Tíminn - 02.07.1975, Blaðsíða 8

Tíminn - 02.07.1975, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Miövikudagur 2. júli 1975. Miðvikudagur 2. júli 1975. TIMINN 9 TIMINN HEIAASÆKIR BOLUNGARVIK TIMINN HEIMSÆKIR BOLUNGARVIK Texti og myndir Þorgeir Örlygsson Bolvíkingar standa í þakkarskuld við Einar Guðfinnsson t frystihúsi Einars Guöfinnssonar. bæjarins, en nú hefur bærinn keypt tæki til þess að sjá um þaö sjálfur. — Sezt ungt fólk mikiö aö hér á Bolungarvik? — Þaö er alveg augljóst, aö ungt fólk sækist eftir þvi i mjög auknum mæli aö setjast aö i Bol- ungarvik. Og þaö er alveg sér- staklega áberandi hvaö ungt fólk, t.d. af höfuöborgarsvæöinu, unir hag sinum vel hér og sækist eftir þvi aö koma hingaö. Atvinna hefur ávallt veriö mjög jöfn og góö hérna og aöstaöa til þess aö stunda félagslif ágæt, ef fólk bara nennir aö sinna þvi. — Aö lokum? — Ekki annaö en þaö, aö ég er mjög bjartsýnn á framtlöarupp- byggingu Bolungarvikur. En jafnframt vil ég koma á framfæri þakklæti til Einars Guöfinnsson- ar, sem öörum fremur hefur stuölaö aö hinni öru uppbyggingu staöarins. Þótt hann sé sjálfur meö ákaf- lega umsvifamikinn atvinnu- rekstur, hefur hann hjálpaö mörgum smærri fyrirtækjum við aö koma undir sig fótunum og reynzt öllum þeim, sem til hans hafa leitaö, hin mesta hjálpar- hella. En þaö skemmtilegasta viö Einar er það, hvaö hann treystir unga fólkinu vel, — sagöi örnólf- ur aö lokum. örnólfur Guö- mundsson er 27 ára gamall Bol- vikingur, sonur Guðmundar á Hóli. Hann hefur allan sinn aldur dvaliö á Bolungarvik utan einn vetur, er hann dvaldi I Reykjavik, og þaö segir hann, aö sé leiöinleg- asti vetur ævi sinnar. örnólfur rekur ásamt föður sin- um þungavinnuvélafyrirtæki á Bolungarvik. —oOo— — Auk þungavinnuvélarekst- urs stundið þiö malarnám? — Já, þaö er rétt. Viö erum meö malarnám og seljum allan pússningasand til Flateyrar og Súöavikur. Starfsmenn fyrir- tækisins eru venjulega þrir, en viö fjölgum reyndar alltaf eitthvaö yfir sumartimann, þvi að þá er jafnan meira aö gera: núna t.d. erum við að ganga frá gangstétt- arlagningu viö þær götur, sem malbikaöar voru I fyrra, og til þess að geta lokiö þvi verki þurf- um viö aukinn starfskraft. — Hefur fyrirtækið haft næg verkefni að undanförnu? — Nei, þvi miður er ekki hægt að segja að svo hafi verið, og kemur þar helzt til hinn mikli niðurskurður framkvæmda bæöi hjá sveitarfélögum og svo ekki siöur rikinu sjálfu. Þaö er engu likara en opinberar stofnanir, eins og rafveiturnar og siminn, séu hættar öllum verklegum ömólfur Guömundsson. framkvæmdum, alla vega er mjög óljóst, hvað fram undan er hjá þeim, hvað framkvæmdir snertir. —■ Er ekki erfitt að reka svona þungavinnuvélafyrirtæki vegna hins langavetrar? — Jú, þaö er miög erfitt, þvi aö viö getum eiginlega ekkert unnið nema yfir sumariö, en veturinn er að mestu leyti dauöur timi fyrir okkur, og þá standa vélarnar verkefnislausar. Viö höfum aö visu séö um snjómokstur á götum ÆTLAÐI AÐ VERA ÞRJÁ AAÁNUÐI — en er búin að