Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.04.2005, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 24.04.2005, Qupperneq 22
Leitað aðstoðar Á vefsvæðum flestra stéttarfélaga eru upplýsingar sem geta nýst manni við að leysa minni mál eða við hvern maður eigi að tala sé málið stærra.[ ] Vantar vinnu fyrir venjulegt fólk Iðandi mannlíf í göngugötunni. Skortur er á störfum í bænum fyrir ófaglært fólk. Myndin er úr safni. Atvinnuástand á Akureyri gæti verið betra. Umsóknum um sumarstörf hefur þó fækkað. „Það hefur verið jöfn þróun í at- vinnumálum á Akureyri undan- farið,“ segir Valgeir Magnússon, ráðgjafi hjá Svæðisvinnumiðlun Norðurlands eystra. „Það er ekki mikil uppsveifla heldur er línan meira flöt. Iðnaðarmenn ganga þó ekki um atvinnulausir, þeir sem verða útundan eru þeir sem ekki eru sérhæfðir.“ Valgeir bendir á að iðnfyrir- tæki hafi horfið úr bænum og verksmiðjur verið lagðar niður. „Það hefur ekki beint komið eitt- hvað í staðinn,“ segir Valgeir. „Háskólanum fylgja vissulega mörg störf en það eru ákveðnir hópar sem verða alveg útundan.“ Aðspurður hvort fólk leiti fyrir sér annars staðar segir Val- geir ófaglærða oft ragari að fara. „Þeir sem hafa menntun reyna frekar fyrir sér annar- staðar, en hinir hlaupa í tíma- bundin störf sem losna og eru at- vinnulausir þess á milli. Það vantar hér stóran vinnustað, venjuleg störf fyrir venjulegt fólk. Hér sem annars staðar gengur atvinnulífið mikið út á samræmingu, fyrirtæki samein- ast og hagræða og segja upp fólki. Það er langt í frá allt svart en við myndum gjarnan þiggja fjölgun starfa í bænum,“ segir Valgeir. Umsóknir um sumarstörf á Akureyri eru nú 490, en búist er við að um það bil 270-290 störf verði í boði. Jónína Kristín Laxdal, launa- fulltrúi hjá Akureyrarbæ, segir að umsóknum hafi fækkað um 20% frá því í fyrra. „Við höfum ekki skýringar á því og vitum ekki hvort atvinnuástand er betra í bænum en í fyrra. Það vekur líka athygli að umsóknir frá körlum eru helmingi færri en hjá konum. Meðal starfa sem eru í boði í sumar eru stöður við Búsetudeild, sem eru sambýlin á Akureyri, og dvalarheimilin.“ Að venju verður unglingum boðið upp á unglingavinnu á Ak- ureyri, en ef margir eru atvinnu- lausir eftir að störfum hefur ver- ið úthlutað er sett í gang átaks- verkefni. „Við vitum ekki fyrr en líður á sumarið hvort við hrindum af stað átaksverkefni,“ segir Jónína og tekur undir með Valgeiri að þeir sem verst verði úti séu 17 ára unglingar, sem hafi litla sem enga reynslu, og hinir sem ekki hafi sérhæfingu. ■ Nemendur í Edinborg í Skotlandi sem vinna hlutastarf með skóla fá sérstök verkalýðskort afhent um þessar mundir og er það hluti af tilraunaverkefni verkalýðsfélaga og sambands nemenda í landinu. Verkalýðskortið gerir það að verkum að nemendur geta nýtt sér fjár- hagslegan stuðning verkalýðsfélaga sem og lögfræðiþjónustu og vona verkalýðsfélögin að þetta verði til þess að nemendurnir gangi í verkalýðsfélag eftir útskrift. Tilraunaverkefnið kemur í kjölfar þess að vinnuálag nemenda er farið að valda mönnum áhyggjum. Könnun sem gerð var meðal 400 nemenda