Fréttablaðið - 24.04.2005, Page 56
32 24. apríl 2005 SUNNUDAGUR
Heimildarmyndin fjallaðium afbakanir, rangtúlkan-ir og falsanir á verkum
Nietzsches, sem gerði að verkum
að auðvelt var að fella hugmynd-
ir hans og skoðanir að kenning-
um fasisma og nasisma, en systir
hans átti talsverðan þátt í því
sem þjóðernissinni, þótt hún hafi
engan veginn verið ein um þær
afbakanir. Þetta lá í samfélaginu
frá lokum 19. aldar þegar þjóð-
ernissinnar tóku Nietzsche upp á
arma sína,“ segir Birgir, en leik-
rit hans Dínamít fjallar um sam-
band þeirra systkina, vini
Nietzsches og þá makalausu af-
bökun á verkum hans sem leiddi
til hræðilegra hluta, enda verkið
hádramatískt.
„Þau systkin voru afar náin í
æsku en samband þeirra brengl-
aðist mikið þegar Elísabet giftist
stækum gyðingahatara, sem varð
Nietzsche mikið áfall. Upp frá
því urðu snörp átök, en hafði líka
verið áður þegar Nietzsche varð
ástfanginn af Lou Salome, sem
síðar varð frægur rithöfundur og
einn af nánustu lærisveinum Sig-
munds Freud. Lou var bæði fög-
ur og stórlega vel gefinn, en
Elísabet hataðist við hana því
hún vildi eiga bróður sinn ein,“
segir Birgir, en seinna meir not-
færði Elísabet verk bróður síns
til að græða á þeim og fullnægja
eigin aðdáunarþörf og þrá eftir
frægð og viðurkenningu.
Þjóðlegur Messías
Birgir segir hugmyndir flestra
um Nietzsche litaðar ætluðum
tengslum hans við nasisma, en að
á síðustu áratugum hafi menn
uppgötvað að tengslin voru ekki
fyrir hendi, heldur tilbúin meðan
Nietzsche sjálfur gat ekki borið
hönd fyrir höfuð sér.
„Neitzsche varð geðveikur
1889 og alveg út úr heiminum til
dauðadags. Fyrir veikindin voru
verk hans sama og ekkert þekkt
og enginn vissi hver hann var, en
geðveikur verður hann skyndi-
lega frægur og á svo skömmum
tíma að líkja má við sprengingu. Í
augum þýsku þjóðarinnar varð
hann þjóðlegur, mystískur Messí-
as þegar Þjóðverjar hrokast upp
af menningaryfirburðum sínum
og germanska kynstofnsins, en
hermenn fóru með bók hans Also
sprach Zarathustra með sér í
rassvasanum á vígvöllinn í fyrri
heimstyrjöldinni,“ segir Birgir,
en ævi og örlög Nietzsches var
mikil harmsaga.
„Sjálfur var hann stórkostlega
skemmtilegur og einhver mesti
lífsjátandi sem hugsast getur.
Langt frá því að vera þunglama-
legur hugsuður, en vildi gleði, var
þrælfyndinn, háðskur og meinleg-
ur. Hann var líflegasti heimspek-
ingur sögunnar, maður lífs en
ekki kenninga og hataði alla
akademíska hugsun, en vildi að
hugsun manna væri hluti af lífs-
reynslu þeirra sjálfra. Menn áttu
að lifa lífinu til fulls.“
Fangi í eigin fangelsi
Þrátt fyrir að Nietzsche hafi ver-
ið 19. aldar heimspekingur segir
Birgir boðskap hans eiga fullt er-
indi í nútímann.
„Öll hans sýn á erindi til okkar.
Nietzsche gagnrýnir samfélagið
fyrir græðgi þess, efnishyggju,
sjálfsánægju, andlega stöðnun og
sjálfgefnar siðferðishugmyndir.
Það á fyllilega við í dag, og
kannski aldrei betur.“
Birgir segir skrif leikritsins
hafa verið eins og hverja aðra
geggjun, enda sé geggjun að vera
rithöfundur.
„Heimildavinnan hefur verið
ofboðsleg, ég hef lesið tugi bóka
og bréfasafna, en samfellt hefur
vinnan tekið fimm ár og kominn
tími til að stritinu ljúki. Ein af
ráðgátum skáldskapar er hvernig
hugmyndir koma til manns, en
segja má að efni leiti á mann og
láti mann ekki í friði, svo maður
er knúinn áfram af tilfinninga-
legri þörf sem maður verður að
sinna, líkt og fangi í eigin fang-
elsi. Maður kemst ekki út fyrr en
búið er að afplána,“ segir hann
hlæjandi og viðurkennir að bind-
ast persónum sínum mjög tilfinn-
ingalegum böndum, hvort sem
þær eru geðfelldar eða ógeðfelld-
ar.
