Tíminn - 07.11.1975, Qupperneq 14
14
TÍMINN
Föstudagur 7. nóvember 1975.
LÖGREGLUHA TARINN
60 Ed McBain
Þýðandi Haraldur Blöndal
ingamennsku á sjálfum sér. En ef þú vilt ræöa viö
flokksforingjann, þá legg ég til að þú hringir aftur um
klukkan tiu. Þá verður hann án efa mættur.
— Vertu ekki svona harður við mig, sagði Butterf ield.
— Ég þræla við mína vinnu engu siður en þú.
— Sama er að segja um f lokksforingjann, sagði Meyer
og skellti á.
Þegar klukkan var hálf tíu hringdi síminn í annað sinn.
Murchison varðstjóri svaraði, en gaf óðar samband við
Meyer.
— Cliff Savage, mannstu eftir mér, spurði röddin.
— Allt of vel, svaraði Meyer. Hvað vilt þú?
— Er Carella viðstaddur?
— Nei.
— Hvar er hann?
— Hann er ekki við.
— Ég vil fá að tala við hann.
— Hann vill ekki tala við þig, sagði Meyer. Konan hans
var nærri drepin vegna þessarar saurugu blaðamennsku
þinnar. Þú skalt hafa mitt ráð og láta hann ekki sjá þig.
— Þá verð ég víst að tala við þig, sagði Savage.
— Mér er heldur ekki allt of vel við þig, ef ég á að segja
eins og er.
— Þakka þér fyrir, svaraði Savage. En í dag leita ég
annars sannleika.
— Hvað viltu nú?
— í morgun hringdi í mig maður, sem ekki vildi segja
til nafns. Hann lét mér í té mjög forvitnilegar upplýsing-
ar. Savage þagnaði svolitla stund. Kannast þú eitthvað
við þetta?
— Hjartað barðist um í brjósti Meyers, en hann svaraði
af rósemi: — Ég er ekki huglesari, Savage.
— Mér f laug i hug að þú vissir eitthvað um þetta.
— Savage, ég er búinn að fórna í þig f imm dýrmætum
mínútum af vinnutíma mínum. Ef þú hefur eitthvað að
seg ja....
— Jæja þá.... Maðurinn sem ég ræddi við sagði, að 87.
sveitin hefði fengið nokkrar símhótanir áður en Cowper
lögreglufulltrúi dó — og þrjú f járkúgunarbréf áður en
Scanlon varaborgarstjóri fór yfir landamærin. Veizt þú
eitthvað um þetta?
— Ég ráðlegg þér að hafa samband við símafélagið
varðandi þessi símtöl, sem þú vilt kanna. Hafðu svo
samband við skjaladeild Almenningsbókasafnsins.
— Vertu ekki að hæða mig, Meyer.
— Okkur er bannað að veita blaðamönnum upplýsing-
ar. Þér er fullkunnugt um það.
— Hve mikið, spurði Savage.
— Hvað þá?
— Hvað viltu mikið, Meyer?
— Hvað getur þú borgað mikið, spurði Meyer á móti.
— Hvað segir þú um hundrað dali?
— Það er ekki nógu gott.
— En tvö hundruð dalir?
— Ég fæ meira fyrir að verja eiturlyf jasala hverfis-
ins.
— Þrjú hundruð dalir eru mitt hæsta boð.
— Vilt þú gera svo vel að endurtaka þetta tilboð fyrir
segulbandið, sagði Meyer.. Ég vil gjarna hafa ótvíræðar
sannanir þegar ég kæri þig fyrir tilraun til að múta lög-
reglumanni.
— Ég var aðeins að bjóða þér tímabundið lán, svaraði
Savage sakleysislega.
— Vei yður lánadrottnar og þér sem fyrir þeim skríð-
ur, svaraði Meyer og skellti á.
Þetta var alls ekki gott. Raunar var þetta mjög slæmt.
Hann var í þann veginn að hringja heim til f lokksforingj-
ans í þeirri veiku von að ná sambandi við hann áður en
hann færi á skrifstof una. En þá hringdi síminn enn.
— Sveit 87. Meyer leynilögreglumaður talar.
Sá sem hringdi var blaðamaður eins kvöldblaðanna.
