Fréttablaðið - 24.04.2005, Qupperneq 6
DÓMSMÁL Skjár einn krafðist á föstu-
dag hjá Sýslumanninum í Reykjavík
lögbanns á ráðningu Helga Steinars
Hermannssonar, fyrrverandi dag-
skrárstjóra Skjás eins, til 365 ljós-
vakamiðla. Magnús Ragnarsson,
sjónvarpsstjóri Skjás eins, segir
trúnað hafa verið brotinn við félag-
ið. Samkvæmt ráðningarsamningi
segir hann Helga ekki mega starfa í
samkeppnisrekstri í heilt ár eftir
starfslok. „Ekki nema að það sé er-
lendis. Svo var líka í samningnum
trúnaðarákvæði, en því miður voru
viðskiptaáætlanir félagsins sendar
út úr húsi,“ sagði hann. Með lög-
bannsbeiðninni voru lagðir fram
fimmtán tölvupóstar Helga til Árna
Þórs Vigfússonar, fyrrum sjón-
varpsstjóra Skjás eins. „Þeir voru
svo ráðnir saman upp á 365.“
Helgi vísar á bug ásökunum um
trúnaðarbrest eða samningsrof og
telur í raun á sér brotið með því að
skoða tölvupóst hans. „Í 56 þúsund
póstum er auðvitað eitthvað sem
hægt er að rífa úr samhengi, en
þarna er ekkert í gangi sem ekki
átti að vera.“ Eins segir hann
ákvæði í ráðningarsamningi hans
heimila störf við
ráðgjöf og erlend
þróunarstörf og
það sé til slíkra
starfa sem hann
hafi ráðið sig.
Þá segir Helgi
starfslok sín hafa
borið að með allt
öðrum hætti en
sjónvarpsst jór i
Skjás eins hefur lýst í fjölmiðlum.
„Ég sagði sjálfur upp 4. apríl og því
kolrangt að Magnús hafi sagt mér
upp 9. apríl,“ segir hann og telur
Magnús hafa farið offari í reiðikasti
heima hjá honum að kvöldi laugar-
dagsins 9. apríl. Fyrr um daginn
segist hann hafa gengið af fundi
sem Magnús hafði boðað hann á
eftir að Magnús missti stjórn á
skapi sínu. „Hann elti mig hins veg-
ar heim og hótaði konu minni. Svo
sat hann um húsið í 40 mínútur eftir
að hafa látið öllum illum látum,“
segir Helgi sem telur fjölda fólks
geta staðfest atburðarásina, þar á
meðal stjórnarformann Skjás eins,
sem persónulega hafi beðið hann af-
sökunar á uppákomunni. Ekki náð-
ist aftur í Magnús í gær til að bera
undir hann þessar ávirðingar.
olikr@frettabladid.is
MAGNÚS RAGNARSSON
Magnús, sem er sjónvarpsstjóri
Skjás eins, segir Helga Steinar
Hermannsson, fyrrum dag-
skrárstjóra stöðvarinnar, hafa
brotið trúnað með því að
senda út úr húsi viðskipta-
áætlanir og ráða sig til
starfa hjá keppinaut í
sjónvarpsrekstri.
6 24. apríl 2005 SUNNUDAGUR
Úrskurður um erlenda starfsmenn Impregilo:
Málið fer líklega fyrir dómstóla
KJARAMÁL „Ekki er ólíklegt að mál-
ið fari dómstólaleiðina, það er um
slíkar upphæðir að tefla,“ segir
Ómar R. Valdimarsson, talsmaður
Impregilo á Íslandi, um nýfallinn
úrskurð yfirskattanefndar um
ítalska og portúgalska verkamenn
fyrirtæksins.
„Við höfum bara ekki enn haft
tækifæri til að kynna okkur úr-
skurðinn í fullri lengd, þó svo að
lögfræðingar okkar hafi vitanlega
lesið hann yfir,“ sagði Ómar og
taldi að fljótlega eftir helgi myndi
liggja fyrir hvernig fyrirtækið
bregst við úrskurði yfirskatta-
nefndar, en Impregilo kærði til
nefndarinnar fyrri úrskurð skatt-
stjóra. Samkvæmt úrskurðinum
falla erlendir starfsmenn Impreg-
ilo og starfsmenn erlendra starfs-
mannaleigna undir íslensk skatta-
lög og eiga að skila staðgreiðslu
skatta hér á landi. Þetta felur í sér
kostnaðarauka fyrir fyrirtækið
sem til dæmis hefur greitt portú-
gölskum starfsmönnum í samræmi
við skattalög heimalands þeirra.
Þar eru skattar lægri og launin
lægri í hlutfalli við þá. - óká
Skattekjur ríkisins á landsbyggðinni:
Skila sér lítið til baka
LANDSBYGGÐIN Aðeins fimmtán
prósent þess fjármagns sem ríkið
aflar á landsbyggðinni með skatt-
lagningu skilar sér aftur til verk-
efna úti á landi. Þetta er meðal
þess sem fram kemur í skýrslu
Vífils Karlssonar, dósents við Við-
skiptaháskólann á Bifröst, og sýn-
ir svo ekki verður um villst að
mikill munur er á hvar tekjurnar
fást og hvar þeim er varið að mati
Sigurjóns Þórðarsonar.
