Fréttablaðið - 24.04.2005, Síða 12
Níutíu námsmenn ruddust inn í
skrifstofur menntamálaráðuneyt-
is við Hverfisgötu í Reykjavík
þann 24. apríl 1970. Voru þeir að
lýsa stuðningi við kröfur náms-
manna erlendis. Nokkrum dögum
fyrr höfðu ellefu íslenskir náms-
menn frá Gautaborg og Uppsölum
lagt undir sig sendiráð Íslands í
Stokkhólmi til að vekja athygli á
ófremdarástandi í íslenskum
menntamálum, ekki síst varðandi
námslán, en einnig til að hvetja til
sósíalískrar byltingar á Íslandi.
Sænska lögreglan fjarlægði stúd-
entana úr sendiráðinu en slíkt hið
sama gerði íslenska lögreglan við
námsmennina sem settust á ganga
menntamálaráðuneytisins.
Sveinn Rúnar Hauksson læknir
var einn þeirra sem mótmælti í
menntamálaráðuneytinu. „Við
vildum tengja okkur verkalýðs-
baráttu og lýsa samstöðu með
henni og því var rauði fáninn haf-
inn á loft,“ segir Sveinn en að
hans sögn gerðu námsmenn kröfu
um að fá fund með menntamála-
ráðherra. Þegar þeir fengu það
ekki hafi námsmenn hótað því að
sitja áfram á göngum ráðuneytis-
ins þar til ráðherrann fengist á
fund. Sveinn segir engin alvarleg
slagsmál hafi orðið. Eftirmál urðu
lítil og féll málið
dautt niður.
Um svipað leyti
og íslenskir náms-
menn settust að í
menntamálaráðu-
neytingu söfnuðust
íslenskir námsmenn
saman fyrir framan sendiráð Ís-
lands í Stokkhólmi, Kaupmanna-
höfn, Osló og París en allt fór þar
friðsamlega fram. Í byrjun maí
settust tæpir þrír tugir náms-
manna að í sendiráðinu í Osló en
eftir það tók mótmælum þessum
að linna. ■
12 24. apríl 2005 SUNNUDAGUR
ANTHONY TROLLOPE (1815-1882),
SKÁLD OG RITHÖFUNDUR
fæddist þennan dag
TÍMAMÓT: MÓTMÆLI NÁMSMANNA Í MENNTAMÁLARÁÐUNEYTI
Þeir eru best klæddir sem eru í fötum
sem enginn tekur eftir.
Anthony Trollope var einn atkvæðamesti og virtasti enski rithöf-
undur Viktoríutímabilsins. Vinsældir hans ná fram á þennan dag.
timamot@frettabladid.is
Jón Páll Sigmarsson setti tvö Evr-
ópumet á móti í Sjónvarpinu 24.
apríl árið 1982. Hann lyfti 362,5
kg í réttstöðulyftu og samanlegt
940kg. Þá fæddust hin fleygu orð:
„Þetta er ekkert mál fyrir Jón Pál,“
sem hinn 21 árs gamli KR-ingur
kallaði þar sem hann hélt á
þremur og hálfu tonni í réttstöðu-
lyftu. Virtist þessi ógnarþyngd
hafa lítil áhrif á hann. Sannkallað
metaregn var á þessu sjónvarps-
móti Bjarna Fel. Auk evrópumeta
Jóns Páls voru sett ellefu lands-
met en keppendur voru einungis
fjórir.
Jón Páll átti síðan farsælan feril í
kraflyftingum og sigraði í keppn-
inni um titilinn „sterkasti maður
heims“, í janúar 1985 fyrstur Ís-
lendinga. Keppnin fór fram í Mora
í Svíþjóð. Þá var hann 24 ára
gamall en hann átti eftir að vinna
keppnina margoft, eða fjórum
sinnum í allt. Jón Páll var einnig
einn af brautryðjendum í vaxta-
rækt en í aflraunakeppnum eins
og Sterkasta manni heims reynd-
ist hann hafa fundið sína réttu
hillu. Fólk hafði gaman að því að
fylgjast með Jóni Páli keppa.
