Tíminn - 07.11.1975, Side 20
*"" ■. '
Föstudagur 7. nóvember 1975.
-
SÍMI 12234
■HERRA
GflR'ÐURINN
■AtDALSTRÆTl 8
fyrir góéan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖD SAMBANDSINS
Skiptist Angola í tvö
sjálfstæð ríki?
— átök milli AAPLA og portúgalskra hermanna
Hermenn MPLA. MPLA ætlar einhliöa aö lýsa yfir sjálfstæði
Angola 11. nóvember n.k.
Sadat ræðir
vopnakaup
við Wilson
Reuter/London — Sadat,
Egyptalandsforseti, kom i
gær til Lundúna og hófst þá
þriggja daga heimsókn hans
i Bretlandi. í gær ræddi
hann meö Eiísabetu Eng-
landsdrottningu. Harold Wil-
son forsætisráðherra tók á
móti Sadat viö komuna tii
Lundúna. Talsmaöur Sadats
lét þau orö falla i gær, aö
heimsókn forsetans til Bret-
lands táknaöi ekki aðeins
upphaf betra samkomuiags
milli Breta og Egypta heldur
allra Arabarikja og Breta.
Deila lsraelsmanna og
Egypta veröur helzta um-
ræöuefni Wilsons og Sadats,
er þeir ræöast við i dag.
Einnig er taliö, aö Sadat
muni fara þess á leit viö
brezku stjórnina.aö hún selji
vopn til Egyptalands.
Bæöi löndin, Egyptaland
og Bretland, munu hafa mik-
inn hug á auknum gagn-
kvæmum viöskiptum.
Sayem
tekinn
við í
Bangla-
desh
Reuter/Dacca. — Hinn nýi
forseti Bangladesh, Mu-
hammad Sayem, sagði I út-
varpsávarpi til þjóðar sinnar
i gær, að hann hefði gefið
hernum fyrirmæli um að
koma aftur á lögum og reglu
i landinu og skapa skilyrði til
þess, að lýðræði yrði endur-
reist i Bangladesh.
Hann sagði ennfremur i
ávarpi sinu, að stjórnin i
landinu yrði viðsýn og ætlaði
sér að standa við þær skuld-
bindingar, er hún hefði gefið
á erlendum vettvangi.
Reuter/Lissabon, Luanda.
Portúgalska stjórnin lýsti þvi
yfir i gær, aö hún viöurkenndi
allar frelsishreyfingarnar
þrjár, sem berjast fyrir sjálf-
stæöi Angola, MPLA, FNLA og
UNITA.
Nýlendumálaráðherra portú-
gölsku stjórnarinnar hvatti i
gær frelsishreyfingarnar þrjár
til þess að mynda samsteypu-
stjórn i Angola, er nýlendan
hlýtursjálfstæðiá þriöjudaginn.
Áður hafði kommúnistaflokk-
ur Portúgals hvatt portúgölsku
stjórnina til þess að viðurkenna
aöeins MPLA, sem er róttækust
þessara þriggja hreyfinga, sem
hinn eina löglega fulltrúa ibúa
Angola. Sagði i yfirlýsingu
kommúnistaflokksins, að ef
dráttur yrði á viðurkenningu
stórnarinnar á MPLA gæti slikt
haft skaðleg áhrif á samstarf
Portúgals og Sovétrikjanna.
Hins vegar var skýrt frá þvi i
útvarpinu i Uganda i gær, að
frelsishreyfingarnar tvær,
UNITA og FMLA ætluðu sér i
sameiningu að lýsa yfir sjálf-
stæði þeirra landsvæða, sem
þær stjórna, og mynda þar
rlkisstjórn, ef MPLA ætlar sér
að gera slikt hið sama á þeim
svæðum, sem þeir ráða. í
Ugandaútvarpinu var ennfrem-
ur sagt, að sendimenn UNITA
og FMLA hefðu skýrt Idi Amin,
forseta Einingarsamtaka
Afrikurikja, að hreyfingar
þeirra réðu nú þremur fjórðu
allra landsvæða I Angola. Þessi
frétt i Uganda-útvarpinu er i
mótsögn við aðra frétt, sem þar
var nýlega lesin um Angola, en
þar sagði, að sjálfstæðis-
hreyfingarnar þrjár ætluðu sér
að lýsa yfir sjálfstæði landsins i
sameiningu.
