Fréttablaðið - 10.06.2005, Qupperneq 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
64,11 64,41
116,93 117,49
78,47 78,91
10,54 10,60
9,91 9,97
8,54 8,59
0,60 0,60
94,42 94,98
GENGI GJALDMIÐLA 09.06.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
110,22 +0,22%
4 10. júní 2005 FÖSTUDAGUR
NATO fer inn í Súdan:
Fimm flúsund
fri›argæsluli›ar
BRUSSEL, AP Varnarmálaráðherrar
NATO-ríkjanna lögðu lokahönd á
skipulagningu fyrsta verkefnis
bandalagsins í Afríku á fundi
Norður-Atlantshafsráðsins í Brus-
sel í gær.
Í verkefninu felst að flytja
fimm þúsund afríska friðargæslu-
liða til hins stríðshrjáða Darfur-
héraðs í Súdan. Afríkubandalagið
sér þó áfram um umsjón friðar-
gæslustarfa í héraðinu. Banda-
ríkjamenn munu fljúga friðar-
gæsluliðum frá Rúanda og Frakk-
ar, undir fána Evrópusambands-
ins, munu fljúga friðargæslulið-
um frá Senegal. Súdanski stjórn-
arherinn hefur undanfarin miss-
eri staðið fyrir fjöldamorðum á
íbúum Darfur-héraðsins og erfitt
hefur reynst að stilla til friðar.
Einnig stendur til að Atlants-
hafsbandalagið bæti sérstaklega
við herliði til að fylgjast með
þingkosningum sem fyrirhugaðar
eru í Afganistan í september. Þá
verða fluttir þrjú þúsund her-
menn til viðbótar til landsins.
Þessar aukaherdeildir munu út-
vega sérstaka vernd fyrir þúsund-
ir frambjóðenda og gæta kjör-
staða. Að mati sambandsins eru
kosningarnar lykilatburður í lýð-
ræðisþróun landsins. ■
Jafnrétti á Akureyri:
Slökkvili›
fyrst tilbúi›
SVEITARFÉLÖG Slökkvilið Akureyrar
hefur fyrst stofnana bæjarins sett
sér jafnréttisáætlun í samræmi
við jafnréttislög og jafnréttis-
stefnu bæjarins. Á vef Akureyr-
arbæjar kemur fram að frá því
um áramót hafi margar stofnanir
bæjarins unnið að gerð jafnréttis-
áætlana, þar á meðal grunnskólar
bæjarins, Framkvæmdamiðstöð,
Heilsugæslustöð og Öldrunar-
heimili.
„Jafnréttislög gera ráð fyrir að
öll fyrirtæki og stofnanir þar sem
starfa fleiri en 25 starfsmenn
setji sér jafnréttisáætlun,“ segir á
vefnum, en í þeim áætlunum skal
kveða á um markmið og aðgerðir
til að tryggja starfsmönnum rétt-
indi jafnréttislaga. -óká
SS BORGAR MEST Hæst verð fyr-
ir nautgripaafurðir sínar fá
bændur nú hjá Sláturfélagi Suð-
urlands, að því er fram kemur á
vef Landssambands kúabænda,
en félagið hækkaði í gær verð í
fjórtán flokkum. Þá segir að Slát-
urhúsið Hellu hafi einnig hækkað
verð í fyrradag. „Munar nú tölu-
vert miklu á þessum tveimur
sláturhúsum og öðrum á land-
inu,“ segir á vefnum.
MEGA EKKI MJÓLKA MINNA Nýtt
yfirlit Samtaka afurðastöðva í
mjólkuriðnaði sýnir að mjólkur-
framleiðsla í maí hafi verið
svipuð og í fyrra, 10,4 milljónir
lítra. „Í hönd fara nú sumarmán-
uðirnir og miðað við óskir
mjólkuriðnaðarins um kaup á
umframmjólk er ljóst að fram-
leiðslan má ekki verða minni en
á sama tíma í fyrra,“ segir á vef
Landssambands kúabænda og
bent á að bændur þurfi að
mjólka 28,9 milljónir lítra út
ágúst ef framleiða eigi upp í
kröfur iðnaðarins.
COLIMA ELDFJALLIÐ Í MEXÍKÓ Rýma þurfti
nálæg þorp þegar fjallið hóf að gjósa.
Sprengigos í Mexíkó:
Íbúar í ná-
grenninu flú›u
MEXÍKÓBORG, AP Rýma þurfti heilu
þorpin eftir að Colima eldfjallið
hóf að gjósa í gær á ný en virkni
hefur verið talsverð í því síðustu
vikur. Aska og vikur þeyttust upp í
meira en fimm kílómetra hæð og
rigndi eldi og brennisteini í orðsins
fyllstu merkingu yfir nálæg héruð.
Fjallið gýs með stuttum hléum
og kom fyrsta gusan í þessari hrinu
á fimmtudaginn í síðustu viku, svo
aftur á sunnudaginn og loks kom
stærsta sprengingin í gær. Vísinda-
menn segja að þetta sé stærsta gos-
ið á þessu virknisvæði í áratugi.
