Fréttablaðið - 13.10.2005, Síða 44
8 ■■■ { Kópavogur }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Auðvelt að
keyra go-
kart bíla
Go-kart bílarnir þóttu með
því skemmtilegasta.
Ólöf Anna Rudolfsdóttir, Herdís
Hermannsdóttir og Sigrún Skafta-
dóttir prófuðu go-kart bílana og
sögðu það alls ekki erfitt að keyra
þá. Ólöf Anna er með bílpróf og
hún sagði að þó að hún væri vön
að keyra bíl þá væri þetta allt öðru-
vísi.
Stelpurnar sögðust ekki hafa
verið í keppni heldur bara að leika
sér. „Strákarnir fara frekar í
keppni,“ sögðu þær. „En ef maður
keyrir of glannalega og klessir á þá
þarf maður að hætta,“ bætti Herdís
við. Þær ákváðu því að keyra frek-
ar varlega.
Stelpurnar voru búnar að fara í
jóga og Herdís hafði sýnt á tísku-
sýningu. Þær ætluðu svo að drífa
sig í keilu. Stelpurnar sögðu að það
væri margt spennandi í boði og
voru mjög ánægðar með Tyllidag-
ana. Þær vildu samt meina að
tískusýningin og go-kartbílarnir
stæðu upp úr.
Útsaumur hljómar spennandi
Margir prófuðu útsaum og krosssaum.
Bjart
framundan
Nakin kona boðar gæfu.
Afró-danskennsla
Trommuslátturinn heyrðist um gangana.
Hrekkjavökustemning í MK
Mikið um að vera á Tyllidögum Menntaskólans í Kópavogi.
Tyllidagar Menntaskólans í Kópa-
vogi voru haldnir í vikunni. Tylli-
dagarnir eru árlegur viðburður og
þema daganna í ár var hrekkja-
vakan. Skólinn var skreyttur í
samræmi við þemað og nokkrir
nemendanna líka. Dagskráin var
fjölbreytt og margt var í boði.
Nemendur gátu meðal annars
hlustað á draugasögur, lært flugu-
hnýtingar, farið í jóga, bakað
mexíkóskar pönnukökur, farið í
hipp hopp og afró-danskennslu,
keyrt go-kart bíla og farið í keilu
og bíó.
Hlynur Már Magnússon og Arnar Hrafn Árnason
sauma út.
Sigrún Skaftadóttir, Ólöf Anna Rudolfsdótt-
ir og Herdís Hermannsdóttir við go-kart
brautina. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Steinunn Hákonardóttir
við hauskúpuna á tjaldi
spákonunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Steinunn Hákonardóttir fór til spá-
konu og var sátt við spádóminn
sem hún fékk. „Spákonan hafði nú
bara nokkuð rétt fyrir sér með for-
tíðina mína, en ég var látin draga
fjögur tarotspil sem hún las úr.“
Steinunn sagðist hafa kannast við
ýmislegt sem spákonan sagði og
fannst hún alveg vita hvað hún
væri að segja. „Hún
spáði líka fyrir fram-
tíðinni og sam-
kvæmt henni er bara
bjart framundan. Ég
dró spil með mynd
af naktri konu og
hún sagði að það
væri mjög gott spil.“
Steinunni fundust
Tyllidagarnir mjög
vel heppnað-
ir í ár og
ennþá betri
en í fyrra. Hún
ætlaði að fara
næst í bíó en
hún sagði að dag-
skráin væri fjölbreytt og
það væri erfitt að velja á milli.
Díana Íris Guð-
mundsdóttir og
Bryndís María
Theodórsdóttir
fóru í afró-dans-
kennslu. Þær
höfðu aldrei próf-
að afró áður og
fannst það alveg
frábært. Stelpurnar
völdu afró af því að þeim
fannst það spennandi og þær urðu
greinilega ekki fyrir vonbrigðum.
Þær voru mjög ánægðar með Tylli-
dagana og sögðu að þeir væru
alltaf jafn skemmtilegir. „Við tók-
um báðar þátt í tískusýningunni í
morgun og nú erum við að fara í
keilu,“ sögðu þær.
Bryndís María Theodórsdóttir og Díana Íris
Guðmundsdóttir fóru í danskennslu.
„Það gengur nú bara svona
sæmilega vel að sauma,“ sögðu
þeir Hlynur Már Magnússon og
Arnar Hrafn Árnason sem ákváðu
að prófa útsaum. Strákarnir
höfðu ekki saumað út síðan í
grunnskóla að eigin sögn. Hlynur
Már var að sauma kassa en Arnar
Hrafn saumaði upphafsstafina
sína. „Við völdum útsaum því að
það hljómaði svo spennandi,“
sagði Hlynur Már. Þeir voru
ánægðir með Tyllidagana og ætl-
uðu að fara í keilu þegar þeir
væru búnir að sauma.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.