vera þrjú úr — Við höfðum einfaldlega ekki áhuga á þvi að búa lengur i Reykjavik, en lang- aði mikið til þess aö fara eitthvað út á land, en höföum reyndar ekki neinn ákveðinn staö i huga. Kunn- ingi okkar, sem hér býr, benti okkur eindregið á að koma hingaö og viö létum til leiðast og ákváö- um að fara til reynslu i þrjá mánuði og sjá, hvernig okkur likaöi veran. En þessir þrir mánuðir eru nú orðnir aö þremur árum. — Sú, sem segir frá.er ung stúlka úr Reykjavik, Auður Georgsdótt- ir, sem ásamt manni sinum, sem einnig er Reykvikingur, flutti fyrirþremur árum frá Reykjavik til Bolungarvikur. Auður hefur frá þvi, er hún kom til Bolungar- vikur, starfað i frystihúsi Einars Guöfinnssonar hf., en maöur hennar stundað færaveiöar. — Auðvitaðfinn égmikinnmun á þvl aö búa hérna og I Reykjavik, það er I raun og veru allt ööru vlsi. Hér eru samskipti fólksins miklu nánari og persónulegri og þaö kemur af sjálfu sér, að i svona litlu plássi kynnist maður þvi sem næst öllum, enda þekkja allir alla hér. — — Nú er unnið samkvæmt bónuskerfinu svokallaða i frysti- húsinu. I hverju felst það? — — Ég verð fúslega aö viöur- kenna, aö ég á dálitið erfitt með aö átta mig á þvi, hvernig þetta bónuskerfi virkar, en i meginat- riöum er þaö þannig, aö auk timakaups faum við sérstaka borgun fyrir afköst og nýtingu. Fiskurinn er vigtaður til okkar og hann er lika vigtaður, þegar hann ertekinn frá okkur. Þess vegna er það ákaflega mikilvægt, að skera mjög fint i kringum beinagaröinn og skilja þar litið eftir. Meöa) mánaðarlaun er dálitiö erfittaðtala um iþessu sambandi vegna þess, hve kaupið er ákaf- lega mismunandi, en hæsta tima- kaup,sem hægt er aö komast I er 325 krónur, það var i mars og april, enda var næturvinna ákaf- lega mikil þann tima, en þá geröi vikan mest 43 þúsund krónur. Arstekjur hjá mér voru á siö- asta ári um 900 þús. kr., og geri ég ráö fyrir þvi, að þær konur, sem eru i fullri vinnu i frystihús- Auöur Georgsdóttir. inu, séu meö svipaöar tekjur. En aö visu getur þetta veriö dálitiö mismunandi eftir nýtingu og af- köstum. — — Fáiðþið eins góöa nýtingu út úr togaraaflanum eins og fékkst úr afla linubátanna? — Nei, það held ég ekki. Togarafiskurinn er lausari i sér og ekki eins gott hráefni. Ég hef verið lægri i nytingu að undan- förnu og ég held, að það stafi fyrst og fremstaf þvi, að við höfum svo til eingöngu unnið úr togarafiski. — Hvernig kemur bónuskerfiö út hjá eldra fólki. — — Auövitað er hver og einn sjálfráöur um þaö, hverju hann afkastar, en þvi er ekki aö leyna, aö þetta er mikið álag fyrir eldra fólkiö, og ekki má gleyma þvi, að þetta getur lika verið mikið álag fyrir þá, sem yngri eru. En mér hefur yfirleitt virzt eldra fólkiö halda sinu striki og flýta sér ekki óhóflega ef þaö finnur sig ekki þola þaö álag sem bónuskerfinu fylgir. Ég er þeirrar skoöunar að fólk sé ánægt með bónuskerfið, þó að mikið álag fylgi þvi enda gefur þaö mun meiri möguleika til tekjuöflunar. — — Finnst þér velmegun meiri i Bolungarvik heldur en i Reykja- vik?