Fréttablaðið - 24.04.2005, Side 51
HANDBOLTI Íslandsmeistarar ÍBV í
kvennahandknattleik eiga verk
fyrir höndum eftir að þær töpuðu
fyrstu rimmunni um bikarinn
eftirsótta á Ásvöllum í gær. Þótt
ÍBV hafi skorað fyrsta mark
leiksins voru það Haukar sem
höfðu öll völd á vellinum nánast
frá fyrstu mínútu. Þær keyrðu
grimmt á Eyjastúlkur og röðuðu
inn mörkum úr hraðaupphlaup-
um. Þær voru á góðri leið með að
sökkva Eyjaliðinu þegar Alfreð
Finnsson brá á það ráð að taka
leikhlé eftir aðeins 12 mínútna
leik en þá var staðan 6-2 fyrir
Hauka.
Eyjastúlkur röknuðu aðeins við
sér í kjölfarið en Haukastúlkur
héldu áfram að keyra hratt og
náðu fimm marka forystu, 10-5,
en þá kom fínn kippur hjá gestun-
um og þær voru ekki fjarri heima-
stúlkum í leikhléi, 12-9. Það er
reyndar ótrúlegt að munurinn
skuli ekki hafa verið meiri í leik-
hléi því Alla Gokorian var sú eina
sem lék af eðlilegri getu í fyrri
hálfleik ásamt Florentinu Grecu
markverði. Aðrir leikmenn voru
einfaldlega í felum og ekki í nein-
um takti við leikinn.
Stanslaus eltingarleikur
Eltingarleikurinn hélt áfram í
fyrri hálfleik. Haukar héldu ÍBV í
hæfilegri fjarlægð og þegar Eyja-
stúlkur komust óþægilega nærri
var stigið á bensínið á ný. Næst
komust Eyjastúlkur að jafna í
stöðunni 19-18 en lengra komust
þær ekki.
Haukastúlkur fögnuðu sigri
sem var vart til orða tekið tilþrifa-
lítill. Þær spiluðu mjög góða vörn
framan af en svo fjaraði undan
henni sem og sóknarleiknum sem
var skynsamur framan af. Hauk-
ar léku langar og skynsamar
sóknir þar sem beðið var eftir
góðu skotfæri en allur taktur datt
úr sóknarleiknum eftir því sem
leið á leikinn. Erna Þráinsdóttir
lék best Hauka, nýtti skotin sín
vel og skoraði góð mörk úr hraða-
upphlaupum. Aðrir sóknarleik-
menn Hauka léku undir getu en
Ramune Pekarskyte getur þó af-
sakað sig með að hafa verið tekin
úr umferð nánast allan leikinn.
Slök frammistaða
Ef Haukastúlkur voru slakar í
leiknum þá voru Eyjastúlkur
skelfilegar. Grecu varði ágætlega
eins og oft áður en allt of fáir leik-
menn lögðu lóð sín á vogarskál-
arnar úti á vellinum. Lengi vel
biðu Eyjastúlkur eftir því að Alla
tæki af skarið og ef hún gerði það
ekki runnu sóknir liðsins út í
sandinn. Patsiou hóf leikinn allt of
seint og Eva Björk hefði mátt
reyna mikið meira því hún skor-
aði nánast í hvert skipti sem hún
vildi.
Bæði lið eiga mikið inni miðað
við þessa viðureign og leiðin hjá
þeim getur ekki legið annað en
upp á við eftir þessa slöku
frammistöðu. Haukastúlkum er
eflaust slétt sama um hversu slak-
ar þær voru því þær sigruðu og
það er það eina sem skiptir máli.
Vorum ekki að spila vel
„Við byrjuðum ágætlega en
síðan hleyptum við þeim inn í leik-
inn en blessunarlega tókum við
þetta á lokasprettinum og kláruð-
um leikinn,“ sagði hornamaðurinn
Hanna Guðrún Stefánsdóttir sem
hefur oft leikið betur en öll henn-
ar mörk komu úr vítum og hraða-
upphlaupum.
„Við vorum ekki að spila vel í
dag og því er léttir að hafa samt
sigrað. Það verður fjör að fara til
Eyja í næsta leik en okkur hefur
ekki gengið vel þar hingað til en
það er kominn tími á sigur þar og
við ætlum okkur að ná sigri þar í
næsta leik.“
henry@frettabladid.is
27SUNNUDAGUR 24. apríl 2005
Oddaleikur ÍBV og ÍR í undanúrslitum DHL-deildar karla í handbolta fer fram í Vestmannaeyjum í dag:
Komast Eyjamenn í lokaúrslitin í fyrsta sinn?
