Fréttablaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 72
Bæ›i karlali› Njar›víkur og kvennali› Keflavíkur vör›u titla sína er flau ur›u
meistarar meistaranna í Keflavík í gær. Stúlkurnar fóru heldur létt me› bikar-
meistara Hauka en Njar›vík haf›i betur gegn heimamönnum hjá körlunum.
Glæsilegur sigur Njarðvíkur
KÖRFUBOLTI Njarðvík varði titil
sinn í Meistarakeppninni í
körfuknattleik karla er liðið sigr-
aði Keflavík 94-79 á heimavelli
Keflvíkinga. Heimamenn byrjuðu
betur og komust í 14–4 en Njarð-
víkingar voru komnir yfir fyrir
lok fyrsta leikhluta, 18–22. Liðin
áttu bæði góða spretti í öðrum
leikhluta og Njarðvíkingar áttu
aftur góðan sprett og komust fjór-
um stigum yfir í hálfleik, 46–42.
Keflvíkingar áttu í fullu tré við
Njarðvíkinga í þriðja leikhlutan-
um þrátt fyrir villuvandræði og
aftur skildi fjögur stig liðin að
fyrir síðasta leikhlutann. Njarð-
víkingar kláruðu svo leikinn í
fjórða leikhluta. Jeb Ivey var allt
í öllu hjá Njarðvík og skoraði 33
stig og átti fimm stoðsendingar,
tók átta fráköst og hitti úr fimmt-
án af sextán vítum sínum. Friðrik
Stefánsson skoraði fimmtán stig
fyrir Njarðvík og var erfiður við
að eiga undir körfunni. Risinn
Egill Jónasson átti þá góða spretti
og skoraði þrettán stig og var með
átta varin skot auk þess sem hann
átti tvær eftirminnilegar troðslur
í fjórða leikhluta.
Hjá Keflavík var Magnús
Gunnarsson góður með 20 stig og
7 stoðsendingar. Makedóníu-
maðurinn í liði Keflavíkur var
ekki kominn með leikheimild og
gat því ekki verið með. Jón Norð-
dal Hafsteinsson meiddist í upp-
hafi síðari hálfleiks.
Auðvelt hjá Keflavíkurstúlkum
Kvennalið Keflavíkur sendi sterk
skilaboð til hinna liðanna í deild-
inni með mjög öruggum og sann-
færandi sigri á bikarmeisturum
Hauka í úrslitaleik Meistara-
keppni kvenna. Hafnfirðingar
voru án fyrirliða síns, Helenu
Sverrisdóttur, og áttu Haukar
ekkert svar við stífri pressuvörn
Keflavíkur. Keflavík stal alls 29
boltum af Haukaliðinu í leiknum
og var duglegt að refsa fyrir mis-
tök bikarmeistaranna, sérstak-
lega í fyrri hálfleik. Ótrúleg
breidd er komin í Keflavíkurliðið
og er erfitt að sjá hvort eitthvert
lið standist þeim snúning á Ís-
landsmótinu.
LEIKIR GÆRDAGSINS
Meistarakeppni KSÍ:
KEFLAVÍK–HAUKAR 76–47
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 15,
Reshea Bristol 14 (stal 13 boltum, 6 stoðs.),
María Erlingsdóttir 10 (7 frák.), Anna María
Sveinsdóttir 8 (8 frák.), Rannveig
Randversdóttir 8, Ingibjörg Vilbergsdóttir 7,
Svava Stefánsdóttir 4, Margrét Sturludóttir 4,
Bryndís Guðmundsdóttir 2, Birna
Guðmundsdóttir 2, Halldóra Andrésdóttir 2.
Stig Hauka: Kesha Tardy 14 (20 frák.), Pálína
Gunnlaugsdóttir 12, Ragnheiður
Theodórsdóttir 9, Sara Pálmadóttir 6,
Kristrún Sigurjónsdóttir 4, Eva Ólafsdóttir 2.
KEFLAVÍK–NJARÐVÍK 79–94
Stig Keflavíkur: Magnús Þór Gunnarsson 20
(7 stoðs.), Arnar Freyr Jónsson 16 (5 stoðs),
Jason Kalsow 14 (11 frák.), Gunnar
Einarsson 7, Elentínus Margeirsson 5, Halldór
Halldórsson 5, Gunnar Stefánsson 5, Davíð
Þór Jónsson 3, Jón Norðdal Hafsteinsson 2,
Þröstur Jóhannsson 2.
Stig Njarðvík: Jeb Ivey 33 (8 frák., 5 stoðs.),
Friðrik Stefánsson 15 (8 frák.), Egill Jónasson
13 (8 varin), Brenton Birmingham 12,
Jóhann Árni Ólafsson 12 (9 frák.), Kristján
Sigurðsson 6, Örvar Þór Kristjánsson 2,
Guðmundur Jónsson 1 (7 stoðs.).
