Fréttablaðið - 06.09.2005, Síða 12
FORSETAKOSNINGAR Í EGYPTALANDI
Egypskir borgarar ganga undir auglýsinga-
skilti sem vekur athygli á hinum níræða
forsetaframbjóðanda Ahmed el-Sabahi,
leiðtoga al-Ummah, eða Þjóðarflokksins.
Kjósendur geta valið milli tíu frambjóð-
enda í forsetakosningunum sem fram fara
á morgun, þar á meðal er forseti Egypta-
lands, Hosni Mubarak. Þetta er í fyrsta
sinn í sögu landsins sem fleiri en einn
sækjast eftir forsetaembætti.
12 6. september 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Málaferli vegna fyrirtækja tengdum Frjálsri fjölmiðlun:
Framhaldsákæra kom of seint
DÓMSTÓLAR Lögfræðingar þriggja
sakborninga í máli ríkislögreglu-
stjóra á hendur feðgunum Sveini
R. Eyjólfssyni og Eyjólfi Sveins-
syni og átta öðrum fóru í gær
fram á að framhaldsákæru sem
lögð var fram í málinu yrði vísað
frá. Ákært er fyrir umboðssvik og
vanskil á virðisauka- og vörslu-
sköttum í rekstri fjölda fyrir-
tækja, en málið var tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Sveinn Andri Sveinsson, lög-
maður eins sakborninga, segir
framhaldsákæruna sem lögð var
fram í gær til komna af augljósum
villum í ákærunni sem komið hafi
í ljós eftir að málið var þingfest í
lok júní. „Þær voru leiðréttar með
þessari framhaldsákæru, en gall-
inn er bara sá að lögin gera ráð
fyrir að framhaldsákærur skuli
gefnar út þremur vikum eftir að
gallar koma í ljós. Núna er hins
vegar liðinn lengri tími og því fáir
kostir aðrir hjá dómara en að vísa
þessu frá,“ segir hann og bætir
við að með því verði sakaragiftum
á hendur stórs hluta sakborninga
einnig vísað frá.
Frávísunarkrafan verður tekin
fyrir í héraðsdómi 19. þessa mán-
aðar.
- óká
SAMEINING Umfangsmesta sam-
einingarkosningin, með tilliti til
fjölda sveitarfélaga, 8. október
næstkomandi snýst um samein-
ingu níu sveitarfélaga á Eyja-
fjarðarsvæðinu.
Það eru: Siglufjarðarkaup-
staður, Ólafsfjarðarbær, Dalvík-
urbyggð, Arnarneshreppur,
Hörgárbyggð, Akureyrarbær,
Eyjafjarðarsveit, Svalbarðs-
strandarhreppur og Grýtu-
bakkahreppur.
Samkvæmt viðhorfskönnun
Rannsóknarstofnunar Háskól-
ans á Akureyri (RHA) síðasta
vetur voru Akureyringar og
Siglfirðingar mjög jákvæðir í
garð sameiningar en íbúar
Grýtubakkahrepps og Eyja-
fjarðarsveitar voru henni mjög
andsnúnir. Naumur meirihluti
íbúa Ólafsfjarðar og Dalvíkur-
byggðar voru hlynntir samein-
ingu en heldur fleiri íbúar Sval-
barðsstrandarhrepps, Hörgár-
byggðar og Arnarneshrepps
voru henni andsnúnir. Til að
stórsameining við Eyjafjörð nái
fram að ganga þarf meirihluti
íbúa sex sveitarfélaga að vera
henni fylgjandi.
Litlar líkur eru á að afstaða
íbúa Eyjafjarðarsveitar og
Grýtubakkahrepps breytist.
Bæði sveitarfélögin njóta ná-
lægðarinnar við Akureyri í
þjónustu, verslun og afþreyingu
á sama tíma og lítill áhugi er
fyrir því að færa ákvörðunar-
valdið úr héraði til Akureyrar.