LEIKIR GÆRDAGSINS
DHL-deild kvenna í
handbolta úrslitaeinvígi
HAUKAR–ÍBV 22–19 (12-9)
Mörk Hauka: Hanna Guðrún Stefánsdóttir 6/4,
Erna Þráinsdóttir 4, Ramune Pekarskyte 4, Harpa
Melsted 2, Martha Hermannsdóttir 2, Inga Fríða
Tryggvadóttir 2 Ragnhildur Guðmundsdóttir 1,
Anna Halldórsdóttir 1.
Varin skot: Helga Torfadóttir 12, Kristina
Matuzeviciute 3.
Mörk ÍBV: Alla Gokorian 7/2, Anastasia Patsiou
5, Eva Björk Hlöðversdóttir 5, Darinka Stefanovic
1, Tatjana Zukovska 1.
Varin skot: Florentina Grecu 17.
Deildarbikar kvenna
ÍBV–KR 2–7
Olga Færseth (21.), Hólmfríður Björk
Magnúsdóttir (70.) – Hrefna Huld Jóhannesdóttir
3 (5., 34., 53.), Ásgerður Ingibergsdóttir 2 (4.,
84.), Fjóla Dröfn Friðriksdóttir (55.), Íris
Símonardóttir (65.).
STJARNAN–BREIÐABLIK 1–4
– Sandra Karlsdóttir, Greta Mjöll Samúelsdóttir,
Fanndís Friðriksdóttir, Edda Garðarsdóttir.
Þýska úrvalsdeildin
DORTMUND–KAISERSLAUTERN 4–2
Koller 2 (60., 73.), Ewerthon (12.), Kehl (29.) –
Alintop (3.), Amanatidis (42.).
BIELEFELD–FREIBURG 3–1
Porcello 3 (5., 55., 69.) – Cairo (15.).
BAYERN MUNCHEN–BOCHUM 3–1
Pizarro (9.), Ballack (26.), Makaay (63.) –
Tapalovic (51.).
MAINZ–HANNOVER 2–0
Abel (22.), Gerber (78.).
STUTTGART–WOLFBURG 0–0
HAMBURG–HANSA ROSTOCK 3–0
Mpenza (49.), Benjamin (61.), Takahara (64.).
HERTHA–SCHALKE 4–1
Marcelinho 2 (víti 34., 58.) Basturk (5.), Rafael
(50.).
STAÐA EFSTU LIÐA
BAYERN 30 20 5 5 58–27 65
SCHALKE 30 18 2 10 46–35 56
STUTTGART 30 16 7 7 52–33 55
HERTHA 30 14 11 5 55–28 53
W. BREMEN 29 15 5 9 58–32 50
HAMBURG 30 16 2 12 54–46 50
L’KUSEN 29 13 7 9 50–37 46
DORTM. 30 12 9 9 40–40 45
Þýski handboltinn
DUSSELDORF–TUSEM ESSEN 27–25
Alexander Peterson skoraði fjögur mörk fyrir
Dusseldorf og Markús Máni Michaelsson 3.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 8 mörk fyrir
Essen.
GUMMERSBACH–MAGDEBURG 27–27
Sigfús Sigurðsson skoraði 1 mark fyrir Magdeb.
LEMGO–POST SCHWERIN 38–22
Logi Geirsson skoraði 7/1 mörk fyrir Lemgo.
KIEL–WETZLAR 30–24
FLENSBURG–LÜBBECKE 45–30
HANDBOLTI Eyjamenn geta brotið
blað í sögu karlahandboltaliðs
félagsins vinni þeir oddaleikinn
gegn ÍR í Eyjum í dag en með því
kemst liðið í fyrsta sinn í lokaúr-
slit úrslitakeppninnar. Liðin hafa
unnið hvor sinn heimaleikinn,
ÍBV vann fyrsta leikinn í Eyjum
30-29 og ÍR jafnaði metin með
33-29 sigri í öðrum leiknum í
Austurbergi.
Það hefur verið hart tekist á í
báðum leikjum og dómarar hafa
meðal annars rekið leikmenn lið-
anna útaf í 68 mínútur í þessum
tveimur leikjum. ÍR-ingar eiga
hins vegar möguleika á að kom-
ast í lokaúrslitin í annað skipti á
þremur árum en Breiðhyltingar
töpuðu einmitt í bráðabana í
oddaleik undanúrslitanna í
fyrra.
Roland Valur Eradze fékk
ekkert að spila síðustu 20 mínút-
urnar í síðasta leik en náði samt
verja yfir 20 bolta í leiknum og
hefur því gert það í öllum fjórum
leikjum úrslitakeppninnar. Rol-
and hefur varið 24,5 skot að með-
altali í leik og 47,8% þeirra skota
sem á hann hafa komið. ÍR-ing-
urinn Hannes Jón Jónsson er
markahæsti leikmaður einvígis-
ins til þessa auk þess að eiga ófá-
ar stoðsendingarnar en Hannes
hefur nýtt 15 af 21 skoti sínu í
leikjunum tveimur sem gerir
frábæra 71% skotnýtingu.
