Fréttablaðið - 10.06.2005, Blaðsíða 26
Rólegir stjórnendur
Þótt fjölmiðlar hafi sýnt síðustu viðskiptum með
bréf í Íslandsbanka mikinn áhuga verður ekki
annað séð en að stjórnendur bankans séu sallar-
ólegir. Nokkrir þeirra hafa verið í fríi og flestir
þeirra eru nú staddir í Noregi í góðu yfirlæti þar
sem fram fer ráðstefna á vegum bankans
um sjávarútvegsmál. Íslandsbanki hefur
markað sér sterka stöðu í sjávarútvegi
og nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar
fyrir sérþekkingu á því sviði. Á ráð-
stefnu bankans í Álasundi eru ekki
aðeins allir helstu ráðamenn Íslands-
banka heldur flestir þeir sægreifar í
Evrópu sem eitthvað eiga undir sér. Í
vetur hélt Íslandsbanki sambærilega
ráðstefnu á Akureyri og þótti takast
einkar vel. Þá mætti meðal annars
norski milljarðamæringurinn Kjell
Inge Rökke á einkaþotu en hann átti
ekki heimangengt í þetta skipti.
Leiðist í dómsal
Til stóð að Rökke mætti á ráðstefnu Ís-
landsbanka en hann komst ekki, þar
sem hann þurfti að sæta yfirheyrslum
vegna ásakana um að hafa mútað emb-
ættismanni þegar hann var tekinn skír-
teinislaus á sjó. Málið hefur vakið
mikla athygli í Noregi en Rökke
sjálfur er algjörlega óhræddur við
niðurstöðuna þótt hann verði hugs-
anlega dæmdur til að sitja inni í
sex vikur. Mest leiðist honum að
þurfa að hlusta á lögfræðingana í
dómsal og hefur sagt að hann
kjósi frekar sex vikna fangelsisvist
en að þurfa að hlusta á lögfræð-
ingana í sex vikur í viðbót. Hvort
þetta telst áfellisdómur yfir lög-
mannsstéttinni eða meðmæli
með norskum fangelsum skal þó
ósagt látið.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.077*
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 247
Velta: 4.077 milljónir
-0,12%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Laugaból, sem seldi hlut
sinn í Jarðborunum fyrr í vik-
unni, keypti 2,5 milljónir hluta
í Atorku í gær.
Gengi Bandaríkjadals hef-
ur styrkst um tíu prósent
gagnvart evru það sem af er
ári. Þetta kom fram í Vegvísi
Landsbankans. Þó er gert ráð
fyrir að þetta breytist eftir því
sem líður á árið.
Englandsbanki ákvað í gær
að halda stýrivöxtum í Bret-
landi óbreyttum. Þeir verða
áfram 4,75 prósent.
Hlutabréf í Japan lækkuðu í
gær. Nikkei vísitalan endaði í
11.161 stigi og lækkaði um
1,07 prósent.
26 10. júní 2005 FÖSTUDAGUR
Stjórnarformaður Ís-
landsbanka segir núver-
andi meirihluta ráða yfir
bankanum. Viðskipti
Burðaráss breyti engu
þar um.
Einar Sveinsson, stjórnarformaður
Íslandsbanka, fullyrðir að ekki hafi
orðið tilfærsla á völdum í bankan-
um í kjölfar þess að Burðarás
keypti rúmlega fjögurra prósenta
hlut í Íslandsbanka af Steinunni
Jónsdóttur, stjórnarmanni bankans.
„Fljótt á litið sýnist mér að félög
tengd Björgólfsfeðgum, Burðarási,
Landsbankanum og Straumi ráði
yfir 27 prósentum af hlutafé bank-
ans. Við erum með fjörutíu prósent
á bak við okkur,“ segir hann.
Straumur á ekki allan hlutinn
sem bankinn er skráður fyrir, sem
er 21 prósent. Karl Wernersson,
stjórnarmaður í Íslandsbanka, á um
þrjú prósent af þeim hlut í fram-
virkum samningum. Samkvæmt
upplýsingum af fréttavef Kauphall-
arinnar á hann samtals rúm tólf
prósent í bankanum. Á meðan Karl
spilar með núverandi meirihluta
eigenda í Íslandsbanka, eins og
hann hefur gert hingað til, er ekki
hægt að segja að aðilar tengdir
Landsbankanum séu ráðandi í Ís-
landsbanka. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins ræður Landsbankinn
ekki heldur yfir öllum sínum hlut
þar sem hluti er bundinn í fram-
virkum samningum.
Ekki er búist við að farið verði
fram á hluthafafund í Íslandsbanka
í kjölfar viðskipta Burðaráss.
Reiknað er með því að Steinunn
Jónsdóttir segi sig úr bankaráðinu
eftir söluna og mun þá varamaður
taka sæti í stjórninni. Stjórnarmað-
ur í Íslandsbanka sagði Lands-
bankamenn líklega ekki fara fram á
fund á meðan þeir hefðu ekki ráð-
andi stöðu í Íslandsbanka. Til þess
þurfi þeir að bæta við sig tíu pró-
senta hlut í viðbót, sem kosti um
átján milljarða miðað við gengi síð-
ustu viðskipta. Annar viðmælandi
Fréttablaðsins sagði aðdraganda
þessara viðskipta þó sýna hversu
langt Björgólfsfeðgar væru tilbúnir
að ganga til að seilast til áhrifa í Ís-
landsbanka.