í febrúar sl. leiðir í ljós að þriðjungur stúdenta í Edinborg vinnur 20 stundir á viku eða meira. Alls kváðust 69 prósent stúdent- anna vera í vinnu með námi vegna fjár- hagsörðugleika. Skoskir nemendur vinna of mikið NEMENDUR FÁ ÓKEYPIS ÞJÓNUSTU VERKALÝÐSFÉLAGANNA Í SKOTLANDI TIL AÐ BÆTA ÚR VANDANUM. Atvinnuleysi meðal karlmanna var 3,4 prósent en 2,5 prósent hjá konum. At- vinnuleysi var mest meðal fólks á aldr- inum 16 til 24 ára, eða 9,3 prósent. Á sama tíma á síðasta ári mældist at- vinnuleysi 3,1 prósent. Á vinnumarkaðnum voru alls 160.600 manns sem jafngildir 79,8 prósenta at- vinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 82,7 prósent en kvenna 77 prósent. Meðalfjöldi vinnustunda á fyrsta árs- fjórðungi var 40,7 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunar- vikunni, 46,6 klukkustundir hjá körlum en 34 klukkustundir hjá konum. Fjöldi námsmanna sextán ára og eldri var 39.400 á fyrsta ársfjórðungi og unnu 59,6 prósent þeirra samhliða námi. Námsmönnum sem vinna með námi fjölgaði um 1.200 frá fyrsta árs- fjórðungi 2004 og var sú fjölgun ein- ungis meðal kvenna. Nemendur í breskum háskólum búast margir hverjir ekki við að fá vinnu eftir útskrift. Mynd er úr safni. Nemendur svart- sýnir á að fá vinnu TVEIR ÞRIÐJU NEMENDA SEM ÚT- SKRIFAST ÚR BRESKUM HÁSKÓLUM Í VOR EFAST UM AÐ FRAMBOÐ VINNU SÉ NÆGILEGT. Þessi svartsýna skoðun bresku háskóla- nemanna kemur fram í nýrri könnun sem ríflega 16 þúsund stúdentar í þrjá- tíu skólum tóku þátt í. Það var fyrirtæk- ið High Fliers Research sem gerði könnunina. Í niðurstöðum kemur fram að fjöldi nemenda sem búast við vinnu eftir út- skrift hafi hækkað aðeins frá fyrra ári en er samt frekar lágur. Alls kvaðst 21 prósent hópsins þess fullviss að full vinna biði að lokinni útskrift, 15 pró- sent bjuggust við því að hefja atvinnu- leit að loknu námi og meira en helm- ingur nemendanna, eða 63%, taldi víst að ekki væri nóg af störfum fyrir alla þá sem útskrifast í vor. Um 20 prósent sögðu að fá störf væru í boði en 17 prósent héldu að það væri nóg af vinnuframboði. Enn fremur héldu útskriftarnemarnir að þeir myndu þéna að meðaltali 19.800 pund á ári í fyrstu vinnunni, fjórum prósentum meira en í könnuninni í fyrra. Höfuð- borg Englands, London, er enn aðal- áfangastaður þriðjungs útskriftarnema. Rannsóknin var framkvæmd af vefatvinnumiðluninni Retail Choice í Bretlandi og tóku átta hundruð verslunarstarfsmenn þátt í henni. Næstum því allir starfsmennirnir höfðu reglulega lent í átökum við ókurteisa við- skiptavini. Tveir af hverjum þremur starfsmönnum hafði verið blótað eða viðskiptavinir öskrað á þá. Í einu tilviki varð viðskiptavinur reiður þegar hann gat ekki komist að hillu því eldri maður hafði hnigið niður og þurfti að lífga hann við. Í öðru tilviki þurfti ör- yggisvörður að fylgja starfs- manni úr vinnunni, því reiður við- skiptavinur beið eftir starfsmann- inum fyrir utan verslunina. Einn starfsmaður sagðist hafa verið löðrungaður af konu þegar hann rukkaði hana um þrjátíu krónum meira en hann átti að gera. Vefstjóri Retail Choice, John Salt, hvetur