„Annars álíta margir, og þar
með ég sjálfur, að mér hafi tekist
best upp í því að skapa kvenper-
sónur. Ástæðan má vera sú að ég
var föðurlaus og ólst upp hjá móð-
ur minni sem var afar sterkur
persónuleiki. Konur komu og
trúðu henni fyrir vandamálum
sínum en litlir pottar hafa líka
eyru. Maður vakti því oft yfir
trúnaðarsamtölum kvenna sem
komu til hennar. Því hef ég alltaf
haft meiri áhuga á konum en körl-
um í skáldskap. Þær höfða meira
til mín og eru tilfinningalega
flóknari verur en flestir karlar.
Það finnst mér óskaplega áhuga-
vert, bæði sem manni og skáldi,“
segir Birgir sem ætlaði sér að
verða söngvari að ævistarfi.
„Ég átti í mikilli togstreitu um
að verða söngvari eða rithöfundur
en ég lærði klassískan söng í sex
ár og fór það sjöunda til Amster-
dam í framhaldsnám. Þá helltust
yfir mig yrkingar og ég réð ekki
neitt við neitt. Hef síðan ekkert
sungið en bara skrifað, og aldrei
nokkurn tímann séð eftir því.“ ■
Nietzsche var maður lífsins
„Eftir tiltekið rof í lífi mínu eyddi
ég sumrinu í náttfötum, hitti
fáa, fór ekki framúr, las ævintýri
og vinkona mín færði mér mat í
rúmið og kallaði mig ljúfling.
Þegar ég fór að sofa þóttist ég
stundum gráta en það var leik-
ur, ég hafði aldrei haft það
betra og var ekki krafinn um að
uppfylla skyldur nema gagnvart
sjálfum mér.“
- Það er rólegt yfir mælandanum í ljóðinu Biðstofan
í Útgönguleiðum, nýrri bók Steinars Braga.
baekur@frettabladid.is
>
St
ei
na
r
B
ra
gi
Ragnheiði Gestsdóttur voru afhent Barnabókaverðlaun menntaráðs fyrir bestu frum-
sömdu barnabókina í ár á síðasta degi vetrar. Að þessu sinni hlaut hún verðlaun-
in fyrir Sverðberann sem kom út hjá Eddu útgáfu í haust. Hún hefur áður
hlotið þessi verðlaun en það var árið 2001 fyrir unglingasöguna 40 vikur.
Það hefur verið skammt á milli gleðitíðinda hjá Ragnheiði undanfarið en í
síðustu viku fékk hún Norrænu barnabókaverðlaunin 2005 fyrir höfundar-
feril sinn sem rithöfundur og myndlistarmaður, með sérstakri áherslu á
Sverðberann. Sverðberinn segir frá Signýju sem slasast alvarlega í bílslysi
og liggur í dái á sjúkrahúsi. Önnur höfuðpersóna sögunnar er Leda, en
það er einmitt nafnið sem Signý hafði valið á persónu sína í hlutverka-
leik. Sagan gerist á tveimur sviðum: Á sjúkrahúsinu fylgist lesandinn
með fjölskyldu og vinum Signýjar og fær innsýn í líf þeirra, en Leda þarf
að særa íshjarta drottningar í ævintýraheimi til að frelsa álfaþjóð undan
ánauð. Tilgangur Barnabókaverðlauna fræðsluráðs er að örva metnaðar-
fullar ritsmíðar og þýðingar fyrir börn og að vekja athygli á því sem vel
er gert á þessum mikilvæga vettvangi íslenskrar bókaútgáfu. Úthlutunar-
nefndin er skipuð af fræðsluráði Reykjavíkur. Ragnheiður er fædd í
Hafnarfirði 1953. Hún er kennari að mennt og stundaði einnig háskóla-
nám í listasögu og bókmenntafræði. Ragnheiður er sem stendur for-
maður Síung, samtaka íslenskra barna- og unglingabókahöfunda.
Sverðberinn verðlaunaður
> Bók vikunnar ...
ENGAR OG DJÖFLAR
eftir Dan Brown
Hafi fólk ekki nú þegar
lesið þessa þéttu
spennusögu sem er for-
leikurinn að hinni geysi-
vinsælu Da Vinci lykillinn
er nú lag en bókin hefur
náð óvenju nánu sam-
bandi við atburði líðandi stundar eftir
að heimsbyggðin fylgdist andaktug
með reykmerkjasendingum frá Páfa-
garði. Englar og djöflar segir nefnilega
meðal annars frá vali nýs páfa en svo
óheppilega vill til að leynifélag sem
hefur haft horn í síðu kaþólsku kirkj-
unnar um árhundruða skeið hefur
rænt kardínálunum fjórum sem eru
líklegastir til að hreppa hnossið og
hótar að drepa þá. Til að bæta gráu
ofan á svart hyggjast skúrkarnir jafna
Vatíkanið við jörðu, gera það gjald-
þrota og binda endi á alla reykjar-
framleiðslu þar á bæ.
Beint flug til Mexico við
Karabíska hafið með Trans-
Atlantic, 13 nætur og 14 dagar.
