Tíminn - 12.07.1975, Qupperneq 13
Laugardagur 12. júli 1975.
TÍMINN
13
Uftt
IMHHllllBii
III
Blaðafulltrúi FLUG-
LEIÐA HF um sólarflug
innanlands
Flugleiðir h.f. þakka J.G.
ágæt tilskrif i Landfara þriðju-
daginn 8. júli siðast liðinn.
Það eru orð að sönnu, að við
sem á Suðvesturlandi búum,
þurfum að komast i sólskin — og
þvi þá ekki að fljúga norður eða
austur? Það er annað en gaman
að vita sumarið liða án þess að
sjá til sólar — og vita glampandi
sólskin i aðeins 45 minútna fjar-
lægð.
t þessu sambandi er vert að
minnast hinna tiðu ferða Flug-
félags tslands til og frá Reykja-
vik. Fimm ferðir á dag til Akur-
eyrar, tvær til Egilsstaða, og
þar að auki tiðar flugferðir til
Sauðárkróks og Húsavikur. Og
með framhaldsflugi með Flug-
félagi Norðurlands eru staðir
eins og Þórshöfn, Raufarhöfn,
Vopnafjörður og sjálf Grimsey,
aðeins i nokkurra minútna fjar-
lægð.
Á flugleiðum innanlands gilda
"fjölskyldufargjöld allt ár-
ið. Samkvæmt þeim greiðir for-
svarsmaður fjölskyldu allt far-
gjald, en aðrir i fjölskyldunni
aðeins hálft gjald. Slikt auð-
veldar fjölskyldum, sem og
hjónafólki, ferðir norður i sól-
ina. Þá má minna á hópferðaaf-
slátt á flugleiðum innanlands,
svo og sérstök kjör fyrir ung-
linga og aldrað fólk. Siðast liðna
tvo vetur hafa Flugleiðir geng-
izt fyrir ódýrum helgarferðum
til og frá Reykjavik. Helgarfar-
gjöldin hafa gilt frá öllum við-
komustöðum Flugfélags íslands
til Reykjavikur og frá Reykja-
vik til ísafjarðar, Akureyrar,
Húsavikur, Egilsstaða, Horna-
fjarðar og Vestmannaeyja.
Slikar ferðir, sem byggjast á
mjög lágum fargjöldum og
vægu gistiverði viðkomandi
gistihúsa, verða teknar upp að
hausti. Siðast liðinn vetur var
meira um leikhúsferðir til
Reykjavikur en nokkru sinni
fyrr. Grundvöllur þeirra var án
efa sérstök hópferðafargjöld
með flugvélum Flugfélags ts-
lands, sem fjölmargir notuðu
sér. Slik hópfargjöld verða
einnig i gildi i haust.
En svo vikið sé aftur að
upphafi bréfins: hugmynd J.G.
er snjöll. Aðrar svipaðar hafa
verið til umræðu innan félagsins
að undanförnu. Þvi ekki að
hraða sér norður i sólina strax i
dag?
f.h. Sveins Sæmundssonar,
Anna Þóra Baldursdóttir.
Litið inn á fund Alþjóðlega endurhæfingarbandalagsins, sem haldinn var að Hótel Loftleiðum
Svíar gáfu Öryrkjabanda-
lagi íslands bifreið, sem
er sérstaklega útbúin fyrir
fatlaða
gébé Rvik — Alþjóðlega
endurhæfingarbandalagið hélt
ráðstefnu i Reykjavik dagana 6.-
9. júli. Ráðstefnuna sóttu fulltrú-
ar frá fimmtán löndum, en i end-
urhæfingarbandalaginu eru rúm-
lega eitt hundrað öryrkjasam-
bönd i rúmlega sextiu löndum.
öryrkjabandalag tslands gerðist
aðili árið 1966, en i stjórn endur-
hæfingarbandalagsins á Oddur
Ólafsson alþingismaður sæti fyrir
tslands hönd. Aðalstöðvar banda-
lagsins eru i Bandarikjunum, en
núverandi forseti þess er prófess-
or dr. K.A. Jochheim, Vestur-
Þýzkalandi. öryrkjabandalagi
Islands barst mjög höfðingleg
gjöf frá sænska öryrkjasamband-
inu. Var það bifreið, sérstaklega
útbúin til að flytja fólk i hjólastól-
um, en þetta er fyrsta bifreiðin
sinnar tegundar hér á landi.
