Fréttablaðið - 24.04.2005, Side 2
2 24. apríl 2005 SUNNUDAGUR
Hnúfubakur í Reykjavíkurhöfn:
Vakti lukku ferðamanna
HVALASKOÐUN „Þetta er í fyrsta
sinn sem ég veit til þess að stór-
hveli hafi komið inn í höfnina hér
í Reykjavík,“ segir Einar Örn
Einarsson, skipstjóri á hvalaskoð-
unarskipinu Eldingu. Einar sem
er vanur að þurfa að fara langt út
á Faxaflóa til að sýna ferðamönn-
um stórhveli þurfti vart að snúa
bát sínum við í gærmorgun en þar
var 8 til 10 metra langur hnúfu-
bakur á ferð.
Innkoman í höfnina í Reykja-
vík er grýtt mjög og erfið og ekki
heiglum hent að komast þar inn
fyrir þá sem ekki þekkja en hval-
urinn virtist kunna ágætlega við
sig og rataði auðveldlega út aftur
eftir hádegið. Taldi Einar að dýrið
hefði verið að fá sér æti.
„Aðstæður hér í höfninni eru
orðnar allt aðrar og betri en áður
var og ekkert tiltökumál fyrir
stærri dýr að næla sér í bita hér.“
Vakti hvalurinn mikla athygli
og lukku meðal ferðamanna sem
sumir hverjir koma gagngert til
landsins til að líta þessi dýr aug-
um.
- aöe
Unglæknar fá ekki ellefu klukkustunda hvíld á sólarhring:
Læknafélag Íslands
stefnir Landspítalanum
HEILBRIGÐISMÁL Læknafélag Ís-
lands hefur stefnt Landspítala -
háskólasjúkrahúsi fyrir að veita
unglæknum ekki uppsafnað frí fái
þeir ekki ellefu klukkustunda
hvíld á sólarhring. Félagið telur
að íslensku lögin um vinnutilskip-
un, sem samræmast Evrópusam-
bandinu, nái til unglækna rétt eins
og lækna en það samþykkir spítal-
inn ekki.
Lögfræðingur Læknafélagsins,
Gunnar Ármannsson, segir að
með lagabreytingum árið 2003
eigi lögin einnig við um lækna-
nemana þrátt fyrir að samið hafi
verið um annað í kjarasamningn-
um árinu á undan. Læknafélagið
telji lögin fremri samningnum.
Sigurbjörn Sveinsson, formað-
ur Læknafélagsins, segir að vinn-
ist málið verði krafist bóta fyrir
unglæknana: „Auðvitað gerum við
þá kröfu að hlutirnir verði leið-
réttir eftir á, að minnsta kosti
fram að lagasetningunni í apríl
2003. Annaðhvort eiga þeir þenn-
an rétt samkvæmt lögum eða
ekki.“ Á hvaða hátt beri að koma
til móts við unglæknana segir
Sigurbjörn ekkert um.
Málið var þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur 7. apríl.
- gag
Holtasmára 1 • 201 Kópavogur
Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309
Netfang: langferdir@langferdir.is
Heimasiða: www.apollo.is
Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00
Öll verðdæmi í tvíbýli með öllu!
Nánari upplýsingar á
www.apollo.is
Spánnýir sólarsmellir í júní
- og Kaupmannahöfn í kaupbæti
68.990 kr.
Kanaríeyjar
64.990 kr.
Djerba í Túnis
64.990 kr.
Sharm el Sheikh
í Egyptalndi
draCretsaM
udnuM
!aninusívá
aðref
64.990 kr.
Cesme í Tyrklandi
frá 59.990 kr.
Krít, Kos, Ródos, Samos og
Zakynhtos í Grikklandi
SPURNING DAGSINS
Smári, var boðið upp á
molasopa?
„Í Molanum er boðið upp á svo
margt gott.“
Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar Fjarða-
byggðar, var einn fjölmargra viðstaddra þegar
Molinn, ný skrifstofu- og verslunarmiðstöð á
Reyðarfirði, var opnaður í fyrradag.
Stolnu Munch-málverkin:
Höfuðpaur
handtekinn
OSLÓ Lögreglan í Osló í Noregi
hefur handtekið 37 ára gamlan
mann grunaðan um aðild að þjófn-
aði á tveim-
ur málverk-
um úr
Munch-safn-
inu í ágúst í
fyrra. Ránið
þótti með
eindæmum
bíræfið því
ruðst var inn
í safnið um hábjartan dag og mál-
verkin Ópið og Madonna tekin.
Áður höfðu tveir verið handteknir
í tengslum við ránið.
Greint er frá því á vef Aften-
posten í Noregi að maðurinn harð-
neiti allri aðild að ráninu. Lög-
maður mannsins hefur ráðlagt
honum að tjá sig ekki frekar fyrr
en lögregla hefur lagt fram gögn í
málinu, en hún telur manninn
vera höfuðpaurinn að ráninu. ■
FRÁ SLYSSTAÐNUM
Sá eini sem lifði árásina af var síðar skot-
inn til bana en gerræðismennirnir eru nú í
haldi Bandaríkjamanna.
Þyrla skotin niður í Írak:
Sex eru í
varðhaldi
ÍRAK Bandarískir hermenn hafa
handtekið sex einstaklinga sem
grunaðir eru um að hafa átt þátt í
að granda þyrlu norður af Bagdad
á fimmtudaginn með þeim afleið-
ingum að tíu létust.
