Fréttablaðið - 24.04.2005, Síða 46
22 24. apríl 2005 SUNNUDAGUR
Stórhljómsveitin Velvet Revolver er væntanleg hingað til lands 7. júlí næstkomandi. Velvet Revolver er álitin ein besta tónleikasveit rokks-
ins um þessar mundir og vann m.a. til Grammy-verðlauna fyrir að vera besti flytjandi harðrar rokktónlistar. Smári Jósepsson sló á þráðinn
til Duffs McKagan, bassaleikara Velvet Revolver.
Þ að ráku margir upp stóraugu þegar hljómsveitinVelvet Revolver varð til
fyrir u.þ.b. þremur árum. Þar
voru á ferðinni nokkrir heims-
þekktir kappar sem höfðu getið
sér gott orð með rokkrisunum
Guns n’ Roses og Stone Temple
Pilots og varð Velvet Revolver
strax rómuð sem rokklandslið
Bandaríkjamanna.
Bassaleikarinn Duff McKagan,
trommuleikarinn Matt Sorum að
ógleymdu gítargoðinu Slash, voru
allir meðlimir í Guns n’ Roses en
frægðarsól þeirrar sveitar skein
skært á árunum 1987-1992. Marg-
ir vilja meina að Appetite For
Destruction sé ein besta rokk-
plata allra tíma en þar er að finna
lög á borð við Sweet Child O’
Mine, Welcome to the Jungle og
Paradise City sem lifa öll góðu lífi
enn þann dag í dag.
Guns n’ Roses er reyndar enn
starfandi í dag, hvað sem það nú
þýðir, en söngvarinn Axl. Rose
hefur ítrekað tilkynnt að ný plata
sé á leiðinni. Úr því hefur ekki
orðið en Rose halar engu að síður
inn bílförmum af peningum með
tónleikahaldi undir formerkjum
Guns n’ Roses en það hefur þótt
mjög umdeilt og sérstaklega af
hálfu meðlima Velvet Revolver
sem þykir ekki mikið til þess
koma að kappinn skuli enn notast
við nafn sveitarinnar.
Duff McKagan sagði hljóm-
sveitina mjög spennta fyrir að
spila á Íslandi. „Við erum að koma
til Íslands!“ öskraði Duff í sím-
ann. „Ég hef aldrei verið þar áður
og það verður stórkostleg upplif-
un eftir því sem ég hef heyrt.“
Nú eru meðlimir hljómsveitar-
innar hoknir af reynslu í bransan-
um og er Duff t.a.m. búinn að vera
stanslaust í rokkinu í tvo áratugi.
„Tvo áratugi? Vá, maður!“ sagði
Duff og trúði vart hve langur tími
væri að baki. „Ég held að fólk
muni muna eftir tónleikunum
okkar í mörg, mörg ár. Það hafa
ekki verið neinar almennilegar
rokk og ról hljómsveitir í langan
tíma. Við erum þannig hljómsveit
og ég held að margir af ungu
krökkunum hafi aldrei upplifað
neinu þessu líkt,“ sagði Duff, full-
ur sjálfstrausts um að sýna ung-
um sem öldnum Íslendingum
hvernig alvöru rokktónleikar eiga
að fara fram.
Eins og fyrsta sæðisskotið
Samkvæmt Duff varð fyrsta plata
Velvet Revolver, Contraband, til á
mjög skömmum tíma og á það
stóran þátt í þeim neista sem þar
skín í gegn. „Hún var samin á
fjórum vikum og tekin upp á
tveimur. Hún er, má segja, eins og
fyrsta sæðisskotið,“ sagði Duff og
skellti upp úr.
Duff sagðist fagna því að spila
með Slash á nýjan leik á sviði en ít-
rekaði það að leiðir þeirra hefðu í
raun aldrei skilið. „Við Slash höfum
þekkst í 22 ár og eiginlega spilað
saman allar götur síðan. Við erum
bestu vinir og lesum hugsanir hvor
annars tónlistarlega séð. Slash er
einn af bestu gítarleikurunum í
sögu rokksins og hann verður í
minnum hafður sem slíkur.
Ég hitti hann þegar hann var 18
ára og vorum heima hjá mömmu
hans í svefnherberginu. Hann tók
upp gítarinn og ég bara stóð á önd-
inni. Hver er þessi strákur? Hann
gat spilað á gítar, það er á hreinu.“
Fór Duff í Metallica?
