Tíminn - 09.01.1976, Blaðsíða 1

Tíminn - 09.01.1976, Blaðsíða 1
Leiguf lug—Neyðarf lua HVERTSEM ER HVENÆR SEM ER FLUGSTÖÐIN HF Símar 27122-11422 nn C 6. tbl. — Föstudagur9. janúar 1976—60. árgangur MNGIRf Aætlunarstaðir: Blönduós — Sigluf jörður ! Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur Gjögur — Hólmavík Hvammstangi — Stykkis- hólmur —Rif Súgandafj. Sjúkra- og leiguflug um allt land Símar: 2-60-60 & 2-60-66 Framhald ásiglinga brezkra herskipa á íslenzk varðskip leiðir til stjórnmálaslita — Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins kallaður til viðræðna og málstað íslands fylgt fast ir hjá Atlantshafsbandalaginu og Öryggisráði S.Þ. A FUNDI rikisstjórnarinnar i gærmorgun var rætt um það alvarlega ástand, sem rikir á tslandsmiðum vegna flotaihlutunar Breta og ólöglegra veiða brezkra togara innan 200 milna fiskveiðilandhelg- innar. Teiur rikisstjórnin einsýnt, að framhald ásiglinga brezkra herskipa á islenzk varðskip leiði til stjórnmálasiita við Bretland, segir i fréttatil- kynningu rikisstjórnarinnar i gær. A fundi rikisstjórnarinnar i gær var tekin ákvörð- un um eftirfarandi: 1. Ráðuneytisstjóri utanrikisráðuneytisins niun fara sem fulltrúi rikisstjórnarinnar til höfuð- borga Atlantshafsbandalagsrikjanna i Evrópu og gera ásamt sendiherrum islands rikisstjórn- um þeirra grein fyrir þvi alvarlega ástandi, sem skapazt hefur vegna ólögmætrar valdbeitingar brezka flotans, og leita eftir stuðningi þeirra á vettvangi Atiantshafsbandalagsins. 2. Sendiherrar islands hjá Sameinuðu þjóðunum og i Bandaríkjunum og Kanada munu koma heim I þvi skyni að undirbúa frekari kynningu málstaðar isiands gagnvart þeim rikjum, sem eiga sæti i Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, og ríkisstjórnum Bandarikjanna og Kanada. 3. Sendiherra islands hjá Atlantshafsbandalaginu mun krefjast fundar i fastaráði bandalagsins og itreka kæru islands oggreina frá siðustu atburð- Óskað verður eftir þvi við Joseph Luns, fram- kvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, að hann komi hingað til lands til viðræðna við rikis- stjórnina. Að lokinni kynningu málsins gagnvart Atlants- hafsbandaiagsrikjunum mun að nýju krafizt fundar i fastaráði bandalagsins. SUNNA FÆR AÐ STARFA ÁFRAM MÓ—Reykjavik — Samgöngu- ráðuney tið hefur fallið frá ákvörðun sinni um að afturkalla ferðaskrifstofuleyfi Ferðaskrif- stofunnar Sunnu frá 15. jan. n.k. Akvörðun þessi er tekin vegna þess að siðan ferðaskrifstofuleyf- ið var afturkallað, hefur ferða- skrifstofan staðið viö allar skuld- bindingar sinar við þá einstakl- inga, sem greitt höföu Sunnu verulegar fjárhæðir upp i vænt- anlegan ferða- og dvalarkostnað. Einnig hefur komið fram, að færðar hafi verið á skrifstofuna 25,0 millj. kr., sem tilheyrðu Air Viking h.f. Auk þess hefur Sunna greitt skuldir að fjárhæð um 14,1 millj. kr. Þar af 9,3 millj. kr. vegna fyrirframgreiðslna inn á farnar ferðir eftir 8. des. s.l. Sem kunnugt er var ferðaskrif- stofuleyfið afturkallað með tilliti Tillögur vinnu- veitenda > ® til niðurstöðutalna efnahagsyfir- lits fyrir Ferðaskrifstofuna Sunnu h.f. frá 30. nóv. sl. Taldi ráðuneyt- ið ekki ástæðu til annars en að byggja mætti á þessum niöur- stöðutölum. Taldi það sér skylt að haga aðgerðum sinum þannig, að þær rækjust sem minnst á hags- muni þeirra mörgu, sem greitt höfðu Sunnu verulegar fjárhæðir upp i væntanlegan ferða- og dval- arkostnað. Sú ákvörðun ráðuneytisins að falla frá fyrri ákvörðun, er bund- in þeim skilyrðum, að bráða- birgðayfirlit um efnahag og rekstur Sunnu fyrir árið 1975 verði lagt fyrir ráðuneytið eigi siöar en um næstu mánaðamót. Endanlegir reikningar verði siðan afhentir ráðuneytinu fyrir 1. april. Enn fremur fái ráðuneyt- ið mánaðarlegt yfirlit um stöðu Sunnu, meðan ekki liggja fyrir niðurstöður úr rannsókn þeirri, sem Alþýðubankinn óskaði eftir. Viðtal við utanríkisráðherra: Verðum að gera ýtrustu ráðstaf- anir til að ná rétti okkar F.J.—Reykjavik — í sambandi við atburði þá, er nú siðast hafa gerzt á miðunum, þar sem það sýnist vera ásetningur brezka flotans að sigla n'iður islenzk varðskip, án tillits til þeirra slysa og jafnvel manntjóns, er af þvi kynni að leiða, leitaði blaðið umsagnar Einars Agústssonar utanrikisráðherra. Utanrikisráðherra hefur und- anfarnar vikur dvalið á sjúkra- liúsi vegna afléiöinga gamalla meiðsla, cn er nú á góðum bata- vcgi og væntanlegur aftur til starfa fljótlega. Utanrikisráðherra hafði þetta um atburðina að segja: — Mér blöskrar að sjálfsögðu sú dæmalausa ósvifni og litils- virðing fyrir lifi og limum is- lenzkra löggæzlumanna, sem brezki flotinn hefur sýnt að und- anförnu. Ljóst er, að við getum ekki horft á slikt aðgerðalausir. Við verðum að gera ýtrustu ráð- stafanir til að ná rétti okkar á alþjóðavettvangi. Kemur þá að minu mati helzt til greina auk- inn þrýstingur og áherzla i þeim alþjóðasamtökum, sem við erum aöilar að, einkum Sam- einuðu þjóðunum og Atlants- hafsbandalaginu, og hefur utan- rikisráðuneytið þegar gert ráð- stafanir til þess. Að öðru leyti visa ég til álykt- unar rikisstjórnarinnar, sem ég er samþykkur. 280 þúsund tonn nú þýða sama aflamagn næsta úr MÓ—Það er um tvo valkosti að ræða til verndunar þorskinum, sagði Sigfús Schopka fiskifræð- ingur I viðtali við Timann i gær. Fyrri kosturinn er sá, sem fram koin i svörtu skýrslunni, að einungis yrðu veiddar 230 þús. lestir af þorski á þessu ári, og mætti þá veiða 295 þús. lestir á næsta ári og 370 árið 1978. Vcrði hins vegar veiddar 280 þús. iest- ir á þessu ári, er ekki hægt að veiða nema sama magn næsta ár og minna magn 1978 heldur en með þvi að fara að fyrri til- lögunum. Þaðer þvi ljóst, að lengri tima tekur að ná fiskistofninum upp á nýjan leik með þvi að á þessu ári verði veiddar 280 þús. lestir. A siðasta ári mun þorskafli ts- lendinga hafa verið 230-240 þús. lestir, og þar til viöbótar kom það, sem erl. þjóöir veiddu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.