Vífill fær þessar tölur frá út-
reikningum svokallaðs trygging-
argjalds en sé litið á ákveðið land-
svæði eru vísbendingar um að tíu
milljarðar króna fari frá Norð-
austurlandi einu saman til höfuð-
borgarinnar í formi skatta. Það
eru um níu prósent af tekjum hins
opinbera á landsvísu en aðeins sjö
prósent af útgjöldum skila sér
þangað aftur.
Sigurjón Þórðarson, þingmaður
Frjálslynda flokksins, hefur látið
sig þessi mál varða og telur að rík-
ið eigi að standa sig mun betur en
hingað til hefur verið gert. „Það er
alltaf talað um hversu miklir pen-
ingar fara út á land í ýmis verk-
efni en þessi skýrsla sannar hið
gagnstæða.“ - aöe
BJÖRGUNARSKIPIÐ VÍGT
Sr. Fjölnir Ásbjörnsson vígði skipið en það
er eitt af fjórtán öflugum björgunarskipum
Landsbjargar sem staðsett eru vítt og breitt
um landið.
Hornafjörður:
Nýtt björg-
unarskip
SLYSAVARNIR Nýtt björgunarskip
Slysavarnafélagsins Landsbjarg-
ar kom nýverið til Hornafjarðar
og á sumardaginn fyrsta var því
við formlega athöfn gefið nafnið
Ingibjörg. Nafngiftin er til heið-
urs Ingibjörgu Guðmundsdóttur
sem lengi starfaði að slysavörn-
um á Hornafirði en hún lést árið
1985. Sama ár var stofnaður minn-
ingarsjóður í nafni hennar sem
styrkir starf slysavarnadeildanna
á Höfn. - kk
STARFSMENN VIÐ STEYPUVINNU
Í kerskála álversins fara um 120 þúsund
rúmmetrar af steypu.
Álversframkvæmdir:
Lítið verið
um slys
STÓRIÐJA Síðastliðið eitt og hálft ár
hafa þeir sem koma að byggingu
álvers Alcoa í Reyðarfirði fagnað
mörgum áföngum en sá mikil-
vægasti, að þeirra sögn, náðist
fimmtudaginn 14. apríl síðast-
liðinn. Þá var að baki hálf milljón
vinnustunda án vinnutaps af völd-
um alvarlegs slyss.
Allt frá upphafi framkvæmd-
anna hafa starfsmenn orðið fyrir
fjórum minniháttar óhöppum með
þeim afleiðingum að þeir þurftu
að leita læknishjálpar en þau
óhöpp leiddu ekki til vinnutaps.
- kk
Góðir Íslendingar!
Hverjir eru Íslendingar?
Hvað finnst þeim um lífið og tilveruna?
12.000 eintök se
ld
Og nú til á fjórum tungumálum:
islensku - ensku - þýsku og frönsku
Loksins
fáanleg
aftur!
Bók sem beðið hefur verið eftir!
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Eiga samkynhneigð pör að
njóta alveg sama réttar og
gagnkynhneigð pör?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að breyta lögum um eftirlaun
ráðherra og þingmanna?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
39%
61%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
FRÁ RAUFARHÖFN
Samkvæmt nýlegri úttekt fer meira fé
frá landsbyggðinni til höfuðborgarinnar
en öfugt.
ÍTALSKIR VERKAMENN VIÐ KÁRAHNJÚKA
Impregilo hugleiðir að fara með nýfallinn
úrskurð yfirskattanefndar um erlenda
verkamenn fyrirtækisins fyrir dómstóla, en
úrskurðurinn hefur í för með sér nokkurn
kostnaðarauka fyrir fyrirtækið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Krefjast lögbanns
á ráðningu
Skjár einn telur á sér brotið með ráðningu Helga Steinars Hermannssonar, fyrr-
verandi dagskrárstjóra Skjás eins, til 365 ljósvakamiðla og hefur farið fram á lög-
bann. Helgi vísar ásökunum á bug og sakar sjónvarpsstjóra Skjás eins um hótanir.
TEKIN MEÐ FÍKNIEFNI Lögreglan
á Selfossi hafði afskipti af
nokkrum ungmennum sem höfðu
komið sér fyrir í sumarbústað í
leyfisleysi. Kannabisefni fundust
við leit og var fólkinu haldið í
varðhaldi fram eftir nótt.
KVARTAÐ YFIR SINUELDUM Íbú-
ar á Akureyri vöknuðu við
reykjarkóf í bænum í gærmorg-
un. Hafði bóndi einn tekið það
upp hjá sér að kveikja í ræktar-
landi sínu með þeim afleiðingum
að mikinn reyk lagði yfir Akur-
eyri alla. Hafði hann til þess
leyfi en það var afturkallað
vegna kvartana.
FÍKNIEFNI Á AKUREYRI Einn sit-
ur enn í gæsluvarðhaldi vegna
fíkniefna á Akureyri. Þremur
hefur verið sleppt frá því á mið-
vikudag í síðustu viku þegar
lögreglan stöðvaði þá á ferð til
Akureyrar með 300 grömm af
hassi.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
SEXTÁN ÁRA Á BÍL Réttindalaus
ökumaður sem grunaður er um
ölvun við akstur var stöðvaður af
lögreglunni á Dalvík í fyrra-
kvöld. Hann var að skutla félög-
um sínum um bæinn.
HELGI STEINAR
HERMANNSSON