„Áhorfendur eiga að vera kol-
vitlausir á pöllunum í Eyjum á
sunnudaginn, það eru skilaboðin
frá okkur til þeirra. Þeir eiga
ekki að vera með slagsmál og
læti heldur eiga þeir að mæta,
búa til geðveikan hávaða og
hvetja okkur til sigurs,“ sagði
Erlingur Richardsson, þjálfari
ÍBV, í samtali við Fréttablaðið
eftir annan leikinn. Það má búast
við að Eyjamenn taki hann á orð-
inu og fjölmenni í Höllina í dag
en eins má búast við að harðir
stuðningsmenn Breiðhyltinga
láti heldur ekki sitt eftir liggja.
Sigurvegari leiksins tryggir sér
sæti í úrslitunum gegn meistur-
um síðustu tveggja ára, Hauk-
um. ooj@frettabladid.is
Markvörður: Henning Fritz, Kiel: Mjög heil-
steyptur markvörður sem virðist alltaf verja
mikilvægustu boltana í hverjum leik.
Línumaður: Gueric Kervadec, Créteil: Í mín-
um huga besti varnarmaður heims. Er mikill
leiðtogi og einnig góður sóknarmaður.
Vinstra horn: Guðjón Valur Sigurðsson,
Tusem Essen: Hann hefur leikið alveg frá-
bærlega í vetur, ekki bara í sókn heldur
líka í vörn.
Vinstri skytta: Siarhei Rutenka, Celje
Lasko: Hann hefur verið mjög sterkur síð-
ustu ár og er alveg ótrúlega öflugur þrátt
fyrir frekar ungan aldur.
Miðjumaður: Ivano Balic, Portland San
Antonio: Leikstjórnandi af bestu gerð. Tek-
ur góðar ákvarðanir, leikur félagana vel
uppi og getur líka spilað fína vörn.
Hægri skytta: Ólafur Stefánsson, Ciu-
dad Real: Óli er einn af þessum mönnum
sem getur nánast allt og gerir mennina í
kringum sig betri. Hann er hverju liði
ómetanlegur þótt hann sé upp og niður í
vörninni.
Hægra horn: Mirza Dzomba, Ciudad Real:
Hann er bestur í þessari stöðu eins og er.
Hann nýtir færin sín ótrúlega vel og er með
góð afbrigði af skotum.
LIÐIÐ MITT > ALFREÐ GÍSLASON SETUR SAMAN HEIMSLIÐIÐ SITT Í HANDBOLTA
Tveir Íslendingar í heimsliði Alfreðs
Dzomba
Fritz
Guðjón Valur
Kervadec
Rutenka Balic Ólafur
„Ég myndi vinna Meistaradeildina aftur með
þetta lið í höndunum. Kannski ekki með vinstri
en við færum samt alla leið.“
Tilþrifalítill sigur hjá Haukum
SPENNA Í DAG Tryggvi Haraldsson
skorar fyrir ÍR gegn ÍBV í öðrum
leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í FÍNU FORMI Haukastúlkan Erna Þráinsdóttir var ein fárra sem komst vel frá leiknum á
Ásvöllum í gær. Hún skorar hér eitt fjögurra marka sinna í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
FLEST MÖRK ÍBV Í FYRSTU
TVEIMUR LEIKJUNUM: (SKOT)
Samúel Ívar Árnason 14/6 (23/8)
Tite Kalandaze 12 (21)
Zoltan Belányi 11/3 (17/4)
Sigurður Ari Stefánsson 9 (21)
FLEST MÖRK ÍR Í FYRSTU
TVEIMUR LEIKJUNUM: (SKOT)
Hannes Jón Jónsson 15/5 (21/6)
Bjarni Fritzson 10 (16)
Ólafur Sigurjónsson 10/1 (18/1)
Tryggvi Haraldsson 8 (16)
Ingimundur Ingimundarson 8/4 (21/6)
Þýski fótboltinn:
Bayern að
vinna titilinn
FÓTBOLTI Bayern München er
komið langleiðina með því að
landa 19. þýska meistaratitli
félagsins eftir 3–1 sigur á Bochum
því auk þess töpuðu aðal-
keppinautar þeirra í Schalke
stigum.
Bayern hefur nú níu stiga
forskot á Schalke-liðið sem hefur
nú tapað þremur leikjum í röð.
Einn sigur í viðbót ætti að
gulltryggja titilinn þar sem
markatala Bayern er það góð.
Haukastúlkur tóku forystuna í baráttuna um Íslandsbikarinn við ÍBV í gær þegar þær sigruðu fyrsta leik lið-
anna, 22-19. Bæði lið voru fjarri sínu besta og ollu vonbrigðum.