Tíminn - 28.05.1975, Page 2
2
TÍMINN
Miövikudagur 28. mai 1975
Svíakonungur heldur
sig við Suðurlandið
Kemur í opinbera heimsókn 10. júní
Eins og áöur hefur verið til-
kynnt, mun hans hátign Karl
XVI. Gustaf konungur Sviþjóðar
dveljast hér á landi i opinberri
heimsókn dagana 10. til 13. júni.
Kongur kemur flugleiðis til
Reykjavikur. 1 fylgdarliði hans
verður m .a. Sven Andersen, utan-
rikisráðherra Sviþjóðar.
Heimsóknin hefst með opinberri
móttöku á Reykjavikurflugvelli
þriðjudaginn 10. júni kl. 11:30.
Verður siðan ekið frá flugvellin-
um um Reykjanesbraut, Hring-
braut, Sóleyjargötu, Frikirkju-
veg, Vonarstræti og Tjarnargötu
að Ráöherrahústaðnum, þar sem
konungur mun búa meðan á
heimsókninni stendur. Forseti Is-
lands og kona hans hafa hádegis-
verðfyrir gestina þann dag, en kl.
I Maria Jónsdóttir við stýrið á
I leið 4. Timamynd Gunnar.
16.00 verður skoðuð i Landsbóka-
safni tslands sýning sænskra
bóka, sém gefnar hafa verið frá
Sviþjóð. Kl. 16:35 verða handritin
I Ámagarði skoðuð. Þá mun
konungur taka á móti forstöðu-
mönnum erlendra sendiráða i
Reykjavik, en um kvöldið kl.
20:00 halda forsetahjónin kvöld-
veröarboð að Hótel Sögu til heið-
urs konungi.
Að morgni miðvikudags 11. júni
verður flogið til Hafnar i Horna-
firöi og höfð stutt viðdvöl i Vest-
mannaeyjum á leiðinni, ef
lendingarskilyrði leyfa. Hádegis-
veröur verður snæddur að Hótel
Höfn, en siðan ekið til Skaftafells
með viðdvöl hjá Jökulsárlóni og
við Svinafellsjökul. Kvöldverður
verður snæddur hjá Skaftafelli.
Um kvöldið verður flogið frá
Fagurhólsmýri til Reykjavikur.
A fimmtudagsmorgun 12. júni
verða iþróttamannvirkin i
Laugardal skoðuð og ekið um
Reykjavikurborg. Einnig verður.
skoðað hafrannsóknaskipið
„Bjarni Sæmundsson” og frysti-
hús i Orfirisey. Borgarstjórnin
býður þvi næst til hádegisverðar
að Kjarvalsstöðum, en siðdegis
verða Norræna húsið, Þjóðminja-
safnið og Listasafn Islands skoð-
uð. Þá mun konungur taka á móti
Svium á íslandi i sendiráði Svi-
þjóðar. Að kvöldi hefur konungur
boð að veitingahúsinu Nausti.
Á föstudagsmorgun 13. júni
verður ekið til Þingvalla og komið
við á leiðinni i dælustöðinni að
Reykjum. Á Þingvöllum verður
hinn forni þingstaður skoðaður og
snæddur hádegisverður i Valhöll.
Siöan verður haldið til Reykja-
vikur með viðdvöl i Hveragerði.
Kl. 17.00 mun flugvél konungs
hefja sig til flugs frá Reykja-
vikurflugvelli og lýkur þar með
hinni opinberu heimsókn.
Karl XVI. Gústaf Sviakonungur
Tvær konur hefja
strætisvagnaakstur
ASK—Reykjavik — Tvær konur
taka nú bráðlega til starfa sem
strætisvagnabilstjórar, önnur i
Kópavogi en hin I Reykjavik.
Kristjana Bergsdóttir rúmlega
tvitugur háskólanemi ekur hjá
SVK en Marla Jónsdóttir hjá
SVR.
Karl Árnason forstöðumaöur
SVK sagöi blaðinu i dag, að hjá
fyrirtækinu störfuðu nú I sumar
um það bil 10 manns við afleys-
ingar,en alls væru 14 vagnstjórar
fastráðnir. Þannig að segja má aö
ráða þurfi starfsmann fyrir hvern
vagnstjóra I frii. Kristjana tekur
til starfa hjá SVK um miðjan
næsta mánuð.
Hjá SVR var fyrir svörum
Hjörleifur Friöleifsson vaktstjóri.
Sagöi hann Mariu hefja störf
næsta sunnudagsmorgun og aka á
leið fjögur.
í fyrra-kvöld fóru Timamenn á
vettvang er Maria var I æfingar-
akstri, en þá ók hún heila ferö á
fyrrgreindri leið.
ÆSKULYÐSRAÐSTEFNA
í NORÐURLANDSFJÓRÐUNGI
Fjórðungssamband Norð-
lendinga hefur ákveðið, i sam-
vinnu við Æskulýðsráð rikisins og
æskulýðssamtök á Norðurlandi,
aö boða til ráðstefnu um æsku-
lýösmál að Laugum i S.-Þing-
eyjarsýslu, dagana 21. og 22. júni
nk. Tilgangur ráðstefnunnar er
fyrst og fremst að kynna æsku-
lýösstarf, er fram fer i fjórðungn-
um, og fjalla um leiðir til að efla
það og sameina.
Fulltrúar ungmenna- og
iþróttafélaga og æskulýðsráða á
Norðurlandi hafa nú að undan-
fömu unnið að itarlegri könnun á
æskulýðsstarýsemi, og verða
niðurstöður könnunarinnar lagð-
ar fram á ráðstefnunni.
Meðal atriða á dagskrá ráð-
stefnunnar má nefna erindi
Kristins G. Jóhannssonar skóla-
stjóra. Þorsteinn Einarsson
iþróttafulltrúi og Reynir G.
Karlsson flytja einnig erindi. Þá
munu fulltrúar héraðssambanda
og Iþróttabandalaga á Norður-
landi gera grein fyrir félagsstarfi
sinu.
Ráöstefnan verður öllum opin,
og er æskufólk hvatt til þess að
taka þátt i henni. Þá er þess
vænzt, að sveitarstjórnarmenn,
skólamenn og aðrir áhugamenn
um æskulýðsmál á Norðurlandi
mæti á ráðstefnunni.
Selveiðitíminn senn að hefjast
BENZINLAUST FYRIR
NORÐAN OG UNDAN-
TÍU ÞÚSUND KR. FYRIR 1.
FLOKKS VORKÓPASKINN
Þýzkur sérfræðingur kennir mönnum verkun skinnanna
FB-Reykjavik.Mikil verðhækkun
hefur orðiö á selskinnum frá þvi i
fyrra. Þá fengust um 6400 krónur
fyrir fyrsta flokks vorkópaskinn,
en nú er búizt viö að greiddar
veröi 10 þúsund krónur fyrir
skinnið, samkvæmt upplýsingum
Agnars Tryggvasonar, fram-
kvæmdastjóra búvörudeildar
Sambandsins. Agnar sagði, að
SIS keypti venjulega á milli 5000
og 6000 skinn á ári, og væri þaö
meginhluti þeirra selskinna, sem
til féllu hérlendis. Aöalmarkaös-
svæðin eru i Þýzkalandi og Hol-
landi, þar sem skinnin eru notuð i
pelsa.
A vegum búvörudeildarinnar er
væntanlegur hingaö til lands
þýzkur sérfræðingur, Wilfried
Muller frá Wilhelmshafen i
Þýzkalandi, og mun hann á næst-
unni halda námskeið i meöferð og
verkun selskinna. Ætlunin er aö
hann ferðist um landið og haldi
námákeiö i öllum landsfjórðung-
um á timabilinu 3. til 19. júni.
Mun Muller fara með bændum i
veiðiferöir og leggja svo á ráöin
um verkun skinnanna. Búast má
við, aö þaö geti orðið lærdómsrikt
og til verulegs fjárhagslegs á-
vinnings, þvi aö undanfarin ár
hefur borið nokkuð á kvörtunum
frá erlendum kaupendum vegna
verkunargalla á skinnunum, að
þvi er segir I nýútkomnum Sam-
bandsfréttum.
Agnar Tryggvason sagði, að
mikið af skinnunum færi alltaf i
annan, þriðja og jafnvel fjóröa
flokk, og fara þar milljónatugir i
súginn, sem hægt er aö komast
hjá að tapist meö réttri verkun.
Þar sem oft á tiðum er ekki nægi-
legur mannafli i sveitunum,
verður að láta skinnin blöa eftir
að selirnir hafi verið drepnir og
þar til hægt er að hefjast handa
um verkun þeirra. Þetta er mjög
óæskilegt, og veldur þvi að skinn-
in verða verðminni og skemmast.
Wilfried Muller er þrautreynd-
ur sérfræðingur á þessu sviöi, og
hefur meðal annars unnið árum
saman I Alaska við fláningu,
sköfun og frágang vorkópa-
skinna.
ÞÁGA FÉKKST TIL
BENZÍNFLUTNINGA
BH-Reykjavik. — Stapafell iest-
aði bensini i Reykjavik i gær til
flutnings norður um land, en þá
var orðið bensinlaust á Akureyri
og Húsavik. Sótti Oliufélagið um
undanþágu til Vélstjórafélagsins
til þessara flutninga, og var það
veitt á stjórnarfundi i gær, en eins
og kunnugt er hefur samúðar-
verkfall vélstjóra á fragtskipun-
um staðið I fjórar vikur. Var und-
anþágan veitt Stapafellinu, sem
lá I Reykjavikurhöfn af völdum
verkfallsins.
Samkvæmt upplýsingum skipa-
deildar SIS eru tvö sambandsskip
bundin i höfn, Helgafell og Litla-
fell, sem kom til hafnar i gær.
Mælifell, Skaftafell og Disarfell
eru enn i flutningum.
Vélstjórafélagið veitti okkur
þær upplýsingar, að mikið væri
sótt um undanþágur til flutninga,
og væru þær undanþágur marg-
vislegs eðlis. M.a. hefði verið sótt
fast að fá að flytja hesta með
Akraborginni, en Akraborgin
flytur nú aðeins fólk, bila og póst
á leiðum sinum. Herjólfur fór i
slipp um helgina vegna hreinsun-
ar, sem lengi hafði staðið til, en
mun hefja flutninga að nýju
næstu daga. Hann hefur leyfi til
flutninga á fólki, mjólk og pósti.
Hart sótt um undanþógur til
hrossaflutninga