Fréttablaðið - 24.10.2005, Side 51

Fréttablaðið - 24.10.2005, Side 51
31MÁNUDAGUR 24. október 2005 Gljúfrasel m/aukaíbúð glæsilegt útsýni Glæsilegt 265 fm tengihús á þessum friðsæla og gróna stað í Seljahverfinu. Húsinu hefur verið sérlega vel við haldið og er allt hið glæsilegasta. Íbúðin er 142,4 fm. 4 svefnherbergi, bað, gestasnyrting og stór stofa. Á neðri hæð er 93. fm séríbúð sem gefur möguleika á útleigu. Glæsilegt útsýni og gróið umhverfi. Maríubaugur glæsilegt raðhús Glæsilegt endaraðhús á góðum stað í Grafarholtinu. Sérlega vandaðar og glæsilegar innréttingar. Þverspónlögð eik á skápum. Stofan er björt með halogen lýsingu, góðri lofthæð og fallegu gegnheilu eikarparketi. Útgengt er frá stofu út í garð. Þrjú svefnherbergi og fataherbergi inn af hjónaherbergi. Álfkonuhvarf glæsileg íbúð á góðum stað Frábær íbúð á fyrstu hæð í þessu glæsilega hverfi. Húsið er efst í götu á sólríkum stað. Stutt í afslappandi gönguleiðir í fallegri náttúrunni þar sem allir lausir við borgarstressið. Húsið tilbúið til afhendingar í byrjun desember. Lokuð bílageymsla sem þýðir heitur bíll á morgnana og aldrei þarf að skafa. Grandavegur Glæsileg 3ja herbergja íbúð í hjarta Vesturbæjar. Glæsilegar innréttingarfrá Innex og nýtt eikarparket á gólfum. Baðherbergi með vönduðum sturtu-klefa og flísalagt í hólf og gólf. Íbúðin er sérlega björt og opin. 2 góð svefnherbergi, stór stofa og opið eldhús. Gerðu tilboð í þessa í vikunni. Engjasel - mikið áhvílandi góð íbúð í barnvænu hverfi Falleg og mjög rúmgóð 4ra. herbergja íbúð ásamt stæði í bílageymslu. Komið er inn í forstofu með góðum forstofu- skáp og flísum á gólfi. Úr stofu er gengið út á flísalagðar suður svalir. Hjónaherbergið er rúmgott með góðum skáp og einnig er skápur í öðru barnaherberginu. Á gólfum er mahagony parket. Austurberg - bílskúr aukaíbúð - leigutekjur Mjög góð 106 fm íbúð á 4 hæð ásamt bílskúr og 38 fm aukaíbúð í kjallara. Blokk var máluð og gert við sprungur fyrir 3-4 árum síðan. Möguleiki er á 4 svefnher- bergjum í aðalíbúð. Góðir leigumöguleikar. Hér er kjörið tækifæri á að eignast góða 4ra. herbergja íbúð með bílskúr. Hóll-M | Skúlagata 17 | Franz Jezorski lögg.fasteignasali | s: 595 9050 Laugavegur Tæplega 1.000 fm. byggingaréttur Um er að ræða 310 fm húsnæði sem stendur á 477 fm eignarlóð við Laugaveg í Reykjavík. Nýsamþykkt skipulag gerir ráð fyrir nýtingarhlutfalli 2,09 sem gefur möguleika á allt að 997 fm. byggingum á svæðinu. Núverandi húsnæði er í útleigu. Verð kr. 95 millj. 3ja íbúða hús í 101 3 fullbúnar íbúðir í mjög traustri leigu Allar íbúðirnar eru leigðar traustum fyrirtækjum og er möguleiki á framlenginu samninga. 6 íbúða hús á Akranesi allar íbúðirnar í leigu - traustur markaður Tækifæri á að eignast góða húseing á þessu vaxandi markaðssvæði. Góðar leigutekjur. 10 íbúðir í Reykjavík stúdíóíbúðir sem henta vel til útleigu Nýuppgerðar íbúðir í góðu hverfi. Stutt í stóran framhaldsskóla. Góðir leigu- möguleikar. Laugavegur - traust leiga Möguleiki á a.m.k. 5 lúxusíbúðum Hér er um að ræða gott verslunarpláss á besta stað við Laugaveginn. Húsnæðið er allt í útleigu. Fyrir liggja hugmyndir um íbúðir á efri hæðum. Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Hóls-M í síma 595 9050 Einfaldari leið að settu marki, sniðin að þínum þörfum. 220 Hafnarfj: Gaseldavél og Hvaleyrarvöllur Vesturholt 17: Þriggja herbergja neðri sérhæð, innst í botnlanga Lýsing: Gengið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi og hita í gólfi. Þaðan er gengt inn í gott þvottahús með hillum. Eld- hús með fallegri mahoní innréttingu og vönduðum tækjum úr stáli og gaseldavél, náttúrusteinn á gólfi. Opið er úr eldhúsi yfir í bjarta stofu með parketi á gólfi og útgangi út á verönd. Barnaherbergi er bjart og park- etlagt. Hjónaherbergi er parketlagt með góðum skápum. Baðherbergi með baðkari, flísalagt með hita í gólfi, upphengdu salerni, vandaðri innréttingu og Mora blöndunar- tækjum. Gólfefni á íbúðinni eru náttúru- steinn og parket. Annað: Gott útsýni. Leikskóli, skóli og Hval- eyrargolfvöllur í göngufæri. Lýsing: Flísalögð forstofa með fataskáp. Rúmgott flísa- lagt hol. Á neðri hæð hússins eru tvö teppalögð svefn- herbergi með fataskáp, ásamt dúkalögðu herbergi með miklu skápaplássi. Flísalögð gestasnyrting með innrétt- ingu og þvottaherbergi með innréttingu. Frá þvottahús- inu er bæði útgengt út í garðinn og innangengt í bíl- skúrinn. Á milli hæða er steyptur parketlagður stigi. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, eitt barnaherbergi og hjónaher- bergi með teppi, fataskáp og hornglugga. Aðalbaðher- bergið er flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi með glugga og hornnuddbaðkar. Fyrir framan herbergin er flísalagt sjónvarpshol og útgengt þaðan út á timburverönd. Eld- hús með G-laga innréttingu. Stofa og borstofa með flísum á gólfi. Suðvestur svalir. Úti: Lóð að mestu frágengin. 120 fm sólpallur að ofanverðu við húsið. 30 fm pallur að suðvestan við hús- ið. 12 fm pallur að framanverðu við húsið. Fullbúinn 34 fm bílskúr með rafdrifnum hurðaopnara. Fermetrar: 79,9 Verð: 13, 448 milljónir Fasteignasala: XHÚS Fermetrar: 236,4 Verð: 58 milljónir Fasteignasala: Hof 201 Kópav: Glæsilegt einbýlishús fyrir vandláta Mánalind 4: Stórt tveggja hæða einbýlishús með bílskúr og góðum garði 30-31 23.10.2005 12:58 Page 3

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.