Fréttablaðið - 24.04.2005, Page 4

Fréttablaðið - 24.04.2005, Page 4
4 24. apríl 2005 SUNNUDAGUR Fimm sendifulltrúar á leið til Suðaustur-Asíu Rauði kross Íslands sendir á næstu dögum fimm sendifulltrúa til viðbótar til hamfarasvæða flóðanna sem urðu eftir jarðskjálftann mikla á annan í jólum. Unnið er að skipulagningu hjálparstarfsins næstu ár í samvinnu við alþjóðastofnanir. Gert er ráð fyrir uppbyggingarstarfi þar næstu tíu árin. HJÁLPARSTARF „Flóðbylgjan, þar sem hún var hörðust, var 24 metra há og skall á strönd Súmötru með 50 kílómetra hraða. Til að sjá þetta betur fyrir okkur getum við reynt að ímynda okkur 6 hæða fjölbýlishús koma á móti okkur með hraða bíls á góðu skriði,“ sagði Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, við upphaf fundar í Reykjavíkurakademíunni í gær þar sem farið var yfir hjálpar- starf Rauða krossins á hamfara- svæðum flóðbylgjunnar eftir jarðskjálftann mikla í Suðaustur- Asíu á annan í jólum. Sigrún segir ráð fyrir því gert að Rauði krossinn komi að upp- byggingarstarfi á hamfarasvæð- unum næstu tíu árin, en síðustu vikur hafi Rauði krossinn og aðrar hjálparstofnanir skipulagt starfið til næstu ára. „Auðvelt er að gleyma umfanginu. Að minnsta kosti 174.729 manns létu lífið í flóðunum, 1,6 milljónir manna misstu heimili sín og milljónir manna til viðbótar urðu fyrir skakkaföllum af einhverju tagi,“ sagði hún og bætti við að þótt Rauði kross Íslands hefði ekki yfir miklum fjármunum að ráða, hefði framlag með mannauði sannarlega skilað sér í hjálpar- starfinu og sendifulltrúar héðan unnið ómetanlegt starf og getið sér gott orð fyrir. Á næstu dögum fara utan fimm sendifulltrúar Rauða kross Íslands til viðbótar við þá fimm sem áður hafa starf- að á hamfarasvæðunum, en gert er ráð fyrir að á næstu árum verði ávallt einn til tveir sendifulltrúar héðan við uppbyggingarstörf á svæðinu. Á fundinum lýstu Hildur Magnúsdóttir hjúkrunarfræðing- ur og Hólmfríður Garðarsdóttir ljósmóðir reynslu sinni af störfum sem sendifulltrúar Rauða krossins í Banda Aceh í Indónesíu. Þá greindi Birna Halldórsdóttir frá því hvernig staðið var að dreif- ingu hjálpargagna á sömu slóðum og Sigríður Björk Þormar, hjúkr- unarfræðingur og heilsusálfræð- ingur, fjallaði um hvernig Rauða krossi Indónesíu var hjálpað að byggja upp sálrænan stuðning bæði við fórnarlömb flóðanna og ekki síður starfsfólk sem á hamf- arasvæðunum starfaði. olikr@frettabladid.is Ævintýraheimur H.C. Andersen Ævintýraleg leikhúsveisla! SENDIFULLTRÚAR RAUÐA KROSS ÍSLANDS Á FLÓÐASVÆÐUNUM Í ASÍU Nafn: Verkefni: Land: Ómar Valdimarsson uppbygging landsfélags Indónesía Hlér Guðjónsson skýrslugerð Srí Lanka Guðbjörg Sveinsdóttir áfallahjálp Indónesía Birna Halldórsdóttir dreifing hjálpargagna Indónesía Robin Bovey dreifing hjálpargagna Indónesía Sigríður Björk Þormar áfallahjálp Indónesía Elín Jónasdóttir áfallahjálp Srí Lanka Hildur Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur Indónesía Hólmfríður Garðarsdóttir ljósmóðir Indónesía Maríanna Csillag hjúkrunarfræðingur Srí Lanka KYNNINGARFUNDUR RAUÐA KROSS ÍSLANDS Hildur Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðingur Rauða krossins, skýrir frá reynslu sinni af uppbyggingar- og hjálparstarfi í Banda Aceh í Indónesíu eftir hamfarirnar sem urðu annan í jólum. EYÐILEGGING Í BANDA ACEH Í INDÓNESÍU Sendifulltrúar Rauða