
Eiðsson, sem starfað hefur i
stjórn FRl i rúma tvo áratugi,
þar af sem formaður siðustu 7
árin, að sjaldan hafi róðurinn
verið jafnþungur i fjáröflun.
Góðar vonir um styrk frá nor-
ræna menningarsjóðnum
fengi neikvæðar undirtektir.
Auglýsingum á númer
keppnisfólks var sagt upp.
Ýmsir einstaklingar og fyrir-
tæki eru svartsýnni á stuðning
en áður, en örn bað mig að
lýsa yfir þakklæti FRÍ fyrir
skilning og stuðning undanfar-
in ár.
Ástæða þess, að ég tek sér-
staklega fyrir starfsemi og
vandamál FRl, er, að undan-
fama daga hefur stjórn FRl
orðið fyrir mjög harðri gagn-
rýni vegna fjársöfnunar, sem
kynnt hefur verið i blaðinu og
er í þvi fólgin, að Rolf Johan-
sen & Co., umboðsmenn Win-
ston vindlinga gerði FRl það
tilboð, að greiða sambandinu 3
krónur fyrir hvern TÓMAN
Winston pakka, sem sam-
bandið skilaði til fyrirtækisins
á timabilinu 15. marz til 15.
júni. í þessu sambandi er sið-
ur en svo verði að hvetja fólk
til að hefja reykingar, enda
veit ég að stjörnarmenn FRl,
eru, eins og aðrir forystumenn
iþróttamála andstæðingar tó-
baks- og vinnautnar.
Mér er kunnugt um það, að
þetta tilboð var mikið rætt
innan stjórnarinnar og að
stjórnarmenn voru i miklum
vafa um, hvað gera skyldi. Að
lokum var tilboðið samþykkt
af öllum stjórnarmönnum i
aðalstjórn, en fyrsti vara-
stjórnarmaður, er situr
stjórnarfundi, sagði af sér, er
tilboðið var samþykkt. Ég
þykist vita að vitneskjan um,
að ISÍ og þar með öll iþrótta-
hreyfingin fær 50 aura pakka-
gjald af hverjum FULLUM
vindlingapakka, sem seldur er
i landinu, hefur átt sinn þátt i
að tilboðinu var tekið. Sumir
innan iþróttahreyfingarinnar
eru litt hrifnir af þvi, að ÍSÍ
skuli þiggja slikt framlag,
sem áætlað er að nemi 8 millj-
ónum króna á þessu ári. Betra
væri að framlagið væri sett
beint á fjárlög. Að minu mati
er munurinn á „tóbakspen-
ingum” ISl og FRÍ, sá að ÍSI
fær peningana á silfurbakka,
en stjórn FRl verður að vinna
hörðum höndum undir harðri
og að mörgu leyti ómaklegri
gagnrýni.
Hér er ég ekki að afsaka
stjórn FRl, þess þarf ekki
með, þessi ákvörðun hennar
að taka áðurnefndu tilboði,
varpar amk. mjög skýru ljósi
á hið mikla vandamál, er i
þróttaforystan á við að etja.
Spurningin er þessi, eigum við
að halda áfram eðlilegum lág-
markssamskiptum við aðrar
þjóðir i iþróttum eða hætta al-
veg við slikt? Um þetta eru
sjálfsagt skiptar skoðanir, en
ég er þeirrar skoðunar, að
slikt sé nauðsyn, til að gera i-
þróttirnar eftirsóknarverðar
fyrir ungt og tápmikið fólk og
einnig tel ég afreksfólk i i-
þróttum góða landkvnningu.
Almenningsiþróttir eða
TRIMM er einnig nauðsynleg-
ur þáttur i iþróttastarfinu.
Annars er landsliðið óbrevtt og
skipað þessum leikmönnum:
Markverðir:
Ólafur Benediktsson, Val 38
Sigurgeir Sigurðsson, Vik 6
Aðrir leikmenn:
Ólafur Jónsson, Val 80
Viðar Simonarson, FH 78
Einar Magnússon, Vikingi 61
Bjarni Jónsson, Þrótti 37
Stefán Gunnarsson, Vai 26
Hörður Sigmarsson, Haukum 16
Pétur Jóhannsson, Fram 14
Stefán Halldórsson, Vikingi 12
Ólafur Einarsson, FH 7
Páll Björgvinsson, Vikingi 5
,,Ég mun gera 2—3 breytingar á
landsliðinu fyrir siðari leikinn, al-
veg sama hvernig fyrri landsleik-
urinn fer”, sagði Birgir Björns-
son, þegar hann tilkynnti, hverjir
yrðu i liðinu. Islendingar hafa
tvisvar sinnum sigrað erkifjend-
urna frá Danmörku — fyrst árið
1968 i Laugardalshöllinni. 15:10,
en þá stjórnaði Birgir Björnsson
liðinu. Siðan vannst sigur i Laug-
ardalshöllinni 1971 (15:12). og var
liðið þá undir stjórn Hilmars
Björnssonar. Nú eru miklir
möguleikar á að tslendingar geti
lagt Dani að velli, en þeir koma
ekki með alla sina sterkustu leik-
menn hingað.
—sos
vVVV"t
MUNIÐ
íbúðarhappdrætti H.S.I.
2ja herb. ibúð að
verðmæti kr. 3.500.000.-
Verð miða kr. 250.
V__________ , -----------/