Fréttablaðið - 06.09.2005, Síða 49
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
KIA umboðið á Ís landi er í e igu Heklu hf . Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5000
Fullbúinn alvörujeppi á aðeins
3.175.000 kr.
KIA Sorento er frábær jeppi byggður á grind
með aflmikilli 140 hestafla turbo dísilvél, háu og
lágu drifi og 5 þrepa sjálfskiptingu. Auk þess
ríkulega búinn með ABS hemlakerfi, hraðastilli,
tvískiptum afturhlera, álfelgum, þakboga og mörgu
fleiru. Þetta er jeppi sem þú verður að prófa.
KIA er sá bílaframleiðandi sem er í mestum vexti í
heiminum í dag. Það er ekkert skrítið þegar hægt
er að bjóða þessi gæði á svona verði.
KIA fer fram úr helstu bílaframleiðendum heimsins
Í nýrri gæðakönnun JD Power varð KIA Sorento sigurvegari
í flokki aldrifsbíla og sá eini sem fékk 5 stjörnur.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
4
0
5
3
BAKÞANKAR
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
Tilkynningar
og tilfinningar
Auglýsingar lýsa tíðaranda oggeta sagt svo ótal margt um
ástand og líðan þjóðar hverju
sinni. Þannig gleymist hún seint
tilkynningin sem birtist sjón-
varpsáhorfendum á áttunda ára-
tugnum um að auminginn hún
Alda væri loks hætt að þvo í hönd-
unum með bretti – hún hefði verið
leyst af hólmi með forláta þvotta-
vél með sama nafni. Skammt er
liðið frá því súkkulaðisjúki gæinn
lét sig dreyma um risavaxnar,
berrassaðar og olíubornar ljóskur.
Einhverjar auglýsingar hitta okk-
ur beint í hjartastað og aðrar kitla
hláturtaugarnar.
VIRÐULEGUR og heimilislegur
þulur las eitt sinn á góðu Gufunni:
Pallíettujakkar, pallíettujakkar,
tveggja tonna pallíettujakkar? Hik
kom á þulinn og þögn ríkti í örfá-
ar sekúndur, en svo tók hann til
máls á ný: Þulur les þetta aftur.
Pallettutjakkar, Pallettutjakkar,
tveggja tonna pallettutjakkar,
sagði hann svo með bros í rödd-
inni.
Og einhvern veginn svona hljóm-
uðu útvarpsauglýsingar á öldum
ljósvakans nú fyrir helgina: Ör-
yrkjar, öryrkjar! Astmalyfin
ókeypis í dag. Meðöl og máttur.
Ellilífeyrisþegar, ellilífeyrisþegar!
Astmalyfin ókeypis í dag. Meðöl
og máttur. Lyfseðilsskyld lyf hef-
ur hingað til ekki mátt auglýsa
fyrir almenning og astmalyf ku jú
vera lyfseðilsskyld. Þarna má því
ef til vill skynja breyttar áherslur.
NÚ ER um að gera að vera vak-
andi og leggja við hlustir ef mað-
ur er sjúklingur því hver vill
missa af ókeypis lyfjum sem þarf
á þeim að halda alla sína ævidaga?
Hver veit nema þessi markaðs-
setning nái nýjum hæðum. Þá má
ef til vill heyra auglýsingar á
þessum nótum: Krakkaormar,
krakkaormar! Hegðunarlyfin
ókeypis í dag. Meðöl og máttur.
Exemsjúklingar, exemsjúklingar!
Sterakremin ókeypis í dag. Meðöl
og máttur. Hjartveikir,hjartveikir!
Sprengitöflur ókeypis í dag, Meðöl
og máttur. Þunglyndir, þunglynd-
ir! Ókeypis gleðipillur, aðeins í
dag. Meðöl og máttur.
EINHVERJIR munu áreiðanlega
hlusta grannt eftir tilkynningum
um ókeypis lyf á næstunni. Það
munar um minna þar sem lyf á
landinu bláa eru ekki þau ódýr-
ustu í álfunni. Stöku lyfsalar virð-
ast fikra sig út á sama hála ísinn
og áfengissalar og geta þeir nú
leiðst hönd í hönd á ótryggri ís-
breiðunni. ■