Frásögn hans var í aðalatriðum samhljóða þvi sem hinir
tveir höfðu sagt. Svo spurði hann Meyer, hvort hann
kannaðist eitthvað við þetta. Meyer óttaðist, að þegar
fréttin birtist yrði vikið að ósamvinnuþýðum lögreglu-
manni. Þess vegna var honúm illa við að fara með
ósannindi. Þess vegna sagði hann manninum að reyna að
ræða við flokksforingjann síðar um daginn. Hann lagði
tólið á og leit á klukkuna. Svo ákvað hann að bíða næstu
hringingar áður en hann reyndi að ná sambandi við
f lokksforingjann. Sem betur fer voru aðeins f jögur dag-
blöð í borginni. Ekki var biðin löng. Fulltrúi f jórða blaðs-
ins hringdi innan fimm mínútna. Rödd mannsins var
kristaltær og áherzlurík. En hann fékk ekki aukatekið
orð út úr Meyer og skellti loks á í reiði. Klukkan var nú
f imm mínútur í tíu og orðið of seint að hringja heim til
Byrnes.
Meyer virti fyrir sér mynd af manni,sem er að skjóta
Föstudagur 7. nóv
7.00 Morgunútvarp Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Frettir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.20 Hálfur fridagur, smá-
saga eftir Aldos Huxley.
Kjartan Ragnarsson leikari
les.
14.30 Miðdegissagan: ,,A
fullri ferö” eftir óscar
Clausen Þorsteinn
Matthiasson les (16)
15.00 Miðdegistónleikar John
de Lancie og Sinfóniu-
hljómsveit Lundúna leika
„L’Horologe de Flore” —
„Blómaklukkuna” —,
tónverk fyrir óbó og hljóm-
sveit eftir Jean Francaix,
André Previn stjórnar.
Hljómsveit undir stjórn
Stanley Black leikur
„Spartacus”, balletttónlist
eftir Aram Katsjatúrian.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veöurfregnir).
16.20 Popphorn
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Tveggja daga ævintýri”
eftir Gunnar M. Magnúss
Höfundur les (6)
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál.Helgi Hall-
dórsson flytur.
20.00 „Athvarf”, tónverk eftir
Herbert H. Agústsson við
kvæöiö „Sýn” eftir Jóhann
Hjálmarsson (frumflutn-
ingur). Sinfóniuhljómsveit
Islands leikur.
Einsöngvari: Elisabet
Erlingsdóttir. Framsögn:
Gunnar Eyjólfsson. Stjórn-
andi: Páll P. Pálsson.
22.20 „Ef biistjórann vantaði,
þá var alit ómögulegt”
Pétur Pétursson ræðir við
„ Gunnar Ólafsson ökumann.
21.20 Kórsöngur Kór Howard-
háskólans syngur amerisk
trúarljóö.
21.30 Útvarpssagan:
„Fóstbræöur” eftir Gunnar
Gunnarsson Jakob Jóh.
Smári þýddi. Þorsteinn O.
Stephensen leikari les (12).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Leikiistarþáttur Umsjón:
Sigurður Pálsson.
22.50 Skákfréttir.
22.55 Afangar Tónlistarþáttur
i umsjá Ásmundar Jónsson-
ar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.45 Fréttir i stuttu máli
Dagskrárlok.
Föstudagur
7. nóvember 1975.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Pagskrá og augiýsingar.
20.40 Kastijós. Þáttur um inn-
iend málefni. Umsjónar-
maður Eiður Guðnason.
21.30 Saga loftskipanna.
Sænsk mynd um ævintýra-
legan þátt I loftferðasög-
unni, sem virðist að fullu
lokiö. Þýöandi Hallveig
Thorlacius og þulur ásamt
henni Ingi Karl Jóhannes-
son. (Nordvision — Sænska
sjónvarpiö).
22.25 Elmer Gantry. Banda-
rísk biómynd frá árinu 1960,
byggð á sögu eftir Sinclair
Lewis. Leikstjóri Richard
Brooks. Aðalhlutverk Burt
Lancaster, Jean Simmons
og Arthur Kennedy. Aðal-
persónan, Elmer Gantry, er
bandariskur farandprédik-
ari seint á öldinni sem leið.
Hann er sjálfur meir en litið
blendinn i trúnni, en predik-
anir hans hrifa almenning
meö meiri krafti en hann
gat sjálfan órað fyrir. Þýö-
andi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir. Aður á dagskrá 17. ágúst
1974.
00.45 Dagskrárlok.