— — Það er kannski dálitið erfitt aö dæma um það, en hitt er stað- reynd, aðfólk hefur það mjög gott fjárhagslega hérna, jafn vel betra heldur en viðast hvar annars staöar. — — Ætlar þú að halda áfram að vinna i fiskinum? — Sem stendur er ég að byggja og verð aö vinna, þar til húsið er fullbúið. Þá get ég kennski fariö aö hægja á og taka það rólega, — sagöi Auöur að lokum. 1910 VAR ÍBÚAFJÖLDINN I BOLUNGARVIK SAMI OG HANN — rætt við Guðmund Magnússon d Hóli — Bolungarvik er ein elzta verstöð landsins, enda er þaöan stutt til fengsælla fiski- miða. Lending þar var lengi vel ákaflega erfið, en nú siðustu árin hafa verið gerðar miklar hafnar- bætur I Bolungarvfk, enda vikin ein blómlegasta útgeröarstöð á öllu Islandi. Guömundur Magnússon á Hóli er bæjarfulltrúi i Bolungarvik, og ætlar hann að spjalla við okkur um þaö helzta, sem á döfinni er hjá Bolvikingum. Guðmundur er fæddur á Hóli, hinu forna höfðingja-og kirkjusetri, og hefur alla sina tið búið i Bolungarvik. Hann er fæddur 10. marz 1912 og stundaði sjóinn lengi framan af, eins og titt var um unga menn á hans aldri, en nú síöustu árin hefur hann veitt forstöðu þunga- vinnuvélafyrirtæki i Bolungarvik. — oOo — — Manst þú eftir útræöi úr Ósvörinni, Guðmundur? — — Ekki man ég beint eftir út- ræöi úr Ósvörinni, en þó minnist ég þess frá uppvaxtarárum min- um, að maöur, sem að Ósi bjó, réri úr vörinni á handfæraveiðar. Auk þess var jafnan lent i Ósvör, þegar ekki var hægt að taka land i Bolungarvik. Um Ósvör er til skemmtileg þjóðsaga, sem segir, aö I Ósi hafi búið bóndi einn, sem forkunnarfagra dóttur átti, og girntist vinnumaður bónda dóttur hans. Bóndi lofaði vinnumanni þvi, aö hann gæti fengið dóttur- ina, ef að hann lyki viö að ryöja vörina. Vinnumaöurinn fór að vinna og vann bæöi vel og lengi, miöaöi hratt áfram, en þegar hann átti einn stein eftir, sá bóndi, aö vinnumaöur myndi vinna fyrir stúlkunni. Hann átti þvi ekki nema eitt ráö til og það var, aö koma vinnumanni fyrir kattarnef, og það gerði hann. — — Hefur Bolungarvik breytt um svip frá þvi, er þú varst að al- ast upp? — — Jú, byggöin hér hefur mikið breytzt, þvi að þegar ég var að al- ast upp, stóðu þvi sem næst öll Ibúöarhús i Bolungarvik á fjöru- kambinum neðan Hafnargötu, á mölunum svokölluðu. Þarna stóöu veröbúðirnar þétt saman, ogoft var svo þröngt búið, að átta menn urðu að hirast I einni her- bergiskytru. En merkilegt er, aö áriö 1910 voru ibúar Bolungarvik- ur jafn margir og þeir eru nú, eða um 1000 manns. A striðsárunum flutti fólk afar mikiö héöan til Reykjavikur i Bretavinnuna, og á timabili var fólksfjöldinn kominn niöur i um 640 manns. Aratugurinn á milli 1930 og 1940 var vitanlega mjög erfiður og litla atvinnu að fá, svo að ekki er að furða, þó að fólk hafi flykkzt suður I Bretavinnuna, þegar hún bauðst. En i striðslokin fóru bátar að landa hér i auknum mæli og þá tók að lifna yfir atvinnulifinu. Samfara þvi voru svo auknar húsbyggingar, og segja má, að upp frá þvi