Fréttablaðið - 24.04.2005, Blaðsíða 50
26 24. apríl 2005 SUNNUDAGUR
MESTU KVALIR SEM ÉG HEF LIÐIÐ
SUNNUDAGSVIÐTALIÐ > LOGI GUNNARSSON
Körfuknattleiksmaðurinn
Logi Gunnarsson er nú
loksins búinn að ná sér
eftir þrálát meiðsli í öxl
og horfir hann björtum
augum á framtíðina. Í
samtali við Fréttablaðið
fer Logi yfir síðasta eina
og hálfa árið hjá sér í
Þýskalandi, þar sem hann
spilar með úrvalsdeildar-
liðinu Giessen 46ers.
„Þessi meiðsli hafa gert það að
verkum að maður er farinn að
meta heilsuna meira en áður. Ég
hef verið heill í allan vetur og það
er það sem skiptir mestu máli. En
ég hef ekki fengið að spila eins
mikið og ég er vanur og auðvitað
er ég ekki sáttur með það. En öxl-
in er í lagi og það er fyrir öllu,“
segir Logi.
Það var í nóvember árið 2004
sem öxlin umrædda fór fyrst að
vera til trafala. Þá lenti Logi í
samstuði á æfingu og fór hann úr
axlarlið. „Þeir náðu að smella hon-
um í aftur fljótlega en hann fór
síðan aftur skömmu síðar. Þá var
alveg ljóst að eitthvað mikið var
að og var mér skipað að hvíla mig
í tvo mánuði,“ segir hann.
Logi var á þessum tíma á sínu
fyrsta ári hjá Giessen og hafði
staðið sig framar vonum eftir að
hafa komið til liðsins frá 1. deild-
arliðinu Ulm. Fjölmiðlar töluðu
um Loga sem einn besta unga leik-
mann deildarinnar og því komu
meiðslin á versta mögulega tíma.
Öxlin vildi ekki aftur í liðinn
Þegar tveggja mánaða hvíld-
inni lauk kveðst Loga hafa liðið
vel og átti hann ekki von á öðru en
að öxlin hafði jafnað sig. Annað
átti eftir að koma á daginn.
„Fyrsti leikurinn eftir meiðslin
var alveg rosalegur og var leik-
stjórnandinn okkar meiddur. Þess
vegna spilaði ég meira en ég hefði
átt að gera. Ofan á það fór leikur-
inn í framlengingu og ég neita því
ekki að þá var ég orðinn örþreytt-
ur. Og það koma að því að eitthvað
gaf sig. Í blálokin hoppaði ég upp
í frákast og þá small öxlin aftur úr
lið,“ segir Logi.
Við tóku aðrar sex vikur á
hliðarlínunni.
„Eftir á að hyggja hefði ég átt
að fara að læknisráði og fara í að-
gerð strax á þessum tímapunkti,“
segir Logi, sem þráaðist við og
vildi reyna að láta öxlina gróa
með hvíldinni einni saman. Í
fyrstu virtist sem sú ákvörðun
hefði verið rétt – Logi náði að
spila nokkra leiki af fullum krafti
og segist hann sjálfur hafa fundið
sig afar vel.
En gleðin var skammvinn.
Meiðslasagan var rétt að hefjast
og á æfingu daginn eftir að hafa
spilað einn sinn besta leik í treyju
Giessen dundi ógæfan yfir á ný –
öxlin gaf sig einu sinni enn. Og í
þetta skiptið fór hún algjörlega úr
lið.
„Liðurinn fór alveg úr og hafði
það aldrei gerst áður,“ segir hann.
Þegar slíkt gerist fylgir venjulega
mikill sársauki og segir Logi engu
logið um það. Hann lýsir næstu
klukkustundum sem þeim verstu
sem hann hafi nokkru sinni upp-
lifað. „Öxlin vildi ekki fara aftur í
liðinn. Læknarnir voru farnir að
setja lappirnar undir handakrik-
ann á mér til að geta náð betra
taki á hendinni á mér. En það var
sama hversu oft og fast þeir
rykktu, ekkert gekk,“ segir Logi
þegar hann rifjar upp kvalirnar.
