Fréttablaðið - 13.07.2005, Blaðsíða 27
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og
aðra fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum
Landsbankans.
* Nafnávöxtun frá 01.06.2005–30.06.2005 á ársgrundvelli.
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga
nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.
Athygli fjárfesta er vakin á því að fjárfestingarsjóðir
hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum
heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar
um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á
verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og
fjárfestingarheimildir sjóðsins, vísast til
útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem
nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk
upplýsinga á heimasíðu bankans www.li.is
410 4000 | landsbanki.is
8,0%*
Peningabréf Landsbankans
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
88
74
07
/2
00
5
Dreamworks í vanda
Skrekkur
í Shrek
Eyrir
Gott verður
betra
Hangsað í vinnunni
Afsakanir
latra starfsmanna
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 13. júlí 2005 – 15.. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Baugur úr Somerfield | Baugur
hefur dregið sig úr samstarfi um
mögulega yfirtöku á bresku versl-
anakeðjunni Somerfield. Í til-
kynningu frá félaginu segir að
ákvörðunin hafi verið tekin í þágu
fyrirtækjahópsins, aðila hans og
hluthafa í Somerfield.
Björgólfur stærstur | Stefnt er
að samruna finnsku símafyrir-
tækjanna Saunalahti og Elisa.
Novator Finland, fjárfestingafé-
lag Björgólfs Thors Björgólfsson-
ar, hafði áður gert yfirtökutilboð í
Saunalahti.
Gangverk kapítalismans |
Hryðjuverkin í Lundúnum höfðu
minni áhrif á markaði en óttast
var. Verðbréf tóku dýfu er fregn-
irnar bárust en réttu úr kútnum
eftir því sem leið á daginn.
Lítilleg hækkun | Vísitala
neysluverðs hækkaði um 0,12 pró-
sent í júlí, sem er minna en spár
gerðu ráð fyrir. Skýrist spá-
skekkjan af miklum verðlækkun-
um á útsölum, minni hækkun hús-
næðisverðs en búist var við og lít-
illi hækkun matvöruverðs.
FME sátt við Sjóvá | Fjármála-
eftirlitið samþykkti kaup Karls
Wernersonar og fjölskyldu á 66,6
prósent hlut í Sjóvá.
Burðarás veðjar | Burðarás hef-
ur fest kaup á 25 prósent hlut í
sænska getrauna- og leikjafyrir-
tækinu Cherryföretagen. Mark-
aðsvirði hlutarins er um 2,3 millj-
arðar króna.
G8 fundinum lokið | Á fundi hel-
stu iðnríkja heims var ákveðið að
auka þróunaraðstoð við Afríku um
1625 milljarða og að afskrifa
skuldir átján ríkja í álfunni. Fund-
urinn féll þó í skuggann af voða-
verkunum í Lundúnum.
EI bank vekur áhuga.
Banki í
Búlgaríu
Björgólfur Thor
B j ö r g ó l f s s o n
hefur hug á að
fjárfesta í búl-
garska bankan-
um EI Bank og
standa viðræð-
ur um kaup á 35
prósenta hlut
yfir. Niðurstöðu
er að vænta inn-
an skamms.
Áætlað markaðsvirði bankans
er undir 10 milljörðum króna en
eigið fé bankans er um 2,6 millj-
arðar króna. Heildareignir bank-
ans nema 30 milljörðum króna og
hagnaður hans á síðasta ári var
um 400 milljónir króna.
Fjöldi banka er í Búlgaríu og
sameiningar og kaup eiga líklega
eftir að einkenna bankaumhverf-
ið þar um hríð þannig að eftir
miklu er að falast.
Björgólfur, sem er einn af
stærstu eigendum Landsbank-
ans, hefur fjárfest í fjármálafyr-
irtækjum í Svíþjóð og víðar und-
anfarið í gegnum Burðarás. -dh
Dögg Hjaltalín
skrifar
Tuttugu stærstu kaup íslenskra fyrirtækja erlendis
á síðustu 18 mánuðum nema 450 milljörðum króna.
Meðal fyrirtækja sem keypt hafa verið eru bankar,
verðbréfafyrirtæki, skipafélög, flugfélög, matvöru-
verslanir, tískuverslanir og lyfjafyrirtæki. Flest
þessi kaup eru á sviðum þar sem Íslendingar hafa
mikla þekkingu, til að mynda á lyfjamarkaði.