Haukar töpuðu sínum öðrum leik í röð í Meistaradeild Evrópu í gær:
HANDBOLTI Haukar úr Hafnar-
firði steinlágu í gær fyrir sló-
venska liðinu Gorenje Velenje
ytra, 38–25, í Meistaradeild
Evrópu í handbolta. Haukar
spiluðu ágætlega í fyrri hálf-
leik og voru fimm mörkum
undir í hálfleik en slóvensku
meistararnir gengu á lagið síð-
ustu tíu mínúturnar og hrein-
lega keyrðu yfir Íslandsmeist-
arana.
Þjálfari slóvenska liðsins er
enginn annar en Lars Walter
sem lék á sínum tíma með KA-
mönnum hér á landi og greini-
legt að hann er að standa sig
vel með Slóvenanna.
Páll Ólafsson, þjálfari
Hauka, var allt annað en sáttur
að leik loknum. „Við töpuðum
þessu of stórt. Þeir náðu að tína
af okkur eitt og eitt mark í
leiknum en gengu svo frá okk-
ur síðustu tíu mínúturnar. Við
bjuggumst svo sem ekki við
sigri hér en ætluðum svo sann-
arlega ekki að tapa svo stórt.
Upphaflegt markmið okkar var
þriðja sætið en við erum engu
síður ekkert búnir að gefa upp
vonina um annað sætið,“ sagði
Páll, þjálfari Hafnfirðinganna.
Haukar taka á móti Torggler
Group Meran frá Ítalíu á
sunnudaginn kemur í leik sem
Haukarnir verða að vinna ætli
þeir sér þriðja sætið í riðlinum
í það minnsta.
firettán marka tap Hauka í Slóveníu
KAPPAKSTUR Það voru Frakkar
sem báru sigur úr býtum í A1
kappakstrinum sem fram fór á
Lausitzring í Þýskalandi í gær.
Nicolas Lapierre var maður
dagsins en hann vann bæði í
hraðakeppninni og í sjálfum
kappakstrinum. Lapierre var í
forystu allt frá byrjun en það
var Robbie Kerr frá Bretlandi
sem náði öðru sætinu. Kerr var í
24. sæti að lokinni hraðakeppn-
inni en setti þá allt á fullt og
hirti á endanum silfrið.
„Ég lenti í árekstri í hraða-
keppninni og því má með sanni
segja að úrslitin hafi verið ótrú-
leg. Ég held að sú ákvörðun okk-
ar að taka þjónustuhlé snemma
hafi gert gæfumuninn,“ sagði
Kerr að loknum kappakstrinum.
Brasilíumenn eru sem stendur í
efsta sæti í heildarkeppninni
með 30 stig en Frakkar og Ný-
Sjálendingar koma næstir á
eftir með 29 þegar tveimur
keppnum af tólf er lokið.
Næsta keppni fer fram í Portú-
gal eftir tvær vikur en hún er sú
síðasta sem fram fer í Evrópu.
Tvöfaldur franskur sigur
10. október 2005 MÁNUDAGUR
50% afsláttur
af öllum tækjum.
Rýmum fyrir nýjum vörum.
50% afsláttur af eldri vörum
Erotica Shop • Hverfisgata 82
Sven-Göran Eriksson landsliðsþjálfari Englands:
Vi› getum vel or›i› heimsmeistarar
FÓTBOLTI Sven-Göran Eriksson,
landsliðsþjálfari Englands, segir
að liðið geti vel orðið heimsmeist-
ari í Þýskalandi ef það verður
heppið með meiðsli lykilmanna.
Enska landsliðið tryggði sér far-
seðilinn til Þýskalands um helg-
ina eftir að Holland bar sigurorð
af Tékklandi. „Við erum með
rosalega sterkt lið og ég er nánast
sannfærður um að keppnin verði
mjög góð fyrir okkur. Við erum
eitt af fjórum
til fimm liðum
sem geta unnið
mótið á næsta
ári og getum
vel gert það ef
við missum
ekki lykilmenn
í meiðsli,“ sagði
Eriksson.
England hef-
ur ekki verið að
spila neitt mjög sannfærandi í
undankeppninni en á laugardag-
inn vann liðið nauman 1-0 sigur á
Austurríki. „Við unnum vel sam-
an sem lið, vörðumst vel og áttum
nokkrar mjög góðar sóknir. Ég
veit það vel að við getum spilað
betri fótbolta. Markmiðið var að
komast í lokakeppnina og nú hef-
ur það markmið náðst þannig að
ég er mjög ánægður,“ sagði
Eriksson.
Nicolas Lapierre sigraði í A1 í Þýskalandi:
SVEN-GÖRAN
ERIKSSON Bjartsýnn
landsliðsþjálfari.
BIKARINN Á LOFTI Brenton Birmingham fylgist með þegar Halldór Karlsson lyftir hér
bikarnum sem Njarðvík fékk fyrir sigurinn á Keflavík í gær. VÍKURFRÉTTIR/HILMAR