Fréttablaðið - 06.09.2005, Page 38

Fréttablaðið - 06.09.2005, Page 38
6. september 2005 ÞRIÐJUDAGUR Á erfitt með að ákveða mig hvort betra sé að taka strætó eða eiga bíl. Bíllinn krefst fer- lega mikilla út- gjalda af minni hálfu og þykir mér það aldrei góð tíð- indi. Sérstaklega þegar pen- ingunum sem fara í bensín gæti verið eytt í aðra þarfa hluti eins og ný föt. Hins vegar á ég ósköp erfitt með að sætta mig við strætókerfið. Hélt það hefði breyst til hins betra nú þegar stundum er hægt að taka strætó á tíu mínútna fresti. En nei það er víst ekkert hægt að stóla á það því voða fáir vilja vera strætóbíl- stjórar í dag. Um daginn beið ég í hálftíma eftir strætó sem átti að koma á tíu mínútna fresti. Var ekkert sérlega glöð. Á hinn bóginn myndi ég sleppa við að fara á verkstæði með bílinn ef ég sem sagt ætti engan bíl og tæki strætó. Þegar ég hugsa til þess að fara á verkstæði þá fæ ég sama hroll og þegar ég hugsa um að fara á spítala eða til tannlækn- is. Allir þessir karlar sem eru að skoða bílinn og tala við mann eins og maður sé algjör kjáni. Svo segja þeir stórkarlalega: „Heyrðu hann er bara bilaður, þú verður að láta tékka á honum reglulega!“ Horfa á mig með ásakandi augnaráði og allt í einu líður mér eins og ég sé komin aftur í leikskóla og fóstran sé að skamma mig fyrir að krota á borð- ið. Eins og manni finnist ekki nógu leiðinlegt að bíllinn sé bilað- ur. Svo fara þeir að hlæja þegar ég segist ekki vita hvað spindil- kúlur eru. Leiðinlegu karlar. Sem sagt eina leiðin til þess að ég geti sleppt því að fara og hitta verkstæðiskarla í nánustu fram- tíð er að ég taki strætó og sætti mig við strætókerfið. Þá sem sagt á ég meiri pening, þarf ekki að fara á verkstæði, þarf ekki að vera stressuð í umferðinni og ekki að hafa áhyggjur af nagladekkj- um, olíu, vatnstanki, spindilkúlum og fleira álíka óáhugaverðu. Best að fara að kaupa rauða kortið. Og föt. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA BORGHILDUR GUNNARSDÓTTIR ÆTLAR AÐ FARA Í STRÆTÓ. Verkstæðiskarlar vs. strætókerfið M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli 5 7 2 1 9 8 6 5 3 6 4 9 2 8 1 7 4 7 2 6 5 1 4 7 3 7 2 3 6 1 5 4 8 4 9 8 6 ■ SUDOKU DAGSINS Fylltu út í reitina þannig að hver lína, hver dálkur og hver 3x3 kassi rúmi allar tölurnar á bilinu 1 til 9. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar sinnum í sömu línu, sama dálki eða sama 3x3 kassa. Engin stærðfræðikunnátta er nauðsynleg þó leikið sé með tölum. Þrautin er leyst með rökhugsun og útsjónarsemi. Lausnir, ráðleggingar og upplýsingar eru á www.sudoku.com. Lausn þrautarinnar birtist á sama stað í blað- inu á morgun. Lausn á gátu gærdagsins Verkefnið er pottþéttara en pottlok! Bílhurð opnuð, hand- bremsa niður, flytja bíl frá brunahana, forða vandræðum, gera bílaeiganda glaðan. Ég fer inn! Og bílhurðin er byggð á svo sniðugan hátt að hún sprettur upp þegar hún kemst í snertingu við lítinn stálstreng. .....eða við múr- stein! Fikti! Poti! Skrúfi! Hristi! Skrapi! Fikti! Ýti! Fikti! Poti! Skrúfi! Hristi! Skrapi! Fikti! Ýti! Ohh nei!! Ekki enn eitt bréfið frá Önnu!! Hefurðu fengið fleiri? Fleiri?? Sjáðu bara hérna! Kvöld eftir kvöld opnar hún hjarta sitt og eys yfir mig tilfinningum sínum og draumum. Af hverju að eyða þeim í þig? Einmitt, og tárin á pappírnum gera það að verkum að mjög erfitt er að lesa bréfin! Ég elþþka Jarðardaginn! Mamma, er þetta orð? ÍÍÍÍÍÍÍP!! Ah....uu....ehh....uuu....n ei. Þetta er ekki orð. Ó, allt í lagi. Sko, ég sagði þér að stafir gætu verið skemmtilegir!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.