Fréttablaðið - 24.10.2005, Síða 69
MÁNUDAGUR 24. október 2005 21
Baráttufundur á Ingólfstorgi
Kl. 16.00 Léttsveit Reykjavíkur
Hljómsveitin Heimilistónar
Valgerður Bjarnadóttir flytur barátturæðu
Vitjun gyðjunnar – samræðuþáttur milli nútíðar og fortíðar eftir Kristínu Ómarsdóttur
Amal Tamimi flytur barátturæðu
Karla Dögg flytur gjörning
Kór Kvennakirkjunnar
Fulltrúar heildarsamtaka launþega – Kristrún Björg Loftsdóttir og Marín Þórsdóttir flytja ávarp
Hljómsveitin Áfram stelpur flytur baráttusöngva kvenna
Katrín Anna Guðmundsdóttir flytur barátturæðu
Steinunn Jóhannesdóttir og fleiri leikkonur kynna endurútgáfu Áfram stelpur og taka lagið
Fundarstýra: Edda Björgvinsdóttir leikkona / Sviðsstýra: María Heba Þorkelsdóttir
Leggjum niður störf á Kvennafrídaginn 24. október kl. 14.08 en þá hafa konur
unnið fyrir launum sínum, ef litið er til munar á atvinnutekjum karla og kvenna.
Fyllum miðborgina svo eftir verði tekið – eins og fyrir 30 árum.
Safnast verður saman á Skólavörðuholti klukkan 15 og farið í kröfugöngu
að Ingólfstorgi. Yfirskrift göngunnar er „Konur höfum hátt“ og munu 100 konur
úr Vox Feminae kórnum syngja í göngunni.
KONUR!
SÝNUM SAMSTÖÐU KLUKKAN 14.08
Aðrir styrktaraðilar: Ríkisstjórn Íslands, félagsmálaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbær, Kópavogsbær, Mosfellsbær, ASÍ, BHM, BSRB og KÍ.
Styrktaraðilar Baráttuhátíðar kvenna 2005 eru:
24. október 1975
TÓNLIST
[UMFJÖLLUN]
Þegar það fréttist að Helgi Björnsson
ætlaði að syngja lög Magnúsar Eiríks-
sonar var mín fyrsta hugsun: Hverju
ætlar hann að bæta við þann flutning
sem við þekkjum? Lög Magga Eiríks
lærum við með móðurmjólkinni og
syngjum í útilegu. Sá sem kann á
gítar og helstu grip hefur oftar en
ekki heillað einhverja upp úr skón-
um með Reyndu aftur eða Ég elska
þig enn. Fengið alla til að taka undir
í Komdu í partí. Það eiga allir sitt
uppáhaldslag og einhverjar minning-
ar tengdar því.
Okkur Íslendingum virðist vera það
nánast ógjörningur að búa til svokall-
aðar cover-plötur. Þetta verða alltaf ein-
hverjar karókíútgáfur af þreyttum slög-
urum. Lög Magga Eiríks eru þannig að
það hefði verið hægt að gera eitthvað
verulega skemmtilegt og spennandi.
Eitthvað sem enginn hefði heyrt áður.
Eins og þegar Björk gerði Gling gló eða
Hjálmar eru að gera.
Yfir Esjuna bætir engu við og gerir
ekkert nýtt. Ég saknaði bara raddar
Pálma eða Magga sjálfs því útsetn-
ingarnar eru ekkert nýjar af nálinni.
Platan er ekki vond og fyrir þá sem
hafa gaman af Helga gæti hún reynst
hinn mesti kostagripur. Öll spila-
mennska eins og best verður á kosið.
Sjálfum finnst mér hins vegar óþol-
andi þegar tónlistarfólk tekur lög eftir
aðra og skilur ekki eftir nein persónu-
leg fingraför.
Freyr Gígja Gunnarsson
Til hvers?
HELGI BJÖRNS
Titill: YFIR ESJUNA
Niðurstaða: Sjálfum finnst mér það óþolandi
þegar tónlistarfólk tekur lög eftir aðra og skilur
ekki eftir nein persónuleg fingraför.
METSÖLULSITINN
SKÁLDVERK - KILJUR
1. FORÐIST OKKUR HUGLEIKUR DAGSSON
2. STÚDÍÓ SEX LIZA MARKLUND
3. MÓÐIR Í HJÁVERKUM ALLISON PEARSON
4. HULDUSLÓÐ LIZA MARKLUND
5. ENGLAR OG DJÖFLAR DAN BROWN
6. SKOTGRAFARAVEGUR KARI HOTAKAINEN
7. KVENSPÆJARASTOFA NR. 1 ALEXANDER MCCALL SMITH
8. ALKEMISTINN PAOLO COELHO
9. GRAFARÞÖGN ARNALDUR INDRIÐASON
10. KLEIFARVATN
ARNALDUR INDRIÐASON
BARNABÆKUR
1. VÖLUSPÁKRISTÍN RAGNA GUNNARSDÓTTIR OG
ÞÓRARINN ELDJÁRN
2. MAMMA MÖ RÓLAR JUJJA WIESLANDER
3. MAMMA MÖ RENNIR SÉR JUJJA WIESLANDER
4. ERAGONCRISTOPHER PAOLINI
5. KALLI OG SÆLGÆTISGERÐIN ROALD DAHL
6. LEITIN AÐ VERMEER BLUE BALLIET OG BRETT HELQUIST
7. UNGINN KVAKAR SETBERG
8. HELENA BALLERÍNA SETBERG
9. BÓBÓ BANGSI HÉR Á ÉG HEIMASETBERG
10. GOSI - SAGA OG PÚSLUSPIL
SETBERG
LISTINN ER GERÐUR ÚT FRÁ SÖLU
DAGANA 12.10.05 - 18.10.05 Í
BÓKABÚÐUM MÁLS OG MENNINGAR,
EYMUNDSSON OG PENNANUM.
1 dálkur 9.9.2005 15:20 Page 7