kross Íslands lýstu í gær á fundi hjá Reykjavíkurakademíunni reynslu sinni af hjálparstarfi á hamfarasvæðum jarðskjálftans sem reið yfir í Asíu á annan í jólum. ALBERTA GUÐJÓNSDÓTTIR Karlarnir í bræðslunni kættust þegar kvenmaður kom í hópinn. Fáskrúðsfjörður: Kvenmaður í bræðsluna KARLAVÍGI Alberta Guðjónsdóttir mætti á sína fyrstu vakt í fiski- mjölsverksmiðju Loðnuvinnsl- unnar á Fáskrúðsfirði í byrjun vikunnar en hún er fyrsta konan sem starfar við almenn verka- mannastörf í verksmiðjunni. Magnús Ásgrímsson verk- smiðjustjóri segir karlpeninginn ánægðan með að kvenmaður skuli vera kominn í þeirra hóp og hafi hún staðið sig með ágætum fyrstu vinnuvikuna. „Það er tilbreyting að hafa konu á gólfinu og ég gæti vel trúað því að konum ætti eftir að fjölga hjá okkur í kjölfarið,“ segir Magnús. - kk UPPLÝSINGATÆKNI Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir að aflagðar hafi verið fyrirætlanir um frek- ari uppbyggingu eða endurnýj- un á tækjabúnaði vegna inter- nettenginga um raforkukerfið, sem seld hefur verið undir merkjum Fjöltengis Orkuveit- unnar. Öll áhersla hefur verið lögð á ljósleiðaravæðingu heim- ilanna. Og Vodafone hefur tekið yfir þjónustu við notendur Fjölteng- is og býður notendum þessa dag- ana að flytja sig yfir í ADSL- tengingar um símakerfið, en þeir eru á annað þúsund. Guð- mundur segir engan þó neyddan til að skipta. „Þeir sem ánægðir eru með tenginguna um raf- magnið geta haldið henni áfram,“ sagði hann. „Að minnsta kosti þar til komin er ljósleið- aratenging í húsið.“ Guðmundur segir Orkuveit- una ekki líta á gagnaflutninga um rafdreifikerfið sem lausn til framtíðar, nema kannski fyrir hinar dreifðari byggðir þar sem ekki borgar sig að leggja ljós- leiðara. Hann segir að á allra næstu árum verði lokið við að leggja ljósleiðara í öll hús á höfuðborgarsvæðinu, auk Hveragerðis, Borgarness og Akraness. Með ljósleiðarateng- ingu segir hann fólki bjóðast hingað til óþekktur gagnaflutn- ingshraði sem feli í sér fjölda möguleika, svo sem gagnvirkt háskerpusjónvarp, internet, síma og fleira, allt um sömu tenginguna. - óká Benedikt páfi: Lofaði fjöl- miðlafólk VATIKANIÐ Hinn nýkjörni páfi, Benedikt sextándi, vonast til að halda sama góða sambandinu við fjölmiðla og forveri hans gerði enda telur hann það lykilatriði til að ná sambandi við allar þær milljónir kaþólskra manna um heim allan með afgerandi hætti. Þetta kom fram í ræðu hans í Vatíkaninu í gær en þar þakkaði hann kærlega fjölmiðlum fyrir að hafa fært vandaðar fréttir af gangi mála við nýliðið páfakjör við erfiðar aðstæður og lofaði góðu aðgengi fréttamanna að Vatíkaninu í framtíðinni. ■ LJÓSLEIÐARI Það má segja að umræður um möguleika Orkuveitunnar á sviði gagnaveitu hafi hafist með tali um internettengingar um rafdreifi- kerfið og á þeim formerkjum hófst starf- semi Línu nets. Fljótlega færðist þó áhersl- an yfir á uppbyggingu ljósleiðarakerfis og gagnaflutninga um það. Internettengingar um rafmagnið eru nú á undanhaldi. Áherslan lögð á ljósleiðaravæðingu heimilanna: Rafmagnið víkur fyrir ljósinuKAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 62,24 62,54 1 19,23 119,81 81,31 81,77 10,91 10,98 9,97 9,92 8,87 8,92 0,59 0,59 94,55 95,11 GENGI GJALDMIÐLA 22.04.2005 GENGIÐ Heimild: Seðlabanki Íslands SALA 111,90 -0,02%

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.