Þá skýrði Ugandaútvarpið
ennfremur frá þvi, að full-
trúarnir, sem ræddu við Amin,
hafi sagt honum, að hreyfingar
þeirra væru reiðubúnar til sam-
starfs við MPLA, ef MPLA að-
eins viðurkenndi tilverurétt
þeirra. Ef hins vegar MPLA
einhliða lýsti yfir sjálfstæði á
þeim svæðum, sem þeir ráða yf-
ir, myndu FMLA og UNITA
gera slikt hið sama, en bjóða
MPLA til samstarfs. Amin mun
hafa sagt, að hann ætlaði sér að
fara til Angola og reyna, að
koma á sáttum milli hreyfing-
anna og jafnvel reyna að vinna
að sameiningu þeirra.
Fulltrúar FNLA og UNITA
sögðust þess hins vegar fullviss
ir, að með sameiginlegan her-
styrk gætu þær yfirbugað
MPLA.
I yfirlýsingu flokksins sagði,
að stjórn landsins og byltingar-
ráð hersins gætu ekki lengur
vikið sér undan þeirri ábyrgð,
að taka einarða afstöðu i mál-
inu.
Eins og kunnugter af fréttum
hlýtur Angola að öllum likind-
um sjálfstæði 11. nóvember n.k.
og hafa leiðtogar MPLA, sem nú
ræður Luanda, höfuðborg lands-
ins sagt, að þeir ætli að lýsa ein-
hliða yfir sjálfstæði nýlendunn-
ar á þriðjudaginn án tillits til
þess, hvaða skoðun Portúgals-
stjórn kunni að hafa á þvi.
Skotið var á flugvél FNLA,
sem flaug lágt yfir þökum i Lu-
anda i gær og dreifði áróðurs-
miðum. Fregnir eru óljósar um
það, hvort flugvélarnar hafi
verið ein eða tvær og hvort þær
voru skotnar niður eða ekki.
Þá segir og i fréttum Reuters
frá Luanda i gær, að bardagar
hafi brotizt út milli hersveita
Portúgalshers og hermanna
MPLA i borginni i fyrradag.
Skiptust liðin á skotum, er her-
menn MPLA sóttu að flugvelli
og höfn borgarinnar og hugðust
taka þar við stjórn. Engar frétt-
ir var af þvi að hafa, hvort
manntjón hafi orðið.
Fulltrúar frá öllum rikjum
Afriku — nema Suður-Afriku og
Rhodesiu — verða viðstaddir
hátiðarhöldin i tilefni sjálf-
stæðisyfirlýsingarinnar. Þá
mun Zaire-stjórn heldur ekki
senda fulltrúa, þvi aðhún styður
FNLA. Þá hefur fulltrúum frá
Austur-Evrópu, Hollandi og
Belgiu verið boðið til Luanda. Af
kunnum einstaklingum, sem
hefur verið boðið, má nefna
Fidel Castro, forsætisráðherra
Kúbu.
ísraelar
mótmæla
skrifstofu
PLO í París
Reuter/Tel Aviv.— tsraelar
báru i gær fram harðorð
mótmæli vegna þeirrar
ákvörðunar frönsku stjórn-
arinnar að leyfa frelsissam-
tökum Palestinuaraba
(PLO) að opna skrifstofu i
Paris.
Utanrikisráðherra ísraels,
Yigal Allon, sagði i gær er
hann hélt til Hollands, að
þessa ákvörðun frönsku
stjórnarinnar myndu PLO
túlka sem hvatningu frá
frönsku stjórninni til þess að
halda áfram baráttu PLO
fyrir útrýmingu Israelsrikis.
Talsmaður utanrikisráðu-
neytis Israels sagði I gær, að
mótmælum hefði verið kom-
ið áleiðis til franskra stjórn-
valda eftir diplómatiskum
leiðum. Þá itrekaði talsmað-
urinn, að Israelsstjórn
myndi ekki taka þátt I nein-
um Genfarviðræðum um frið
i Mið-Austurlöndum, ef PLO
yrði veitt aðild að ráðstefn-
unni. PLO var .ekki boðið til
þátttöku i upprunalegu ráð-
stefnunni i desember 1973.
Segir USA
skilið
við ILO?
Reuter/Genf — Bandarikja-
stjórn lýsti þvi formlega yfir
i gær, aö hún hugleiddi þann
möguleika að segja skilið viö
Alþjóöavinnumálastofnun-
ina ILO, en vonaði að til þess
kæmi ekki. 1 bréfi, sem Kiss-
inger utanrikisráöherra
sendi til aðalstööva ILO
sagöi hann, aö þótt Banda-
rikjastjórn hugleiddi þennan
möguleika, vonaöist hún til,
að svo færi ekki.
