Fréttablaðið - 24.04.2005, Síða 24
4
ATVINNA
Bechtel International Inc. byggir álver á Reyðarfirði á vegum Alcoa. Fjarðaál er hann-
að og byggt í samstarfi við HRV sem samanstendur af nokkrum fremstu fyrirtækjum
á Íslandi á sviðinu, Hönnun, Rafhönnun og Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen.
Verkstjóri
Verkstjórn við alla almenna byggingavinnu, t.d steypuvinnu. Minnst
fimm ára reynsla af byggingavinnu áskilin. Pólskukunnátta æskileg.
Upplýsingar gefur Audrey í síma 470 7494.
Öryggisráðgjafi
Umsækjendur skulu hafa þekkingu á íslenskum öryggisreglum og
minnst fimm ára reynslu sem öryggisráðgjafar eða öryggisstjórar í fullu
starfi. Reynsla af byggingavinnu er áskilin og skírteini frá öryggis- og
slysavarnanámskeiðum (svo sem skyndihjálparnámskeiðum), ásamt
reynslu af þjálfun starfsmanna koma til góða. Pólskukunnátta æskileg.
Upplýsingar gefur Audrey í síma 470 7494.
Nýliðaþjálfari – Pólska
Starfið felur í sér þjálfun og kennslu í öryggis,- samskipta- og umhverf-
ismálum. Mikilvægt er að viðkomandi geti tileinknað sér nýtt efni á ofan
nefndum sviðum, þýtt yfir á pólsku og komið efninu vel til skila til
starfsmanna. Haldgóð menntun og starfsreynsla nauðsynleg. Upplýs-
ingar veitir Ragnheiður í síma 470 7595, netfang: rkristia@bechtel.com
Eftirlitsmaður uppsetningar
Ber ábyrgð á eftirliti með vinnuflokkum sem ráðnir eru til uppsetningar
á burðarvirkjum úr stáli og forsteyptum einingum (að 50 tonna þunga).
Hefur einnig eftirlit með samsetningarsvæðum og hífingu þungra hluta,
á afstillingu og herðingu bolta og á húðun þak- og veggklæðninga.
Umsækjendur skulu hafa að lágmarki fimm ára starfsreynslu.
Upplýsingar gefur Audrey í síma 470 7494.
Birgðastjóri
Ber ábyrgð á birgðastjórnaráætlun og sér um ìinnî- hluta
birgðameðferðar, þ.e. skilgreiningu, ákvörðun og magnmælingu, í því
skyni að gera innkaup sem hagstæðust. Stýrir framkvæmdamiðstöð
birgðameðferðar fyrir verkfræðivinnu, aðfangaöflun og byggingarvinnu.
Krafist er fyrri reynslu af birgðastjórn. Upplýsingar gefur Audrey í síma
470 7494.
Lagermaður
Birgðastýring utan framkvæmdasvæðis, þ.m.t. móttaka, geymsla og
afgreiðsla á hráefnum, neysluvöru og búnaði til verkefnisins, skráning
og innsláttur gagna, leiga á búnaði og aðstöðu til verkefnisins og eftirlit
með vörum á lager, geymslusvæðum og vinnustöðum. Upplýsingar
gefur Audrey í síma 470 7494.
Innkaupastjóri/Afgreiðslustjóri
Sinnir störfum er lúta að gerð og meðferð pantana. Sér um forval
tilboðsgjafa, lista yfir tilboðsgjafa og greiningu tilboða, gengur frá
skuldbindingum og heldur utan um pantanir. Fylgir því eftir að birgjar
standi við afgreiðsluáætlanir. Starfsreynslu krafist. Upplýsingar gefur
Audrey í síma 470 7494.
Svæðisverkfræðingar (almennir og rafmagns-)
Vinna með iðnaðarmönnum og vera þeim til halds og trausts við verkið
og sjá til þess að tímaáætlun og tæknilegar og efnislegar kröfur til
verksins séu uppfylltar. Það felur í sér að koma að uppsetningu
verkáætlana, gera úttekt á hráefnum, sannreyna prófunarskilyrði verka,
gera prófanir, halda uppi eftirliti með útliti og afstöðu með því að nota
staðlaðar verklagsreglur Bechtel um breytingar og gera lokaúttekt á
uppsetningum til þess að tryggja að verkið standist þær kröfur sem
gerðar eru í skilgreiningu og hönnun. Leysa úr tæknilegum álitamálum
á svæðinu og gæðatengdum málum sem þeim kunna að fylgja, vinna
með hönnunarverkfræðingum að lausn þessara mála. Einnig að gefa
vikulega skýrslu um stöðu uppsetningarverka og nota til þess
sérstakan hugbúnað í eigu Bechtel. Krafist er reynslu af stórverkefnum.
Upplýsingar gefur Audrey í síma 470 7494.
Aðstoðareftirlitsmenn
Bera ábyrgð á eftirliti með vinnuflokkum sem ráðnir eru til starfa á
eftirfarandi sviðum:
Rafmagnsvinna – Þekking á uppsetningu raflagna (straumrásum,
köplum og rofum) nauðsynleg. Yfirsýn yfir bráðabirgðaorkukerfi, aðal-
spennuvirki, há- og lágspennudreifikerfi. Eftirlit með geymslusvæðum
fyrir raflagnaefni og tækjabúnað og eftirlit með flokkum sem vinna við
frágang há- og lágspennulagna.
Uppsetning – Reynsla af uppsetningu burðarvirkja úr stáli og stál-
klæðninga nauðsynleg. Umsækjandi þarf að hafa eftirlit með flokkum
sem vinna við uppsetningu á burðarvirkjum úr stáli og forsteyptum ein-
ingum. Einnig með samsetningarsvæðum og hífingu þungra hluta,
ásamt húðun á þak- og veggklæðningum.
Almenn jarðlagnavinna
Ábyrgð á frágangi jarðlagna á svæðinu (klóak, frárennsli, iðnaðarfrá-
rennsli, neysluvatn, brunavarnir), þ.m.t. eftirlit með jarðvinnuflokkum
sem ganga frá rörum og brunnum, greftri og ofanímokstri. Einnig eftir-
lit með gæðum steypu, frágangi plast- (PVC) og stálröra og eftirlit með
frágangi og tækjavinnu undirverktaka. Pólskukunnátta æskileg.
Fagmenn óskast til starfa
við álversbygginguna á Reyðarfirði:
Ráðningarstofa
Bechtel
Búðareyri 25
730 Reyðarfirði
Ráðningarstofa
Bechtel
Suðurlandsbraut 4
108 Reykjavík
Upplýsingar um verkefnið er að finna á heimasíðu Bechtel, www.fjardaalproject.is
Umsækjendur sem áhuga hafa og uppfylla þær kröfur
sem krafist er, eru vinsamlega beðnir um að skila
umsóknum á aðra hvora Ráðningarstofuna eða senda
til Audrey Byrns, netfang: axbyrns@bechtel.com.