Tíminn - 06.11.1975, Page 15
Fimmtudagur 6. nóvember 1975.
TÍMINN
15
...............—
Bílasalan Höfðatúni 10
SELUR ALLA BÍLA:
Fólksbila — Stationbíla
Jeppa — Sendibila
Vörubíla — Vöruflutningabila
14 ára reynsla i bílaviðskiptum. Opið alla !
virka daga kl. 9—7, laugardaga kl. 1—4. ■
Bílasalan Höfðatúni 10
Simar 1-88-70 & 1-88-81
Kýr til sölu
Upplýsingar í síma 93-1063
Mól vangefinna
rædd i Norræna
húsinu í kvöld
SJ—Reykjavik. — Þetta eru þau
mál, sem hæst hefur borið hjá
okkur að undanförnu, sagði
Torfi Tómasson framkvæmda-
stjóri Styrktarfélags vangef-
inna f viðtali við Timann um al-
mennan fund um fræðslukerfi
og tannlæknaþjónustu vangef-
inna.sem Styrktarfélag vangef-
inna heldur i Norræna liúsinu i
kvöld kl. 20.30, en þar verður
cinnig rætt um framtið Styrkt-
arsjóðs vangefinna og stofnun
Landssambands styrktarfélaga
vangefinna.
Frá þvi' 1958 hefur sérstakt
gjald, sem gosdrykkja- og öl-
framleiðendur greiða, runnið i
Styrktarsjóð vangefinna, og
fyrir það fé hefur öll uppbygg-
ing þjónustu vangefinna farið
fram, bæði á Kópavogshælinu
og öðrum stofnunum fyrir van-
gefna. Dagheimilin tvö i
Reykjavik hafa þó aðeins að
litlu leyti verið reist fyrir fé úr
þessum sjóði, en að mestu fyrir
aflafé Styrktarfélags vangef-
inna.
Menntun vangefinna, sú sem
hér er veitt, hefur ekki verið
greidd úr þessum sjóði, en mál
vangefinna heyra bæði undir
Heilbrigðis- og try ggingaráðu-
neytið og Menntamálaráðu-
neytið. Ákveðið er að gjaldið af
gosdrykkjum og öli verði lagt
niður á miðju ári 1976 og fyrir
þann tima þarf að tryggja að
málefni vangefinna verði þá
ekki afskipt.
Áhugi er á að stofna Lands-
samband styrktarfélaga van-
gefinna. Félögum, sem vinna að
málefnum vangefinna, hefur
fjölgað að undanförnu, og er þvi
þörf fyrir slikt landssamband.
Meðan styrktarfélögin voru að-
eins tvö var Styrktarfélag van-
gefinna hér á Reykjavikursvæð-
inu e.k. Landssamband. Nú eru
félögin orðin fimm, i Reykjavik,
á Norðurlandi, á Austurlandi,
Selfossi og i Hafnarfirði, auk
foreldrafélaga sem tengd eru
heimilum fyrir vangefna.
Menntamálaráðherra
Vilhjálmur Hjálmarsson, mætir
á fundinn um málefni vangef-
inna i kvöld, ennfremur hefur
einum þingmanni úr hverjum
þingflokki og fulltrúum úr
félagsmálaráðuneytinu og
heilbrigðismálaráðuneytinu
verið boðið á fundinn.
Framsöguerindi flytja: Jóhann
Guðmundsson, læknir, Gunnar
Þormar, tannlæknir, og Magnús
Kristinsson, formaður Styrktar-
félags vangefinna.
Að loknum framsöguerindum
verða almennar umræður.
Styrktarfélagið vill hvetja að-
standendur og áhugafólk um
málefni vangefinna að mæta á
fundinn.
Jarðtætari
Höf um kaupanda að 70
tonna jarðtætara.
Upplýsingar gefur
Bjarni Helgason,
Kaupfélagi Rangæ-
inga, sími 99-5225.
Sólaðir
HJÓLBARÐAR
TIL SÖLU
FLESTAR
STÆRÐIR
Á FÓLKSBÍLA.
BARÐINNf
ARMULA7 W3050I &84844
Hörgárdalur og nágrenni
Þingmenn Framsóknarflokksins i Norðurlandskjördæmi eystra
Ingvar Gislason, Stefán Valgeirsson og Ingi Tryggvason halda
stjórnmálafund i Þelamerkurskóla i Hörgárdal n.k. föstudags-
kvöld 7. nóv. kl. 9.
Hafnarfjörður
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Framsóknarfélögin i Hafnarfirði hafa opið hús að Strandgötu 11,
2. hæð á hverjum fimmtudegi kl. 18—19. Þar verða til viðtals
bæjarfulltrúi flokksins og varafulltrúi, svo og nefndarmenn.
Simi 51819.
Snæfellsnes
Siðasta umferð i þriggja kvölda spilakeppn-
inni verður i Röst, Hellissandi, laugardaginn
8. nóv. og hefst kl. 21.30.
Aðalvinningur er Mallorkaferð fyrir tvo.
Einnig góð kvöldverðlaun.
Asgeir Bjarnason, forseti Alþingis, flytur
ávarp. Að lokum verður stiginn dans.
Framsóknar-
menn
Suðurlandi
Kjördæmisþing framsóknarmanna i Suðurlandskjördæmi
verður haldið að Hvoli, Hvolsvelli, sunnudaginn 9. nóv. og hefst
kl. 10 f.h. Auk venjulegra þingstarfa verða tekin til meðferðar
orku- og menntamál. Framsögumenn verða Helgi Bergs banka-
stjóri og Vilhjálmur HjálmarssO' menntamálaráðherra. Allt
framsóknarfólk velkomið.
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Einar Ágústsson, ráðherra, verður til viðtals að Rauðarárstig 18.
laugardaginn 8. nóv. kl. 10-12.
Akranes
Framsóknaríélag Akraness heldur aðalfund sinn i Framsóknar-
húsinu á Akranesi miðvikudaginn 12. nóv. kl. 21.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Kosnir fulltrúar á kjördæmisþing.
4. Bæjarmál.
Framsögumenn, bæjartulltrúar flokksins á Akranesi.
Kjördæmisþing
Norðurlands eystra
Þingið hefst laugarsaginn 8. nóv kl. 13. Þátttakendum stendur til
boða gisting á Hótel KEA á hagstæðu verði.
I
Akureyri — nágrenni
Haustfagnaður framsóknarmanna i Norður-
landskjördæmi eystra verður haldinn að
Hótel KEA laugardaginn 8. nóv. og hefst með
borðhaldi kl. 20.00.
Ræðumaður Þórarinn Þórarinsson alþingis-
maður.
Skemmtiatriði — dans.
Þátttaka tilkvnnist Hótel KEA fyrir föstu-
daginn 7. nóv.
Stjórn Kjördæmissambandsins.