Fréttablaðið - 24.04.2005, Side 10
Harka hefur enn á ný hlaupið í
samskipti milli fylkinga í banka-
ráði Íslandsbanka. Ólga hefur
verið um völdin í bankanum um
skeið og nú deila stærstu hluthaf-
ar hart um sölu Íslandsbanka á 66
prósenta hlut í Sjóvá til félags í
eigu Karls Wernerssonar banka-
ráðsmanns og næststærsta hlut-
hafa Íslandsbanka.
Karl sat ekki fundi bankaráðs-
ins þegar fjallað var um söluna og
segja fulltrúar fylkingarinnar
sem greiddi atkvæði með sölunni,
að frá byrjun hafi menn gert sér
grein fyrir að vanda yrði í hví-
vetna til sölunnar í ljósi eignar-
hlutar og stöðu Karls í bankanum.
Samkvæmt heimildum greiddu
fjórir af sjö bankaráðsmönnum
sölunni atkvæði sitt; Tómas Sig-
urðsson sem tók sæti þegar Karl
vék, Einar Sveinsson bankaráðs-
formaður, Róbert Melax og Jón
Snorrasson. Steinunn Jónsdóttir
sem talin er styðja ríkjandi meiri-
hluta í bankaráðinu greiddi sam-
kvæmt heimildum ekki atkvæði
með sölunni.
Straumur fjárfestingarbanki
vildi einnig kaupa Sjóvá og full-
trúar þeirra hafa haldið fram að
forstjóri bankans og meirihluti
stjórnar hafi brotið gegn eigin
verklagsreglum og ekki gætt
hagsmuna hluthafa með því að
reyna að selja hæstbjóðanda.
Þessu mótmælir meirihluti
bankaráðsins. Röksemdirnar
fyrir sölunni hafi verið að gott
verð var í boði frá aðila sem tilbú-
inn væri að vinna áfram að mark-
miðum bankans um sölu trygg-
inga og bankaþjónustu og við upp-
byggingu sameiginlegs fjárfest-
ingarfélags. Viðskiptahagsmunir
hafi verið hafðir að leiðarljósi.
Vísað er til þess að Morgan
Stanley sem var til ráðgjafar við
söluna hafi talið viðskiptin góð og
því hafi tækifærið verið gripið.
Straumsmenn hafa efasemdir um
það að bankaráðið hafi fengið ráð-
gjöf sem útilokaði að fleiri bitust
um Sjóvá og hærra verð fengist.
Innan Íslandsbanka er bent á að
Straumur hafi aldrei lagt fram til-
boð, heldur einungis lýst áhuga.
Meta þurfi þegar rætt sé um af-
stöðu til tilboðs að það að fresta
því að taka fyrirliggjandi tilboði
liggi áhætta um að tilboðið verði
dregið til baka.
Straumur lýsti áhuga sínum á
kaupum, en meirihluti bankaráðs
Íslandsbanka segir Straum hafa
gert það eftir að þeir voru upp-
lýstir um tilboð sem lá fyrir og því
komið að borðinu á grundvelli
upplýsinga sem ekki voru almenn-
ar. Þeir vísa því á bug að viðskipti
Karls séu á grundvelli stöðu hans
sem innherja og ef einhver hafi
haft stöðu innherja í viðskiptum,
þá sé það Straumur sem fyrir sak-
ir kurteisi hafi verið látinn vita
um að tilboð hafi borist í Sjóvá.
Straumsmenn segja hins vegar
að Þórður Már, forstjóri Straums,
og Bjarni Ármannsson hafi rætt
um Sjóvá og Þórði verið tjáð að
hætt hefði verið við tilboðið. Karl
mun hafa verið hikandi við kaup-
in, skömmu fyrir páska og talið
verðið sem bankinn vildi fá fyrir
Sjóvá fullhátt. Straumsmenn full-
yrða að málinu sé hvergi nærri
lokið og hyggjast leita til eftirlits-
stofnana og hugsanlega dómstóla
til að fá niðurstöðu í söluna.
Karl í lykilstöðu
Nú kunna margir að spyrja hvers
vegna Sjóvá sé svona góður biti.
Meðal sérfræðinga á markaði er
ekki um það deilt að verðið sem
Karl greiddi fyrir Sjóvá er hátt.
Afkoma af tryggingastarfsemi
hefur verið frekar slök eins og hjá
flestum tryggingafélögum, en af-
koman verið borin uppi af gengis-
hækkunum í eignasafni. Félagið
sem slíkt er eflaust áhugavert
fyrir þá sem vilja og treysta sér
til þess að taka á rekstrinum. Hins
vegar er freistandi að draga þá
ályktun að deilurnar séu fremur
sprottnar af því að með þessum
viðskiptum hefur Karl Werners-
son tryggt sér yfirburðastöðu í
hluthafahópnum og aðkoma
Straums og þar með Landsbanka-
manna verið takmörkuð að áhrif-
um í bankanum.
