Fréttablaðið - 06.09.2005, Síða 10
ÞINGKOSNIGNAR Í JAPAN Umhverfisráð-
herra Japana, Yuriko Koike úr Frjálslynda
demókrataflokknum, heldur ræðu á götum
Tókýó. Kosningabaráttan er í hámarki í
Japan því kosningar til neðri deildar jap-
anska þingsins fara fram á næstunni. Yurio
Koike sækist eftir endurkjöri í kjördæmi
sínu í Tókýó.
10 6. september 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Norskir kaupsýslumenn vilja bjarga stjórn Bondeviks:
Styrkja svo stjórnin haldi
NOREGUR Hópur norskra kaup-
sýslumanna leggur nú allt kapp á
að fá kjósendur Hægriflokksins
til þess að kjósa Vinstriflokkinn
og reyna þannig að tryggja áfram-
haldandi hægristjórn í landinu í
kjölfar þingkosninganna eftir
viku.
Vinstriflokk-
urinn er lítill
f r j á l s l y n d u r
flokkur með tvo
þingmenn. Nái
hann fjögurra
prósenta fylgi í
k o s n i n g u n u m
gæti hann fengið allt að sex þing-
sæti til viðbótar en það gæti dreg-
ið mjög úr sigurlíkum rauðgræna
bandalagsins með Verkamanna-
flokkinn í fararbroddi.
Stein Erik Hagen kaupsýslu-
maður hefur þegar látið um tvær
og hálfa milljón króna í kosninga-
sjóð Vinstriflokksins og kveðst
vilja jafna metin við norska Al-
þýðusambandið sem hann segir að
hafi látið 130 milljónir króna í
kosningasjóði rauðgræna banda-
lagsins.
Fleiri hafa látið fé af hendi
rakna í sjóði Vinstriflokksins með
það fyrir augum að tryggja
áframhaldandi setu hægristjórn-
ar Bondeviks. Þeirra á meðal
Christen Sveaas kaupsýslumaður
sem lagði fjórar milljónir króna í
kosningasjóðinn í fyrradag. - jh
SVEITARSTJÓRNARMÁL Sveitarfélögin
sjö á höfuðborgarsvæðinu verða
sameinuð ef Frjálslyndi flokkur-
inn nær sínu fram. Ólafur F.
Magnússon, borgarfulltrúi flokks-
ins, leggur í dag fram tilllögu í
borgarstjórn um að borgaryfir-
völd gangi til viðræðna við full-
trúa hinna sex sveitarfélaganna
með sameiningu í huga.
„Augljósar landfræðilegar
ástæður mæla með sameiningu
Reykjavíkur, Seltjarnarness og
Kópavogs og þar sem Kjalarnes
hefur þegar sameinast höfuðborg-
inni liggur beint við að Mosfells-
bær geri það líka,“ segir í greinar-
gerð með tillögunni. Ólafur F. tel-
ur að sameining Reykjavíkur og
Mosfellsbæjar muni greiða fyrir
lagningu Sundabrautar.
„Á sama hátt myndi sameining
sveitarfélaganna Álftaness,
Garðabæjar og Hafnarfjarðar við
hin sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu flýta fyrir bættum sam-
göngum um sunnanvert höfuð-
borgarsvæðið,“ segir í greinar-
gerðinni. „Síðast en ekki síst
myndi sameining sveitarfélag-
anna sjö á höfuðborgarsvæðinu
leysa marga hnúta ef finna
Reykjavíkurflugvelli nýjan stað á
höfuðborgarsvæðinu.“
Ólafur F. telur mikið hagræði
felast í því að sameina yfirstjórn
höfuðborgarsvæðisins og draga úr
yfirbyggingu stjórnsýslunnar. - th
Hryðjuverkið í Beslan:
Pútín vill
rannsókn
MOSKVA, AP Rússneskir saksóknarar
fóru til Beslan í gær eftir að Pútín
Rússlandsforseti fyrirskipaði
rannsókn á öllum þáttum gíslatöku-
málsins í barnaskólanum í Beslan
sem átti sér stað fyrir ári er alls
331 létu lífið, flest börn.
Saksóknararnir áttu að funda
með eftirlifendum og öðrum íbú-
um Beslan, þar á meðal fulltrúum
mæðra barna sem létu lífið í
barnaskólanum. Mæðurnar hafa
gagnrýnt harðlega rannsókn
málsins til þessa en á fundi þeirra
með Pútín í síðustu viku lofaði
hann að verða að bón þeirra um
að rannsaka málið til hlítar. ■
RÆDDU SAMAN Lars Sponheim, formaður
Vinstriflokksins, ræðir við Sten Erik Hagen
kaupsýslumann.
Norsku
ÞINGKOSNINGARNAR
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON Borgarfulltrúi
frjálslyndra telur mikla hagræðingu felast í
sameiningu sveitarfélaga.
Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi leggur fram tillögu í borgarstjórn:
Höfu›borgarsvæ›i› sameinist
Filippseyska þingið:
Ákve›ur örlög
forsetans
FILIPPSEYJAR, AP Stjórnarandstaðan
í Filippseyjum varaði við því á
þinginu í gær að frávísun á máli
Arroyo forseta myndi leiða til
þess að ókyrrðin og upplausin
sem ríkt hefur mánuðinn sem mál
hennar hefur staðið yfir myndi
versna til muna.
Arroyo hefur meðal annars ver-
ið sökuð um kosningasvindl. Þing-
menn undirbúa nú umræður og at-
kvæðagreiðslu um hvort fara eigi
að ákvörðun þingnefndar um að
vísa máli forsetans frá.
PERSAFLÓI
KAFBÁTUR OG FLUTNINGASKIP
REKAST Á Bandarískur kjarn-
orkuknúinn kafbátur og tyrk-
neskt flutningaskip rákust á í
Persaflóa aðfaranótt mánudags.
Engan sakaði.