Ráðstefnuna sótti einnig, auk
fulltrúanna, framkvæmdastjóri
Alþjóðlega endurhæfingabanda-
lagsins, Norman Acton og aðstoð-
arframkvæmdastjórinn, frú Sús-
an Hammerman, en þau koma
bæði frá Bandarikjunum.
Ráðstefna þessi, sem er hin ni-
unda i röðinni, fjallaði um ýmis
öryrkjamál, skýrslur voru gefnar
um niðurstöður milliþinganefnd-
ar og móta sem haldin hafa verið,
rætt var um lög varðandi öryrkja
og margt fleira. Fundarstjóri var
italski fulltrúinn Dr. Teresa
Serra.
Bandalagið vinnur að bættri að-
stöðu öryrkja, um allan heim. að
aukinni fræðslu, bættri félags-
legri aðstöðu og umhverfi. All-
margar alþjóðlegar nefndir eru
starfandi á vegum bandalagsins,
t.d. nefnd er fjallar um og metur
hjálpartæki og annast dreifingu
þeirra, fræðslunefnd, laganefnd,
fristundaráð og fleira.Þá hefur
bandalagið nána samvinnu við
ýmsar stofnanir Sameinuðu þjóð-
anna og á fulltrúa i nefndum
þeirra.
Arið 1969 hóf bandalagið alþjóð-
lega herferð gegn hverskonar
farartálmum fatlaðra og lét i þvi
sambandi gera merki, sem nú er
notað um allan heim til leiðbein-
inga. A siðastliðnu ári samþykkti
endurhæfingabandalagið áskorun
á allar þjóðir heims um hraðatak-
markanir bifreiða að fenginni
reynslu við hækkaðan hámarks-
hraða vegna bensinsparnaðar.
Oddur Ólafsson alþingismaður
á sæti i stjórn bandalagsins fyrir
tslands hönd, en Haukur Þórðar-
son yfirlæknir er varamaður
hans. Fulltrúi Islands á ráðstefn-
unni var Guðmundur Löve. Hver
þjóö tilnefnir einn fulltrúa og einn
mann i stjórn.
Bandalagið, sem nú er fimmtiu
ára hefir haldið ráðstefnur á 3ja
ára fresti, siðast i Astraliu ’72.
Framvegis verða þær á 4ja ára
fresti, eða næst 1976 i tsrael.
Frú Ellika Ljunggren fulltrúi
Merki Alþjóðlega endurhæfingarbandalagsins.
BAGGAKASTARI
Átakalaus baggahiröing
GERÐ BK
baggakastarinn sparar bæði tima og
erfiði.
Einn maður sér um hleðslu bagganna á
fljótan og auðveldan hátt
Kast-stefna bagganna er stillanleg úr sæti
ökumanns, sem er kostur á hallandi landi.
Verð kr. 1 10.000.—
Til afgreiðslu nú þegdr
Nónari upplýsingar hjó sölumanni
G/obus?
LÁGMÚLI 5, SÍMI 81555
Sviþjóðar á ráðstefnunni, færði
öryrkjabandalagi tslands höfð-
inglega gjöf, sem var bifreið að
Volkswagen-gerð, („rúgbrauð”),
sem sérstaklega er útbúin með
það fyrir augum að flytja fatlaða i
hjólastólum. Ólöf Rikharðsdóttir,
formaður öryrkjabandalags Is-
lands, veitti gjöfinni móttöku, og
þakkaði Svium fyrir hana. Kom i
ljós, aö þetta er fyrsta bifr. af
þessu tagi hér á landi. Sagði Ólöf,
að enn væri ekki ákveðið, hvernig
bifreiðin skyldi notuð, en að leitað
yrði til borgaryfirvalda i Reykja-
vik og Strætisvagna Reykjavikur
um það, hvernig hún bezt kæmi
að notum.
Þetta er Volkswagen-bifreiðin,
sem er sérstaklega útbúin með
lyftu til að fatlaðir i hjólastólum
eigi auðvelt með að komast inn i
hana. Tímamyndir: Róbert.
Sænski fulltrúinn, Ellika Ljung-
gren, afhendir Ólöfu Ríkharðs-
dóttur, formanni öryrkjabanda-
iags tslands, formlega gjafabréf
fyrir bifreiðinni, sem sænska ör-
yrkjabandalagið gaf því íslenzka.
Guðmundur Löve lengst til hægri.
>r