og fram til dagsins i dag hafi byggðin þróazt jafnt og þétt, en litið verið um stór stökk i þeim efnum. — —- Hvenær hefjast umsvif Ein- ars Guðfinnssonar hér i Bolung- arvik? — — Einar flytur til Bolungarvik- ur kringum 1930. Hann byrjaði ákaflega smátt, rak bæði verzlun og fisksölu, keypti af einum eða tveimur bátum og hafði einn karl sér til hjálpar. En veruleg aukn- ing á atvinnurekstri Einars verða ekki fyrr en hann kaupir dánarbú Péturs heitins Oddssonar, sem segja má, að verið hafi kóngur i Bolungarvik á undan Einari. Þá fékk hann eignarhald á lóðum i kringum höfnina, fiskreitum og fleiru, sem til þurfti. — — Hafnaraðstaða var lengi vel ákaflega erfið I Bolungarvik. Arið 1914 var byrjað á brimbrjótnum og þá i sömu breidd og hann nú er i. Framkvæmdir þessar fóru hægt af stað, og mönnum fannst litið miða áfram. Verkfræðingamir, sem um verkið sáu undir forustu Þorvaldar Krabbe vitamála- stjóra, gripu þá til þess ráðs, að mjókka bryggjuna um helming, sjávarmegin en við þær fram- kvæmdir myndaðist skarð i vegg- inn. Afleiðing þess varð sú, að frá skarðinu og út stóð bryggjan aldrei. Báran átti svo þægilegt með að ná þarna inn og brjóta bryggjuna. Þvi var það, að i mörg ár voru einu hafnarframkvæmd- irnar i Bolungarvik, lagfæring á þvi, sem sjórinn braut niður. Siðan var bryggjan breikkuð aftur, en skarðið var alltaf til vandræða, þar til sett var stálþil fyrir innan og sterkur stein- steyptur veggur sjávarmegin. Það næsta, sem siðan gerist i hafnarmálunum er það, að frá SA ER NÚ Guðmundur Magnússon. Hesteyri var keyptur steinnökkvi, sem Kveldúlfur átti, og hafði not- að fyrir sildarþró. Nökkvinn var dreginn hingað, fylltur grjóti og honum sökkt fyrir framan bryggjuna. Skilrúmin i nökkvan- um voru um fjögurra til fimm tommu þykk, og var okkur sagt, að þau myndu standast allan sjó en sú varð aldeilis ekki raunin á, þvi aö einn veturinn, þegar mikið brim gerði, kom gat á stein- nökkvann, en smágrjótið gekk allt inn I höfnina. Gifurlegir erfið- leikar fylgdu i kjölfar þess óhapps. Þaö næsta sem gerist i þessum málum er svo það, að árið 1962 fékkst 10 milljóna króna enskt lán til hafnarframkvæmda, og þá var þilið sett og veggurinn steyptur og siðan hefur ekkert haggazt. — — Eru Bolvikingar ánægðir með núverandi hafnaraðstöðu? — — Hafnaraðstaðan er góð aö þvi leyti til, að kominn er báta- höfn og viðlegukantur, en það, sem mest háir okkur eru dypkunarframkvæmdirnar við innsiglinguna, þvi að stór skip eins og togarinn komast ekki full- fermd inn, þegar lágsjávað er. Auk þess skortir lika dýpkunar- framkvæmdir á innri höfninni, ósvör. þvi að þar geta stór skip ekki leg- iðlmiklum brimum, og verður aö fara með þau til ísafjarðar, þvi að viö brjótinn sjálfan getur ekkert skip legið I miklu brimi. — — Eru miklar gatnagerðar- framkvæmdir á döfinni? — — I fyrra var gerð áætlun um það að malbika tvær aðalgöturn- ar, Hafnargötu og Aðalstræti, og áttu þær framkvæmdir að kosta um 12 milljónir króna. Framkvæmdir fóru hins vegar I 