Fréttablaðið - 06.09.2005, Side 46
34 6. september 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Banda-ríska
söngkonan
Patti
Smith, sem
heldur tón-
leika á
Nasa í
kvöld, hef-
ur tekið
ástfóstri við land og þjóð síðan hún
kom í fyrrakvöld. Hún ákvað að fara
í Bláa lónið í gær eftir að tónlistar-
maðurinn Lou Reed hafði gefið
staðnum bestu meðmæli. Sagði
hann Patti að lónið væri besti stað-
ur í heimi og að allir sem í það færu
myndu yngjast um tíu ár. Patti skoð-
aði sig einnig um í miðbænum og
lýsti skömmu síðar yfir miklum
áhuga á að kaupa þar hús.
Söngvarinn Joe Cocker, sem héltvel heppnaða tónleika í Laugar-
dalshöll á dögunum, hafði einka-
kokk með í förinni hingað til lands.
Cocker borðar spaghetti bolognese
fyrir hverja tónleika og treystir
greinilega engum öðrum til þess að
matreiða þessa orku-
ríku máltíð á rétt-
an hátt en sín-
um eigin kokki.
Miðað við kraft-
inn í Cocker í
Höllinni er
ljóst að kokk-
urinn vann
fyllilega fyrir
kaupinu sínu.
Nú styttist í að tökum ljúki á stór-mynd Clints Eastwood, Flags of
Our Fathers, hér á landi. Eastwood
og félagar eru hæstánægðir með
land og þjóð. Helst hafa tæknimenn
myndarinnar kvartað yfir breytileg-
um vindi á tökustað en annars hafa
menn verið mjög sáttir. Þriðjungur
myndarinnar er tek-
inn upp hér á
landi, sem er mun
stærri hluti en hef-
ur verið notað-
ur í flestum
öðrum mynd-
um sem hafa
verið teknar
upp hérlendis,
þar á meðal
Batman Begins
og Tomb
Raider.
Lárétt: 2 land, 6 í röð, 8 keyra, 9 traust,
11 kringum, 12 fémunir, 14 samfestingur,
16 einnig, 17 gæfa, 18 óðagot,
20 ónefndur, 21 þjappa.
Lóðrétt: 1 rífa upp með rótum,
3 samtök, 4 lán á himinháum vöxtum,
5 forskeyti, 7 traustur, 10 háma, 13 hár,
15 heimili, 16 margsinnis, 19 dýrahljóð.
Lausn
Lárétt: 2Laos,6æö,8aka,9trú,11um,
12auður, 14galli,16og,17lán,18fum,
20nn,21treð.
Lóðrétt: 1ræta,3aa,4okurlán,5sam,
7öruggur, 10úða,13ull,15inni,16oft,
19me.
Mannræninginn Axel
Hasshaus
að sögn
bróður hans
Vitlaust eintak af kvikmyndinni
Strákarnir okkar hefur verið not-
að til sýninga á myndinni hérlend-
is síðan hún var frumsýnd síðast-
liðinn föstudag.
Að sögn Róberts Douglas, leik-
stjóra Strákanna okkar, varð hann
að fara með þetta eintak í umferð,
því ellegar hefði hann þurft að
seinka frumsýningu myndarinnar
um mánuð. Hefði það komið sér
afar illa, sérstaklega vegna aug-
lýsingaherferðar sem hafði verið
í gangi. „Þetta var klikk hjá þeim
í London sem gera eftirvinnsl-
una,“ segir Róbert. „Englendingar
neita að vinna um helgar og hefðu
getað náð réttu eintaki á laugar-
deginum. Þeir voru bara búnir að
litgreina tvo kafla í myndinni og
voru ekki búnir með hljóðvinnsl-
una, þannig að á fyrstu fimmtán
mínútunum eru vandræði með
hljóðið. Síðan týndu þeir tveimur
atriðum og myndin var líka of
dökk. En núna eru allir þessi
punktar komnir í lag og rétta ein-
takið verður sýnt á morgun [í
dag],“ segir Róbert, sem vissi
ekki af vandræðunum með hljóð-
ið fyrr en hann sá myndina á
frumsýningu í Háskólabíói.
„Hefðum við vitað nákvæmlega
hvernig þetta eintak var hefðum
við líklega boðið gagnrýnendum
seinna á sýninguna því það er
stór munur á fyrsta eintakinu og
þessu nýja, sérstaklega í hljóð- og
myndvinnslu. En maður getur
víst ekki annað gert en að segja
fall er fararheill.“
Vitlaust eintak af Strákunum okkar
STRÁKARNIR OKKAR Kvikmynd Róberts Douglas, Strákarnir okkar, var frumsýnd síðast-
liðinn föstudag.
