Fréttablaðið - 10.06.2005, Síða 12
MÓÐURÁST Hegrinn fer vel með afkvæmi
sín og þessi fugl er engin undantekning
frá því þar sem hann tekur ungviði sitt
undir sinn verndarvæng í bókstaflegri
merkingu. Þau mæðginin búa á bökkum
Brahmaputra-fljótsins í Indlandi.
12 10. júní 2005 FÖSTUDAGUR
Ólafur F. Magnússon berst fyrir húsum við Laugaveg:
Stefán sakar Ólaf F. um málflóf
SKIPULAGSMÁL Ólafur F. Magnús-
son borgarfulltrúi lagði til á síð-
asta borgarstjórnarfundi að heim-
ildir til niðurrifs sjö gamalla húsa
yrðu dregnar til baka. Húsin eru
milli Smiðjustígs og Vatnsstígs og
fimm þeirra eru frá 19. öld. Var
tillögunni vísað til skipulagsráðs
og lýsti Ólafur sérstaklega furðu
sinni á að vinstri grænir skyldu
stuðla að þeirri niðurstöðu.
Ólafur bar upp áþekka tillögu
á borgarstjórnarfundi þann 17.
maí, þá um fjögur hús milli
Smiðjustígs og Vatnsstígs.
Stefán Jón Hafstein, starfandi
forseti borgarstjórnar, gerir al-
varlegar athugasemdir við vinnu-
brögð Ólafs í málinu. „Þetta jaðr-
ar við málþóf,“ segir Stefán.
„Þetta er á mjög gráu svæði þó
fundarsköp banni þetta ekki. Það
gengur ekki upp að koma með
nokkur húsnúmer inn á hvern ein-
asta borgarstjórnarfund þegar
borgarstjórnin er búin að ræða
um málið í heild.“
Ólafur hafnar því alfarið að
þetta sé málþóf.
„Mér finnst forkastanlegt að
verið sé bregða fæti fyrir þessa
umræðu. Þetta er ekkert annað en
tilraun til að kæfa málið.“ Ólafur
kveðst nota þessa aðferð til fá fram
umræðu um hvert hús í borgar-
stjórn.
„Ekki veitir af, vegna lítillar
þekkingar og áhugaleysis sumra
borgarfulltrúa á elstu byggð-
inni.“ ■
Aukaatri›i a› selja kjöti›
Í sk‡rslu Náttúruverndarsamtaka Íslands er dregi› í efa a› hvalvei›ar geti or›i› ar›samar. Hvalvei›i-
menn eru ósammála flessu og segja enga marka›ssetningu hafa fari› fram hér á landi.
HVALVEIÐAR Samkvæmt skýrslu
sem unnin var fyrir Náttúru-
verndarsamtök Íslands og
International Fund for Animal
Welfare er kostnaður við hval-
veiðar í vísindaskyni mun meiri
en þær tekjur sem hafa mætti af
sölu afurðanna. Reynslan af
markaðssetningu á Íslandi, Nor-
egi og Japan gefi til kynna að
neytendamarkaður fyrir hvalkjöt
sé lítill og fari minnkandi, segir
einnig í skýrslunni.
Ekki er þó tekin afstaða til þess
í skýrslunni hvort markaðsað-
stæður fyrir sölu hvalkjöts gætu
hugsanlega orðið vænlegar í
framtíðinni.
Árni Finnsson, formaður Nátt-
úruverndarsamtakanna, segir
ekki vera hægt að draga almennar
ályktanir um arðsemi hvalveiða
af skýrslunni. „Við töldum engu
að síður nauðsynlegt að gerð yrði
heildarúttekt á því hvernig staðan
er í dag.“ Náttúruverndarsamtök-
in telja að hvalaskoðun sé hag-
kvæmari kostur fyrir Íslendinga
en hvalveiðar.
