Fréttablaðið - 06.09.2005, Blaðsíða 23
5ÞRIÐJUDAGUR 6. september 2005
„Í stangarstökki reynir mikið á liðina.
Ég hef lengi verið með brjóskvandamál
í baki og verki í puttum. Ég finn alveg
gríðarlegan mun á mér þegar ég tek
inn Lið-Aktín en þá hverfa þrautirnar.
Nú nota ég Lið-Aktín að staðaldri til að
viðhalda heilbrigðum liðum og koma
í veg fyrir slit. Lið-Aktín gerir mér kleift
að stunda íþróttir af fullum krafti,
þrautalaust“
ÞÓREY EDDA
Norðurlandamethafi í stangarstökki
K
R
A
F
T
A
V
E
R
K
„Lid-Aktín gerir mér kleift ad
stunda ítrótt mína af fullum
krafti, laus vid trautir“
K
R
A
F
T
A
V
E
R
K
SÖLVI GEFUR GÓÐ RÁÐ
Hið „ljúfa“ líf?
Sófakartöflur?
Það er ljúft að liggja í sófanum
heima og hafa allan heiminn í
kassa fyrir framan sig, þjóta
heimshorna á milli með hraða
ljóssins, með því einu að þrýsta
á hnapp. Fylgjast með öllu
amstrinu í kringum sig, árangri
annarra í íþróttum og fleiru. Það
er gott að borða, ýmiss konar
„snarla“ meðan maður horfir á
sjónvarpið. Mörgum finnst
„toppurinn“ að teygja sig eftir
bjórnum og snakkinu og njóta
sælunnar sem fylgir þessu letilífi.
Þungur, þyngri...
Með árunum verður hins vegar
alltaf erfiðara og erfiðara að rísa
upp úr sófanum eftir meiri
birgðum eða til þess að losa sig
við þær. Það gerist einfaldlega
vegna þess að „birgðirnar“ hafa
tilhneigingu til þess að setjast
utan á okkur og safnast fyrir í
líkamanum með tímanum.
Kominn tími á breytingar?
Það er lítil lífsfylling í því að
fylgjast með árangri annarra, í
það minnsta minni en að ná ár-
angri sjálfur, og óhjákvæmilega
leitar sú hugsun á mann hvort
ekki sé kominn tími til að gera
eitthvað í sínum málum. Jafnvel
vinna eigin sigra, sigrast á kyrr-
setulífinu og ört vaxandi fyrirferð
eigin líkama. Hvernig væri að
fara að rækta eigin líkama og
sál?
Heilsan
Samkvæmt minni reynslu sem
heilsuráðgjafi, sem spannar nú
vel rúman áratug, má segja að
flestir, sem eru ekki þegar byrj-
aðir að rækta líkama og sál, séu
einungis að bíða eftir ástæðu og
tækifæri til þess að byrja. Það er
margt sem vinnur á móti okkur.
Eitt af því sem við óttumst hvað
mest í lífinu, er að standast ekki
raunina, hver svo sem hún er, og
þess vegna finnst okkur oft bet-
ur heima setið en af stað farið.
Þannig eru flest áramótaheitin
nú gleymd og grafin og sömu
leið fór hjá mörgum að hefja lík-
amsræktarátak og betra líf, ekki
satt?
En hvað ef það væri til leið sem
því sem næst tryggir árangur í
líkamsrækt? Sú leið er reyndar til
og mun ég fjalla um hana og
ýmsar aðferðir til að ná há-
marksárangri í næstu pistlum
mínum.
Sjáumst í næstu viku!
Sölvi Fannar Viðarsson
Er framkvæmdastjóri Heilsuráðgjaf-
ar. Hann hefur starfað við einka-
þjálfun og heilsuráðgjöf um árabil.
Vikuna 23. til 30. október býður
Heilsustofnun NLFÍ upp á nám-
skeið gegn reykingum. Rann-
sóknir hafa sýnt að hreyfing,
fræðsla, umræður, slökun og
útivist hefur jákvæð áhrif á fólk
og hjálpar því í baráttunni við
tóbaksdjöfulinn. Heilsustofnunin
býður upp á dvöl í friðsælu um-
hverfi fjarri hversdagslegum
vandamálum svo fólk geti ein-
beitt sér að því að losna við
fíknina í eitt skipti fyrir öll. Í
stofnuninni er boðið upp á alls
konar heilsustyrkjandi meðferð.
Frekari upplýsingar eru á heima-
síðu Heilsustofnunarinnar
www.hnlfi.is.
Hættu að reykja
HEILSUSTOFNUNIN Í HVERAGERÐI BÝÐUR UPP Á NÁMSKEIÐ Í FALLEGU UMHVERFI.
Heilsustofnunin hefur sérhæft sig í vatns-
meðferð.
Því hefur oft verið haldið fram að
streita minnki líkur á þungun. Oft
er sagt að konur sem reyni án ár-
angurs að eignast börn séu bara
of stressaðar og þeim sagt að um
leið og þær slaki á þá hljóti þetta
að koma. Málið er hins vegar ekki
svo einfalt og nú hefur ný sænsk
rannsókn leitt í ljós að streita hef-
ur lítil áhrif á frjósemina.
Tvær ljósmæður við Sa-
hlgrenska-háskólasjúkrahúsið í
Gautaborg unnu að rannsókninni.
Þær fylgdu eftir 166 konum sem
voru að reyna að eignast börn
með tæknifrjóvgun. Streita
kvennanna var mæld í upphafi
meðferðar og einnig eftir að
henni lauk. Frjóvguðu eggi var
komið fyrir í legi 139 kvenna og
þar af urðu 58 þungaðar. Streita
virtist engin áhrif hafa og þær
konur sem mældust stressaðar
áttu alveg jafn miklar líkur á að
verða þungaðar eins og þær ró-
legu.
Þessar niðurstöður eru fróð-
legar fyrir þau pör sem eiga í
erfiðleikum með að eignast börn
og hafa tengt ófrjósemina við
streitu og vinnuálag.
Streita minnkar ekki
líkur á flungun
Konur sem þjást af streitu eiga jafn mikla möguleika á að
verða þungaðar.