Í þyrlunni, sem var eign örygg-
isfyrirtækis frá Búlgaríu, voru al-
mennir borgarar sem voru á leið
frá höfuðborginni til Tikrit í norð-
urhluta landsins þegar hún var
skotin niður. Atvikið þegar hún
var skotin niður náðist á mynd-
band sem sýnt var á sjónvarps-
stöðvum daginn eftir. ■
HVALURINN Í HÖFNINNI
Einar Örn Einarsson, skipstjóri á hvala-
skoðunarskipinu Eldingu, segir hvalinn lík-
lega hafa verið í leit að æti.
M
YN
D
B
AL
D
U
R
H
R
AF
N
KE
LL
J
Ó
N
SS
O
N
STJÓRNMÁL „Mín tilfinning er sú að
Halldór bakki nú ekki svo glatt enda
hefur hann lýst því yfir að hann vilji
sjá á þessu breytingar,“ segir
Magnús Stefánsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, vegna um-
mæla Davíðs Oddssonar, utanríkis-
ráðherra og formanns Sjálfstæðis-
flokksins. Davíð segir að ekki standi
til að endurskoða lög um eftirlaun
ráðherra og þingmanna.
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra hafði greint Alþingi frá
því að lögin væru í endurskoðun.
Var það eftir að ljóst varð að við
breytingar á lögunum árið 2003
gætu fyrrverandi ráðherrar og
þingmenn fengið greidd eftirlaun
þrátt fyrir að vera enn á fullum
launum í öðrum störfum á vegum
ríkisins. Allnokkrir fyrrverandi
ráðherrar þiggja nú þegar þess
konar eftirlaunagreiðslur ofan á
venjuleg laun sín. Spurningar hafa
vaknað um hvort hægt sé að af-
nema réttindi þeirra með laga-
breytingum.
Magnús bendir á að þar sem lítið
sé eftir af yfirstandandi þingi sé
ólíklegt að niðurstaða fáist í málið.
„Væntanlega verður einhver
núningur áfram en nauðsynlegt er
að ná samkomulagi, annars fellur
þetta um sjálft sig.“
Hjálmar Árnason, þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins,
segir málið verða rætt á þingflokks-
fundi á mánudag-
inn.
„Ég tel að það
eigi að breyta
lögunum strax og
ég veit ekki betur
en að verið sé að
undirbúa málið
af kostgæfni í
forsætisráðuneyt-
inu,“ segir Hjálm-
ar. „Mér finnst forsendur ekkert
hafa breyst frá því að þverpólitísk
samstaða allra flokka var um að
gera þessar breytingar.“
Framsóknarmaðurinn Jónína
Bjartmarz telur eðlilegt að reynt
verði að ná samstöðu um málið.
„Mín sannfæring er sú að þess-
um lögum þurfi að breyta enda
ósanngjörn mjög,“ segir Jónína.
Lög um eftirlaun ráðherra og
þingmanna voru endurskoðuð í lok
árs 2003 og í kjölfarið voru ný lög
samþykkt. Allir stjórnmálaflokkar
á þinginu stóðu að breytingum lag-
anna. - aöe
EFTIRLAUNALÖGUNUM VAR MÓTMÆLT Á AUSTURVELLI
Þegar eftirlaunalögin voru samþykkt stóð verkalýðshreyfingin fyrir mótmælum á
Austurvelli.
Framsókn bakkar
ekki svo glatt
Framsóknarmenn ætla ekki bakka með að breyta lögunum um eftirlaun og
segja þær í undirbúningi hjá forstætisráðuneytinu. Núningur er innan stjórn-
arflokkanna vegna laganna sem framsóknarmenn telja ósanngjörn.
JÓNÍNA
BJARTMARZ
MAGNÚS
STEFÁNSSON
HJÁLMAR
ÁRNASON
LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
Heilbrigðisstéttir fá undanþágu til að
vinna lengur en þrettán klukkustundir á
sólarhring. Þeir sem það gera eiga frí-
tökurétt. Deilt er um hvort unglæknar
eigi einnig frítökuréttinn.
Þingvallavatn:
Barni bjargað
frá drukknun
LÖGREGLUMÁL Um miðjan dag í gær
var barni bjargað úr Þingvalla-
vatni.
Foreldrarnir litu af þriggja ára
gömlu barni sínu andartak og rölti
það að árbakkanum. Við leit
fannst barnið á botninum. For-
eldrarnir beittu lífgunartilraun-
um sem báru árangur og hringdu
í Neyðarlínuna 112 sem sendi
sjúkrabíl á vettvang. Foreldrarnir
keyrðu á móti og var barnið flutt á
Landspítala – háskólasjúkrahús.
Vakthafandi læknir segir líðan
barnsins góða. Það fái að fara
heim í dag.
- gag
ÞREFALDUR NÆST Enginn var
með fimm tölur réttar í Lottóinu í
gærkvöld. Potturinn verður því
þrefaldur næstkomandi laugar-
dag. Tölurnar sem komu upp
voru 4, 5, 9, 14 og 17. Bónustalan
var 16.
■ LOTTÓ
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
MEÐ AFSAGAÐA HAGLABYSSU
Ökuferð karls og konu vestan við
Eyrarbakkabrú var stöðvuð á
föstudag af lögreglunni á Selfossi
ásamt ferð manns fyrir aftan
þau. Skötuhjúin voru með afsag-
aða haglabyssu ásamt skotvopn-
um. Í kjölfarið var gerð í húsleit
á Eyrarbakka og fundust lítilræði
af kannabisefnum auk eggvopns.
Haglabyssunni reyndist hafa
verið stolið í innbroti í Reykjavík
í fyrra. Fólkinu var sleppt eftir
yfirheyrslu í gærkvöld.
MADONNA EFTIR
MUNCH