Alls þurfti að rýma landsvæði í
rúmlega 11 kílómetra radíus frá
þessu tæplega fjögur þúsund
metra háa eldfjalli og enn er alveg
óljóst hvenær hægt verður að af-
lýsa hættuástandi. ■
Ofbeldismaður fundinn sekur:
Slapp vi›
refsingu
DÓMSMÁL Maður á þrítugsaldri
slapp við refsingu eftir að hann var
fundinn sekur í Héraðsdómi
Reykjavíkur um að hafa gengið í
skrokk á öðrum manni og lamið
hann ítrekað í höfuðið.
Hinn ákærði hafði áður fengið
nokkra dóma fyrir fíkniefnabrot og
þjófnaði. Hann var í febrúar á
þessu ári dæmdur í tuttugu mán-
aða fangelsi í Malmö í Svíþjóð fyr-
ir fíkniefnasmygl.
Í ljósi þess að dómur ákærða er
hegningarauki við sænska dóminn,
þótti ekki nauðsynlegt að refsa
manninum frekar. - mh
Sunddeild Ármanns stendur fyrir
sundnámskeiðum í samvinnu við ÍTR
Boðið er upp á námskeið í Árbæjarlaug, Laugardalslaug og
Sundhöll Reykjavíkur.
Námskeið I: 13. júní – 30. júní
Námskeið II: 4. júlí – 21. júlí
Námskeið III: 25. júlí – 11. ágúst
Kennt er á: mánu-, þriðju-, miðviku- og fimmtudögum.
kl. 09.00-10.00 lengra komnir
kl. 10.00-10.45 byrjendur
kl. 11.00-11.45 byrjendur
kl. 13.00-13.45 lengra komnir
kl. 14.00-14.45 byrjendur
Hvert námskeið eru 12 tímar og kostar kr. 4.800
Nánari upplýsingar og skráning:
822-2456
thorunng@internet.is
www.armenningar.is
LANDBÚNAÐUR
VEÐRIÐ Í DAG
JOHN REID OG DONALD RUMSFELD Varnarmálaráðherrar Bretlands og Bandaríkjanna á
fundi Norður-Atlantshafsráðsins í Brussel.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
EINKAVÆÐING „Það er verið að
skoða þessi mál með tilliti til
eignar forsætisráðherra, ættar-
tengsla og þess hvernig þetta
spilar saman við þá atburðarás
sem átti sér stað,“ segir Sigurður
Þórðarson ríkisendurskoðandi.
Ríkisendurskoðun hefur ákveðið
að rannsaka hvort Halldór Ás-
grímsson, forsætisráðherra sem
jafnframt á sæti í ráðherranefnd
um einkavæðingu, hafi verið
vanhæfur til að fjalla um söluna
á Búnaðarbankanum vegna eign-
ar ráðherrans og fjöl-
skyldu hans í Skinney-
Þinganesi.
Fjárlaganefnd ákvað
á fundi sínum á mið-
vikudag að afskiptum
nefndarinnar af
e i n k a v æ ð i n g u
ríkisbankanna væri lokið.
Aðspurður sagði Sigurður það
fyrst og fremst umræðu á fundi
fjárlaganefndar á miðvikudag
sem hafi orðið til þess að ákveðið
var að taka málið fyrir. „Það
voru ákveðnir nefndarmenn sem
voru að vekja athygli á málinu og
að þetta væri eitthvað sem þyrfti
að svara og fá nánari upplýsing-
ar um. Nú er verið að afla upp-
lýsinga og draga fram það sem
telst nauðsynlegt um eignarhluti
og það hvernig þetta tengist sam-
an,“ sagði Sigurður.
Hann sagðist ekki
vita hversu
langan tíma
a t h u g u n i n
tæki né gat
hann svarað
því hvaða áhrif
yrðu af því ef
forsætisráðherra
yrði talinn vanhæfur
í málinu.
Sigurður Líndal laga-
prófessor segir að erfitt
sé að sjá hvernig slíkt
mál myndi þróast ef
forsætisráðherra
yrði talinn van-
hæfur en hér
væri fyrst
o g
fremst verið að vísa til hæfisskil-
yrða stjórnsýslulaga. „Fræðilega
séð gæti það leitt til vantrausts á
ráðherra en það er Alþingis að
ákvarða viðbrögð. En í raun er
það þannig að hver sá sem teldi á
sig hallað gæti höfðað mál til
ógildingar sölunni. Ríkisendur-
skoðun er ekki dómstóll,“ segir
Sigurður.
hjalmar@frettabladid.is
Hæfi Halldórs í
bankasölu rannsaka›
Ríkisendursko›andi rannsakar hvort eignatengsl Halldórs Ásgrímssonar og
fjölskyldu hans valdi flví a› hann hafi veri› vanhæfur vi› sölu á
Búna›arbankanum. Sigur›ur fiór›arson segir veri› sé a› afla gagna um
eignarhluti og atbur›arás.
SIGURÐUR LÍNDAL xÞeir sem telja hlut sinn skertan geta leitað til
dómstóla til að fá leiðréttingu.
SIGURÐUR ÞÓRÐARSON xVerið er að rannsaka hæfi
Halldórs Ásgrímssonar vegna eignar í Skinney-Þinganesi.