Félagarnir úr Spaugstofunni, Sig-
urður Sigurjónsson, Karl Ágúst
Úlfsson og Örn Árnason, ætla 1.
október að fara af stað með sýn-
inguna Efst á spaugi í Súlnasal
Hótel Sögu.
Um verður að ræða klukku-
tíma langa skemmtidagskrá þar
sem gestir geta snætt þríréttaða
kvöldmáltíð og farið síðan á dans-
leik með hljómsveitinni Saga
Class.
„Við höfum ekki verið með
svona sýningu í töluverðan tíma,“
segir Örn Árnason. „Við vorum
með kabaretta í Súlnasalnum
sem lögðust af um tíma. Núna
hafa hlutirnir þróast svo mikið að
sum fyrirtæki eru orðin svo stór
að það er erfitt að fá inni fyrir
smærri fyrirtæki. Þannig að við
ákváðum að reyna að búa til góða
stemningu fyrir þessa smærri
hópa í notalegu umhverfi. Þetta
verður góður og gamaldags
kabarett með gleðilegri dagskrá
fyrir góða Íslendinga.“
Örn tók síðast þátt í kabarett
sem þessum undir lok tíunda ára-
tugarins ásamt Karli Ágústi og
Ladda, en lengra er síðan Sigurð-
ur spreytti sig á svona löguðu.
Að sögn Arnar mun Efst á spaugi
reyna að spegla samtímann að
einhverju leyti, rétt eins og
Spaugstofan hefur gert í gegnum
árin. „Það hafa komið ýmsar
hugmyndir, meðal annars að nota
persónur úr Spaugstofunni, en
við eigum eftir að vinsa úr þeim.
Síðan er ein hugmynd að nota
vídeótökuvél í salnum eins og er
gert í beinum útsendingum í
sjónvarpinu,“ segir hann. „Við
ætlum að nota fólk í salnum, því
maður er manns gaman. Við ætl-
um að fá fólk með okkur því við
viljum fyrst og fremst að fólk
skemmti sér.“
Örn játar að þetta verði
spennandi verkefni og skemmti-
leg tilbreyting. „Þetta er gjör-
ólíkt því sem við erum að gera í
sjónvarpi og leikhúsi. Ef þetta
virkar ekki færðu að vita það
strax. Þú þarft ekki að bíða eftir
því að fá einhverja gagnrýni í
fjölmiðlum.“
Þess má geta að 17. september
hefst Spaugstofan á nýjan leik í
Ríkissjónvarpinu, væntanlega
við mikinn fögnuð fjölmargra
Íslendinga. freyr@frettabladid.is
EFST Á SPAUGI Sigurður Sigurjónsson, Karl Ágúst Úlfsson og Örn Árnason ætla að skemmta landsmönnum í Súlnasal Hótels Sögu.
KABARETTINN EFST Á SPAUGI: HEFST Í SÚLNASALNUM 1. OKTÓBER
Dagskrá fyrir góða Íslendinga
SEM ER?
SimPC er micro PC-tölva
sem er á stærð við venju-
lega vídeóspólu. Það er
hægt að nota internetið,
senda tölvupóst, það má
fara inn á netbanka,
koma myndum af staf-
rænni myndavél yfir á
tölvuna og prenta þær út.
Það er einnig hægt að
hringja í gegnum netið,
horfa á myndir, hlusta á
tónlist og spila leiki.
Nánari uppl‡singar er a›
finna á www.simpc.com
...fær Magga Stína fyrir að taka
það verkefni að sér að skemmta
þjóðinni á laugardagskvöldum í
vetur.
HRÓSIÐ
DÓTAKASSINN
Örsmá en kná
SIMPC SMÁTÖLVA
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5 FRÉTTIR AF FÓLKI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
RÍ
M
U
R
B
JA
R
N
AS
O
N
GALLAR?
Það er ekki hægt að brenna geisladiska eða dvd-diska á þessari
tölvu og það er ekki hægt að setja upp forrit í tölvunni upp á eig-
in spýtur. Það er einnig frekar flókið að laga til myndir á þessari
litlu tölvu.
KOSTIR?
Tölvan er auðveld í notkun vegna þess hve lítil hún er. Hún er
samt sem áður örugg og laus við vandamál af flestu tagi. Hún er
hljóðlát og notar litla orku. Líklega er þessi tölva góð fyrir ömmu
gömlu sem þarf ekki að kljást við flóknar aðgerðir. Að öðru leyti
munu líklega flestir þurfa á öflugri PC-tölvu að halda. Þær eru til
betri á markaðnum en þessi. SimPC kostar um 30 þúsund krónur.