Fréttablaðið - 13.07.2005, Page 14
Fjölmenningarsamfélagi›
Hella de Islandia
Þó aðeins séu fimmtán Chilebúar
skráðir íbúar á Hellu er samfé-
lagið mun stærra. Fjölmargir
hafa fært sig um set og búa nú á
Hvolsvelli en eru í góðum tengsl-
um við granna sína og landa á
Hellu. Að sögn Veronicu Solar er
nú von á þremur chileskum fjöl-
skyldum frá Reykjavík þar sem
þau freistuðu gæfunnar en hyggj-
ast nú snúa aftur til Hellu. Nokkr-
ir hafa fengið íslenskt ríkisfang
og eru skráðir sem slíkir og
margir afkomendanna eru ís-
lenskir ríkisborgarar. Það er ekki
fjarri lagi að um fimmtíu manns
af chileskum uppruna tilheyri
þessu samfélagi auk þess sem
spænskumælandi fólk víða að
leitar í félagsskap þess. Síðast en
ekki síst ber svo að geta þess að
fjölmargir Íslendingar hafa
bundist fjölskylduböndum við
þessa langtaðkomnu-landa okkar.
Það má því segja að samfélagið
þarna sé ákaflega blandað og eyk-
ur mjög á blæbrigði mannlífsins
á Hellu, og nú á síðari árum
einnig Hvolsvelli.
Íslendingar hjálpsamir en lokaðir
Veronica kom frá Chile ásamt
eiginmanni sínum Rodolfo árið
1991 og nú una þau hag sínum hið
besta á Hellu. Eins og flestir sem
til Íslands koma verður Veronica
að svara því hvernig hún kunni
við land og þjóð. „Íslendingar eru
frábærir og hér er rólegt og mjög
gott að vera,“ segir hún. „Stund-
um kemur reyndar fyrir að okkur
leiðist hérna en við erum alin upp
við það að geta alltaf hitt fólk á
förnum vegi eða spjallað á kaffi-
húsum eða hvar sem maður kem-
ur. Í Chile er oft svo heitt að fólk
unir ekki inni og því er mannlífið
oftast mjög líflegt en því er ekki
alltaf að heilsa hér. En Íslending-
ar eru mjög hjálpsamir og hafa
tekið okkur alveg sérstaklega vel
og alltaf verið boðnir og búnir að
gera allt fyrir okkur. Hins vegar
eru þeir dálítið mikið til baka og
svolítið lokaðir en það breytist
þegar maður hittir þá á góðri
stundu en Íslendingar eiga það
sameiginlegt með Chilebúum að
þeir gera sér glaðan dag af
minnsta tilefni,“ segir Veronica
og hlær.
Alvöru Íslendingar af suður- amer-
ískum uppruna
Chynthia Viviana Sepulveda
Benner eða Sigurborg Karls-
dóttir eins og hún heitir sam-
kvæmt íslenskum lögum hefur
búið á Hellu frá árinu 1990 og hún
er alsæl ásamt eiginmanni sínum
Ingólfi Rögnvaldssyni. Hún er
mágkona Veronicu og jafnframt
fyrsti Chilebúinn sem fluttist í
bæinn en hún kom í myrkum og
köldum demembermánuði og
leist ekkert á blikuna. „Það var
bara þunglyndi til að byrja með,“
segir hún og hrís greinilega hug-
ur við endurminningunni. „Sem
betur fer kunni ég sænsku og gat
aðeins spjallað við lækninn í bæn-
um sem einnig var sænskumæl-
andi en þar fyrir utan var ekki
margt annað sem ég gat gert. Og
þegar fór að snjóa fór ég bara að
gráta.“
En mikið vatn hefur runnið til
sjávar síðan og Sigurborg kann
nú á flestum hlutum skil. „Ég er
orðin alvöru Íslendingur þó ég sé
jafnframt stolt af uppruna mín-
um. Og sömu sögu er að segja af
flestum Chilebúunum sem hér
búa. Við eru manna fyrst til að
mæta á þorrablótin og borðum
manna mest af súrmetinu og skol-
um því niður með brennivíni að
innlendum sið. Við lifum eftir ís-
lenska lífsstílnum; kaupum bíla
og hús og skuldum stórpening
eins og flestir Íslendingar. Og að
sjálfsögðu erum við jafn sólgin í
sólarlandaferðir og allir aðrir, nú
eru til dæmis systur mínar sem
búa hér á Hellu og fjölskyldur
þeirra að spóka sig á Benidorm
eins og margir Íslendingar gera
árlega. Börnin okkar eru svo ekk-
ert öðruvísi en önnur börn enda
fædd hér og mörg eiga innfætt
foreldri. Þau hafa kannski aðeins
dekkri húðlit en félagar sínir en
það er allt og sumt.“
Una hag sínum vel
Eduardo Correa er frá Kólumbíu
en hann kynntist Íslandi þegar
hann kom hingað tvívegis með
spænskum sirkusi sem hann vann
í. Hann bjó í Keflavík frá 1991 en
fluttist til Hellu í fyrra og kann
vel við sig í þessu spænskumæl-
andi samfélagi þar sem honum
hefur verið tekið opnum örmum.