„Þetta var það versta sem ég
hef nokkurn tíma lent í. Eftir
klukkutíma af árangurslausum
tilraunum þar sem var meðal ann-
ars búið að dæla í mig morfíni og
öðrum lyfjum gáfust þeir upp. Ég
var fluttur á sjúkrahús þar sem ég
var svæfður og þá gátu þeir lagað
öxlina í friði.“
Til Íslands í endurhæfingu
Eftir þessa óskemmtilegu líf-
reynslu var ekki um annað að
ræða en fara í aðgerð og kaus
Logi að fara í hana á Íslandi. Að
henni lokinni tók við endurhæfing
sem var undir handleiðslu Bene-
dikts Guðmundssonar, þjálfara
Fjölnis. Benedikt hefur gert nokk-
uð af því að sjá um einstaklings-
þjálfun margra af bestu körfu-
boltamönnum landsins, og fyrir
utan Loga má nefna Jón Arnór
Stefánsson.
Eftir að hafa æft allt upp í
þrisvar á dag á Íslandi síðasta
sumar mætti Logi aftur út til
Giessen í ágúst. Þá var honum
gefið grænt ljós á að spila að nýju.
„Ég er búinn að vera í góðum
gír í vetur og er kominn í fínt
form. Ég er duglegur að gera
styrktaræfingar og læknar segja
að öxlin eigi að halda,“ segir Logi.
Eins og áður segir hefur Logi
mátt þola mikla bekkjarsetu í
vetur og er það nokkuð sem hann
sættir sig ekki við. En þrátt fyrir
að hann sé ekki inni í myndinni
hjá þjálfara Giessen horfir Logi á
björtu hliðarnar. Hann er á síð-
asta ári samningsins við liðið og
hefur hug á því að leita á önnur
mið í sumar.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
lendi í því að spila svona lítið en
ég er löngu búinn að ákveða að
fyrst ég spila nota ég bara tímann
til að fara á aukaæfingar með að-
stoðarþjálfaranum og reyni að
gera mig tilbúinn fyrir næsta
verkefni, hvort sem það verður
hér í Þýskalandi eða í einhverju
öðru landi,“ segir Logi, sem er
laus allra mála í júní.
„Ég ætla að nota þann tíma til
að bæta mig. Ég æfi daglega með
mjög öflugum leikmönnum og þó
ég sé ekki að spila mikið finnst
mér ég hafa verið að bæta mig.
Það eina sem ég get gert er að
reyna að vera jákvæður og halda
mínu striki. Ég er búinn að eyða
allt of miklum tíma í körfubolta á
ævinni til að vera eitthvað að
bakka út núna,“ segir Logi og er
staðráðinn í því að spila körfu-
bolta erlendis eins lengi og mögu-
legt er.
„Ég hef stefnt að atvinnu-
mennsku frá því að ég var lítill
patti og ég ætla mér að vera í
henni næstu árin. Hvar svo sem
það verður eftir sumarið verður
bara að koma í ljós. En ég er ekki
á heimleið.“ vignir@frettabladid.is
Það var sama
hversu oft og fast
þeir rykktu, ekkert gekk.“
,,
Victor vinur minn er stoltur baski og aðdáandi Athletic
Bilbao. Hann verður alltaf jafn sár þegar ég spyr hann
hvað sé að frétta af slátraranum frá Bilbao, Andoni
Goikoetxea. Bæði finnst honum svekkjandi að harð-
jaxlinn gamli sé eiginlega eini leikmaðurinn úr sögu
Bilbæinga sem við útlendingarnir könnumst við og svo
þekkir hann Goikoetxea persónulega og segir kappann
séntilmenni sem óverðskuldað hafi fengið þetta blóð-
uga viðurnefni. En Goikoetxea var óneitanlega tákn
síðustu kynslóðar hinna dæmigerðu suður-
evrópsku slátrara ásamt Claudio Gentile,
heimsmeistara með Ítölum 1982.
Reglugerðarbreytingar hafa þrengt
mjög að harðjöxlum og slátrarar
eru deyjandi stétt. Þó ber svo til
um þessar mundir að
Spánverjar hafa
eignast tvo nýja
harðjaxla sem
vekja upp minn-
ingar um
gömlu
slátrarana; miðvarðapar Sevilla-liðsins þá Javi Navarro
og dr. Pablo Alfaro.