Duff McKagan er af mörgum
álitinn einhver albesti rokkbassa-
leikari sem völ er á. Eftir að Jason
Newsted sagði skilið við Metallica
á sínum tíma var Duff orðaður
sem eftirmaður hans. „Ég heyrði
þann orðróm líka!“ sagði Duff
hlæjandi. „Það var hringt í mig
frá MTV og ég spurður: Hvernig
er að vera í Metallica? Ég bara
veit það ekki, svaraði ég. En frá-
bær orðrómur engu að síður. Ég
heyrði líka að ég hefði verið ráð-
inn til The Rolling Stones. Ekki
dónalegt hlutskipti það.“
Blaðamaður finnur sig knúinn til
að spyrja Duff hvernig Velvet
Revolver sé í samanburði við Guns
n’ Roses. „Fólk verður að skilja að
síðustu tónleikar Guns n’ Roses
voru árið 1993, fyrir 12 árum síðan.
Á þessum 12 árum hefur mikið vatn
runnið til sjávar og við náð miklum
þroska og breikkað sjóndeildar-
hringinn sem tónlistarmenn. Þrír af
okkur voru Guns n’ Roses en við
erum með David Kuschner og Scott
Weiland og því er andrúmsloftið og
samvinna manna á milli allt öðru-
vísi en Guns. Velvet Revolver er
engu að síður með sama kraft og
Guns n’ Roses, nær að fanga þessa
stemningu og færa hana yfir í nú-
tímann,“ sagði Duff McKagan,
bassaleikari Velvet Revolver. ■
Ég var sextán ára þegar ég mætti fyrst
mínum mesta áhrifavaldi, sem er Sól-
ey Jóhannsdóttir danskennari. Vin-
kona mín hafði skráð sig í djassdans-
tíma í Dansstúdíói Sóleyjar og ég
skellti mér með. Upp frá því var ekki
aftur snúið. Milli okkar Sóleyjar tókust
góð kynni sem uxu og döfnuðu í ein-
staka vináttu sem enn blómstrar í dag.
Danskennarinn Sóley sá strax í mér
einhverja hæfileika og hvatti mig til
dáða. Í gegnum Sóleyju kynntist ég
fullt af fólki sem einnig átti eftir að
verða miklir áhrifavaldar í lífi mínu, af-
bragðs danskennurum sem lögðu hart
að mer að fara utan í dansnám, en
áður hafði ég verið í fimleikum og
ætlað í veðurfræði í Háskólanum, sem
var planið eftir að hafa haft yndi af
veðurfræði í menntaskóla.
Sóley var afar framsýn í sínu starfi og
dugleg að fá gestakennara í stúdíóið,
sem var mikil hvatning fyrir okkur
nemendurna. Steve Fant var einn
þeirra, úrvals kennari sem áður hafði
kennt í þeim dansskóla sem ég síðar
sótti í New York, en Steve benti mér á
að stíll og tækni þess skóla hentuðu
bæði líkama mínum og dansstíl.
Í gegnum Sóleyju, og ótal dansupp-
færslur sem ég tók þátt í á hennar
vegum, kynntist ég sömuleiðis mörg-
um víðfrægum danshöfundum sem
ég leit mikið upp til, eins og Bob
Fosse og Jerome Robbins, sem hafði
þá þýðingu að opna vitund mína fyrir
mismunandi dansstílum sem seinna
meir varð til þess að maður prófaði
allskyns hluti í dansi og danssköpun.
Ég á mér alltaf draum um að við Sóley
eigum eftir að gera meira saman sem
tengist dansinum, en Sóley er mér
alltaf hvatning og innblástur, meðal
annars í eldhúsinu og matargerð.
ÁHRIFAVALDUR Í LÍFI MÍNU ÁSTRÓS GUNNARSDÓTTIR DANSARI
Veðurfræðin víkur fyrir djassdansi
Besta tónleikasveit rokksins í dag
SÓLEY JÓHANNSDÓTTIR DANS-
KENNARI Hvatning Sóleyjar breytti
áformum Ástrósar um að fara í veður-
fræðina.
ÁSTRÓS GUNNARSDÓTTIR DANSARI Fór í fyrsta djassdanstímann sextán ára göm-
ul en hafði áður stundað fimleika.
VELVET REVOLVER Velvet Revolver er álitin
ein besta tónleikasveit rokksins um þessar
mundir og vann m.a. til Grammy-verðlauna
fyrir besta flytjandann í harðri rokktónlist.