Tíminn - 19.04.1975, Qupperneq 1
aldek
TARPAULIN
RISSKEMMUR
HF HÖRÐUR 6UNNARSS0N
SKÚLATLJNI 6 - SÍMI (91)19460
Bílsturtur
Dælur
Drifsköft
V:"' • '■#
j -ii-1____
Landvélar hf
Gsal-Reykjavlk — Augljóst er, að
víða er pottur brotinn i eldvarn-
armálum hvað sjúkrahúsum hér
á landi áhrærir. i heild virðast þó
eldvarnir vera allþokkalegar, en
þó hvergi nærri góðar. Ætla má,
að á öllum islenzkum sjukrahús-
um séu einhvers konar sjálfvirkir
eldvarnarboðar, mismunandi
margir eftir stærð sjúkrahúsa og
öðrum aðstæðum. Hins vegar eru
þeir i fæstum tilvikum tengdir
beint á slökkviliðsstöðvar, — og
þá aðeins I stærri byggðarkjörn-
um. Þessir sjálfvirku eldvarnar-
boðar eru tvenns.konar, annars
vegar reykboðar, sem eru mjög
næmir, og hins vegar hitaboðar,
sem virðast koma að litlu sem
engu gagni brjötist mikill eldur út
á annað borð. Eins og sjá má af
ofanrituðu eru reykboðarnir
miklum mun betri varnartæki, en
sá ljóður er á, að þeir eru dýrir og
þvi eru tiltölulega fáir slíkir á
sjúkrahúsunum.
Hitaboðar eru algengastir, en
þvi miður eru þeir langt frá að
geta kallast góð eldvarnatæki
Ástæðan er sú, að hitaboðinn
sendir ekki frá sér merki fyrr en
hitinn iherberginu er kominn upp
i 70 gráður, — og þá er það orðið
alltof seint. Að sögn Rúnars
Bjarnasonar, slökkviliðsstjóra
hefur það hent, að reykboði hefur
gefið merki á undan hitaboðara,
sem var i sama herbergi og eld-
urinn kom upp i, — en reykboðinn
var staðsettur á gangi.
Það eitt að reykboðar eru fáir
sýnir glöggtað eldvarnir i sjúkra-
húsum hér á landi eru langt frá
þvi að vera i viðunandi ástandi.
ALLMIKLAR umræður urðu
á borgarstjórnarfundi i
fyrradag um hundamál i
Reykjavik af tilefni fyrir-
spurnar Alfreðs Þorsteins-
sonar borgarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins um fram-
kvæmd banns við hunda-
haldi. i þessum umræðum
kom í ljós, að lögreglu- og
dómsyfirvöld hafa af ein-
hverjum ástæðum ekki
treyst sér til að framfylgja
samþykkt borgarstjórnar
frá 1970 um bann viðhunda-
haldi. — Nánari frásögn um
þetta mál er á bls. 6.
ELDVARNIR HVERGI
NÆGJANLEGAR í
SJÚKRAHÚSUM HÉR
— REYKBOÐAR OG SERSTÖK REYKHÓLF ERU
ÖRUGGASTA VÖRNIN, EN REYKBOÐAR ERU FÁIR OG
FULLKOMIN REYKHÓLF AÐEINS í EINU SJÚKRAHÚSI
Miðað við það ástand sem hér á
landi virðist rikja i þessum mál-
um, má leiða að þvi likur, að ef
eldur kemur upp i sjúkrastofu að
næturlagi séu sjúkl. þegar
látnir er slökkviliði berast boð um
eldínn frá hitaboðara. Ástæðan er
ekki einvörðungu sú, að hitaboð-
arinn gefur of seint til kynna, að
eldur sé laus, heldur ekki siður
það, að sængurfataefni sem nú
eru tiðast notuð, eru afar eldfim.
Eða eins og slökkviliðsstjóri
segir:
— Þessi nýju efni sem notuð
eru i sængurfatnað, dýnur og
fleira, er öllu lakara en það sem
áður var notað. Og ég tel, að aðal-
orsökinfyrir láti þeirra sjúklinga
sem létust i brunanum i Stokk-
hólmi hafi einmitt verið þessi
nýja gerð af sængurfatnaði. Sjúk-
lingarnir steiktust bókstaflega i
rúmum sinum.
Auk sjálfvirkra eldvarnarboða
er talið nauðsynlegt, að hverju
sjúkrahúsi sé skipt niður i svo-
nefnd reykhólf, og milli hólfanna
séu eldtraustir veggir og hurðir.
Eru slik hólf talin alveg nauðsyn-
leg, svo hægt sé að komast hjá þvi
að gripa til þess neyðarúrræðis,
að flytja alla sjúklingana út úr
húsinu. Aðeins eitt sjúkrahús hér
á landi er búið fullkomnum reyk-
hólfum, en það er Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Sjúkra-
húsin i Reykjavik eru mörg hver
búin slikum hólfum, en þau eru þó
ekki þannig að þau geti talizt full-
komin.
En, — þvi miður virðast all-
mörg sjúkrahús hér á landi vera
svo illa búin eldvarnarbúnaði, að
ekki tekur neinu tali.
----------------------------^
AÐALFUNDUR miðstjórnar
Framsóknarflokksins hófst I
gær. A myndinni býður Ólaf-
ur Jóhannesson, formaður
FramsóknarfloUksins, Gúst-
af Halldórsson frá Hvamms-
tanga, velkominn til aðal-
fundarins. Tfmamynd:
Gunnar.
t opnu Timans idag er birt
ræða ólafs Jóhannessonar á
aðalfundinum i gær.
-------------—--------------
„VELKOMINN TIL
AHAI El IMnADIKIC"
ÚTVARP ÍSLAND
I WINNIPEG
gébé—Rvik — Nýlega tók til
starfa i Winnipeg ný útvarpsstöð,
þar sem útvarpað verður á mörg-
um tungumálum, þar á meðal is-
lenzku. Stjórnandi islenzku dag-
skrárinnar er Guðbjartur Gunn-
arsson, og var fyrsta þættinum
útvarpað 9. april s.l.
Eigandi stöðvarinnar,
Casimir Stancykowsky, gerði at-
hugun á þjóðernislegri skipíingu
ibúa Manitobafylkis og komst að
þeirri niðurstöðu, að 60% ibúanna
I helzta þéttbýlinu voru af öðru
Guðbjartur Gunnarsson, stjórn-
andi Islenzku dagskrárinnar.
þjóðemi en ensku eða frönsku, og
jafnframt að fjórðungur þessa
fólks notaði sina eigin þjóðtungu á
heimilum sinum.
Þvi var það, að Stancykowsky
ákvað að reisa þessa stöð i Winni-
peg, og hefur hann lagt um hálfa
milljón dala i stofnkostnað. Stöð
þessi, CKJS, sem útvarpar á
miðbylgju 810, er talin ná til 85%
Ibúa Manitobafylkis frá sendi,
sem magnaður er 10.000 W orku,
en stöðin er i gangi allan sólar-
hringinn. Islenzka dagskráin
verður hálf klst, einu sinni i viku.
Guðbjartur Gunnarsson,
stjórnandi isl, dagskrárinnar,
flutti frá íslandi til Winnipeg fyrir
rúmum tveimur árum, er hann
hóf störf frá Manitóbaháskóla.
Áður starfaði hann við islenzka
sjónvarpið.