Ótrúleg tilboðsverð
Heillandi menning Maya indíána – pýramídar, óviðjafnanleg
endalaus hvít strönd, kristaltær sjórinn, næst stærsta kóralrif
heims, næturlíf, verslanir, skemmtigarðar, ævintýraferðir og
þjóðgarður með fjölbreyttu dýralífi t.d.krókódílar, apar og
jagúar.
Verðdæmi
Brottfarir:
25. maí uppselt
8. og 22. júní takmarkað sætamagn
Carmen Inn 3 stjörnur
2ja manna herbergi 95.775 kr.
Barn 2-11 ára 78.354 kr.
Innifalið: Flug gisting, rúta til og frá flugvelli og flugvallar-
skattar.
Real Playa Del Carmen 4 stjörnur - Allt innifalið
2 manna herbergi 116.800 kr
Barn 0-2 ára 3.957 kr.
Barn 2-11 ára 85.354 kr.
Innifalið: Flug, skattar, gisting, rúta til og frá flugvelli, flug-
vallarskattur. Allur matur og innlendir drykkir (áfengir/óáfeng-
ir). Fjölbreytt skemmtidagskrá, kvöldsýningar(show). Þá má
nefna tennis, blak og siglingar.
Flugsæti með sköttum 69.320 kr.
Sími 588 8900 • www.transatlantic.is
AÐALLISTINN - ALLAR BÆKUR
ÞÚ ÁTT NÓG AF PENINGUM
Ingólfur H. Ingólfsson
VERK AÐ VINNA
Geir Svansson – þýðandi
ENGLAR OG DJÖFLAR (KILJA)
Dan Brown
BJARGVÆTTURINN Í GRASINU
J.D. Salinger
HUGMYNDIR SEM BREYTTU HEIMINUM
Felipe Fernández-Armesto
SKUGGA BALDUR (KILJA)
Sjón
ÍSLENDINGAR
Sigurgeir Sigurjónsson og Unnur Jökulsdóttir
BELLADONNA SKJALIÐ (KILJA)
Ian Caldwell og Dustin Thomason
MEÐ KÖLDU BLÓÐI (KILJA)
Ian Rankin
HULDUSLÓÐ (KILJA)
Liza Marklund
Listinn er gerður út frá sölu dagana
13.04.05 – 19.04.05 í Bókabúðum Máls
og menningar, Eymundsson og Pennanum
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
EYMUNDSSON
MÁL OG MENNING
PENNINN
[ METSÖLULISTI ]
LEIKSKÁLDIÐ OG RITHÖFUNDURINN BIRGIR SIGURÐSSON Ætlaði að verða
söngvari að ævistarfi og hafði stundað nám í klassískum söng á sjöunda ár þegar skálda-
gyðjan gerðist ágengari sönggyðjunni og sló vopnin úr höndum Birgis, sem hlýða varð
yrkingum og skáldskap.
„Ég er ekki maður. Ég er dínamít,“ sagði þýski
heimspekingurinn Friedrich Nietzsche og átti við
sprengikraftinn sem bjó í orðum hans og hugmynd-
um. Þessi sami sprengikraftur varð kveikjan að
nýjasta leikriti Birgis Sigurðssonar, Dínamít, sem
kviknaði í Edinborg 1992 þegar leikskáldið Birgir sá
sjónvarpsþátt BBC um samband þeirra systkina
Friedrichs og Elísabetar Förster-Nietzsche. Þórdís
Lilja Gunnarsdóttir ræddi við Birgi um Nietzsche,
klassískan söng og konur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Bækurnar Herra Kjáni og Herra
Djarfur eftir Roger Hargreaves eru
komnar út hjá JPV –
bókaútgáfunni. Bæk-
urnar um Herra-
mennina komu fyrst
út á íslensku fyrir um
aldarfjórðungi síðan
og nutu gífurlegra vinsælda hjá ís-
lenskum börnum. Einungis hluti
bókanna kom út á sínum tíma en
JPV útgáfa hefur endurútgefið þær
síðustu misseri ásamt þeim bókum
sem ekki hafa komið út áður á ís-
lensku. JPV hefur einnig gefið út
nokkrar bækur um Ungfrúrnar í
sama flokki.
Bókaforlagið Bjartur hefur gefið út
ljóðabókina Útgönguleiðir eftir
Steinar Braga. Sá sem talar er mjög
drukkinn og yfirgefur barinn með
sköllóttum, andlitsþrútnum manni.
Sama sólarhringinn er hann á kvöld-
göngu meðfram sjónum og gengur
fram á dauðan fugl, máv. Í millilend-
ingu á flugvellinum í H*** kaupir
hann sér kaffi og samloku og finnur
sér sæti innan um fleira þreytulegt
fólk sem angar af kæfisvefni. Steinar
Bragi hefur áður sent frá sér ljóða-
bækur og skáldsögur, þar á meðal
Turninn, Ljúgðu, Gosi, ljúgðu,
Áhyggjudúkkur og Sólskinsfólkið.
■ NÝJAR BÆKUR