Doktor dauði
Rétt eins og Goikoetxea er dr. Pablo Alfaro mikið
séntilmenni utan vallar, lærður kvensjúkdómalæknir
og vinsæll fyrirlesari og viðmælandi í spjallþáttum. Á
leikvelli er hann hins vegar grófasti leikmaður síðari
ára og enginn núspilandi hefur af jafnmörgum rauð-
um spjöldum að státa. Alfaro er leikmaður sem jafnvel
Madrídarjaxlinum Michel Salgado (sem af samherjan-
um David Beckham er sagður harðasti maður á
plánetunni) þykir ganga lengra en sæmandi er. Á síð-
asta tímabili vann hann sér til frægðar að stinga fingri
upp í endaþarm andstæðings sem svo skemmtilega
vill til að ber nafnið Toché, en honum hefur eflaust
mislíkað „tötsið“, jafnvel þótt þar færi fær læknir al-
vanur slíkum skoðunum. Toché karlinn fór alveg úr
sambandi við þetta en Alfaro, sem ber viðurnefnið „Dr.
dauði“ komst á forsíður allra helstu blaða. Bæjarpress-
an í Sevilla snerist gegn honum og hörmuðu að í stað
hins fræga „rakara í Sevilla“ væri nú frægasti maður
borgarinnar þessi nútíma arftaki Goikoetxea, „slátrar-
inn í Sevilla“. Doktorinn lét sér fátt um finnast og not-
aði tímann til að mennta lærlinginn Javi Navarro, sem
á þessari leiktíð hefur farið langt fram úr lærimeistara
sínum í fautaskap.
Fleiri grófir
Í leik gegn Real Mallorca nýverið braut Navarro svo illa
á Venesúelamanninum Juan Arango að sá endaði á
gjörgæsludeild í tvo sólarhringa með kjálkabrot og
heilahristing og sauma þurfti 47 spor í andlit hans.
Brotið var kannski ekki það grófasta sem sést hefur en
Navarro fór ansi hraustlega í Arango og hefði verð-
skuldað eitthvað meira en gula spjaldið sem slakur
dómari leiksins veifaði. Enda fór pressan á Spáni ham-
förum og endaði það með því að Navarro var dæmdur
í nokkurra leikja bann. Arango hefur jafnað sig að
mestu en á eftir að fara í nokkrar heimsóknir til lýta-
lækna.
Sevilla-menn hafa löngum gengist upp í að leika fast
og þykir mörgum það miður, ekki síst í ljósi þess að
liðið er léttleikandi og hefur náð stórgóðum árangri
eins og sést á því að það berst nú um sæti í Meistara-
deildinni. Fleiri lið eru svo sem þekkt fyrir að vera
býsna föst fyrir, t.d. Valencia, en þar verður þó enginn
af hinum grjóthörðu varnarmönnum sakaður um að
vera grófur. Ásamt Sevilla-tvíeykinu hafa hins vegar
skotið upp kollinum fleiri svartir sauðir nýverið. Pablo
Garcia hjá Osasuna þykir allsvakalegur en tölfræðilega
er Alberto Lopo hjá Espanyol verstur, með 17 gul
spjöld og 4 rauð á síðasta tímabili, en hefur eitthvað
róast þessa leiktíðina.
Ný kynslóð spænskra slátrara
EINAR LOGI VIGNISSON: SKRIFAR UM BOLTANN Í SUÐUR-EVRÓPU Á HVERJUM SUNNUDEGIÁsthildur Helgadóttir:
Skoraði tvö
góð mörk
FÓTBOLTI Knattspyrnukonan
Ásthildur Helgadóttir er
komin á fulla ferð með félagi
sínu Malmö FF í sænsku
úrvalsdeildinni.
Malmö-stúlkur léku við
Mallbacken, sem Erla Steina
Arnardóttir leikur með, og
unnu Ásthildur og félagar
auðveldan sigur, 5–0.
Ásthildur var í fantaformi
í leiknum og kom Malmö á
bragðið með marki á 8.
mínútu og rak síðasta
naglann í kistu Mallbacken á
69. mínútu með sínu öðru
marki.
Malmö er í öðru sæti
deildarinnar með fjögur stig
eftir tvo leiki en Mallbacken
er stigalaust í næstneðsta
sæti sænsku úrvals-
deildarinnar. ■
LOGI GUNNARSSON Býr í bænum Giessen þar sem íbúar eru um 80 þúsund manns. Um er að ræða sannkallaðan körfuboltabæ og er
uppselt á alla heimaleiki liðsins. Íþróttahöll bæjarins rúmar tæplega 4000 þúsund manns.
„Ég er búinn að vera
í góðum gír í vetur
og er kominn í fínt form.
Læknar segja að öxlin eigi
að halda.“
,,