Hann sagði alltaf það sem honum
datt í hug og var ætíð léttur í
lundu.
Hann lést í janúar 1993 langt fyrir
aldur fram, aðeins 32 ára að aldri. 24. APRÍL
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
Ekkert mál fyrir Jón Pál
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför elskulegs föður okkar,
Guðmundar Laxdal Jóhannessonar
sem lést að Grund 31. mars.
Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og systir.
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur auð-
sýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elsku-
legrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóð-
ur, ömmu, langömmu, og langalangaömmu
Jóhönnu Loftsdóttur
Hjallabraut 33, Hafnarfirði,
Lárus Gamalíelsson,
börn, tengdabörn og ömmubörn.
!"#$%
& '
()*
( +'
&, + %(
"#)
- ((
"./) 0 1.'
'"1/2
3 (
+ &, +
'
(0 ( )
0 '+ & ) 5
*%
+ - &"64""
7 &"4".8
'
"8"7 (9
0: 9"#.;'
* +
'
<
) 0+3 2 + ) ( '#"' ".17*
0 = &+
%(0
+ > 9 ) 7
< '
!"
7 ,1/?6:)+ 7 (, &+'7* +3 +?
- ,& + %
' ,
+0@
A +'
) /
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir, afi
og langafi
Hjörtur Magnús Guðmundsson
Löngubrekku 47, Kópavogi,
sem lést 18.apríl síðastliðinn verður jarðsunginn frá Kópavogs-
kirkju mánudaginn 25. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar vinsam-
legast afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hans er bent á minn-
ingarsjóð Sunnuhlíðar.
Fyrir hönd aðstandenda
Guðrún Rósa Sigurðardóttir
Karl Hjartarson Ragnheiður Hrefna Gunnarsdóttir
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir
Lilja Hjartardóttir
Sigrún Hjartardóttir
Guðmundur Hjartarson Þórhalla Jónsdóttir
Stefanía Hjartardóttir Helgi Hrafnsson
Gunnhildur Hjartardóttir
Ingibjörg Hjartardóttir
Skarphéðinn Þór Hjartarson Guðrún Sigríður Loftsdóttir
Elsa Unnur Guðmundsdóttir
Bragi Kr. Guðmundsson Margrét Hauksdóttir
Barnabörn og barnabarnabörn.
AFMÆLI
Geir Jón Þórisson lögreglumaður er 53 ára.
Guðrún Þórðardóttir leikkona er 48 ára.
Friðrik Karlsson gítarleikari er 45 ára.
Bára Grímsdóttir tónskáld er 45 ára.
Björn Malmquist fréttamaður er 41 árs.
BORINN ÚT Sveinn Rúnar borinn út úr ráðuneytinu af lögreglumönnum.
Studdi námsmenn erlendis
1914 Dauðadómur er kveðinn
upp í síðasta sinn á Íslandi.
Dómnum var síðar breytt í
ævilangt fangelsi.
1953 Churchill er sæmdur ridd-
aratign af Elísabetu Eng-
landsdrottningu.
1970 Níutíu námsmenn ryðjast
inn á skrifstofur mennta-
málaráðneytis til að lýsa
stuðningi við námsmenn
erlendis
1977 Tékkneski stórmeistarinn
Vlastimil Hort setur heims-
met í fjöltefli á Seltjarnar-
nesi.
1994 Magnús Scheving lendir í
öðru sæti á heimsmeist-
aramóti í þolfimi í Japan.
1996 Feðgarnir Arnór og Eiður
Smári Guðjohnsen leika
báðir í landsleik í knatt-
spyrnu í Eistlandi. Íslend-
ingar vinna 3:0
ANDLÁT
Hildegard S. Björnsson, Furugerði 1,
Reykjavík, lést föstudaginn 15. apríl. Út-
förin hefur farið fram í kyrrþey.
Stefán Þórðarson, Hörgslundi 13,
Garðabæ, lést þriðjudaginn 19. apríl.
Tilkynningar um merkisatburði,
stórafmæli, andlát og jarðarfarir
í smáletursdálkinn hér að ofan
má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma
550 5000.