Þessi ákvöröun Banda-
rikjastjórnar stendur meöal
annars I sambandi viö þaö,
er áheyrnarfulltrúum PLO,
frelsissamtökum Palestinu-
araba var leyft að vera
viöstaddir hið árlega þing
stofnunarinnar, I júni sl.
Argentina:
Peron neitar að
segja af sér!
— segist njóta stuðnings hersins
Sahara: _
SPÆNSKI HERINN
BÍÐUR ÁTEKTA
Reuter/El Aaiun — Friðarganga manna, sem Hassan konungur
hinna 350 þúsund Marokko- hefur sent inn I Spænsku Sahara,
Reuter/Buenos Aires —
Maria Estella Peron flutti
útvarpsávarp til þjóöar sinn-
ar i gær, þar sem hún bar
harölega til baka sögusagnir
þær, sem gengiðhafa fjöllum
hærra aö undanförnu, aö hún
hygöist segja af sér.
Ræðu forsetans var út-
varpað tveimur og
hálfri klukkustund siðar en
áformað hafði verið, óg telja
fréttaskýrendur, að ástæðan
hafi verið sú, að fylgismenn
hennar hafi á meðan reynt
að telja hana á að flytja ekki
eins harðorða ræðu, og hún i
upphafi hafði áformað aö
gera. Einu harðorðu
ummælin, sem Peron lét
falla, voru i garð þeirra
blaöamánna, sem gælthefðu
aö undanförnu við þá hug-
mynd, að hún hygðist segja
af sér. Sagði hún, að Argen-
tina yrði fyrir stöðugu áreiti
frá ofbeldissinnuðum og
ærumeiðandi slúðurburði
innlendra og erlendra aðila.
Sagði hún, að rikisstjórn
hennar myndi sækja þá til
saka, er ábyrgð bæru
á þessu.
Forsetinn sagði i ræðu
sinni, að timabundin heilsu-
farsvandræði sin réttlættu
ekki tilraunir siðferðis-
brenglaðra minnihlutahópa,
sem andstæðir væru hags-
munum fólksins, til þess að
svipta hana þvi valdi, er þjóð
hennar heföi falið henni að
fara með.
Fréttaskýrendur telja, að
þrátt fyrir framangreind
ummæli forsetans, sé hún
enn undir stöðugum þrýst-
ingi um að segja af sér emb-
ætti vegna þess fjármála-
hneykslis, sem i uppsiglingu
er i landinu og hún mun vera
að einhverju leyti viðriðin.
Andstæðingar hennar
hafa opinberlega skorað á
forsetann að segja af sér, og
sama sinnis munu margir af
flokksmönnum hennar vera.
Forsetinn flutti ávarp sitt af
sjúkrabeði og sagðist alls
ekki myndu segja af sér
embætti. Hún kvaðst njóta
stuönings hersins, kirkjunn-
ar, verkalýðshreyfingarinn-
ar og stjórnmálaflokka.
Þessi fullyrðing hennar
virðist ekki koma heim og
saman við staðreyndir, þvi
að verkalýðshreyfingin mun
þeirrar skoðunar, að hún eigi
að segja af sér, og sama
sinnis munu leiðtogar hers-
ins. Þeir vilja hins vegar
ekki að herinn geri byltingu
til að steypa henni af stóli,
heldur telja þeir þetta vera
deilu stjórnmálalegs eðlis,
og hana beri að leysa á þeim
grundvelli.
nam staöar I dag, er hún kom aö
sprengjusvæöum spænska hers-
ins, segir i tilkynningu hernaöar-
ylirvalda i El Aaiun.
I tilkynningunni sagöi, að
göngumenn hefðu haldið yfir
landamærin og inn á yfirráða-
svæöi Spánverja klukkan 20
minútur fyrir 11 i gærmorgun. I
broddi fylkingarinnar óku nokkr-
ir flutningavagnar. Göngumenn
námu staðar um 9 km framan við
landamærastöðina I Tah og i um 5
km fjarlægð frá fyrsta jarð-
sprengjusvæðinu. Þá var klukkan
um fimm minútur yfir tvö.
Þá var mat útdeilt til göngu
manna. Nokkrir vagnanna óku
alveg að jarðsprengjusvæðunum
og teknar voru myndir af aðvör-
unarskiltunum, em letruð eru
á arabisku og spænsku.
Þá sagði og i tilkynningu
hernaðaryfirvalda i E1 Aaiun, að
spænski herinn fylgdist náið með
göngunni frá varðstöðvum si'num.
f’ramhald á 19. siðu.