Veronica samstarfsmaður
Eduardo hefur unnið í fimmtán ár
hjá Holta kjúklingum og ber hún
vinnustaðnum vel söguna. „Hér
er fínt að vinna og maðurinn
minn sem vinnur í sláturhúsinu
er bara nokkuð sæll,“ segir Ver-
onica. „Ég fæ yfirleitt um hund-
rað og tuttugu þúsund útborgað
þegar búið að taka allt af, inni í
því eru þá yfirleitt um tíu tímar í
yfirvinnu. Svo vinnur Rodolfo,
karlinn minn, á veitingastað um
helgar svo við höfum það nokkuð
gott. Þetta eru kannski ekki svo
há laun miðað við það sem gengur
og gerist hér á Íslandi en þetta er
mun meira en við ættum mögu-
leika á að hafa í Chile.“ ■
SIGURÐUR ÁRNI GEIRSSON
verkstjóri
Kurteisari en
Íslendingar
ERLENT VERKAFÓLK
SPURT & SVARAÐ
14 13. júlí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Á Hellu eru skráðir áttatíu útlendingar frá
tuttugu löndum en fjölmargir aðrir út-
lendingar tengjast bænum og aðrir hafa
fengið íslenskan ríkisborgararétt. Bærinn
er fyrir löngu orðinn fjölmenningarbær
en hvers konar bær er Hella að öðru
leyti?
Hvernig er byggðarþróunin á Hellu?
Byggð á Hellu má rekja til ársins 1927
en þá kom Þorsteinn Björnsson þar á fót
verslun og var þar með lagður grunnur-
inn að nýju kauptúni. Fyrstu árin þróaðist
byggðin frekar hægt en árið 1947 voru
fjórtán íbúðarhús á staðnum og íbúarnir
fimmtíu að tölu. Næstu áratugi á eftir
fjölgaði íbúum hins vegar ört og árið
1977 voru þeir orðnir fimmhundruð tals-
ins. Í dag eru íbúarnir um sjöhundruð.
Á hverju byggir byggðin á Hellu?
Segja má að Hella sé sprottinn upp úr
þjónustu við landbúnað sem enn er
burðarstólpi bæjarins. Þar eru nú fjöl-
mörg landbúnaðarfyrirtæki. Hella er
einnig máttug þjónustumiðstöð og þar
eru margar opinberar stofnanir. Burðug
iðnaðarfyrirtæki eru í bænum eins og
blikksmiðja, glerverksmiðja og trésmíða-
fyrirtæki. Ferðaiðnaður er þó sú grein
sem er í hvað örustum vexti.
Hvað einkennir sögu Hellu?
Hella hefur ekki farið varhluta af náttúru-
hamförum en jarðskjálftar hafa að
minnsta kosti tvisvar sinnum skekið bæ-
inn. Árið 1947 þegar Heklugos hófst skalf
jörðin þar þegar fjögurra kílómetra löng
gjá opnaðist. Árið 2000 reið svo suður-
landssjálfti yfir með miklum skemmdum.
Til dæmis hefur samkomusalur félags-
heimilisins ekki verið nothæfur síðan.
Alfljó›legur landbúna›arbær
FBL-GREINING: HELLA
fréttir og fró›leikur
HLUTFALL ERLENDRA RÍKISBORGARA
AF MANNFJÖLDA Á ÍSLANDI
d
Íbúar á Hellu hafa ekki fari› varhluta af fjölmenningunni flví flar hefur samfélag Chilebúa sett mark sitt
á bæjarlífi› í meira en áratug. Einnig fjölgar flar fólki af ö›ru fljó›erni enda gott atvinnuástand á sta›n-
um. Íbúi af su›ur-amerískum uppruna segist vera alvöru Íslendingur me› öllu sem flví fylgir.
EDUARDO, VERONICA OG RODOLFO Eduardo kom fyrst hingað til lands með sirkusi
sem hann vann við. Veronica og fjölskylda hafa samlagast íslensku samfélagi mjög vel.
INGÓLFUR OG SIGURBORG Sigurborg er fyrir löngu orðin alvöru Íslendingur, meira að segja
svo að Ingólfi bónda hennar finnst nóg um hvað hún er ötul við súrmetisát á þorrablótum.
KUALLAYANEE OG SOMBAT Taílending-
um fjölgar ört á Hellu enda hafa þeir getið
sér þar gott orð fyrir jákvætt viðmót og
öguð vinnubrögð. Chilebúum sem rætt var
við fannst þeir þó mega vera duglegri við
að taka þátt í því sem er að gerast í mann-
lífinu á staðnum.
Ísafjarðar-Begga
aftur í kvenna-
fangelsið
Þrír fangaverðir
sögðu upp í
mótmælaskyni
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
JÓN SIGURÐUR EYJÓLFSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
FJÖLMENNINGAR-
SAMFÉLAGIÐ Á HELLU
Við kjúklingasláturhúsði á Hellu hafa
erlendir starfsmenn löngum sett svip
sinn á vinnustaðinn. Nú starfar þar
fólk frá Suður-Ameríku, Asíu, Austur-
Evrópu en Íslendingar eru þó í meiri-
hluta á þessum sextíu manna vinnu-
stað.
Eru erlendu starfsmennirnir betri en
þeir íslensku? Að mörgu leyti. Sumir
hverjir eru til dæmis agaðri og kurteis-
ari en Íslendingum hættir til að vera.
Hvað er best við að vinna á fjöl-
menningarlegum stað? Það er mjög
gaman að kynnast háttum þeirra sem
hér eru enda komnir víða að. Svo er
ekki slæmt að vinna með fólki sem er
sérlega jákvætt í öllu viðmóti og er
brosandi og hlæjandi nánast allan
daginn. Þetta á sérstaklega við um Tæ-
lendingana sem eru sérlega kurteisir
og jákvæðir.
Ár Fjöldi Hlutfall
1998 6.521 2,4%
2000 8.824 3,1%
2002 10.221 3,5%
2204 10.636 3,6%
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
14-15 baksviðs 12.7.2005 22:23 Page 2