Fréttablaðið - 24.04.2005, Side 28
8
ATVINNA
Daníel Freyr Atlason er 28
ára hugmyndasmiður hjá Ís-
lensku auglýsingastofunni.
Það liggur í hlutarins eðli að
hann smíðar hugmyndir í aug-
lýsingar en það getur bæði
verið erfitt og gríðarlega
skemmtilegt.
„Hugmyndasmiður er sá sem er
oftast ábyrgur fyrir hugmyndum
sem verða að auglýsingum. Ég
sem hugmyndasmiður þarf að
kynna mér viðfangsefnið og við-
skiptavininn mjög vel og koma
síðan með skemmtilega hugmynd
sem ég kynni viðskiptavininum.
Oftast ræður viðskiptavinurinn í
hvaða miðlum auglýsingin birtist
en ég kynni líka fyrir honum
skemmtilega miðla sem hægt er
að nýta sér og sem vekja athygli
almennings,“ segir Daníel.
„Þegar auglýsingin er gerð
byrjar ferlið á því að viðskipta-
vinur talar sig saman með mark-
aðsráðgjafa í sínu fyrirtæki.
Markaðsráðgjafi talar síðan við
„creative director“ hjá auglýs-
ingastofunni sem er eins konar
hönnunar- eða hugmyndastjóri.
Ég sest síðan niður með hönnuði
og yfirmanni mínum og við
ákveðum hvaða leið sé sniðugast
að fara og „brainstormum“ að-
eins eins og það er kallað. Því
næst kynnum við grófar hug-
myndir og nokkrar leiðir fyrir
viðskiptavininum og sýnum hon-
um skissur að auglýsingum. Við-
skiptavinurinn segir okkur síðan
hvaða leið honum líkar best og þá
tekur framleiðslustigið á auglýs-
ingunni við,“ segir Daníel en
hann lumar á ýmsum aðferðum
við að fá góðar og frumlegar hug-
myndir. „Þegar ég fæ verkefni þá
sit ég fyrir framan tölvuna, les
tímarit eða horfi út í loftið og
reyni að fá sniðuga hugmynd. Ég
geng líka með bók í vasanum og
skrifa oft hjá mér eitthvað sem
ég sé. Ég á því lager af hugmynd-
um sem hægt er að tvinna saman
við eitthvað annað.“
Stundum þarf Daníel aðeins að
ýta við ímyndunaraflinu. „Stund-
um fæ ég mér í glas og daginn eft-
ir vakna ég með fulla vasa af
servíettum með skissum og hug-
myndum sem ég skil ekkert í,“
segir Daníel og hlær en nokkrar
auglýsingar hans hafa orðið til
þannig. „Mér finnst ekkert af því
ef ég er alveg strand að fara á
barinn eftir vinnu og fá mér einn
eða tvo bjóra. Það losar um eitt-
hvað og þá flæða hugmyndirnar
yfir mig.“
„Stundum eru kröfur við-
skiptavinarins mjög skrýtnar og
það er líklegast það sem er erfið-
ast við starfið. Ég er líka alltaf í
vinnunni. Þegar ég leggst upp í
rúm á kvöldin þá hugsa ég um ein-
hverjar hugmyndir að auglýsingu
eða hugsa um leiðir til að klippa
auglýsingu sem ég er nýbúinn að
taka,“ segir Daníel sem á hug-
myndina í auglýsingum eins og 1
sími hjá OgVodafone þar sem
stúlka sést ferðast með síma um
fjölbýlishús og rífa símasnúruna
með sér, Gulla frænka hjá Og-
Vodafone og fótboltaauglýsingin
fyrir Landsbankann en þess má
geta að Daníel fékk þrjár tilnefn-
ingar fyrir auglýsingar sínar á
ÍMARK hátíðinni í ár.