18 milljónir og var þó ekki fram- kvæmt nema brot af þvi, sem fyrirhugað hafði verið. Við von- umst þó til, að geta I sumar lagt yfirlag á Hafnargötu, og auk þess lagt eitthvað af holræsum til undirbúnings fyrir varanlegri gatnagerð. — — Hvað er þá af byggingar- framkvæmdum að segja hér á Bolungarvik? — Byggingarframkvæmdir hafa verið mjög miklar á undan- fömum árum, en þó hefur hús- næðisskortur verið geigvænlegur, og trúlegt, að hann hafi dregið töluvert úr fjölgun hér á Bolungarvik, þvi að hingað hafa margir viljað flytja, en ekki getað sakir húsnæðisskorts. Þetta hefur lika komið illa við fræðslumálin, þvi aö við höfum þurft að hafna þeim kennurum sem sótt hafa um að koma hingað og átt fjölskyld- ur, þvi að ekki hefur verið unnt að útvega þeim húsnæði. I fyrra var hafin bygging 12 leiguibúða, og i sumar verður byrjað á nýju fjölbýlishúsi, og eru þaö Byggingafélag verkamanna og leiguibúðakerfið, sem standa að þeim framkvæmdum. — — I hvernig horfi hefur læknis- þjónustan verið? — — Sem stendur höfum við lækni og liklega næsta ár, en hvað þá tekur við, veit ég ekki. Hér er sjúkraskýli og læknisbústaður, en samningar standa yfir um bygg- ingu heilsugæzlustöðvar. Reynd- arerallt óvlstum framvindu þess máls, þar sem ekkihefur tekizt að tryggja nægilegt fjármagn til framkvæmdanna. Þetta leiöir að sjálfsögðu til mikillar óvissu um framvindu heilbrigðismálanna hér i bænum, og erum viö að von- um mjög óánægðir yfir þvi. — — Orkumálin hafa verið mjög I sviðsljósinu að undanförnu? — Við höfum sloppið við veru- leg skakkaföll i þeim efnum, hér er disilvararafstöð og veitir hún mikið öryggi. Rafmagnshita- kynding fæst i ný hús, en útilokað er aö leyfa slika kyndingu I gömlu húsunum, til þess höfum við ekki næga orku. En það gefur auga leiö, aö I Bolungarvik þurfa ibú- arnir að hafa um 200 þúsund krónum meira i árstekjur heldur en t.d. ibúar höfuðborgarsvæöis- ins, til þess að standa straum af hinum gifurlega kyndingarkostn- aði húsanna. — — Þú ert bjartsýnn á framtið staðarins? — — Hingað sækir ungt fólk og duglegt viðs vegar að af landinu. Ég held þvi að engu sé að kviða i þeim efnum. — Bolvíkingar eru eins og ein fjölskylda — möguleikar eldra fólks hvergi betri, segir Benjamín Eiríksson, verkamaður Benjamin Eiriksson heitir maður á Bolung- arvik. Hann er reyndar ekki inn- fæddur Bolvikingur eins og Guð- mundur á Hóli, heldur fæddur á kaldranalegum stað undir rótum Drangjökuls árið 1909, nánar til tekið á Dynjanda I Jökulfjörðum. Frá Dynjanda flutti Benjamin til Furufjarðar á Ströndum árið 1938 og bjó þar til 1949, er hann fluttist til ísafjarðar. Jafnframt töluverðum búskap stundaði Benjamin einnig sjóinn, eins og titt var um bændur á þeim slóð- um. Ég spyr Benjamin fyrst að þvi af hverju byggð i Furufirði hafi lagzt niður. —oOo — — Byggð i Furufirði lagðist fyrst og fremst niður vegna þess, hve erfitt var að halda uppi sam- göngum við þá byggð, sem þar var. Við Furufjörð var ekkert vegarsamband og er ekki enn, en um 12 