Fréttablaðið - 13.10.2005, Blaðsíða 42
6 ■■■ { Kópavogur }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Í kjölfar samkeppni sem haldin var
um miðbæ Kópavogs í kringum
1970 var unnið deiliskipulag að
Hamraborginni. Tveir stórir
byggingameistarar skiptu svæðinu
á milli sín þannig að annan helm-
inginn fékk Trésmiðja Hákonar og
Kristjáns ásamt múrarameistaran-
um Magnúsi Baldvinssyni. Sonur
Magnúsar, arkitektinn Benjamín
Magnússon, var fenginn til að
teikna. Hans hluti var vestari hluti
Hamraborgarinnar, sem stendur
nær gjánni. Hann hafði þá verið í
námi erlendis og ætlaði sér að
dvelja þar örlítið lengur þegar
honum féll verkefnið í skaut. Varð
það til þess að hann flýtti heimför
árið 1972.
„Hugmyndin var að búa til þétta
byggð miðsvæðis, þar sem stutt
væri í þjónustu,“ segir Benjamín
Magnússon arkitekt. Hann segir
hugmyndirnar að deiliskipulaginu
hafa verið að erlendri fyrirmynd
og minnist hann þess að um sama
leyti hafi staðið yfir þétting á
byggð í miðbæ Lundúna. Háhýsa-
byggðin hvílir á verslunarkjarna
sem liggur uppi við aðalgötuna.
Undir háhýsunum er að finna bíla-
stæðahús á tveimur hæðum með
bílastæði fyrir hverja íbúð. „Verið
var að vinna í því að stytta vega-
lengdir fyrir fólk og sáum við fyrir
að eldra fólk sem væri að minnka
við sig myndi sjá hag sínum best
borgið á þessu svæði. Hins vegar
kom það í ljós seinna að alls kon-
ar fólk keypti þarna íbúðir, jafnt
ungt fólk með börn sem fullorðið
fólk,“ segir Benjamín.
Verkið var viðamikið á sínum tíma
þó að háhýsi hefðu risið víðar á
höfuðborgarsvæðinu. „Nýjungin
við Hamraborgina var fyrst og
fremst bílageymslurnar, sem voru
þær fystu sinnar tegundar. Var
brugðið á þetta ráð til að nýta
landið betur og skilja eftir garðinn
að ofan fyrir íbúana,“ segir Benja-
mín.
Fréttablaðið/E.Ól.
Í anda Manhattan
Skipulagi Hamraborgarinnar svipar til erlendra stórborga
Hamraborgin há og fögur, blasir við
þegar ekið er inn í Kópavoginn.
Skýjakljúfur í Hamraborg.
Gengið fram hjá
stóru auglýsingaskilti.
Mannlífið spegl-
ast í gluggunum.
Horft yfir brúna í átt
að Hamraborginni.