Tíminn - 02.07.1975, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Mi&vikudagur 2. júli 1975.
XV ráðstefna
norrænna búvísindamanna:
Á SJÖUNDA
HUNDRAÐ
FULLTRÚAR
— sækja ráðstefnuna, sem haldin er
í fyrsta skipti hérlendis
Ei með orðaflaumi
mun eyðast heimsins nauð.
Kyrrt og rótt i jörðu
vex korn i brauð.
gébé—Rvik — 1 gærmorgun kl.
10:00 var fimmtánda ráðstefna
norrænna búvisindamanna
(N.J.F.) sett i Háskólabiói i
Reykjavik. Þetta er i fyrsta
skipti, sem ráðstefnan er haldin
hér á landi, en Island gerðist aðili
að samtökunum 1926, og hafa is-
lenzkir fulltrúar sótt ráðstefnurn-
ar, sem haldnar eru á Norður-
löndunum fjórða hvert ár. Forseti
tslands, Kristján Eldjárn og for-
setafrú Halldóra Eldjárn, voru
viðstödd setningarathöfnina,
ásamt Birgi tsleifi Gunnarssyni
borgarstjóía. Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra setti ráöstefnuna i fjarveru
landbúnaðarráðherra.
Ráðstefnuna, sem stendur til
föstudags, sitja um 570 erlendir
fulltrúar frá Finnlandi, Dan-
mörku og Sviþjóð, en islenzku
fulltrúarnir eru um 70 talsins.
Lúðrasveit Reykjavikur lék þjóð-
lög frá öllum Norðurlöndunum
við setningarathöfnina, undir
stjórn Björns R. Einarssonar.
Formaður NJF, Sveinn Hall-
grimsson bauð gesti velkomna og
Birger Granström frá Sviþjóð
flutti kveðjur frá Norðurlöndun-
um og lýsti yfir ánægju þátttak-
enda ráðstefnunnar að vera
komnir til íslands.
Setningarræða Vilhjálms
Hjálmarssonar fer hér á eftir:
Herra forseti Islands, Kristján
Eldjárn, virðulega forsetafrú,
Halldóra Eldjárn, virðulegir ráð-
stefnugestir.
lslendingar fagna hér góðum
gestum frá norrænu bræðraþjóð-
unum. Ég veit ég tala fyrir hönd
rikisstjórnar íslands og raunar
allra Islendinga, þegar ég i nafni
islenzku deildarinnar býð hina er-
lendu gesti, frændur okkar, hjart-
anlega velkomna til þessa móts.
Islenzkir bændur hafa sérstaka
ástæðu til að fagna þvi fólki, sem
hér kemur saman i dag til þess að
ráða ráðum sinum.
Það var islenzkur bóndi sem
orti þannig:
Minn hlutur er að yrkja það
búland, sem biður
og brosið við reikulan fót.
Og leggja mina hönd og minn
hug ekki siður
til hjálpar við islenzka rót.
Og eygja hverja stund, sem af
ævinni liður
sem úrlausn og fagnaðarbót.
Meginhlutverk bóndans er að
hjálpa gróðrinum og gefa ,,barn-
inu brauð” i viðustu merkingu
þeirra orða.
Hlutverk ykkar, viröulegu vis-
indamenn, sem starfið á sviði
landbúnaðarins er að hjálpa
bændunum i þessu starfi. Þvi
fagna islenzkir bændur alveg sér-
staklega komu ykkar og vænta
sér góðs af þessu þingi og af öllu
ykkar starfi.
Samstarf Norðurlandanna er
rækt á breiðum grunni. Það sam-
starf allt er jákvætt, hefir t.d.
engin hernaðarleg markmið held-
ur stefnir að þvi að treysta bönd
vináttu og frændsemi, göfga
menningu og listir þjóðanna, efla
atvinnuvegi þeirra og auka fram-
leiðsluna.
Samtökin Nordiski jordbrugs-
forskeres forening hafa þegar
starfað i 57 ár. Þetta er þvi orðinn
gamall og gróinn félagsskapur,
eins og við segjum gjarnan Is-
lendingar. Starfssögu hans ræði
ég ekki, en fáum mun dyljast, að
með svo viðtæku samstarfi verð-
ur mörgu til vegar komið, sem
ella yrði ógert látið.
Islendingar hafa tekið sér fyrir
hendur, svo fámennir sem þeir nú
eru, að halda uppi sjálfstæðu riki
með réttindum þeim og skyldum,
sem þvi fylgja — og þykir
áreiðanlega sumum vinum okkar
erlendum nærri broslegt, sem von
er.
Þessu fylgir það m.a. og alveg
óhjákvæmilega, að við verðum að
reka og efla visindalega starf-
semi á mörgum sviðum. — Sam-
eiginlegar þarfir i smáu þjóð-
félagi eru litlu færri en i stóru og
veldur það erfiðleikum. Við finn-
um t.d. oft sárt til þess Islending-
ar, að okkur hefir ekki tekizt, að
búa rannsóknarstarfsemi at-
vinnuveganna svo vel úr garði að
Vilhjálmur Hjálmarsson rá&herra setur rá&stefnuna.
Tlmamyndir; G.E.
mannafla og tækjum, sem við
heföum viljað og vert væri. Það
er þvi okkar hagur að taka þátt i
samstarfi á sviði landbúnaðarvis-
inda með frændþjóðum okkar,
sem hér eiga traustari bakgrunn
og eiga á ýmsan hátt fleiri kosta
völ.
Þrátt fyrir það, sem ég nú hef
sagt, þá má ég fullyrða, að is-
lenzkir búvisindamenn hafa unn-
ið þjóð sinni ómetanlegt gagn frá
þvi fyrsta og fram á þennan dag.
— Persónuleg reynsla er ólygin
og oft eftirminnileg. Enda þótt ég
sé landbúnaðarráðherra aðeins i
forföllum, þar að auki alinn upp á
sjávarbakkanum, og þvi nokkuð
vanur að handfjatla fisk, þá hef
ég lengst af verið bóndi að at-
vinnu.
Þegar ég var unglingur herjaði
„bráðafár” sauðféð. Þegar ég
kom af fjalli á haustin, þá gekk ég
um hagann kvölds og morgna að
stytta kvalið helsjúkra kinda.
Gamla bóluefnið, sem dugað
haföi vel I fyrstu, var orðið óvirkt.
— Islenzkir visindamenn bættu úr
þessu og gerðu hinar óskemmti-
legu eftirlitsferðir með aflifunar-
vopnið óþarfar með öllu.
Fáum árum siðar kom upp
ormaveiki, sem drap fjölda fjár
og enginn kunni ráð við. Fór
þessu fram um hrið, unz islenzkir
vísindamenn undir forystu próf.
Nielsar Dungal sendu út „orma-
lyfið”, sem reyndist óbrigðult
meðal i áratugi. — Þessari
reynslu gleymi ég aldrei.
Með nýjum timum koma ný
vandamál, sem mæta verður með
nýjum viðbrögðum. Ég nefni
dæmi: Islenzkir bændur ræktuðu
á fáum árum stór tún með nýju
lagi. En þau tún þola illa köld vor.
Mikið er i húfi, þvi grasið er
undirstaða velmegunar hjá is-
lenzkum bónda. — Tilbúinn
áburður er ekki gamalt fyrirbæri.
Dreifing hans úr flugvélum um
tún og heiðar er enn nýrra uppá-
tæki. Hér er mjög mörgum spurn-
ingum ósvarað. — En ekki fleiri
orð um slika einstaka þætti. Hér
er þeim manni bezt að tala var-
lega, sem e.t.v. kann minna fyrir
sér i þessum greinum en aðrir
viðstaddir.
Ég sagði áðan, að með nýjum
timum kæmu ný vandamál. —
Sum þeirra eru i senn ný og við-
varandi. Svo er um þá spurningu
allra tima, sem að þvi er ykkar
vettvang snertir, virðulegu búvis-
indamenn, er flestum eða öllum
stærri. Hvernig get ég umgengizt
land mitt, þannig að það skili full-
um arði til handa mér og öðru
mannfólki, en sé þó stöðugt á leið
aö verða betra og arðgæfara?
Það er hlutverk bænda og bú-
vísindamanna að stuðla að þvi að
svo megi til takast.
Aö siðustu, góöir tilheyrendur:
Visindin eru máttug og maðurinn
stoltur af mætti þeirra. Það er
gagnlegt að hittast, ráða ráðum
sinum og skila fenginni vitneskju
frá manni til manns. — En má ég
einnig minna á spakmæli skálds-
ins, sem kvað:
Háskólabió var skreytt fyrir setningarathöfnina I gærmorgun. Sveinn Hallgrlmsson býður þarna gesti og fulltrúa velkomna. Lúðrasveit
Reykjavikur lék undir stjórn Björns R. Einarssonar. Ráðstefnan er sett.