til 15 kilómetra eangur var yfir I næsta fjörð, Hrafnsfjörð. Það var þvi Djúpbáturinn, sem við urðum nær eingöngu að treysta á með öll okkar viðskipti, sem að mestu leyti voru við Isa- fjörð. Siðustu árin kom báturinn reyndar ekki nema einu sinni I mánuði til okkar, alveg frá marz- byrjun og fram i október, en hitt var svo dauður timi. Nú, og svo þegar ábáendurnir fóru að flytja einn af öðrum þá leiddi það af sjálfu sér, að ekki var unnt að halda uppi dýrum samgöngum fyrir einn eða tvo bæi. — — Varst þú siðasti ábúandinn? — Nei, ekki var það svo. Ég fór 1949, en þeir siðustu fóru annað hvort 1955 eða 1956. — — Og hvert fluttir þú frá Furu- firði? — — Ég fór fyrst til Isafjarðar og var þar i eitt ár, en kunni ekki við mig þar, svo að ég flutti til Bolungarvikur og hef búið þar siðan og kann vel við staðinn, enda hefur atvinnulif verið með ágætum mest allan timann. — — Og þú hefur allan timann starfað hjá Einari Guðfinnssyni? — Það má heita svo. Reyndar var ég hjá annarri útgerð á tima- bili, en einungis stuttan tima. — — Skapar það ekki ákveðin vandamál á litlum stað sem Bol- ungarvik, þegar einn maður er þvi sem næst einráður i atvinnu- lifinu, eins og Einar Guðfinnsson er? — — Ekki get ég merkt, að vandamál hafi komið upp af þeim sökum. Þaö er án efa svo með Einar Guðfinnsson sem aðra menn, að ýmislegt má að honum finna. En ef ég á að svara spurn- ingunni fyrir mig, þá get ég full- yrt, að aldrei hef ég starfað hjá betri atvinnurekanda, og aldrei kynnzt eins traustum og orð- heldnum manni sem honum. Og það er hans dugnaði og Benjamln Eirlksson. framsýni að þakka, hve uppbygg- ingin hér i Bolungarvik hefur ver- ið ör, og hve afkoma fólks er hér góð. — — Hefur eldra fólk góða mögu- leika til starfa héri Bolungarvik? — 1 þeim efnum er aðstaöa gamla fólksins án efa hvergi jafn góð og hér i Bolungarvik, þvi að þó að heilsa manna bili að ein- hverju leyti, þannig að þeir hafi skerta starfsgetu, þá er þeim allt- af séð fyrir starfi við sitt hæfi, t.d. að dytta að veiðarfærum og öðru sliku. Samheldni og samstaða Bolvikinga um það að hjálpa þeim, sem minna mega sin, er einstök. Bolvikingar eru allir sem ein fjölskylda. Hér þekkjast allir, og flestir vinna saman i kringum þann eina atvinnurekstur, sem i bænum er. — Benjamin er maður einarður og ákveðinn og hefur fastmótaöar skoðanir á flestum hlutum. Þegar ég spyr hann, hvort hann vinni enn fullan vinnudag, svarar hann: — Hvað kallar þú fullan vinnu- dag? Það hugtak hefur mér jafn- an gengið erfiðlega að afmarka. En ef þú átt við átta stunda vinnu- daginn þá get ég sagt þér, að þann vinnudag hef ég enn ekki viður- kennt, Ég vinn sjálfur 10 stundir á hverjum virkum degi og það finnst mér allt of stuttur vinnu- dagur. — Ég spyr Benjamin af hverju honum finnist svo vera: — Vegna þess, hve margt ungt fólk kann illa að skipuleggja þann tima, sem aflögu er til tómstunda og félagslifs. Ég held þvi, að stytting vinnuvikunnar sé einn mesti skaðvaldur i okkar þjóðfé- lagi, enda