Kristján Loftsson, forstjóri
Hvals, gefur ekki mikið fyrir
skýrsluna. „Um leið og þú sérð
hverjir standa að skýrslunni
veistu niðurstöðurnar fyrirfram.
Þeir eru einfaldlega á móti hval-
veiðum. Skýrsla frá þessum aðil-
um getur aldrei orðið hlutlaus um-
fjöllun.“ Kristján bendir á í þessu
sambandi að tilgangur vísinda-
veiðanna sé fyrst og fremst að
vita hvað hrefnurnar éti, en sala á
kjötinu sé algjört aukaatriði.
Gunnar Jóhannsson, sem veitt
hefur hrefnu undanfarin ár, segir
margt við skýrsluna að athuga.
Hann segir enga markaðssetn-
ingu hafa verið í gangi á Íslandi.
„Við höfum lagt áherslu á að selja
ekki allt það kjöt sem höfum í
einu, heldur viljum við geta boðið
upp á það allt árið. Við erum með
viðskiptavini sem hafa keypt af
okkur kjöt aftur og aftur.“ Gunnar
bendir einnig á að síðustu ár hafi
aðeins verið seld hrefna, en mun
fleiri tegundir hvala hafi verið
veiddar forðum.
grs@frettabladid.is
M
YN
D
/A
P
ÓLAFUR Í PONTU Ólafur F. Magnússon á borgarstjórnarfundi
VIÐ KJÓSUM
ÞINN FLOKK,
SAMA HVER HANN ER!
Í BLÓÐBANKANN ERU ALLIR BLÓÐFLOKKAR VELKOMNIR. ÞAÐ ER
NÆGILEGT MAGN AF BLÓÐI Í SAMFÉLAGINU, EN ÞVÍ MIÐUR ALLTOF
FÁIR Í FRAMBOÐI. ÞAÐ VERÐUR AÐ BREYTAST.
ERTU MEÐ ÞETTA Í BLÓÐINU?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
84
26
06
/2
00
5
KRISTJÁN LOFTSSON Telur ekki mikið að
marka það sem kemur frá Náttúrverndar-
samtökunum.
HREFNUVEIÐAR VIÐ ÍSLAND Einungis hrefna hefur verið seld hér síðastliðin ár. Gagn-
rýnendur skýrslunnar benda á að mun fleiri hvaltegundir hafi á sínum tíma verið veiddar
en skýrslan byggi einungis á hrefnum.
Allsherjarverkfall í Simbabve:
Mótmæla
handtökum
HARARE, AP Tveggja daga allsherjar-
verkfall hófst í Simbabve í gær. Til
verkfallsins var boðað til að mót-
mæla aðgerðum ríkisstjórnar Ro-
bert Mugabe, sem hefur nú látið
handtaka meira en þrjátíu þúsund
fátæka íbúa landsins fyrir litlar
sem engar sakir.
Áætlun Mugabes til að draga úr
fátækt í landinu hefur svipt fjölda
fólks heimili sínu og nú er svo kom-
ið að í landinu eru um 200 þúsund
heimilislaus.
Stjórnarherinn hafði mikinn við-
búnað í gærmorgun þegar verkfall-
ið hófst, til að koma í veg fyrir upp-
steyt. Mótmæli fóru þó að mestu
leyti friðsamlega fram. ■
ROBERT MUGABE Forseti Simbabve hefur
látið handtaka þúsundir fátækra íbúa
landsins fyrir litlar sakir.
M
YN
D
/A
P
LÖGREGLUFRÉTTIR
VINNUSLYS Á GRUNDARTANGA
Rúmlega tvítugur karlmaður frá
Reykjavík féll við nýbyggingu ál-
versins á Grundartanga í fyrradag
og handleggsbrotnaði. Tildrög
slyssins eru í rannsókn.
ÁRNI FINNSSON KYNNIR SKÝRSLUNA
Samkvæmt skýrslu sem Náttúruverndar-
samtök Íslands létu vinna þá er ekki mark-
aður fyrir hvalkjöt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
G
VA