Björgólfsfeðgar hafa töluverð
áhrif í Straumi, bæði í gegnum
eignarhlut Burðaráss, svo og í
gegnum viðskiptafélaga sína í
Gretti sem er stærsti hluthafinn í
Straumi. Með því að selja Straumi
hlutinn í Sjóvá hefði núverandi
meirihluti verið að afhenda
fjöregg sitt. Tryggingasjóðir fé-
laga eins og Sjóvár geta haft veru-
leg áhrif með fjárfestingum sín-
um. Straumsmönnum hugnast
heldur ekki að stofnað verði fjár-
festingarfélag í samvinnu Karls,
tryggingafélagsins og bankans.
Slíkt félag ásamt tryggingafélag-
inu gefur nánast óendanlega
möguleika á að verja stöðu núver-
andi meirihluta í hluthafahópi
bankans. Gangi kaup Karls í gegn
án athugasemda er erfitt fyrir
Straum og Landsbankann að kom-
ast í vænlega stöðu í hluthafahópi
bankans.
Sameining Íslandsbanka og
Sjóvár var á sínum tíma varnar-
aðgerð þegar Björgólfsfeðgar
sóttu að öllum eignum gamla Kol-
krabbans. Sú ákvörðun Bjarna
Ármannssonar og Einars Sveins-
sonar að sameina félögin kom í
veg fyrir að Landsbankinn næði
undirtökunum í Sjóvá.
Rætt um sameiningu
Í þröngum hópi forystumanna Ís-
landsbanka og Straums voru fyrir
nokkrum vikum þreifingar um að
sameina Straum og Íslandsbanka.
Lætin nú hafa gert slíkt afar ólík-
legt. Fullur vilji mun hins vegar
hafa verið til þess hjá ráðandi að-
ilum beggja fyrirtækjanna.
Straumur á við núverandi aðstæð-
ur aðeins tvo kosti, að selja hlut
sinn í bankanum eða gera alvar-
lega tilraun til þess að ná undir-
tökum í bankanum. Straumur
keypti bréf í Íslandsbanka á föstu-
dag fyrir þrjá milljarða króna
sem eru tæplega tvö prósent af
hlutafé Íslandsbanka. Þau skref
benda til þess að Straumsmenn
hafi ekki lagt árar í bát og hyggist
leggja í orrustu um bankann. Eftir
söluna á hlut sínum í Trygginga-
miðstöðinni er Straumur með
mikla fjármuni sem þurfa að
finna sér verkefni. Íslandsbanki
er augljóst skotmark. Meðal
þeirra sem ráða för í Íslands-
banka nú er ekkert talið útilokað
um framhaldið. Ef nægjanlega
hátt verð er í boði telja menn ekki
útilokað að Straumur geti eignast
Íslandsbanka. Meðal stærstu hlut-
hafa er þó útbreidd skoðun að
menn vilji þá fá reiðufé fyrir hlut
sinn og fara út úr hluthafahópi
bankans með mikinn hagnað. Rétt
verð sé til fyrir alla hluti og sé það
í boði verði því tekið. Lokaorrusta
um Íslandsbanka gæti því orðið á
næstu vikum. ■
10 24. apríl 2005 SUNNUDAGUR
vidskipti@frettabladid.is nánar á visir.is
Í þröngum hópi forystumanna Íslandsbanka og Straums voru fyrir nokkrum
vikum þreifingar um að sameina Straum og Íslandsbanka. Lætin nú hafa gert
slíkt afar ólíklegt. Fullur vilji mun hins vegar hafa verið til þess hjá ráðandi
aðilum beggja fyrirtækjanna.
Tekist á um undirtökin í Íslandsbanka
Straumur fjárfestingarbanki er stærsti hluthafinn í Íslandsbanka en er í veikri stöðu verði kaup næststærsta hluthafans á Sjóvá sam-
þykkt eins og flest bendir til. Straumur jók hlut sinn í Íslandsbanka á föstudag og líklegt að atlaga verði gerð til áhrifa í Íslandsbanka.
VARIÐ GEGN ÁSÓKN Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, og Einar Sveinsson, þáverandi forstjóri Sjóvár, tilkynna sameiningu félaganna. Sameiningin kom í veg fyrir að
Björgólfsfeðgar næðu undirtökum í félaginu. Sala Sjóvár nú gerir Straumi fjárfestingarbanka, þar sem Björgólfsfeðgar hafa áhrif, erfitt fyrir að ná undirtökum í Íslandsbanka.
HAFLIÐI HELGASON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
ÁTÖK Í HLUTHAFAHÓPI
ÍSLANDSBANKA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA