Tíminn - 11.07.1975, Page 4
4
TÍMINN
Föstudagur 11. júll 1975.
O0Oj
karlar" í
kvikmyndum
Oft er þaö, þegar leikstjórar
velja leikara i hlutverk, að ef
leikaranum hefur tekizt vel að
túlka ákveðna manngerð, þá
velur leikstjórinn hann aftur og
aftur i svipuð hlutverk, og siðan
er það nokkurs konar ,,ein-
stefnuakstur” i hlutverkavalinu
og leikarinn situr siðan i föstum
farvegi, og á mjög erfitt með að
komast úr honum. Sumir gera
gott úr þessu og eru allan sinn
leikferil að leika sömu persón-
una, eins og til dæmis Roy Rog-
ers. John Wayne eigum við
erfitt með að hugsa okkur á
hvita tjaldinu ööru visi en með
byssu, i hendi og oftast með
kúrekahatt, leikandi einhvern
harðjaxlinn. Nýjasta mynd
hans heitir McQ, og ku vera
ofsalega spennandi. Hér birtum
við mynd af honum og auðvitað
er hann að skjóta á einhvern
óþokkann! í gamla daga var
Edward G. Robinson frægur
fyrir að leika vel ýmsa heldur
illa þokkaða karla i kvikmynd-
um, svo sem afbrýðisamann
eiginmann, eigmgjarnan og
harðlyndan föður, sem stiaði
ungu elskendunum i sundur og
fleiri álika karla, og ekki er góð-
legur svipurinn á honum hérna
á myndinni. Hann er dáinn fyrir
nokkrum árum. Paul Newmann
hefur leikið mörg hörkutólin, en
hefur samt aldrei festst i þeim
hlutverkum algjörlega, þvi að
hann er mjög fjölhæfur leikari.
Allir sem sáu hina frægu kvik-
mynd „The Sting” muna áreið-
anlega eftir honum þar en sú
mynd er ein af þeim, sem hafa
gefið mest i aðra hönd, þvi að
hún hefur farið sigurför um all-
an heim. Lee Marvin (hinn
dimmraddaði) hefur helzt orðið
frægur fyrir að leika „vonda
menn” i kvikmyndum, og gerir
það með þeim tilþrifum, að þær
eru alltaf vel sóttar. Hér sýnist
hann á myndinni vera i vigahug.
Marlon Brandovarð einna fyrst
frægur fyrir að leika i mikilli
óeirðamynd, sem gerðist meðal
hafnarverkamanna i New York.
Hann hefur leikið marga kalda
karla siðan, og sést hér i mynd-
inni „The Godfather”, sem
hann fékk Oscarsverðlaunin
fyrir i fyrra (það var reyndar i
annað sinn sem hann fékk
Oscar). Hann hefur samt leikið
margs konar hlutverk önnur,
svo sem er hann lék i kvikmynd-
inni Siðasti tangó i Paris. t
þeirri mynd var hann ekki nærri
eins ellilegur og i Guðföðurnum,
en þar er hann með úttroðnar
kinnar og málaðar djúpar
hrukkur i andlit hans. Charles
Bronson hefur nýlega áunnið
sér mikla frægð, einkum i
myndinni „D^ath Wish”. Marg-
ir muna eftir Sean Connery i
hlutverki 007 i James Bond-
kvikmyndunum, • t.d. From
Russia With Love og Diamonds
Are Forever.
Charles Laughton
var frægur skapgerðarleikari á
sinni tið, og lék bæði lögbrjóta
og lögfræðinga og dómara. Viö
sjáum hann á þessari mynd á
gægjum fyrir horn, alveg gler-
finan i kvöldklæðnaði, en þess
vegna gæti hann þó alveg eins
veriðað leika einhvern lögbrjót-
inn eins og leynilögreglumann!
DENNI
DÆAAALAUSI
„Hvernig veit maður hvað klukk-
an er, Denni?” „Ég held þú eigir
að stinga hausnum hérna inn og
garga.”