Verðmætustu kaupin voru kaup KB banka á
danska bankanum FIH og þar á eftir koma kaup
Bakkavarar á matvælaframleiðslufyrirtækinu
Geest fyrir 70 milljarða króna.
Kaupin hafa verið stór og tekist vel en nú kem-
ur til með að reyna á hæfileikana til að reka fyrir-
tækin. Fyrirtækin hafa þó flest verið rekin ágæt-
lega hingað til og því þarf ekki að lyfta neinu
grettistaki til að reksturinn haldi áfram að skila
hagnaði.
Skráð félög hafa verið áberandi í fjárfestingum
erlendis og félögin hafa fjármagnað kaupin að
hluta til með hlutafjárútboðum sem hafa tekist
vel. Einnig hafa íslenskir bankar staðið við hlið ís-
lensku fyrirtækjanna í útrásinni og leitt hana að
vissu marki.
Félögin sem keypt hafa verið skipta tugum og
má því reikna með að kaupverð þeirra nemi sam-
tals meira en 500 milljörðum króna. Þegar talað er
um kaupverð er einungis átt við markaðsvirði fyr-
irtækjanna og eru þá yfirteknar skuldir og fé til
rekstrarins ótalið. Sjá síðu 10 – 11
F R É T T I R V I K U N N A R
6 8 2
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Fundur stofnfjáreigenda í
Sparisjóði Hafnarfjarðar verður
haldinn 21. júlí næstkomandi.
Fimm stofnfjáreigendur fóru
fram á það við stjórn sparisjóðs-
ins að fundurinn yrði haldinn og
þar yrði fimm spurningum svar-
að. Stjórninni ber samkvæmt
samþykktum sparisjóðsins að
verða við beiðninni og eru aðeins
þessar fimm spurningar á dag-
skrá fundarins.
Fimmmenningarnir vilja að
stjórnin upplýsi stofnfjáreigend-
ur um hvort einhver áform séu
uppi um breytingar á eignarhaldi
Sparisjóðs Hafnarfjarðar, en
mikill órói hefur verið í kringum
núverandi stjórn. Sagðar hafa
verið fréttir af því að meirihluti
stjórnar hafi boðið stofnfjáreig-
endum að kaupa hluti þeirra fyr-
ir tugi milljóna króna og ætli sér
að taka sparisjóðinn yfir.
Einnig vilja fimmmenningarn-
ir fá upplýsingar um gerða
starfslokasamninga og uppsagnir
á sparisjóðsstjóranum, aðstoðar-
sparisjóðsstjóranum og forstöðu-
manni innra eftirlits. Einnig er
spurt um áform um að efla Spari-
sjóð Hafnarfjarðar, sérstaklega
hvað varðar fyrirtækjasvið, og
hugsanlegar skipulagsbreytingar
sem framundan séu.
Stjórn sparisjóðsins mun sitja
fyrir svörum og upplýsa stofn-
fjáreigendur um þessi mál.
Útrásarvísitalan lækkar:
Hlutabréfa-
verð hækkar
Útrásarvísitalan lækkar um eitt
prósent milli vikna og stendur nú
í tæpum 110 stigum. Gengi krón-
unnar styrkist milli vikna og ef
gengið hefði verið óbreytt hefði
Útrásarvísitalan hækkað lítilega
milli vikna. Hryðjuverkin í
London virðast því ekki hafa haft
mikil áhrif á hlutabréfaverð í
London.
deCODE hækkar mest milli
vikna eða um rúm átta prósent.
Bresku félögin í Útrásarvísitöl-
unni lækka flest og NWF mest
eða um tæp fimm prósent.
Mesta flugið hefur verið á
gengi deCODE að undanförnu og
hefur gengi félagsins hækkað um
82 prósent frá upphafi Úrvals-
vísitölunnar. Sjá síðu 6.
Fyrirtækjakaup
fyrir 450 milljarða
Félög í eigu Íslendinga og tengdra aðila hafa vakið athygli
á erlendri grundu fyrir gríðarlegan kaupmátt sinn.
Fimmmenningar krefja
sparisjóðsstjórn svara
Fundur stofnfjáreigenda boðaður í Sparisjóði Hafnarfjarðar 21. júlí.
ÞEKKIR VEL TIL Í
BÚLGARÍU Björg-
ólfur Thor Björgólfs-
son fjárfestir víða.
KREFJAST UPPLÝSINGA Fimm stofnfjár-
eigendur hafa krafið stjórn Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar svara við fimm spurningum.
01-20 markadur 12.7.2005 17:01 Page 3