Fréttablaðið - 10.10.2005, Page 75
23
William Gallas, varnarmaðurChelsea, tilkynnti það um helg-
ina að hann væri líklega á förum frá
félaginu næsta
sumar. Hann hefur
verið sex ár hjá
Chelsea og segir að
það sé kominn tími
til að reyna fyrir sér
hjá nýju liði. Vitað
er að Gallas er óá-
nægður með laun
sín hjá félaginu og þá er hann ekki
sáttur við hve mikið hann hefur
þurft að spila í bakverðinum á
meðan hann vill helst leika mið-
vörð. Heyrst hefur að óskalið Gallas
sé ítalska stórliðið AC Milan.
Steven Gerrard, miðjumaður Liver-pool, leikur ekki með enska
landsliðinu gegn Póllandi á mið-
vikudag vegna
meiðsla sem hann
hlaut gegn Austur-
ríki um helgina.
Hann mun ekkert
spila næstu tvær til
þrjár vikurnar og
missir m.a. af útileik
Liverpool gegn
Anderlecht í Meistaradeild Evrópu.
Enska landsliðið verður einnig án
fyrirliða síns Davids Beckham gegn
Póllandi og varnarmannsins Sol
Campbell sem á við meiðsli að
stríða.
Þýska liðið Bayer Leverkusen hef-ur ráðið nýjan þjálfara til liðsins
en það er Michael Skibbe. Hann er
fertugur að aldri og var aðstoðar-
þjálfari þýska landsliðsins þegar
Rudi Völler var við stjórnvölinn þar.
Völler starfar nú sem yfirmaður
íþróttamála hjá Leverkusen. Skibbe
var yngsti þjálfarinn í sögu þýsku
úrvalsdeildarinnar þegar hann tók
að sér þjálfun Borussia Dortmund
árið 1998.
Luca Toni, sóknarmaður Fiorent-ina, fékk óblíðar móttökur með
landsliði Ítalíu sem vann 1-0 sigur á
Slóveníu í undankeppni HM á laug-
ardag. Toni er fyrr-
um leikmaður Pal-
ermo og fór leikur-
inn á laugardaginn
fram á Stadio Bar-
bera sem er heima-
völlur liðsins. Áhorf-
endur létu öllum ill-
um látum og pú-
uðu í hvert skipti sem hann kom
við knöttinn. Toni gat illa höndlað
viðbrögð áhorfenda og náði sér
aldrei á strik í leiknum.
Þýska liðið Borussia Dortmund villfá sænska framherjann Henrik
Larsson lánaðan frá Barcelona þar
sem Jan Köller er meiddur á hné og
leikur ekkert næstu átta mánuðina.
Larsson er 34 ára og vill víst skoða
það að koma til
Dortmund á láns-
samningi í janúar
og undirbúa sig
undir HM í Þýska-
landi með því að
vera fastamaður
hjá liðinu frekar en
að verma tréverkið
hjá Barcelona þar sem samkeppnin
er hörð. Larsson missti af öllu síð-
asta tímabili vegna meiðsla og hef-
ur aðeins komið við sögu í fjórum
leikjum á þessari leiktíð.
Pólska tröllið Mariusz Pudzi-anowski tryggði sér titilinn
Sterkasti maður heims aðfaranótt
sunnudags en keppnin fór fram í
Chengdu í Kína. Í öðru sæti hafnaði
Jessie Marunde og Dominic Filiou
varð þriðji. Pudzianowski hlaut
samanlagt um 140.000 dollara í
verðlaun fyrir sigurinn. Kristinn Ósk-
ar Haraldsson fékk ekki að spreyta
sig í lokakeppninni, en hann var
fyrsti varamaður inn eftir að hafa
staðið sig vel í undankeppninni.
Malmö FF, lið Ásthildar Helga-dóttur, gerði í gær 1-1 jafntefli
gegn Hammarby í sænsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu kvenna.
Umeå hefur nú
fimm stiga forskot í
deildinni en Malmö
er í öðru sæti.
Umeå er komið
með aðra höndina
og rúmlega það á
meistaratitilinn en
aðeins tvær um-
ferðir eru eftir. Umeå burstaði
Djurgården/Älvsjö 7-0 í gær. Mall-
backen, lið Erlu Steinu Arnardóttir,
tapaði fyrir Qbik, 0-1, og er í níunda
sæti í deildinni.
ÚR SPORTINU
Næstsíðasta keppni tímabilsins í Formúlu 1 fór fram um helgina:
Kimi Räikkönen var frábær í Japan
FORMÚLA 1 Finninn Kimi
Räikkönen kom fyrstur í mark á
McLaren bíl sínum í keppni helg-
arinnar í Formúlu 1 kappakstrin-
um sem fram fór í Japan. Keppn-
in var bráðskemmtileg og fjörug
og lofar góðu fyrir síðustu keppni
tímabilsins sem verður í Kína um
næstu helgi. „Þetta var rosalega
erfið keppni en ég náði mér vel á
strik og hef ekki átt betri akstur
svo ég muni í Formúlu 1. Ég þurfti
svo sannarlega að hafa fyrir
sigrinum en það er oft bara betra
þegar maður þarf að leggja sig
allan fram,“ sagði Räikkönen en
hann tryggði sér sigurinn á loka-
hring með því að taka fram úr Gi-
ancarlo Fisichella, ökumanni
Renault, á ævintýralegan hátt.
„Ég réð einfaldlega ekki við
hraða Räikkönen, ég vissi af hon-
um fyrir aftan mig allan tímann
og gerði það sem ég gat til að
hindra því að hann næði að kom-
ast fram úr en því miður tókst það
ekki. Þetta var ótrúlega erfið
keppni,“ sagði Fisichella. Juan
Pablo Montoya, félagi Räikkönen
hjá McLaren, keyrði út af braut í
fyrsta hringnum og dæmdu dóm-
ararnir að það hefði verið Jacques
Villeneuve að kenna en hann held-
ur samt fram sakleysi sínu.
Montoya segir að þarna hafi Ville-
neuve kostað McLaren fyrsta og
annað sætið í kappakstrinum. Það
mun ráðast í lokakeppninni hverj-
ir standa uppi sem sigurvegarar í
keppni bílasmiða þetta árið en þar
er Renault sem stendur með
tveggja stiga forskot á McLaren.
- egm
MÁNUDAGUR 10. október 2005
EKKI LEIÐINLEGT Kimi Räikkönen fær gusu
af kampavíni eftir sigurinn.
NORDIC PHOTOS/GETTY