viðskiptavini til að íhuga hegðun sína ef þeir óska þess að vera tekið vel. ■ Sjúkraliðar eru eftirsóttir starfskraftar víða – ekki bara í sjúkrahúsunum held- ur líka á öðrum stofnunum og lækna- stofum. Starf sjúkraliðans getur verið mjög gefandi og auk þess er oft mögu- legt að fá hlutastarf í faginum. Íslenskir sjúkraliðar geta unnið á Norðurlöndun- um og þar er oft auglýst eftir fólki. Sjúkraliðar þurfa að hafa áhuga á fólki, hafa hlýja framkomu og kunna að sýna umhyggju. NÁMIÐ Til að hefja nám á sjúkraliðabraut er krafist grunnskólaprófs með viðunandi árangri. Nemendur sem eiga meira nám að baki geta fengið það metið til stytt- ingar á náminu. Meðalnámstími á sjúkraliðabraut er 3 ár í skóla, eða 6 annir, auk starfsþjálfunar í alls 16 vikur – sem er launuð. Námið er 120 eining- ar og skiptist í almennar bókgreinar, sérgreinar, verknám og starfsþjálfun. Námið er að hluta lánshæft hjá LÍN. Sjúkraliðanámið er viðurkennd starfs- menntun og hljóta nemendur löggild- ingu að námi loknu. Hægt er að læra til sjúkraliða í Heilbrigðisskóla Fjölbrauta- skólans við Ármúla, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og víðar í fjölbrautaskólum. HELSTU NÁMSGREINAR Meðal almennra bóknámsgreina má nefna íslensku, ensku og dönsku. Auk þess eru lífsleikni, stærðfræði og íþrótt- ir á námskránni. Sérgreinarnar eru margar og þa má nefna félagsfræði, heilbrigðisfræði, hjúkrunarfræði, líffæra- og lífeðlisfræði, líkamsbeitingu, lyfja- fræði, náttúrufræði, næringarfræði, samskipti, sálfræði, siðfræði, skyndi- hjálp o.fl. Námið er eins og sést afar fjölbreytt, auk þess sem nemendur fara í verknám á heilbrigðisstofnunum. FRAMHALDSNÁM Í Heilbrigðisskólanum í FÁ er hægt að fara í tveggja anna framhaldsnám í öldrunarhjúkrun. Inntökuskilyrði eru sjúkraliðanám frá viðurkenndum skóla auk fjögurra ára starfsreynslu sem sjúkraliði. SAGAN Sjúkraliðanám var fyrst sett á stofn hér- lendis árið 1965 að danskri fyrirmynd. Námið fór fram á St. Jósefsspítalanum í Reykjavík og á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Námið var í þá daga 9 mán- uðir og skiptist í bóklegt og verklegt nám. Sjúkraliðaskóli Íslands var stofn- aður árið 1975 en lagður niður árið 1990 þegar námið var flutt í Heilbrigð- isskólann við Ármúla. Eins og fyrr sagði eru sjúkraliðabrautir starfræktar víðar í fjölbrautaskólum. Sjúkraliði? Nemar á sjúkraliðabraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti í verklegri þjálfun. Hvernig verður maður Minna atvinnuleysi en í fyrra ATVINNULEYSI Á FYRSTA ÁRSFJÓRÐUNGI 2005 VAR ÞRJÚ PRÓSENT SEM ÞÝÐIR AÐ 4.800 MANNS VORU ÁN VINNU SAMKVÆMT TÖLUM HAGSTOFU ÍSLANDS. Námsmönnum sem vinna með námi fjölgaði á fyrsta ársfjórðungi en sú fjölgun var einungis meðal kvenna. Margir nemendur þurfa að vinna mikið með skóla til að eiga fyrir salti í grautinn. Mynd er úr safni. Löðrungaður af viðskiptavini Verslunarstarfsmenn eru reglulega fórnarlömb andlegra árása frá „vondum“ viðskiptavinum samkvæmt nýrri rann- sókn. Viðskiptavinir í verslunum geta oft verið ansi ókurteisir. Mynd er úr safni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.