Tíminn - 02.07.1975, Page 2

Tíminn - 02.07.1975, Page 2
2 TÍMINN Miðvikudagur 2. júli 1975. Stóraukin orkuframleiðsla ó svæði Laxórvirkjunar: Ný toppstöð tekin í notkun á Akureyri í haust — getur brennt svartolíu í stað gasolíu ASK-Akureyri. Veruleg aukning verður á rafmagnsframieiðslu á svæði Laxárvirkjunnar næsta haust. Þá verður tekin i notkun ný toppstöð i landi Rangárvalla fyrir ofan Akureyri. En við hana munu að minnsta kosti vinna fjórir menn þegar stöðin er tilbúin. Framkvæmdir við byggingu stöðvarhússins hófust fyrir rúmu ári siðan og er reiknað með, að hægt verði að prufukeyra vélina, um miðjan ágúst. Hér er um 6,9 megavatta stöð að ræða, en til samanburðar má geta þess, að sú toppstöð, sem fyrir er á Akureyri er 7,5 megavött að stærð. Laxár- virkjun framleiir að meðaltali um 21 megavött. Aðalvélin i nýju toppstöðinni er ensk og mjög fullkomin að gerð og búnaði. Það mun vera nýmæli að unnt verður að brenna svart- oliu I stað gasoliu, en það þýðir óneitanlega mikla kostnaðar- lækkun, en vél sem þessi getur brennt allt að 36 þúsund litrum á sólarhring miðað viö fuil afköst. Nýja toppstöðin á Akureyri. Timamynd ASK Þjófaleit á flugfarþegum frá Þórshöfn og Raufarhöfn ASK-Akureyri. Tveim bankabók- um og peningum var stolið úr ibúðarhúsi á Bakkafirði sl. helgi. önnur bókin var frá Lands- bankanum, en hin frá Útvegs- bankanum I Reykjavik. Samtals voru um 450 þúsund krónur i bókunum, en einnig var stolið tuttugu þúsundum I peningum. Eigandinn, Guðmundur Vagns- son, varð þjófnaðarins ekki var fyrr en á mánudagsmorgun, og telur lögreglan á Þórshöfn að þjófnaðurinn hafi verið framinn um svipað leyti og dansleikur var haldinn i samkomuhúsi Bakka- fjarðar. Þjófurinn virðist hafa gengiö Ritgerða- samkeppni um stöðu konunnar í þjóð- félaginu í tilefni kvennaárs hefur veriö ákveðið á vegum menntamáia- ráðuncytisins að efna til rit- gerðasamkeppni fyrir ungt fólk á aldrinum 15-20 ára. Ritgeröar- efnið er Staða konunnar I þjóðfélaginu, en verðlaun eru ferð og vikudvöl i höfuðstöðvum Sam- einuðu þjóðanna i New York. Samstarfsnefnd um kvennaár S.þ. átti hugmyndina að þessari samkeppni og fór þess á leit við menntamálaráðuneytið að það gengist fyrir henni I samráði við Félag Sameinuðu þjóðanna á ís- landi. Þessir þrir aðilar skipuðu dómnefnd til að gera tillögur um tilhögun keppninnar og dæma rit- gerðir þær sem berast. Frá Félagi Sameinuðu þjóðanna var skipuð Elin Pálmadóttir blaða- maður, sem er formaður, frá kvennasamtökunum dr. Guðrún P. Helgadóttir skólastjóri og frá menntamálaráðuneytinu Hrafn- hildur Stefánsdóttir stjórnarráðs- fulltrúi. Samkeppnin hefur nú verið auglýst. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember n.k., en ætlunin er, að verðlaunahafi fari til Sam- einuðu þjóöanna meðan alls- herjarþingið stendur yfir. Ritgerðum á að skila til menntamálaráðuneytisins og er æskileg lengd þeirra 1200-1500 orð. hreint til verks. Veski Guðmundar, sem var á botni ferðatösku, var tæmt, en I þvi voru einnig persónuskilriki, sem enn hafa ekki komið I leitirnar. Strax og vitað var um þjófnaðinn, voru meöal annars gerðar ráðstafanir til að leita á farþegum, sem fóru með áætlunarflugi frá Þórshöfn sl. mánudag, en sú leit bar engan árangur. Númer bankabókanna hafa þegar verið tilkynnt viðkomandi bönkum. Nemendafjöldi í Hagaskóla langt umfram Hagaskóla var slitið fyrir nokkru. t skólanum voru að þessu sinni rúmlega 700 r.emendur, 704 luku vorprófum. Kennarar voru 51, 38 fastir kennarar og 13 stundakennarar. Nokkur fækkun hefur orðið i skólanum á siðustu árum vegna brottflutnings fólks til nýrra borgarhverfa. Enn er nemendafjöldi þó langt fram yfir það húsrými, sem stofnunin hefur tilumráða.og er skólinn tvlsetinn að hluta. Virðast litlar horfur á, að Hagaskóli verði einsetinn á næstu árum. Hins vegar mun aðstaða nemenda batna á næsta hausti. Verður þá unnt að kenna leikfimi I þeim mæli sem námsskrá leggur til og fella kennslu inn i eðlilega stundaskrá nemenda. Við skólaslit var gerð stutt grein fyrir úrslitum vorprófa: 1 1. bekk luku 185 nemendur prófi. Hæstueinkunn hlautErling Aspelund, 9.16. t 2. bekk luku 196 nemendur unglingaprófi. Hæstu einkunn hlaut Guðriður Ásgeirsdóttir 9.18. 1 3. bekk. almennri bóknáms- deild og verzlunardeild, luku 95 nemendur prófi og hlutu allir framhaldseinkunn. Hæstu einkunn hlaut Ingibjörg Óskars- dóttir, 8.33. í framhaldsdeild 3. bekkjar luku 18 nemendur prófi og hlutu 12 framhaldseinkunn. 108 nemendur tóku landspróf miðskóla að þessu sinni og hlutu 96 framhaldseinkunn, en 8 Tvö sóttu um stöðu skólastjóra leiklistarskóla ríkisins Umsóknarfresti um stöðu skólastjóra Leiklistarskóla Is- lands lauk 30. júni' s.l. Umsækjendur um stöðuna eru: María Kristjánsdóttir og Pétur Einarsson. húsrými nemendur að auki áttu rétt til endurtöku eða ólokið prófum vegna veikinda. Hæsta aðal- einkunn i landsprófsdeildum var 8.8 og hlutu hana 3 nemendur: Arndis Sverrisdóttir, Ingi Bjarnason og Sigurður Ásbergs- son. 1 4. bekk gengu 102nemendur til gagnfræðaprófs, prófið stóðust 94. Hæstu einkunn hlaut Snorri Ólsen, 8.00. Við skólaslit var nokkrum nemendum veitt viðurkenning fyrir góðan námsárangur. Hdlfu fleiri íslendingar í vinnu hjó hernum nú en á sama tíma í fyrra Á tlmabilinu 1. april til 30. júni þessa árs voru samtals 179 ts- lendingar ráðnir til starfa hjá varnarliðinu, þar af í sumaraf- leysingastörf 150. Á sama tima i fyrra voru samtals ráðnir 83 ís- lendingar i vinnu hjá varnarlið- inu, þar af 65 til sumarafleysinga- starfa. Svo er að orði komizt i tilkynn- ingu frá varnarmáladeild utan- rikisráðuneytisins vegna blaða- skrifa um atvinnu íslendinga hjá bandariska herliðinu á Keflavikurflugvelli. I tilkynning- unni segir ennfremur, að hér sé eingöngu um að ræða þá, sem ráðnir eru beint til herliðsins, en ekki þá, sem vinna hjá islenzkum verktökum á flugvellinum, en þar sé einnig um aukningu að ræða, þegar á heildina er litið. AAjög góð byrjun hvalvertíðar: 76 HVALIR Á HÁLFUM MÁNUÐI HJ-Reykjavik. Hvalvertiðin, sem hófst þann 15. júni s.l., hef- ur gengið mjög vel og næg veiði verið allan timann. Að sögn Eggert^ tsakssonar á skrifstofu Hvals h.f. i Hvalfirði, höfðu i gærkvöldi borizt á land 69 hval- ir. Bátar voru á ieið til lands með sjö hvali til viðbótar. — Ég vil ekki fullyrða, að þetta sé metveiði á hálfum mánuði, sagði Eggert, en óhætt er að slá þvi föstu, að hún er mjög góð. Þrjá daga hefur ekki verið hægt að veiða vegna veðurs, en hina dagana hefur verið nægur hvalur á miðunum. Hvalirnir sem veiðzt hafa skipt- ast þannig eftir tegundum, 71 langreyður, 3 búrhveli og 2 sandreyðar. Bátarnir eru nú á veiðum úti af Reykjanesi um 160 milur frá hvalstöðinni. Skiðishvalur dreginn upp á skurðarplanið i hvalstöðinni I Hvalfirði. Timamynd Gunnar. Orkumál Norðurlands og Landsvirkjunarsvæðisins aðal- umræðuefni á aðalfundi SÍR A aðalfundi Sambands is- lenzkra rafveitna, sem haldinn verður að Laugarvatni 3.-4. júli mun Birgir tsleifur Gunnarsson, borgarstjóri, flytja erindi um orkumál á veitusvæði Lands- virkjunar. Knútur Otterstedt, framkvæmdastjóri flytur erindi um orkumál Norðurlands. Auk þess verður m.a. rætt um: Endurmat rafveitna, Framtiðar- stefnu i húshitun á tslandi, Sigöldudeilan stendur enn BH-Reykjavik. — Sáttafundur i kjaradeilu starfsmanna Sigöldu við vinnuveitendur gerast nú all- langir,en samkomulag hefur ekki náðst enn. Fundur hófst i fyrra- dag kl. 17.00 og lauk honum kl. 7 i gærmorgun. Siðan hófst fundur kl. 5 i gærdag og stóð fram eftir kvöldi. Fræðslumál rafveitna og Verk- efni og framtiðarstarf SIR. Blaðamenn samþykktu samninga BH-Reykjavik. — Sáttafundi samninganefnda blaða- manna og blaðaútgefenda, sem hófst kl. 22 i fyrrakvöld lauk um áttaleytið i gær- morgun og var þá undirritað bráðabirgðasamkomulag. Fundur i Blaðamannafélagi Islands var haldinn i gær kl. 3.30 og samkomulagið sam- þykkt. Féllu atkvæði á þann veg, að 23 greiddu atkvæði með samkomulaginu, en 4 gegn þvi. Þorri fundar- manna, sem voru 62 talsins, sat hjá við atkvæðagreiðsl- Raflínukerfi Þórs- hafnar endurnýjað — svipaðar endurbætur fyrirhugaðar annars staðar á Norðausturlandi ASK-Akureyri. Rafmagnsveitur rikisins munu nú á næstunni hefja framkvæmdir við endurbyggingu á raflinukerfi Þórshafnar. Þar hefur rafmagn verið leitt I loftlin- um, en stefnt er að þvi að koma þvi I jarðstrengi. I sambandi við nýja frystihús- byggingu Þórshafnarbúa verður byggð 300kilóvatta spennistöð, en 500 kilóvatta spennistöð fyrir bæjarbúa. I frystihúsið verður svo lagðurhálfs kflómetra langur háspennukapall. Að sögn Agnars Sigtýssonar hjá Rafmagnsveitum rikisins verður, þegar framkvæmdum á Þórshöfn lýkur, ráðizt i svipáðar endur- bætur i öðrum bæjarfélögum á N- Austurlandi. En loftlinur eru við- ast i bæjarhlutum, svo sem á Raufarhöfn og á Kópaskeri. Loft- linumar eru að visu ódýrari i uppsetningu, en dýrar i viðhaldi ogvalda mun meiri truflunum en jarðstrengir, eins og ibúar þess- ara staða hafa orðið illilega varir við á undanförnum árum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.