En hvað lærir maður eigin-
lega til að verða hugmyndasmið-
ur? „Ég hef eiginlega ekki hug-
mynd. Ég er menntaður auglýs-
ingafræðingur frá London Col-
lege of Communication sem er
mjög virtur skóli. Þar lærði ég
hugmyndafræðina á bak við aug-
lýsingagerð en ekki grafísku
hliðina þar sem ég er frekar lé-
legur á tölvur. Ég lærði meðal
annars um kaupendahegðun, að-
ferðarfræði og höfundarétt. Þar
lærði ég ágætis grunn en ég held
að það sé ekki hægt að læra að
verða hugmyndarsmiður. Þetta
snýst mikið um sjálfstraust og
maður verður að þora að segja
það sem manni finnst. Síðan verð
ég alltaf að vera á tánum og
fylgjast með nýjustu trendun-
um,“ segir Daníel sem dreymir
um að komast að hjá stórri aug-
lýsingastofu í London, Amster-
dam eða jafnvel New York á
næstu árum. lilja@frettabladid.is
Vaknar með fulla vasa af hugmyndum
Daníel hefur náð góðum árangri í fagi sínu þrátt fyrir stuttan starfsaldur en hann hefur unnið hjá Íslensku auglýsingastofunni í rúmt ár.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Grunnskólakennari.
Við Brúarásskóla er laus
kennarastaða skólaárið 2005-2006.
Brúarásskóli er samkennsluskóli fyrir nemendur
í 1.-10.b., 23 km norðan við Egilsstaði. Í skólanum
er vinna hafin við sérstaka stefnumótun í kennslu
list- og verkgreina ásamt íþróttum og heilsurækt,
sem miðar að því að auka veg þessara námsgreina
til muna. Afar gott og heimilislegt andrúmsloft er
ríkjandi og vinnuaðstaða er jafnframt góð.
Kennslugreinar eru:
Almenn kennsla á miðstigi.
Tungumál og samfélagsfræði.
Íþróttir.
Við leitum að kraftmiklum og skapandi kennara
sem hefur kjark og dug til að reyna nýja hluti. Í
boði er nýtt og glæsilegt íbúðarhúsnæði á staðnum.
Umsóknarfrestur er til 10. maí 2005.
Allar nánari upplýsingar veitir Magnús Sæmundsson
skólastjóri í síma 4700793/4711047 eða í netfangi
magnuss@egilsstadir.is
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Leikskólar
Hlíðarberg
(s. 565 0556, hlidarberg@hafnarfjordur.is)
Matreiðslumaður/matráður
óskast til starfa nú þegar.
Hlíðarberg er fjögurra deilda
leikskóli með 100 börn og
30 starfsmenn.
Um laun og kjör fer eftir samningum viðkomandi
stéttarfélags. Allar upplýsingar gefur Ólafía
Guðmundsdóttir, leikskólastjóri.
Umsóknarfrestur er til 28. apríl.
Málningarþjónusta Ingimundar Einarssonar ehf.
Málarar
Óska eftir að ráða faglærða málara til starfa
á höfuðborgarsvæðinu.
IE ehf er framsækið og vaxandi þjónustufyrirtæki í málara-
iðn. Fyrirtækið leitast við að vera í fararbroddi með fjöl-
breytta og viðtæka þjónustu, sem krefst fagmennsku.
Fyrirtækið leitar að áhugasömum og traustum málurum sem
vilja taka þátt í spennandi verkefnum með okkur.
Fyrirtækið bíður upp á hvetjandi starfsumherfi þar sem
starfsmenn eru hvattir til að taka ábyrgð og sýna frumkvæði.
Áhugasamir geta skráð sig á rafrænu formi undir atvinna í boði með
því að fara inn á heimasíðu fyrirtækisins www.malari.is
Trésmiðir – verkamenn
óskast
Trésmiðum vönum uppsetningu á steypueining-
um og verkamenn í ýmis verk. Staðsetning í
Hafnarfirði og á Selfossi. Upplýsingar um störfin
gefur Svanur í síma 893-1901.
Umsóknarform á www.leigulidar.is
Leiguliðar, Fossaleyni 16, 112 Rvk.
Saumakona
Saumakona óskast til starfa til skemmri
eða lengri tíma. Þarf að vera vön fatasaum
og geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar í síma 822 1778 virka daga
frá 14:00 til 18:00.