Auk þess vilja íbúar Grenivíkur,
sem teljast til Grýtubakka-
hrepps, ógjarnan missa forræði
yfir aflaheimildum sem bærinn
á og metnar eru á 500 til 600
milljónir króna.
Ljóst er að sameining skilar
fjárhagslegum ávinningi í
minni kostnað við stjórnsýslu. Í
stað átta bæjar- og sveitar-
stjóra, auk eins starfandi odd-
vita, verður einn bæjarstjóri. Í
stað 65 sveitarstjórnamanna er
gert ráð fyrir 15 manna bæjar-
stjórn og nefndarsætum fækkar
um 350.
Verði framkvæmd samein-
ingar á þá lund sem skýrslur
vinnuhópa gefa til kynna er hins
vegar vandséð hvar annar veru-
legur sparnaður eða hagræðing
næst fram í náinni framtíð. Allir
vinnuhóparnir leggja áherslu á
mild áhrif sameiningar; engum
starfsmönnum sveitarfélaganna
verður sagt upp, engum skóla
lokað og þjónusta við íbúa á al-
mennt ekki að verða lakari.
kk@frettabladid.is
Slys í Njarðvík:
Skar sig á púls
LÖGREGLA Óskað var aðstoðar
sjúkraliðs og lögreglu í húsi í
Njarðvík vegna manns með
slagæðablæðingu laust eftir
klukkan hálf tólf á sunnudags-
kvöldið.
Að sögn lögreglu hafði maður
verið að opna kassa með hnífi,
en slysast til að stinga honum í
handlegginn á sér og skarst við
það á púls. Maðurinn var í
fyrstu fluttur á sjúkrahús í
Keflavík og síðan á Landspítala
í Fossvogi í Reykjavík.
Aðfaranótt mánudags var að
sögn lögreglu tíðindalítil. Þó
bárust næturvaktinni tvö
ölvunarútköll og eitt vegna
heimilisófriðar. - óká
800 7000 - siminn.is
Siemens S440
Verð aðeins:
12.980kr.
• Stílhrein hönnun
• SMS móttaka og sending
• Rafhlaða endist 6 daga án hleðslu
• 50 m. drægni
• Númerabirting síðustu 30 númera
• 200 nafna símaskrá
• Tengi fyrir höfuðheyrnatól
• Handfrjáls notkun möguleg
• Dagsetning og klukka
• Hraðvalsminni
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
17
6
7
2
AKUREYRI SÍÐLA SUMARS Til að stórsameining við Eyjafjörð nái fram að ganga þarf meiri-
hluti íbúa sex sveitarfélaga að vera henni fylgjandi en um 70 prósent íbúanna í samein-
uðu sveitarfélagi yrði búsettur á Akureyri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
R
IS
TJ
ÁN
fieir minni eru á móti
Íbúar fjögurra stóru fléttb‡lissta›anna vi› Eyjafjör› eru hlynntari sameiningu
en íbúar smærri og dreif›ari bygg›a. Sameining dregur úr kostna›i vi› stjórn-
s‡slu en annar verulegur sparna›ur er ekki fyrirsjáanlegur í náinni framtí›.
FJÖLDI ÍBÚA Í SVEITARFÉLÖGUNUM:
Akureyrarbær 16.450
Arnarneshreppur 183
Eyjafjarðarsveit 993
Dalvíkurbyggð 1.946
Grýtubakkahreppur 393
Hörgárbyggð 390
Ólafsfjarðarbær 980
Siglufjarðarkaupstaður 1.386
Svalbarðsstrandarhreppur 365
Samtals: 23.086
Heimild: Hagstofa Íslands.
Tölur frá 1. desember 2004
Í RÉTTARSAL Í GÆR Sveinn Andri Sveins-
son var einn lögmanna sem fóru fram á
frávísun framhaldsákæru sem lögð var
fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, eftir
að tilskilinn frestur til þess var út runninn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A