Fréttablaðið - 13.10.2005, Side 46
10 ■■■ { Kópavogur }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Vinsælt hjá fyrirtækjahópum
HJÁ SPORTHÚSINU Í DALSMÁRA ER GERVIGRASVÖLLUR SEM VIN-
SÆLT ER HJÁ EINSTAKLINGUM OG HÓPUM AÐ LEIGJA SAMAN
Göngutúr í logni
og 15 stiga hita
ÍÞRÓTTARHÖLLIN FÍFAN HEFUR EKKI EINGÖNGU GJÖR-
BYLT ÆFINGARAÐSTÖÐU FYRIR KNATTSPYRNU- OG
FRJÁLSÍÞRÓTTARFÓLK HELDUR HAFA ÝMSIR NÝTT
GÖNGUBRAUTIR HENNAR SÉR TIL HEILSUBÓTA.
Evrópukeppni og úrvals-
deildin á næsta ári
Sumarið hjá knattspyrnudeild Breiðabliks var eitthvert það glæsilegasta sem nokkurt
lið hefur upplifað hér á landi. Steini Þorvaldsson, formaður deildarinnar, segir að
árangur sumarsins sé markvissu uppbyggingarstarfi að þakka.
,,Hér er mikið um að eldra fólk, gigtarsjúklingar og hjartveikir
komi og nýti sér hlaupabrautirnar til ganga, sérstaklega þegar kalt
og hált er“ segir Guðni Þórðarson, þjónustu- og markaðsstjóri Fíf-
unnar. Hægt er að koma þangað milli klukkan 10 og 12 á daginn
og Guðni bætir að engum sé hent þó komið sé utan þess tíma nema
verið sé að nota brautirnar til æfinga. Alltaf er logn inni í höllinni
og reynt er að halda hitastiginum um 15 gráður.
Fífan er aðallega nýtt til knattspyrnuiðkunnar og sem þjálfunar-
aðstaða fyrir frjálsar íþróttir. Kópavogsliðin HK og Breiðablik eru
helst þeir aðilar sem nýta sér aðstöðuna. Hægt að panta tíma í Fíf-
unni en tímar eru lausir milli klukkan 12 og 14 alla daga. ,,Ein-
staklingar sem vilja æfa í húsinu, til dæmis frjálsíþróttarfólk geta
einnig komið og leigt klukkustund í senn, fyrri part dags.“ segir
Guðni að lokum.
Uppskeran var glæsileg, meistara-
flokkur kvenna vann bæði deild og
bikar og karlarnir fóru í gegnum 1.
deild án þess að tapa leik. ,,Árang-
urinn fór fram úr vonum. Í heildina
lönduðum við tólf Íslands- og
bikarmeistartitilum og fengum
fimm silfur. Þetta er langbesti ár-
angur Breiðabliks fyrr og síðar og
efast ég um að nokkurt lið á Íslandi
hafi náð jafn góðum árangri.“ segir
Steini. ,,Við höfum verið að vinna
markvisst uppbyggingarstarf í ung-
lingaknattspyrnunni og höfum lagt
áherslu á að hafa það jafnt fyrir
bæði stelpur og stráka. Það er
stefnan að byggja upp okkar eigin
lið og gefa fólki tækifæri á að vera
áfram hjá okkur.“ Steini segir að
málin séu í skoðun fyrir næsta ár
en þó liggur ljóst fyrir að helsti
kjarninn, bæði þjálfarar og leik-
menn, munu vera áfram hjá Breið-
blik næsta sumar, fyrir utan erlenda
leikmenn kvennaliðsins. Steini býst
samt við því að bæta nokkrum
sterkum leikmönnum við leik-
mannahóp liðanna.
,,Kvennaliðið mun á næsta ári fara
í Evrópukeppnina og þar ætlum við
að reyna að feta í fótspor
Valskvenna og karlaliðið er komið í
úrvalsdeildina til að vera,“ fullyrðir
Steini og bætir við að enn sé mikið
uppbyggingarstarf í gangi, ,,Ung-
lingastarfið er mjög öflugt og við
höfum verið mjög heppnir með
þjálfara í gegnum tíðina. Aðstaðan
er frábær og tilkoma Fífunnar hef-
ur verið lyftistöng fyrir knattspyrn-
una. Okkur skortir helst sérstakan
heimavöll fyrir Breiðablik. Engin
lausn er þar í sjónmáli en maður
veit aldrei.“
Steini Þorvaldsson setur markmiðið hátt fyrir næsta sumar.
Opið: Mánud.-Föstudag 06:00 - 18:00
Laug. 06:00 - 17:00 Sunn. 07:00 - 17:00
Opið: Mánud.-Föstudag 08:00 - 18:00
Laug. 08:00 - 16:00 Sunn. 09:00 - 16:00
Sporthúsið í Kópavogi hefur verið vinsælt til ýmissar íþróttaiðkunn-
ar. Þar er meðal annars að finna stóran gervigrasvöll innandyra og
nokkra tennisvelli.
Í húsinu er einn völlur sem er á stærð við hálfan alvöru knattspyrnu-
völl. Ekki skemmir fyrir að þar sé gervigras samþykkt af FIFA. Völl-
urinn þykir því mjög vinsæll fyrir hópa sem áður fyrr létu sér nægja
gamla parketgólfið í litum og þröngum íþróttasölum.,,Þetta eru oft
fyrirtækjahópar og síðan er mikið af strákum sem taka sig saman,
svona til að fá smá hreyfingu. Ein og ein stelpa fylgir stundum
með.“ segir Númi Snær Gunnarsson, starfsmaður Sporthúsins. Hann
segir þetta gífurlega vinsælt og nær allir tímar á kvöldin og um
helgar séu uppbókaðir.
Tennisfélag Kópavogs sér um rekstur tennisvallanna en um þá segir
Númi að margir nýti sér þá aðstöðu sem er í húsinu enda sé erfitt
að hætta spila tennis eftir að maður hefur fyrst prófað íþróttina.
Vellirnir eru líklega þeir einu á landinu þar sem hægt er að stunda
tennis á grasi, innandyra og geta einstaklingar leigt sér völl. Hægt er
að nálgast frekari upplýsingar hjá Tennisfélagi Kópavogs.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/H
ei
ða
Göngubraut er innandyra í Fífunni sem öllum er velkomið að nýta sér milli
klukkan 10 og 12 á daginn. Fréttablaðið/Hari