Einar Sveinsson segir hluthafa í
Íslandsbanka vita um allar stöður í
bankanum og er því nokkuð rólegur
yfir stöðu mála. „Hvorki viðskipta-
menn né starfsmenn þurfa að hafa
áhyggjur af því að það verði koll-
steypa,“ segir hann og vísar til
orðróms um að aðilar tengdir
Landsbankanum muni taka Íslands-
banka yfir. bjorgvin@frettabladid.is
eggert@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 40,60 +0,74% ... Atorka 6,00
– ... Bakkavör 35,20 -0,56% ... Burðarás 14,75 -0,34% ... FL Group
15,00 +2,39% ... Flaga 4,90 – ... Íslandsbanki 13,65 +0,37% ... KB banki
528,00 -0,19% ... Kögun 60,20 – ... Landsbankinn 16,80 – ... Marel
56,30 – ... Og fjarskipti 3,99 – ... Samherji 12,10 – ... Straumur 12,30
-0,40% ... Össur 78,50 +0,64%
* Tölur frá um kl. 15.40 í gær. Nýjustu tölur á Vísi.
Segir Landsbankahóp
ekki með ráðandi hlut
FL Group 2,39%
Actavis 0,74%
Össur 0,64%
Nýherji -1,60%
Bakkavör -0,56%
Straumur -0,40%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Bolur merktur keppninni, hjólabrúsi og aðgangur
í Bláa Lónið er innifalið í skráningargjaldinu.
Nánari upplýsingar á www.hfr.is.
M
IX
A
•
fít •
5
0
7
2
6
Hjólað verður frá Hafnarfirði að Bláa Lóninu og hægt að velja um 60 eða 70 km leið.
Lagt af stað frá íþróttahúsinu við Strandgötu kl. 10.00.
Skráning á vefsíðunni www.hfr.is til 10. júní – keppnisgjald 2000 kr.
Afhending rásnúmera við íþróttahúsið Strandgötu milli kl. 8.00 og 9.30.
Hjól verða flutt til baka án endurgjalds. Rúta til Hafnarfjarðar gegn gjaldi.
Virkjum eigin orku!
Hjólum í Bláa Lónið
Bláalónsþrautin á fjallahjólum – sunnudaginn 12. júní
Ísland á meðal skuldsett-
ustu þróuðu ríkja veraldar.
Erlendar skuldir Íslendinga
námu tæpum tvö þúsund millj-
örðum króna í lok mars og höfðu
þá aukist um 166 milljarða frá
áramótum. Þetta kemur fram á
vef greiningardeildar Íslands-
banka.
Ísland er eitt af skuldsettustu
þróuðu ríkjum veraldar og hefur
verið í langan tíma. Erlendar
skuldir hafa tvöfaldast frá því
árið 2002.
Greiningardeild Íslandsbanka
telur aukningu erlendra skulda
til marks um þær miklu fjárfest-
ingar sem Íslendingar hafa ráð-
ist í erlendis og hafa að miklu
leyti verið fjármagnaðar með er-
lendu lánsfé.
Hrein staða þjóðarbúsins við
útlönd, sem er nettó skuldastaða
þjóðarinnar, gefur hins vegar
aðra mynd. Var hún neikvæð um
804 milljarða króna í lok mars og
hafði þá aukist um 210 milljarða
frá 2002.
Hrein staða þjóðarbúsins sem
hlutfall af landsframleiðslu hef-
ur þó líklega batnað enda hag-
kerfið vaxið mikið síðan 2002.
- jsk
McDonalds selur
McDonalds hamborgararisinn hefur tilkynnt
að sala í maí hafi aukist um tæp tvö prósent frá
fyrri mánuði. Sala í Bandaríkjunum jókst um
tæp fimm prósent og er það rakið til nýs mat-
seðils hjá fyrirtækinu auk sveigjanlegri af-
greiðslutíma en áður.
Sala í Evrópu dróst hins vegar saman í maí
vegna slæms ástands á mörkuðum í Bretlandi
og Þýskalandi.
Það sem af er árinu hefur sala
McDonalds aukist um 3,7 prósent.
-jsk
Erlendar skuldir aukast
PENINGAR Erlendar skuldir Íslendinga námu tæpum tvö þúsund milljörðum króna í lok
mars.
MCDONALDS BORGARI Sölutölur fyrirtækis-
ins hafa stórbatnað það sem af er árinu.
BANKASTJÓRAR LANDSBANKANS OG ÍSLANDSBANKA Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, hefur átt heldur rólegri
daga en Bjarni Ármannsson, bankastjóri Íslandsbanka, þar sem óróleiki hefur verið í hluthafahópnum vegna átaka um ítök í bankanum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
0