Tíminn - 05.12.1975, Qupperneq 1

Tíminn - 05.12.1975, Qupperneq 1
PRIMUS HREYFILHITARAR í VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR HF HÖRÐUR OUNNARSSON SKÚLATÚNI 6 -SÍMI (91)19460 Yfir- gangi Breta svarað eftir helgi MO—Reykjavik. A fundi rikissítjórnarinnar i gær- inorgun lagði Einar Agústs- son utanríkisráðherra frain tillögur um hvernig sniiast ætti við yfirgangi Breta á tslandsmiðum. Ekki var þó nein ákvörðun tekin á fund- inum, og verður það ekki gert fyrr en eftir helgi. Einar Agústsson sagði i viðtali við Timann að okkur bráðlægi ekkert á i þessum málum, þvi ekki fiskuðu Bretarnir mikið við núver- andi aðstæður. Hins vegar væri yfirgangur þeirra al- gerlega óþolandi. Ráðherrann sagðist fara til Brussel á ráðherrafund NATO um miðja næstu viku og ekki væri vist að aðgerðir rikisstjórnar tslands yrðu kunngerðar fyrr en þá. Það hefði komið til tals að hann færi ekki á ráðherrafundinn en svo hefði veriö ákveðið að betra væri að hann færi og skyrði okkar sjónarmið þar. Ráðherrann sagðist halda þar ræðu og yrði örugglega þungorður i garö Breta. Hins vegar væri ekki ljóst hvort hann ætti sérstakar viðræður við einhverja af ráðherrun- um. AAálinu lauk 7 ftOi • i fjorunm Gsal—Reykjavik. — Brezka eftir- litsskipið Miranda kom inn á Norðfjörð í gærmorgun þeirra er- inda að sækja brezka fréttamann- inn A. McPhee sem fór ólöglega inn i landið deginum áður. Böðvar Bragason, bæjarfógeti og lög- regla staðarins fylgdu frétta- manninum niður i fjöru, þar sem skipverjar af Miröndu sóttu hann i gúmmibát. I fyrrakvöld tók bæjarfógeti skyrslu af Bretanum og krafði hann svara um komu hans inn i landið á ólöglegan hátt. Að sögn Böðvars Bragasonar, bæjar- fógeta, skýrði fréttamaðurinn komu sina á þann hátt, að skip- stjórinn á Miröndu hefði tjáð sér, að hann hefði útvegað öll tilskilin leyfi, og því hefði hann farið frá borði i þeirri trú, að öll nauðsyn- leg leyfi til þess hefðu fengizt. — Fr'éttamaðurinn vissi um það bann islenzkra yfirvalda, að engin samskipti væru við brezk skip og þeirra farþega önnur en i neyðartilvikum. Hann segist samt sem áður hafa farið fram á, að fá að fara i land, á þeirri for- sendu að hann væri fréttamaður, og um þá giltu oft á tiðum aðrar reglur en um aðra, sagði Böðvar Bragason. Þegar þessi framburður brezka fréttamannsins lá fyrir, var það ákvörðun saksóknaraembættis- ins, að frekari aðgerðir yrði ekki hafðar uppi i málinu, að sögn Böðvars. — Það er látið við það sitja, að maðurinn fari sömu leið úr landinu og hann kom, sagði bæjarfógeti. Lögregluskýrslan verður send dómsmálaráðuneyti. Fréttamaður BBC, A. McPhee, kvaddur i fjörunni á Neskaupstað. A efri myndinni halda skip- verjar af Miröndu með fréttamanninn um borð i eftiriitsskipið. Timamyndir: Sigurður Arnfinnsson. SKÚLI JOHNSEN, BORGARLÆKNIR: SAMEINA VERDUR SJÚKRA- HÚSIN í REYKJAVÍK MEÐ LAGASETNINGU Á ALÞINGI SJ—Reykjavik. — Eina leiðin til að komið verði á æskiiegri verka- skiptingu sjúkrahiisanna i Reykjavik og hagræðing i rekstri þeirra aukin er sú, að sett verði lög á Alþingi um að þau verði sameinuð. — A næsta ári mun hafa rætzt verulega úr með sjúkra- og dvalarheimilisrými fyrir hjiíkrunarsjúklinga, aldraða og drykkjusjúka, en þá mun enn vanta mikið sjúkrarými fyrir geð- sjiíka og vangefna. Bygging geð- deildar er hafin, en verður ekki lokið fyrr en siðar, og sennilega er sárust þörfin fyrir þá van- gefnu. Þessar ályktanir verða m.a. dregnar af viðtölum Timans við tvo af sjö framsögumönnum á ráðstefnu um verkaskiptingu sjúkrahúsa, sem haldin er i dag i ráðstefnusal Hótel Loftleiða. Það er Skúli Johnsen, borgar- læknir, sem talar fyrir samein- ingu sjúkrahúsannna i Reykja- vik. Segir hann hana einu leiðina til að nauðsynleg og eðlileg verkaskipting komizt á s.vo forð- ast megi tvöföldum og margföld- un dýrrar og mannfrekrar sér- fræðiþjónustu. Jafnframt verði þá betur hægt að stýra þeirri upp- byggingu, sem fer fram á sjúkra- húsunum og stuðla að auknu hag- ræði i þjónustu við sjúkra- og mannahald. Ef sjúkrahúsin verða sameinuð segir borgarlæknir, þarf að koma á sérstakri innlagningamiðstöð, þar sem á einum stað yrði jafnan yfirsýn yfir sjúkrarúmaþörf á hverjum tíma. DAS-HUSIÐ VAR FYRSTI VINN- INGURINN í SAUTJÁN ÁR .—---, o * o SÚGANDAFJÖRÐUR: Gætu fengið hita- veitu næsta haust — ef nægjanlegt fjdrmagn fengist til framkvæmda gébé—Rvik. — Tilraunaborun eftir heitu vatni i Súgandafirði hefur gefið mjög góðan árang- ur, og cf nægilegt fjármagn fæst, geta Súgfirðingar fengið hitavcitu næsta haust. Verk- fræðiskrifstofa Guðmundar G. Þórarinssonar hefur gert kostnaðaráætlun við fram- kvæmdir og nemur hún 158 milljónum. Tilraunaborun lauk um mánaðamótin októ- ber—nóvember, en vitað er að það þarf að bora meira, — eða niður á eitt þúsund metra. Þá er einnig gert ráð fyrir tveim bor- holum, annarri til að dæla úr en hinni til vara. Ólafur Þórðarson oddviti á Suðureyri sagði i gær, að nú i haust hefði verið borað niður á 500-600mtr dýpiog hefði hiti þar reynzt vera 62 gráður, og úr hol- unni streymdu 24 sekúndulitrar vatns. — Það helur mælzt meiri hiti neðar sagði Ólafur, en það þyrfti að fara niður i 1000 mtr, og þar gerum við okkur vonir um að vatnið sé 70-80 gráðu heitt. Það hefur mikið að segja upp á hagkvæmni ef hitinn er meiri, en þá þarf jú minna að dæla. — Verkfræðiskrifstofa Guðm. G. Þórarinss., var fengin til að gera kostnaðaráætlun við framkvæmd verksins, og i henni er gert ráð fyrir 2 borholum og einnig reiknað með 15% verð- bólgu, þannig að upphæðin — 158 milljónir ættu að geta staðizt næsta ár, sagði oddvitinn. Það liggur ljóst fyrir, að þetta verð- ur arðbært og verður gert ef fjármagnið fæst. Leitað mun verða til Sambands isl. sveitar- félaga, byggðasjóðs og orku- sjóðs um lán til verksins.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.