Fréttablaðið - 24.04.2005, Side 45

Fréttablaðið - 24.04.2005, Side 45
SUNNUDAGUR 24. apríl 2005 21 Ársfundur Lífeyrissjó›sins Frams‡nar ver›ur haldinn a› Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn 27. apríl 2005 og hefst kl. 15.00. Ársfundur 2005 Dagskrá fundarins: 1. Venjuleg ársfundarstörf. 2. Samrunasamningur við Lífeyrissjóð sjómanna og tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins. Meginefni tillagnanna er að sjóðirnir sameinist frá og með 1. júní 2005 og taki frá sama tíma upp nýtt aldurstengt réttindakerfi. Kynningargögn er hægt að nálgast á heimasíðu sjóðsins, www.framsyn.is, þ.m.t. samrunasamning og tillögur að nýjum samþykktum. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð að jöfnu skipað fulltrúum stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum standa fer með atkvæði á ársfundinum. Að loknum ársfundinum verður haldinn stofnfundur nýja sjóðsins og hefst hann kl. 18.00 þennan sama dag, enda hafi ársfundir beggja sjóðanna samþykkt samrunasamninginn. Reykjavík 15. apríl 2005 Stjórn Lífeyrissjóðsins Framsýnar H V ÍT A H Ú S I‹ / S ÍA Heimur án landamæra Á dögunum leit bókin Tíska ald- anna dagsins ljós. Bókin er ákaf- lega fallega sett upp og textinn er lipur og skemmtilegur. Bókin er því sannkallað konfekt fyrir sálina. Í henni er fatasagan rak- in í máli og myndum. Inn í sög- una fléttast byggingarlist, hús- gagnahönnun og myndlist á skemmtilegan máta. Höfundur bókarinnar, Ásdís Jóelsdóttir, hefur haft bókina lengi í smíðum en hugmyndin að henni kviknaði árið 1993 þegar hún hóf kennslu við Fjölbrauta- skólanum í Garðabæ. Það var þó ekki bara af illri nauðsyn sem hún settist við skriftir. Hún hef- ur bæði mikinn áhuga á sögu og svo er hún þrælgóður penni. „Mér fannst vera þörf fyrir svona bók, ekki bara fyrir nem- endur í hönnunarnámi heldur líka fyrir þá sem hafa áhuga á sögu, tísku og öðru sem tengist listum og langar til að fræðast meira. Ég held ég geti fullyrt að þetta sé í fyrsta skipti sem þess- ir þættir eru tvinnaðir saman í eina bók. Tíska aldanna spannar allt tímabilið frá tímum Forn- Egypta til nútímans. Sem les- andi á maður að geta haft það huggulegt yfir lestrinum og fengið skemmtilega yfirsýn inn í söguna,“ segir Ásdís. Tíska aldanna er önnur bók Ásdísar en fyrir sex árum skrif- aði hún bókina Sniðteikningar fyrir kvenfólk. Einnig hefur hún búið til mikið af námsefni en hún kennir fata-og textílgreinar við Fjölbrautaskólann í Garða- bæ. Um tíma var hún aðstoðar- ritstjóri á handíðatímaritinu Nýtt af nálinni. Hún hefur líka gert mikið af því að hanna fatn- að og híbýli, þótt bókaskrifin hafi átt hug hennar allan síðustu árin. „Ég varð meira fræðileg eftir að ég byrjaði að kenna,“ segir Ásdís og hlær. Hún segir jafn- framt að það sé mjög skapandi að vera í kennarastarfinu og það gefi sér heilmikið. „Það er svo gaman að vinna með nemendum á þessum aldri. Þau eru full af áhuga og ég finn fyrir miklum metnaði enda hefur nemendum fjölgað mjög mikið.“ Aðspurð um tískuáhuga vill hún ekki meina að hún sé nein „tískulögga“. „Ég get bæði hælt og krítiserað tískuna. Það skipt- ir miklu máli að vera góðu neyt- andi og vera meðvitaður um hvernig tískuheimurinn virkar. Maður má þó alls ekki láta hann stjórna sér,“ segir Ásdís. Í sumar ætlar hún að hefja mastersnám í menningar- og menntastjórnun á Bifröst og hlakkar hún til að takast á við það verkefni. ■ ÁSDÍS JÓELSDÓTTIR Höfundur bókar- innar Tíska aldanna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.