afleiðing ósanngjarnar og óbilgjarnar kröfugerðar verkalýðsforingjanna, sem kynnt hafa undir óánægju fólksins. Við, sem komnir erum til vits og ára. og lifað höfum timana tvenna, getum bezt dæmt um það, að i.dag lifir fólkið á gullöld miðað við það sem áður var. — r KVIÐI ELLINNI — segir Gunnar Egilsson Niður við bryggju i Bolungarvik hittum við Gunnar Egilsson, sjómann. Hann gerirútl2 tonna trilluáirækjuveið- ar á veturna, en á sumrin stundar hann linuveiðar. Hann var ein- mitt nýkominn að landi, þegar okkur bar að garði, svo það er bezt að spyrja hann, hvernig veiðzt hafi i siðasta túr: — Þetta var frekar lélegt, ekki nema tvö tonn eftir daginn. Við vorum með 96 lóöir, þ.e.a.s. 9.600 króka, svo að ekki var aflinn allt of mikill. Hann hefði að minnsta kosti vel getað verið betri. — — Hvað hefðir þú orðið ánægð- ur með eftir daginn? — — Það er dálitið erfitt að svara þvi nákvæmlega, en ætli maður hefði ekki sætt sig vel við tvö og hálft tonn af þorski, en megnið af því, sem við fengum núna var steinbitur, en það er heldur litið verð, sem fæst fyrir hann. Og þaö hlægilegasta við þetta allt saman er, að við fáum meira fyrir að leggja hann inn óslægðan heldur en slægðan. — — Er ekki sáralitill kosnaður við að gera út svona litinn bát? — — Nei, það er óskaplega dýrt, t.d. bara tryggingargjöldin. 1974 borgaði ég 72 þúsund krónur fyrir okkur tvo i slysatryggingu og svo er lögskráningargjaldið eftir en það er annað gjald. Vaxtagreiðsl- ur vegna kaupanna á bátnum eru lika miklar, enda skulda ég I honum um 10 milljónir, en nýr kostar báturinn svona 15 milljón- ir. — — Ekki þurfið þið að borga mikiö fyrir oliuna? — Það fer að sjálfsögðu eftir þvi, hvað við siglum mikið og hvaðvið notum stórar vélar. En það er mikill misskilningur, sem oft er haldið fram, að okkur sé gefin olian, þvi að auðvitað er oliukostnaðurinn greiddur með þvi útflutningsverðmæti, sem við sköpum. — Og svo er það viðgerðarkostn- aðurinnhann er ekki svo litill. Ef ég fæ mann úr smiðju til þess að koma og gera við fyrir mig, þá kostar það 12 þúsund krónur á dag, bara i vinnulaun. — — Er góð aðstaða til þess aö' gera við báta héma?— — Já, hún er ágæt og hér eru mjög góðir iðnaðarmenn, en þetta er óskaplegur kostnaður. Og ekki má gleyma löndunar- gjöldunum, sem vinstri stjórnin sáluga kom á. Við borgum 1% af aflaverömætinu til hafnarsjóðs. En þaö má kannski segja, að ekki veiti af þvi, þvi að það kostar sitt að reka svona höfn. — — Þú leggur upp hjá Einari? —- — Já, það er ekki um annan stað að ræða. — — Kviðir þú ellinni? — — Já, það geri ég svo sannar- lega? Hver gerir það ekki? — Af hverju? — — Fyrs t og fremst vegna þeirr- ar óvissu, sem okkur sjómönnum er sköpuð, þvi hvað getum við farið að gera, þegar við erum orðnir svo gamlir, að við getum ekki stundað sjóinn lengur. Þá er ekki um annað að ræða en að fara I frystihúsvinnu eða á eyrina, en það eru störf, sem ungu mennirn- ir Uta ekki við i dag. —

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.